Morgunblaðið - 26.05.1996, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 26.05.1996, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 E 15 GEORG sker kökuna með Margréti - alsæll en grunlaus um hvað beið hans í brúðkaupsferðinni. Heimilislífid bókstaflega væmið eftir brúðkaupið AÐ var eiginlega Dóra, bróðurdóttir mín, sem ákvað þetta; heimtaði hjónavígslu í júní 1994,“ sagði Margrét Blöndal, dagskrár- gerðarmaður um brúðkaup sitt og Georgs Magnússonar tæknimanns. „Svo við náttúrulega gerðum eins og okkur var sagt og giftum okkur þann 25. júní það ár,“ bætti hún, við rétt eins og orð Dóru væru lög, sem mönnum væri hollast að hlýða. „Læt- urðu alltaf svona vel að stjórn?“ spurðum við furðu lostin og hún horfði á okkur og svaraði blátt áfram; „Já.“ Svo hló hún og bætti við; „Nei, Dóra býr sko á Möltu og henni fannst bara upplagt að við kæmum til henn- ar i brúðkaupsferð. Sem við og gerð- um.“ Vandvirkur prestur „Við giftum okkur í Grundarkirkju í Eyjafirði og það var sr. Hannes Örn Blandon sem gaf okkur saman,“ upplýsti Margrét. „Eg er þeirrar skoðunar að hann hafi vandað sig alveg sérstaklega því við Georg höf- um aldrei rifist síðan við urðum hjón og heimilislífið er bókstaflega væm- ið,“ bætti hún við og lagði áherslu á hvert orð. mér rækjur. Þá fyrst dró nú til tíð- inda,“ sagði hún og andvarpaði. Georg fékk samúðina „Sólarhring seinna veiktist ég svo hastarlega að ég hélt í alvöru að ég væri með a.m.k. fimmtíu stiga hita. Þess á milli fékk ég kölduköst; nötr- aði og skalf. Ég hef aldrei á ævi minni orðið svo hryllilega veik,“ full- yrti hún. „Ég hélt að þetta væri bara heiðarleg matareitrun og gerði allt sem manni hefur verið kennt að gera í þannig tilfellum. Ég drakk koníak því einhver sagði að það dræpi öll svona kvikindi... en allt kom fyrir ekki,“ sagði Margrét og hryllti sig. „Daginn eftir urðum við að fljúga til London og þar vorum við í tvo sólarhringa. .. sem ég man ekkert eftir. Mig rámar í leigubílstjórann sem keyrði okkur út á flugvöll; grá- hærðan, gamlan^ hippa... en það er allt og sumt. A flugvellinum skalf ég svo svakalega að Georg varð að halda utan um mig og aðrir farþegar litu á hann samúðarfullum augum; sannfærðir um að hann væri að bjarga mér úr sollinum í London," sagði hún. „Ég gleymi því aldrei hversu vel var tekið á móti mér um leið og ég kom um borð í Flugleiðavélina. Flug- freyjan var bókstaflega yndisleg. Hún vafði mig inn í teppi, færði mér vatn og verkjatöflur og nostraði við mig alla leiðina. Ég man að mér fannst hún besta kona í heimi og ég held ég hafi aldrei fengið _aðra eins ást á ókunnri manneskju. Ég var því miður of veik til að grennslast fyrir um hver hún væri en ef hún les þetta má hún vita að framkoma hennar var mér ótrúleg hjálp. Mér fannst ég vera komin heim,“ sagði Mar- grét. Það þarf væntanlega ekki að taka það fram að brúðurin var flutt á spítala um leið og heim var komið og það tók eina þijá mánuði að glíma við salmonellu-sýkinguna. Hvað segir maður eftir svona sögu? „Fall er fararheill?" - „Já, blessuð vertu,“ sagði Margrét, „fyrst Georg skilaði mér ekki eftir þetta allt saman þá þolir hann nú ýmis- legt, blessaður karlinn.. . því það væri synd að segja að ég hefði verið hin dæmigerða „draumabrúður“,“ sagði Margrét Blöndal og brosti út í annað. /aa Flugu til Möltu „Brúðkaupið var lítið og látlaust - þetta vorum bara við, börnin okk- ar og okkar nánasta fjölskylda," sagði Margrét. „Tveimur dögum seinna flugum við svo til Möltu, sem er alveg unaðslegur staður. Við skoð- uðum eyjuna, sleiktum sólina og nutum þess að vera til. Síðan fórum við út að borða á lítinn sveitastað og ég gerði þau reginmistök að panta Brúðhjón Allm borðbiínaður Glæsilcg gjdfavara Bniðarhjona lislar VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Skíðask álinn Hveradölum f'..ýiý býciur upp á ógleymanlcga Uvöhlstund zlskenclur í friösœld og fegurÓ á stað sem á hvergi sinn Jíhan. Brúðhjón og gestir feirra eiga möguleika á flciru en frábœrum mat og fjónustu. T.d. bjóðum við beita potta og hveragufubað, hcstaferðir og gönguJciðir. Hljómsveitir og tónh'stannenn t.d. Óli hannonikhuleiharí eru aldrei langt undan f>egar shapa f>arf rátla andrúmsloftið, Ijúfa dinnertónlist eða syngjandi sveifla á dansgólfinu. erasvœðið gefur dulúðuga stemmningu og norðurljósin shina shœrt á himni. Gestir Shíðashálans uppJifa glæsileiha náttúrunnar og elshendur njóta sín í rómantíshu umhverfinu. Kvöldstund elshendanna í Shíðash álanum er 5glcymanlegt œvintýri! m Zrbií gjtivœ&rtmUilfinmM tcfti i Itif cuf brncfetrxjöj? i 'jTjuni'!99í( í j $júrtlB94 j Merkjum glös brúðhjónanna. Verð frá kr. 500 á glas. Gjafalisti brúðhjónanna. Gj afakort. Lánum heim myndband með sýnishorni af glæsilegu úrvali verslunarinnar. Borgarkringluntii sími 553 6622

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.