Morgunblaðið - 26.05.1996, Síða 22

Morgunblaðið - 26.05.1996, Síða 22
22 E SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Smásnittur ekkert mál að gera daginn áður W WANN segist ekki alveg 1____M vera genginn í hnappeld- W M una en á ekki í vandræð- um með að segja frá því hvernig brúðkaupsveislan hans yrði. „Brúðkaupið færi fram í Viðey og veislan yrði þar líka með íj'ölskyldu og vinum.“ Sturla myndi velja smásnittur og kampavín í veisluna en að henni lokinni yrði farið í Perl- una og þar snæddur kvöldverður með nánustu fjölskyldumeðlimum. „Sé fólk með veislu heima er ekk- ert mál að búa til smásnittur með dags fyrirvara. Leyndardómurinn er að setja þær jafn óðum í öslqur, bleyta smjörpappír og setja yfir þær og síðan loka öskjunni. Ef fólk er ekki með öskjur má setja blautan Brúðkaupsveislan að hætti Sturlu Birgisson- ar matreiðslumeistara smjörpappír yfír bakka og plast þar yfir“, segir hann. Hann segist mæla með kavíar- snittum, reyktum laxi, rækjum, humri og hunangslaxi. „Síðan má hafa með þessu litla bufftartara, lax- atartar, villipaté, gráðost í sveppa- hatti og að lokum jarðarber og súkk- ulaði. Hann mæiir síðan með anda- bringu í aðalrétt fyrir fjölskylduna og appelsínufrauð á eftir. Uppskrift- irnar koma hér á eftir. Sturla verður leyndardómsfullur þegar hann er spurður hvort langt sé í brúðkaup hjá honum. „Svo mik- ið er víst að ég elda ekki þá,“ segir hann og ekki möguleiki að draga upp úr honum meira um það. ► STURLA Birgisson er mat- reiðslumaður ársins 1996 en hann hlaut einnig titilinn á síð- asta ári. Hann útskrifaðist sem matreiðslumaður úr Hótel-, og veitingaskóla Islands árið 1985. Að loknu námi hélt hann til Bandaríkjanna og starfaði fyrst í hálft ár á Columbia Gorge-hót- elinu í Oregon og síðan í eitt ár sem yfirkokkur á frönskum veit- ingastað í bænum Carmel i Kali- forniu. Sumarið 1988 starfaði hann sem kokkur á Hótel Ork og í tvö ár á Lækjarbrekku. Hann vann á þriggja stjörnu Mic- helin-veitingastað Roger Vergés, Moulin de Mougins, í bænum Mougins, sem er norður af Can- nes í Frakklandi og rak veitingastaðinn Punkt og pasta við Amtmannsstíg í tvö ár. Sturla tók við starfi yfirmat- reiðslumeistara árið 1994. Hann er í landsliði matreiðslumeistara. Dvergappelsínufrauö með appelsínu og blóðappelsínusírópi 200 g dvergappelsínur (Kumqat) _________100 ml vatn_________ 6 eggjorauður______ _______safi úr 'Asítrónu_____ _________200 g sykur_________ 300 ml léttþeyttur rjómi _______4 matorlímsblöð_______ ____________Síróp:___________ _________200 ml vatn_________ 200 g sykur _________oppelsínusafi_______ blóðappelsínusafi Maukið dvergappelsínur í mat- vinnsluvél. Setjið maukið í pott ásamt vatni og 100 grömmum af sykri. Sjóðið í 15 mínútur. Hrærið eggja- rauður í hrærivél. Setjið 100 grömm af sykri ásamt safa úr sítrónu í pott og sjóðið í fímm mínútur. Hellið ró- lega út í eggjarauðumar. Látið mat- arlím í kalt vatn í fímm mínútur og setjið það síðan í pott og bræðið. Hellið í eggjahræruna. Blandið dver- gappelsínumaukinu saman við rjóm- ann og hellið eggjahrærunni út í líka. Setjið í form og frystið í 3 tíma. Sjóðið saman vatn og sykur í sírópið og kælið síðan. Bætið í appelsínu- mauki og helmingi af sykursírópi. Sama er gert með blóðappelsínu- maukið. OFNSTEIKT andabringa með „Financiére“-sósu og fínskornu grænmeti. Morgunblaðið/Halldór DVERGAPPELSÍNUFRAUÐ með appelsínu- og blóðappelsínusírópi. Ofnsteikt andabringa með „Finan<iére"-sósu og f ínskornu grænmeti ___________2 endur___________ 200 ml noutakjötssósa sem búa mó til með soði sem er þykkt _______60 ml Madeiro_________ 1 tsk. jgrðsveppg (trufflu) brggðbætir (HG heildverslun) _______3 skarlottulaukar_____ _______4 bökunarkartöflur____ _________1 blaðlaukur________ 1 stór gulrót 1 zuccini salt og pipor smjörklípg Úrbeinið endumar og geymið lær- in. Skerið í fítuna og brúnið vel á pönnu. Steikið í ofni við 130°C í 25 mínútur. Fínsaxið skarlottulauk í smjöri, hellið madeira út í ásamt nautakjötssósu og sjóðið niður. Saltið og piprið. Sigtið. Bætið í bragðefni og smjörklípu. Skrælið kartöflur og fínskerið á rifjárni. Steikið á pönnu með tefflonhúð. Kryddið með salti. Brúnið báðar hliðar og steikið í ofni í 10 mínútur við 180°C. Fínskerið grænmeti og forsjóðið og kælið. Steikið í smjöri og kryddið með salti og pipar. H Y G E A jnyrtii»öru t’er.ilun Kringlunni 8-12, sími 533 4533 Austurstræti 16, sími 511 4511 fyrsta sinn á íslandi bjdáum viá nú frá Chloé töskur, slœður og skartgripi hannaáa af Carl Lagerfeld Póstsendum Kaupir þú brúðar- undirfötin hjó okkur fœrð þú sokkaband vutn VERSLUNIN ÉG & ÞÚ ^Laugavegi66, sími5512211. Brúðkaupsafmætin Hvað heita þau ? ?ÉÍS 1 árs 2 ára pappírsbrúðkaup bómullarbrúðkaup 3 ára leðurbrúðkaup 4 ára blómabrúðkaup 5 ára trébrúðkaup 6 ára sykurbrúðkaup 7 ára ullarbrúðkaup 8 ára bronsbrúðkaup 9 ára viðarbrúðkaup 10 ára tinbrúðkaup 11 ára stálbrúðkaup 12 ára silkibrúðkaup 12 ára koparbrúðkaup 13 ára kniplingabrúðkaup 14 ára fílabeinsbrúðkaup 15 ára krlstalsbrúðkaup 20 ára postulínsbrúðkaup 25 ára sillurbrúðkaup 30 ára perlubrúðkaup 35 ára kóralbrúðkaup 40 ára rúbínbrúðkaup 45 ára safírbrúðkaup 50 ára guílbrúðkaup 55 ára smaragðabrúðkaup 60 ára demantsbrúðkaup 65 ára kórónudemantabrúðk. 70 ára járnbrúðkaup 75 ára atómbrúðkaup - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.