Morgunblaðið - 26.05.1996, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 E 33
APPELSINU- |
GULT og- gnlt
eru áberandi litir
í sumar.
Nú á dögum skilja hjón sem
bestu vinir eftir margra ára
fjandskap.
Okunnur höfundur
Sérhver maður hefur rétt
til að velja sér sína eigin
stjórn; dökkhœrða, Ijós-
hærða eða rauðhærða.
Samuel Johnson, 1759
Sjaldgœft
að karlmenn velji blómin
~T" RISTÍN Fjólmundsdóttir
hjá blómabúðinni Dalíu
segir appelsínugult og
fölgult vera liti sumars-
ins í brúðarvöndum og borðskreyt-
ingum. „Það er líka nokkuð um
að konur velji uppáhaldsblóm-
in sín og þær eru þá
með hugmyndir um
uppsetningu líka“,
segir Kristín. Hún
segir að stundum
kjósi konur að
ganga inn með- -..
eina hvíta lilju,
hvítt kalablóm eða
sólblóm sem einnig
hafa verið notuð í brúðar-
vendi. „í fyrrasumar var
nokkuð um að litlir falleg-
ir ávextir væru vafnir í
gylltan vír og þeir hengdir í vöndinn
í staðinn fyrir perlur eða borða.“ Þá
eru kannski villt blóm og óhefðbund-
in notuð með ávöxtunum. Kristín
segist að undanförnu hafa séð í fag-
blöðum vendi með mjög löngum
stilkum. „Vöndurinn sjálfur er mjög
þéttur og stilkarnir langir. Þegar
brúðkaup Jóakims Danaprins og
Alexöndru stóð fyrir dyrum voru
ýmsar vangaveltur í dönskum blöðum
um brúðarvendi og ein tillagan var
að blómin væru tekin í sundur og
rósablöð úr blómi notuð til að búa
til stóra rós. í miðju var svo perla.
Þetta kom mjög vel út og var fallegt."
Kristín segir koma fyrir að fólk
Spakmæli
Fyrirmyndar eiginmaður
hugsar eins vel um konuna
sína og nýja bilinn sinn.
Ókunnur höfundur
Ekkert er karlmanni eins
þýðingarmikið og vitundin
um það að þegar hann náig-
ast dyrnar er einhver fyrir
innan, sem hlustar eftir
fótataki hans.
Clark Gable
Hann tók ósigrinum eins
maður - kenndi kon-
unni sinni um hann.
Ventura Star
vilji bara íslensk blóm í vönd. „Dala-
liljan getur verið mjög falleg í brúð-
arvönd og íslenskir garðyrkjubænd-
ur eru farnir að rækta mikinn fjölda
af fallegum blómum," segir hún.
- En eru brúðgumarnir hættir að
koma sjálfir og velja blómin fyrir
brúðina?
„Það er ótrúlega lítið um það en
þeir koma oft með kærustunum. “
Kristín segir að yfirleitt tengi hún
saman blómin í hárinu, vöndinn
borðskreytingar, borðana sem not-
aðar eru í siaufur á kirkjubekkina
og körfurnar eða vendina sem brúð-
armeyjarnar bera. “
Vilji konan halda í mann
sinn á hún að gera hann
lítið eitt afbrýðisaman.
Vilji hún missa hann á
hún að gera hann örlít-
ið meira afbrýðisam-
V \X an.
H.L. Mencken
Sjái maður karlmann
opna bíldyr fyrir konu
sína, getur maður verið viss
um að annaðhvort bifreiðin
eða konan sé ný.
Paul Gibson
Ég hef alltaf reynt að koma
þannig fram við konuna
mína, að hitapoki geti ekki
komið i minn stað, þegar ég
hrekk upp af.
Okunnur höfundur
Fólk myndi ekki skilja út af
smámunum, ef það hefði
ekki gifst út af smámunum.
Ókunnur höfundur
Morgunblaðið/Halldór
BRÚÐIRNAR koma líka með óskir um sín uppáhaldsblóm og liti.
Gott fjölskyldulíf verður
aldrei til fyrir tilviljun. Það
er árangur mikillar vinnu.
James H. S. Bossard
Þai má fylla tóm-
ata, sveppi, paprik-
ur og líka ávexti og
bera fram í veislu.
Sveútá&z&aní
Amarbakka
Veisluþjónusta
Brauð og tertur við öll tækifæri
Allar upplýsingar í símum 557 2600 og 557 2635.
vinsœlustu Countrý dansana beint írá Ameríku eins og
"Electric Slide. og “Tush Push„ sem allir geta lœrt á augabragði.
Ógleymanlegt skemmtiatriði sem ALLIR geta tekið þátt í.
Upplýsingar hjá Þresti í s: 896-1660 eða Dansskóla
Sigurðar Hákonarsonar í s: 564-11II.
^gfnidu elskunni þinni á óvart með
ógleymanlegri morgungjöf
Áletrun
innifalin
RAYMOND WEII
cdarsifal
GENEVE
Gilbert; úrsmiður * Laugavegi 62 s: 551 4100
>ú
Afhverju býrð þú ekki til þína eigin Paradís ?
Með Broyhill svefnherbergishúsgögnunum er
það hreinn bamaleikur því þau eru svo hlýleg
og falleg en umfram allt vönduð og öðruvísi.
FINNUR ÞINN STÍL HJÁ OKKUR - HVERGI MEIRA ÚRVAL
Crossroads er sérlega glæsilegt og afar vandað hjónarúm.
Queen stærð B:152cm L:203cm kr. 93.770,- Náttborð kr. 31.150,-
Ameríska lúxusdýnan frá SERTA fæst svo frá kr. 58.370,- en
margar mismunandi gerðir og stærðir em til og misjafnir stífleikar.
Falleg rúmteppi, rúmasvuntur
og púðar til í úrvali.
10% staðgreiðsluafsláttur
eða góð greiðslukjör
til margra mánaða.
HÚSGAGNAHÖLLIN
Bildshölöi 20 -112 Rvik • S:587 1199
ViSA
FYRST&FREMST