Morgunblaðið - 26.05.1996, Side 20
20 E SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BJÖRG KRISTÍN SIGÞÓRSDÓTTIR lauk námi sem kökugerðar-
meisari frá Tekniske skolen í Ringsted árið 1994. Hún lærði
síðan hjá Jorgen Sögaard Jensen í Kransakökuhúsinu í
Kaupmannahöfn. Björg starfaði hjá Bakarameistar-
anum í Suðurveri bæði fyrir nám og eftir að
því lauk. Hún er nú framkvæmdastjóri og
annar eiganda fyrirtækisins íslandsmats
sem sérhæfir sig í kökum og eftirrétt-
um fyrir veitingahús og verslanir.
JÖRGEN ÞÓR ÞRÁINSSON mat-
reiðslumeistari lauk námi frá
Hótel og veitingaskóla ís-
lands árið 1987 og
lærði iðnina á veitinga-
húsinu Við sjávarsíð-
una. Hann hefur síðan
unnið á ijölda veitinga-
staða hér heima og
erlendis. Jörgen hefur
unnið sem ráðgjafi við
rekstur stóreldhúsa og
veitir nú forstöðu fyrir-
tækinu íslandskosti hf. sem
er ráðgjafa-, og veisluþjón-
ustufyrirtæki
Brúökaupsveislan að
hætti Bjargar K. Sigþórs-
dóttur kökugerðar-
meistara og Jörgens
Þ. Þróinssonar
matreiðslu-
meistara
í dönskum stíl í brúðkaupsveislunn
Morgunblaðið/Þorkell
ÖRG Kristín Sigþórsdótt-
ir og Jörgen Þór Þráins-
son þurfa ekki að hugsa
sig um þegar þau eru
spurð hvemig brúðkaupsveislu þau
myndu setja upp fyrir brúðhjón.
Kaffíhlaðborð.
„Við erum bæði með matar- og
kaffíveislur og sé um það síðar-
nefnda að ræða í brúðkaupsveislu
er ýmislegt á boðstólum, snittur,
brauðtertur, nokkrar tegundir af
frómastertum, súkkulaðitertur fyrir
bömin, stundum sérlagað konfekt,
og kransakökur fylltar með konf-
ekti. Það má segja að við höfum
valið danska stílinn á veislurnar
okkar en þó er bæði belgískur og
franskur stíll á mörgum tertunum.
Björg Kristín segir að þau hafi líka
orðið var við áhuga brúðhjóna á
þeirri nýjung að sérmerkja konfekt,
ef ekki með nafni þá einhveiju sem
óskað er eftir. „Brúðkaupsgestir
geta líka látið baka fyrir sig konf-
ektköku sem er þá með vísu á eða
öðm sem passar við brúðhjónin og
þessu er pakkað inn skemmtilega.
Við eigum orðið í fóram okkar langa
lista af bæði vísum og málshátt-
um.“ Jörgen Þór og Björg Kristín
reka sitt hvort fyrirtækið, hann er
með íslandskost hf sem er veislu-
þjónusta og ráðgjafafyrirtæki en
hún veitir forstöðu íslandsmati ehf
sem er iðnaðarframleiðslufyrirtæki.
„Fólk getur sjálft bakað og búið
til ýmislegt af því sem fer á kaffi-
hlaðborð kæri það sig um og hafi
tíma. Og þá má fara óhefðbundnar
leiðir. Hver segir að brúðkaupstert-
an eigi að vera úr ijóma og marsí-
pani? Hversvegna ekki að hafa
brauðtertu sem brúðkaupstertu.
Það má nota ýmsar fyilingar og
Danir hafa gert þónokkuð af því
svona í gamaldags veislum að hafa
brauð sem aðaltertuna í brúðkaup-
inu.
Brúðkaupið þeirra
Þegar Björg Kristín og Jörgen
Þór eru spurð hvort þau séu búin
að gifta sig segja þau að það sé á
döfinni. „Það kemur í ljós seinna
hvernig þetta verður með brúð-
kaupið. Við erum farin að ræða um
veisluhöldin og færastu fagmenn
verða fengnir til að aðstoða okkur.
Þá ætlum við að eiga frí.“
Björg Kristín og Jörgen Þór gefa
okkur hér nokkrar uppskriftir að
kökum og brauðtertum sem sóma
sér vel á kaffihlaðborði.
Brauðterta með
reyktum laxi
1 stórt samlokubrauð (u.þ.b. 450 g
ón skorpu)
Fylling: 450 g majónes
70 g sýrður rjómi
600 g reyktur beinlaus og roólaus
______________lax______________
________3egg(um 170g)__________
safi úr hólfri sítrónu
2 msk. saxaður blaðlaukur
'Atsk. grómgt krydd
MARSÍPANTERTA.
Rjómaterta með ávaxta
Grand Marnier fyllingu
Hér fyrir neðan kemur uppskrift
að ijóma eftirréttarköku með fersk-
um ávöxtum. Fyrst af öllu þarf að
undirbúa svampdeigsbotninn með
því að bleyta í honum með því sem
fólk velur sér hvort sem það er líkj-
ör eða ávaxtasafi. Við gerð kökunn-
ar þarf að nota springform, þ.e.a.s.
sérstakt form til að halda fylling-
unni á kökunni á meðan hún er að
stífna. Uppskriftin er áætluð fyrir
2 til 3 kökur eftir því hve fólk vill
hafa fyllinguna háa, við mælum
með að nota uppskriftina fyrir 2
botna. Kakan er t.d. skreytt með
ijóma, súkkulaði ogferskumjarðar-
beijum.
Fylling:
____________5 dl rjómi____________
5 eggjarauður
____________'h bolli sykur________
________1 dl Grand Marnier________
________6-7 mgtgrlímsblöð_________
________250 g fersk jarðarber_____
3 kiwi
Aætloó mogn í skreytingu er 5 dl
rjómi, 250 g fersk jarðarber, 100 g
súkkulaði.
Rjóminn er þeyttur og settur í
kæli.
Matarlímsblöðin eru látin liggja
í köldu vatni í u.þ.b. 5 mínútur, á
meðan er hægt að þeyta eggjarauð-
urnar og sykurinn saman í hrærivél-
arskál í u.þ.b. 7 mínútur við meðal-
hraða.
Vatnið úr matarlímsblöðunum er
kreist úr og mjúk matarlímsblöðin
eru sett í heitt vatnsbað ásamt
Grand Marnier líkjörnum. Þegar
blöðin era uppleyst er þeim blandað
varlega út í eggin og sykurinn,
þvínæst er rjómanum blandað sam-
an við með sleif, að endingu er fyll-
ingunni hellt yfir ávextina og botn-
inn, sett í kæli í u.þ.b. 1 klst., þá
tilbúið til skreytingar, þ.e.a.s. þegar
springformið hefur verið fjarlægt.
Marsipanterta
2 svampbotnar u.þ.b. 40x60 sm
stórir um 1,2 til 1,5 sm þykkir.
Marsipan 52x72 sm flatt út
_______'/: ds. kokteilóvextir__
____________1 I rjómi__________
_________4 eggjarauður_________
5 matarlímsblöð
Rjóminn er þeyttur og settur í
kæli.
Matarlímsblöðin eru látin liggja
i köldu vatni í u.þ.b. 5 mínútur, á
meðan er hægt að þeyta eggjarauð-
urnar og sykurinn saman í hræri-
vélaskál í u.þ.b. 7 mínútur við með-
alhraða.
V atnið úr matarlímsblöðunum er
kreist úr og mjúk matarlímsblöðin
eru sett í heitt vatnsbað ásamt hluta
af safanum af kokteilávöxtunum.
Þegar blöðin era uppleyst er þeim
blandað varlega út í eggin og sykur-
inn, því næst er ijómanum blandað
saman við með. sleif, að endingu
er fyllingunni hellt yfir kokteil-
ávextina og annan botninn, sett í
kæli í u.þ.b. 1 klst. Þá tilbúið til
að setja hinn botninn ofan á, hann
smurður með hæfilega miklu magni
af ijóma og marsipanið, u.þ.b. 3
mnr breitt, lagt ofan á. Skreytt t.d.
með marsipanblómum.
Peruterta
1 svampbotn
1 ds. perur
4 eggjarauður
___________140 g flórsykur________
_______200 g dökkt súkkulaói______
______________'/< rjómi___________
Áður en byijað er á kreminu er
gott að byija á að setja svampbotn-
inn á kökufat og bleyta hann hæfi-
lega með safanum af peranum. Því
næst er perunum raðað ofan á botn-
inn. Rjóminn er þeyttur og settur
í ísskáp. Eggjarauðurnar og flór-
sykurinn eru stífþeytt saman í
hrærivél í u.þ.b. 6 mínútur. Súkkul-
aðið er brætt yfir vatnsbaði.
Súkkulaðinu bætt út í eggjarauð-
urnar og flórsykurinn, þá ér ijóm-
anum blandað varlega saman við
með sleif. Að endingu er kreminu
hellt yfir perurnar, sett í kæli og
tilbúið eftir u.þ.b. klst.
EKTA Sacher-terta.
Sadier-terta,
sú eina sanna
_______200 g suðusúkkulaði_______
___________8 eggjarauður_______
10 eggjahvítur
___________125 g smjör___________
___________140 g sykur___________
___________125 g hveiti__________
_______________salt______________
___________vanillusykur__________
100-150 g suðusúkkulaði eðo
_______hjúpsúkkulaði (dökkt)_____
gpríkósumarmelaði
Bræðið 200 g suðusúkkulaði í
vatnsbaði, kælið og hrærið eggja-
rauðum í, einni í einu. Síðan er
smjörið brætt og sett í. Eggjahvít-
urnar eru þeyttar stífar með örlitlu
salti og sykur síðan hrærður saman
við. Vanillusykri bætt í. Allt er þeytt
vel saman. Síðan er 'A af eggja-
hvítuhrærunni sett í súkkulaðibráð-
ina og afgangnum bætt í smám
saman. Að síðustu er hveiti bætt
í. Þetta er bakað í stóru formi við
180°C í ca 45 mínútur.
Kakan er skorin í tvennt og apr-
íkósumarmelaði smurt á milli og
síðan er kakan öll hjúpuð apríkósu-
marmelaði. Látið standa í 3-4 tíma
undir plasti í ísskáp. Kakan er síðan
hjúpuð súkkulaði. (Kakan geymist
mjög vel í frysti, þ.e. áður en hún
er súkkulaðihjúpuð.) ■