Morgunblaðið - 26.05.1996, Page 10
10 E SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
kálaó í sól
og sungið við varðeld
W ETTA var algjört ævintýri,“
m Jsagði Hulda Steingríms-
M -^dóttir, þegar við báðum
hana um að rifla upp dag-
inn sem hún og Jón Gauti Jónsson
gengu í það heilaga. „En við tókum
áhættu," bætti hún við, „því við gift-
um okkur á Þingvöllum og héldum
svo veisluna úti undir berum himni
við sumarbústað, sem föðuríj'ölskylda
Gauta á.“ - Við bentum henni var-
lega á að þetta væri aðeins meira
en „áhætta“ - þetta kallaðist að tefla
á tæpasta vað. „Enda leit þetta ekki
glæsilega út, svona til að byija með,“
sagði Hulda og hló. „Við vöknuðum
í grenjandi rigningu og nístandi
kulda í Reykjavík og það var ekki
laust við að maður fengi svolítinn
hnút í magann,“ viðurkenndi hún.
Brúðguminn
gleymdi skyrtunni
„Síðan keyrðum við austur og þá
kom í ljós að Gauti hafði gleymt
skyrtunni sinni í bænum. Hann gifti
sig í íslenska þjóðbúningnum og um
tíma leit út fyrir að hann yrði að
vera í stuttermabol og með slaufu,“
sagði hún. „En eiginmaður staðar-
prestsins bjargaði okkur á síðustu
stundu og lánaði Gauta skyrtu. Séra
Auður Eir gaf okkur svo saman og
hún var alveg yndisleg. Við vildum
hafa athöfnina létta og persónulega
og það var hún svo sannarlega. Vin-
ir okkar sáu um allan tónlistarflutn-
ing; söng, orgel- og gitarleik," sagði
Hulda, „og það gerði þetta enn nota-
legra - þetta var okkar brúðkaup -
okkar fólk,“ útskýrði hún.
Yndisleg útihátíð
„Nema hvað, þegar við gengum
út úr kirkjunni braust sólin í gegnum
skýin og hún skein það sem eftir var
helgarinnar. Þetta var lyginni lík-
ast,“ sagði Hulda og brosti út að
eyrum. „Síðan sigldum við í gömlum
„mahogny" bát frá kirkjunni og í
bústaðinn, þar sem veislan var hald-
in. Mamma var búin að baka einhver
lifandis býsn af brauðum, tengda-
móðir mín kom með alls konar osta
og ávexti - og saman sáu þær um
allan matinn; alls konar salöt og
pinnamat. Við höfðum keypt fullt af
köflóttum, svolítið sveitalegum dúk-
um og helling af garðblómum sem
við komum fyrir svona hér og þar,“
rifjaði hún upp. „Þetta var bara ynd-
isleg útihátíð; þar sem fólk sat á
teppi úti í laut, skálaði í sólinni og
spjallaði saman,“ bætti hún við dálít-
ið dreymin á svip. „Þetta tókst ótrú-
lega vel og það er fyrst og fremst
fjölskyldum okkar og vinum að
þakka. Þau lögðu á sig alveg ómælda
vinnu við að gera þennan dag
ógleymanlegan," sagði hún og þakk-
lætið leyndi sér ekki. „Við eigum svo
ofboðslega góða að.“
Karlakór og „Kjarrvals"
„Undir kvöld fór gestunum fækk-
andi en þeir sem eftir voru slógu upp
tjöldum og skiptu um föt; fóru í úti-
legugallana," sagði Hulda. „Vinur
okkar sem var veislustjóri tók niður
nöfn þeirra, sem ætluðu að gista og
raðaði fólki til borðs og síðan var
borin fram heit súpa. Ræðuhöld og
íjöldasöngur fylgdi í kjölfarið og
karlakórinn Huldumenn flutti frum-
samdar vísur um okkur brúðhjónin
og svo steig vina-hljómsveitin á svið
og lék brúðarvalsinn sem var saminn
HULDA og Gauti orðin hjón og þá fór sólin að skína.
fyrir okkur sérstaklega, „Kjarrvals-
inn“. Þá var dansað dágóða stund
og um miðnætti settust menn við
varðeldinn. Klukkan var hinsvegar
farin að halla í tvö þegar við yfirgáf-
um samkvæmið og fórum á Hótel
Valhöll þar sem við eyddum brúð-
kaupsnóttinni,“ sagði Hulda Stein-
grímsdóttir að lokum.
Greinilega
DENBY
F'allegt vandað, sterkt
Söluaðilar:
Te & kaffí, Reykjavík
Gjafabúðin, Akureyri
Verslunin Straumar, ísafirði
Gjöf og kaffi, Hafnarfirði
Brúðkaup
haldið í tjaldi
EF EINHVERJIR lesendur eru
komnir í rómantískar hugleið-
ingar eftir lestur um brúðkaup
og blúndur og salarkynni upp-
tekin er ekki öll nótt úti. Það
er bara að finna góða gang-
stétt eða grasflöt og bjóða fólki
í tjaldbrúðkaup. Hérlendis hef-
ur það færst í vöxt að fólk slái
upp tjaldi og bjóði vinum og
vandamönnum til veislu.
Skemmtilegt heitir fyrirtæki
sem leigir tjöld i ýmsum stærð-
um eða allt upp í hundrað
manna tjöld. Fólk getur bæði
sett upp tjöldin sjálft eða feng-
ið mann til þess og síðan má
leigja tréborð, bekki og stóla
ef vill.
Þá hefur fyrirtækið Meistarinn
á sínum snærum sérstakan
grillbíl sem hægt er að fá í
veisluna og sér þá matreiðslu-
maður um að grilla fyrir gest-
ina.
W EGAR hún vaknaði á þrít-
W Jugsafmælisdaginn sinn í
m ■^október bar hann bónorðið
JL formlega upp og 22. júní
næstkomandi stendur til að ganga
upp að altarinu.
„Við vorum búin að þekkjast nokk-
uð lengi áður en við fórum að vera
saman en fyrir nokkrum árum fórum
við að búa og svo er væntanlegt
brúðkaúp beint framhald af þessu,“
segir María Steingrímsdóttir en hún
og Kjartan Olafur Sigurðsson eru
þessa dagana að undirbúa brúðkaup-
ið sem fer fram í Háteigskirkju.
„Ég valdi Háteigskirkju því mér
finnst hún svo falleg en Kjartan fékk
að velja prestinn, sr. Vigfús Þór
Arnason, sem er fjölskylduvinur. Við
ákváðum að byrja snemma að und-
irbúa brúðkaupið, salir eru pantaðir
með margra mánaða fyrirvara og
það er að ýmsu að huga fyrir brúð-
kaup.“
Mátaði tugi kjóla
María segir að hún hafí örugglega
mátað 30 kjóla á brúðarkjólaleigum
áður en hún fann rétta kjólinn. „Ég
var búin að finna einn kjól og það
var nákvæmiega sami kjóll og systir
mín gifti sig í fyrir tveimur árum.
Enginn hafði leigt kjólinn í millitíð-
inni svo mér fannst það tilvalið. Eft-
ir nokkra umhugsun féll ég frá því
að vera í sama kjólnum og fann
annan. „Það kom síðan á daginn að
systir mín hafði einmitt verið að velta
honum fyrir sér líka þegar hún var
að leita á sínum tíma.“
María segir það kosta 22.000
krónur að leigja kjólinn í einn sólar-
hring, þá fyrir utan skó, hárskraut
og annað slíkt.
- Finnst ykkur dýrt að standa í
þessu?
„Þetta kostar töluvert en við erum
svo heppin að njóta aðstoðar foreldr-
anna sem gerir okkur mögulegt að
hafa brúðkaupið eins og okkur lang-
ar til.“
Systir Maríu sér um greiðsluna,
en María vill hafa lifandi blóm í hár-
inu, vendinum og á tertunni og hafa
samræmi þar á milli. Veislan verður
haldin í Mánabergi í Lágmúlanum
og gestir eru liðlega hundrað. Búið
er að ganga frá því hvaða veitingar
eiga að vera og hvernig salurinn
verður skreyttur.
Boðskortin eru líka tilbúin, búið
að panta ljósmyndara, athuga með
bíl frá kirkjunni, til ljósmyndarans
og í veisluna, verið að smíða hring-
ana og í raun er allt að verða tilbúið
fyrir þennan stóra dag.
- Eruð þið með óskir um gjafír?
„Nei, einhverra hluta vegna hentar
það mér ekki að vera með lista í
búð,“ segir María. „Það er hugurinn
að baki sem skiptir máli og ef gest-
irnir hafa valið hlutina sérstaklega
fyrir okkur þá held ég að þeir fái
sérstáka merkingu."
- Á að fara í brúðkaupsferð?
„Já, við ætlum að halda til Mall-
orca og njóta lífsins þar,“ segja þau.
Fyrirgefning er mótefni sálar-
innar gegn hatri, reiði og
gremju.
Þakklæti er að kunna að gefa
og þiggja og sýna gleði yfír
hvorutveggja.
Virðing felst í því að hafa
jafnmikinn áhuga á vellíðan
annarra og eigin.
Hrokinn yfirbugar engan nema
eiganda sinn. Auðmýktin ber
aftur á móti sigurorð af öllu
nema sjálfri sér.
Að rækta garðinn sinn er að
rækta vini sína og elska aðra.
Traust og ást eru, hafa verið
og verða alltaf máttarstólpar
vináttunnar.
Uppalandinn er sáðmaðurinn á
akri barnsins, samfélagið er
tíðarfarið.
Sá sem breytir eftir heiðarleg-
um manni, bætir ekki aðeins
sjálfan sig, heldur heiminn all-
an.
Gunnar Hersveina
IBRUÐKAUPIÐ
Jakkor -Pils -Kjólar -Dragtir
tískuverslun
Rauðarárstíg 1 sími 561 5077
Morgunblaðið/Halldór
MARÍA og Kjartan Ólafur sem ganga í það heilaga í júní.
Formlegt
bónorð ó af mælisdaginn