Morgunblaðið - 26.05.1996, Síða 14

Morgunblaðið - 26.05.1996, Síða 14
14 E SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Brúðguminn skyldur hans fyrir giftingu TlIL þess að koma í veg fyrir misskilning af versta tagi er rétt að hjónaefnin taiist við um ástalíf og hjónaband áður en þau giftast. Ef þá kemur í ljós, að um algeran skoðanamun sé að ræða, ættu þau að hætta við giftinguna, því að ef róttækur skoðanamunur í kynferðis- málum ríkir á milli hjóna, er hjóna- bandið fyrirfram dæmt til hruns, eins og hús, sem reist er á tveim mismunandi undirstöðum. Ef brúð- urin skyldi vera of fáfróð um þessi efni, ber brúðgumanum að sjá um, að hún verði upplýst. Ef brúðurin er kvíðafull, ber brúðgumanum að fullvissa hana um að hann kunni full skil á andlegri og líkamlegri sérstöðu konunnar og hann muni fara að henni með fullri nærgætni. Úr hjónarúminu á vitfirringahælið Ung stúlka, sem var þekkt fyrir alúðlegt viðmót og viðkvæmt tilfinn- ingalíf gifti sig með hinum besta ásetningi, en fullkomlega fákunn- andi. Hvorki foreldrum hennar né brúðgumanum fannst taka því að ganga úr skugga um viðhorf stúlk- unnar til væntanlegrar hjónabands- reynslu. Þegar brúðguminn krafðist vilja síns á brúðkaupsnóttina, komst hún gersamlega úr jafnvægi við hina „dónalegu“ kröfu. Hún missti ger- samlega vald á sér og tók til að bijóta húsgögnin í herberginu. Þjón- ustulið gistihússins þusti upp á her- bergið, þegar það heyrði hávaðann, og í stað þess að kalla á lækni, kall- aði það á lögregluna. Þrír lögreglu- þjónar réðust að hinni óðu stúlku og fluttu hana, særða og hálfnakta beint á vitfirringahæli. Berstrípaður í albjörtu herbergi Eftir tíu ára hjónaband leitaði kona nokkur lækninga við kyndoða og rifjaði þá upp framkomu eigin- manns síns á brúðkaupsnóttina. Hann kom til brúðar sinnar, sem hafði alizt upp í strangasta hreinlífi, berstrípaður í vel upplýstu herbergi. Það er því vel skiljanlegt að hún varð slegin slíkum ótta við þessa ógnþrungnu karlmennsku, að hún varðist árás hetjunnar af öllum mætti. Hann gerði nú nokkrar búra- legar tilraunir til þess að ná „rétti“ sínum, en er hvorki skipandi fortölur né handalögmál komu að haldi, þá sleppti hann fórnardýri sínu með hinni sígildu athugasemd: „Ef þú ætlar að hegða þér eins og fífl, þá er ég ekki að ganga á eftir þér.“ Hann gekk út úr hjónaherberginu, sem minnti frekar á hnefaleikasvið en paradís ástarinnar, fékk sér ann- að herbergi og mætti til morgun- verðar næsta dag móðgaður á svip. Auðvitað var þessi hræðilega nótt upphaf langvarandi truflana á sviði kynlífsins, sem varaði árum saman og komu fram í kyndeyfð, tíðatrufl- unum og sársauka við samfarir. Árangurslaust voru allskonar lækn- isaðgerðir reyndar, böð, ljós og að síðustu jafnvel uppskurður, en við sálgreiningu var hin sanna orsök leidd í ljós og þá sköpuðust skilyrði fyrir þolanlegri sambúð þeirra næstu tíu árin. Særið ekki blygðunartilfinningu brúðarinnar Fyrst ber að gæta þess að særa ekki blygðunartilfinningu brúðarinn- ar. Hann má ekki krefjast neinnar útsláttarsemi eða sýningar á kven- legum töfrum þessa nótt; öllu skal stillt í moll og rökkur. Hann ætti að lofa brúðinni að afklæðast í ein- rúmi og ekki koma til hennar fyrr en hún er háttuð. Hann ætti heldur ekki að afklæðast að henni ásjá- andi, heldur í næsta herbergi, ef mögulegt er, eða þá í myrkri, og halda þeirri reglu framvegis, ef auð- ið er. - Úr bókinni „Kynlíf" eftir Fritz Kahn sem gefin var út af Helgafelli í íslenskri þýðingu Jóns G. Nikulás- sonar 1948. Bað um hönd dótturinnar í votta viðurvist TAÐ VAR á Þorláksmessu M Vsem þeir bönkuðu upp á m ■■^hjá hjónunum Sigrúnu Andrésdóttur og Sigurði Þórðarsyni; sex prúðbúnir piltar í svolítið sérkennilegum erinda- gjörðum. Einn þeirra var sambýlis- maður dóttur þeirra sem kominn var að biðja sér konu í votta viður- vist. Áður en lengra er haldið er rétt að árétta að þetta var ekki á Þorláksmessu fyrir þijátíu og sjö árum - þetta var síðasta Þorláks- messa. Já, í fyrra - 1995. Þá er það á hreinu. Sigurður Líndal leiðbeindi mér „Já, ég er alveg svakalega íhaldssamur,“ viðurkenndi biðill- inn Arnar Jónsson þegar við spurðum hann hvort hann væri svolítið forn í eðli sínu. „Ég var alltaf staðráðinn í að gera þetta upp á gamla mátann, biðja tilvon- andi tengdaforeldra mína um að leggja blessun sína yfir ráðahag- inn. Þess vegna lagði ég heilmikið á mig til að kynna mér hvernig forfeður okkar fóru að þessu og leitaði meðal annars til Sigurðar Líndal lagaprófessors til að fá upplýsingar um lagalega hlið málsins," sagði hann. „Síðan fór ég ásamt fimm vottum til foreldra brúðarinnar þar sem ég hélt svo- litla tölu og gerði grein fyrir erind- inu,“ útskýrði hann og glotti út í annað. „Ég rökstuddi mál mitt með því að sambúðin hefði gengið afskaplega vel og því væri það tímabært að ég gengi að eiga heit- mey mína; Hrafnhildi Sigurðar- dóttur. Reyndar lét ég það fylgja með að í flestum okkar deilum hefði ég þurft að láta í minni pok- ann og því þætti mér það orðið brýnt að fá að staðfesta þá kirkj- unnar skikkan að konan skuli í hvívetna vera manni sínum undir- gefín,“ bætti hann við ábúðarfull- ur. „Ég afhenti foreldrum hennar skriflegt samþykki Hrafnhildar og síðan hélt talsmaður minn ræðu þar sem hann reifaði helstu kosti mína og galla,“ sagði Arnar, „bara svo þau vissu að hveiju þau gengju." Undirrituðu brúðarkaup En samþykktu þau þetta um- svifalaust? „Já, til allrar ham- ingju,“ sagði Amar og hló. „Um- svifalaust er kannski ekki rétta orðið því við trúlofuðum okkur uppi í Heiðmörk 2. janúar 1993 - daginn sem mamma mín hefði SIGURÐUR Þórðarson undirritar „brúðarkaupin". Biðillinn Arnar Jónsson er honum til hægri handar. HRAFNHILDUR Sigurðardóttir og Arnar Jónsson. orðið 45 ára. En í stuttu máli lögðu þau blessun sína yfir hjúskapinn og undirrituðu svokallað „brúðar- kaup“. Síðan var drukkið „kaupöl“ að fornum sið, sem var öndvegis koníak sem tengdafaðirinn tilvon- andi lumaði á inni í skáp,“ upp- lýsti hann. Þau Hrafnhildur Sig- urðardóttir og Arnar Jónsson munu því ganga í það heilaga þann 20.júlí nk. Ekki hægt að hugsa sér betri tengdason „Við urðum bara óskaplega undrandi, svo ekki sé nú meira sagt,“ sagði móðir brúðarinnar, Sigrún Andrésdóttir, er við inntum hana eftir því hvernig þau hefðu brugðist við þessari óvæntu heim- sókn rétt fyrir jól. „Við vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið þegar þessir prúðbúnu menn stóðu allt í einu inni í stofu hjá okkur og hófu að lesa upp hveija greinar- gerðina á fætur annarri,“ sagði hún og hló. „En við höfðum ofsa- lega gaman af þessu og það var mjög skemmtilegt að fá að taka svona þátt í þessu með þeim,“ bætti hún við. Én þurftuð þið ekk- ert að hugsa ykkur um áður en þið undirrituðuð brúðarkaupin? „Nei, ekki aldeilis,“ svaraði hún að bragði. „Við vorum sko ekki í nokkrum vafa - vitum sem er að betri tengdason er ekki hægt að hugsa sér,“ fullyrti Sigrún Andr- ésdóttir, móðir brúðarinnar Hrafn- hildar Sigurðardóttur sem ætlar að giftast Arnari Jónssyni þann 20. júlí.. . og það er sko skjalfest í bak og fyrir. ntmll Botiteji stflllmi Willy skenkur kr. 36.300 Willy fataskápur kr. 37.500 Willy skenkur kr. 44.600 Furusófasett 3 + 1 + 1 (Ath. annað áklæðí en Kr. 97.300. Vandaður hornsófi úr (Ath. annað áklæði en á mynd) Kr. 107.800. Sófaborð kr. 22.800. Willy hilla kr. 23.200 '~yírírd<ir/ýóMa(fa Opið virka daga kl. 13 - 17 og laugardaga kl. 13 - 16. Gránufélagsgötu 4,2.haeð. 600Akureyri Síml 462-7010. Glæsilegir brúðarkjólar; brúðarmeyjakjólan kjólföt smókingar á herra og drengi, undirfatnaður, skór, skart o.fl Samkvæmiskjólar til SÖlu Og leigu. Glæsilegar dragtir nýkomnar. Blað allra landsmanna! - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.