Morgunblaðið - 26.05.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 E 11
inn og kokkinn. „Ja, það er nú allur
gangur á því,“ sagði Svala þegar
við bárum þetta undir hana. „í fyr-
rasumar vorum við hér á miðviku-
degi með fulla búð af brúðum þeg-
ar skyndilega kemur inn ungt par;
leðurklætt frá toppi til táar. Strák-
urinn var með fullt af eyrnalokkum
í eyranu og bæði með mótorhjóla-
hjálm á höfðinu. Það sló þögn á
mannskapinn í búðinni, enda pass-
aði þessi búningur einhvern veginn
ekki inn í stemmninguna,“ sagði
hún og hló að endurminningunni.
„Þau spurðust fyrir um kjól sem
var í glugganum hjá okkur og vildu
fá að vita hvort þau gætu leigt
hann næsta laugardag. Fyrirhyggj-
an var nú ekki meiri hjá þeim. En
viti menn, kjóllinn var laus og ekk-
ert því til fyrirstöðu að leigja þeim
hann. Þau sögðust hafa keyrt fram-
hjá glugganum eitthvert kvöldið og.
séð þennan kjól. Þau stoppuðu og
skoðuðu kjólinn og hann bað hana
um að giftast sér í þessum kjól.
Og þau voru svo falleg og fín .. .“
sagði Svala og það leyndi sér ekki
að henni fannst hún eiga svolítið í
þessum hjónum. „Svo fékk hún víst
mótorhjól í morgungjöf," sagði hún
og hló. Köttur úti í mýri, setti upp
á sig stýri.. .
Handbróderaðir kjólar
samkvæmt 500 ára hefð
Sjöfn Kolbeins, verslunarstjóri í
Monsoon, segir að þar sé hægt að
fá brúðarkjóla á mjög viðráðanlegu
verði. „Þeir eru handbróderaðir eft-
ir 500 ára indverskri hefð. Stuttu
perlu- og pallíettukjólarnir kosta
13.000 hjá okkur og síðu kjólarnir
16.000-17.500. Svo erum við líka
með stóra, síða silkikjóla á 15.000
krónur,“ upplýsti hún.
Á árshátíð
í brúðarkjólnum
„Það hefur færst í vöxt að konur
vilji gifta sig í einhvetjum öðrum
lit en hvítum," fullyrti Sjöfn, „sér
í lagi þær, sem komnar eru með
fjölskyldu eða búnar að búa með
manninum lengi. Þær gifta sig
ýmist í ljósum eða dökkum kjólum;
t.d. fölbleikum eða dumbgrænum.
Þá kjóla er jafnvel hægt að nota
áfram - gifta sig með pompi og
prakt og mæta síðan á næstu árshá-
tíð í brúðarkjólnum. Ekkert mál,“
sagði hún.
Ólíkir draumar
En hvað er það sérkennilegasta
sem Sjöfn hefur séð í brúðkaups-
málum? Hún hugsaði sig um dágóða
stund en mundi ekki eftir neinu sem
hún hefði orðið sérlega hissa á.
„Það þarf reyndar svolítið mikið til
að ganga fram af mér,“ útskýrði
hún. „Mér finnst allt svo sniðugt
sem fólki dettur í hug. Það er bara
ofboðslega gaman að fylgjast með
fólki undirbúa drauminn sinn; vinna
að því að láta hann rætast,“ sagði
hún. „Þetta gera þær langflestar;
þær eru búnar að láta sig dreyma
um brúðkaupið sitt frá blautu
barnsbeini og þegar kemur að því
að láta hann rætast þá láta þær
ekkert og engan hafa áhrif á sig.
Þess vegna held ég að það sé ekki
hægt að tala um neina tískustrauma
í þessu sambandi - bara mismun-
andi smekk; ólíka drauma,“ sagði
Sjöfn.
Mamma vill að draumur
dótturinnar rætist
„Nei, þessi goðsögn um freku,
afskiptasömu mömmurnar er tómt
bull,“ fullyrti Ragnheiður Guð-
mundsdóttir í Brúðarkjólaleigunni
Rómó í Keflavík, þegar við spurðum
hana hvort átök væru algeng milli
brúðanna og mæðra þeirra þegar
verið væri að máta hvítu kjólana.
„Reyndar er það mjög algengt að
mamma komi með og aðstoði dóttur
sína við valið - enda vilja jú flestar
konur hafa mömmu með í ráðum á
þessum - sem og öðrum - merkum
tímamótum. En yfirleitt á mamma
bara þá ósk heitasta að draumur
dótturinnar verði að veruleika; „litla
stelpan hennar" fái það brúðkaup
sem hana hefur alltaf dreymt um,“
sagði hún og brosti. „Og þær eru
sko reiðubúnar að leggja á sig ótrú-
legustu hluti til að svo megi verða,"
bætti hún við og lagði áherslu á
hvert orð. En hver er þá draumur
litlu stelpunnar, sem er um það bil
að verða ráðsett eiginkona? „Það
fer nú svolítið eftir aldri“ sagði
Ragnheiður. „Þær sem eru 18-25
ára falla gjarnan fyrir stóru, hvítu,
perlusaumuðu kjólunum meðan hin-
ar sem eru eldri en 25 velja ýmist
hvíta eða „kremaða" kjóla. Þær eru
flestar hrifnastar af blúndúkjólum
með frekar grófum blúndum, sem
eru mikið í tísku í dag,“ upplýsti
hún. Ragnheiður hló þegar við
spurðum hana hvort litavalið færi
að einhveiju leyti eftir barnafjölda
brúðhjónanna. „Nei, það held ég
ekki - fjögurra barna mæður hika
ekkert við að gifta sig í hvítu,“
sagði hún.
Litlar mörgæsir
og fermingarföt
Það er ekkert brúðkaup án brúð-
guma - en hvernig munu þeir
mæta frammi fyrir altarinu í sum-
ar? „Það er ekki mikið um byltingar
í þeirri tísku,“ sagði Ragnheiður.
„Ætli þeir verði ekki bara í kjólföt-
um eða smóking. Það fer svolítið
eftir því hversu háir þeir eru,“
bætti hún við. Við héldum að nú
hefði okkur misheyrst svo við hváð-
um. „Það fer eftir hæð brúðgu-
mans,“ endurtók hún eins og þetta
væri bara fullkomlega eðlileg at-
hugasemd. Sennilega hefur hún séð
undrunarsvipinn því hún flýtti sér
að útskýra þetta nánar; „Sko, há-
vöxnu mennirnir vilja kjólföt en
þeir sem minni eru velja sér smók-
ing.“ Enn vorum við ekki alveg með
á nótunum svo við spurðum einfald-
lega; „Af hveiju í ósköpunum?" -
„Lágvöxnu mönnunum líður víst
eins og litlum mörgæsum í kjólföt-
unum,“ sagði hún í trúnaðartóni.
„Svo þeir fara bara í smókinginn
og láta sér líða vel. Um tíma leit
út fyrir að íslenski karlmanns-hátíð-
arbúningurinn myndi ryðja sér til
rúms í brúðkaupum landans en svo
fóru fermingardrengirnir að ferm-
ast í þessu og nú er því miður al-
gengt að maður heyri menn fúlsa
við því að gifta sig í einhveijum
„fermingarfötum“,“ sagði Ragn-
heiður að lokum.
Inger Anna Aikman
Dlh CouRtQf %&$m
Konunglegt breskt „bonc cbina" postulín frá Royal Albert.
Vcrð pr. kaffíbolla kr. 1.680.
Míkíð úrval af
fallegum borðbúnaðí
og gjafavöru.
Brúðargjafalístar.
GUÐÚAUGUR A. MAGNUSSON
I auyavaj! 22a, 101 Raykjavlk - lcoland
VEISLUSALUIL
FÓSTBRÆÐRA
rÓITBRyCORAHEIMIUNU, LANQHOLTBVCQI 109-1 1 1
'J7Z
Æá
Setjum nöfn, dagsetningar ofl. á
glös og skreytum jyrir brúðhjónin,
afmœlisbarnið, studentinn ofl
svo og aðra glervöru.
Höfum einnig á okkar snærum skrautritara
fyrir bodskortin , gestabœkurnar o.þ.h.
Ath.lokaó vegna sumarleyfa,
I.-lS.júlíog allan október 1996.
:U—>
(juómunda Ragna \
S:567~1510 S:5 6-1-1022
eftir kL 18,00
' • ; •'
.f
f j
m jr» %
Æ| | W
SééeAém
— ueglegxvt koAtivt í aeioíuna
Við minnum á okkar vinsælu ostakökur. sem vekja ánægju
bæði þeirra eldri og yngri og gefa veislunni hátíðlegt
yfirbragð. Ostakökurnar eru sérbakaðar og í glæsilegu
úrvali, ætlaðar 12-16 manns hver. Þær eru seldar á bakka
með hjálmi yfir.
Þá bjóðum við að sjálfsögðu geysilegt úrval osta og allt til
ostaveislunnar.
Opið laugardaginn 23. mars!
Við höfum opiö í Ostabúðinni að Bitruhálsi 2, laugardaginn
23. mars milli kl. 10 og 16. Þá verður liægt að bragða á
ostakökunum og leggja inn pantanir. Allir velkomnir!
Pantanir í síma:
569 1652 eða 569 1616
OSTA OG
SMjÖRSALAN SF