Morgunblaðið - 26.05.1996, Page 38
38 E SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
\ .ómantísk brúðkaupsferð
Morgunblaðið
býður tveimur
heppnum
brúðhjónum í
rómantíska
helgarferð
París/London
Heppin brúðhjón geta valið milli þess að eyða
rómantískum dögum í París eða London, sem
báðar eru rómaðar lista- og menningarborgir.
Ferðin er farin með Úrval-Utsýn og er
innifalið flugferðir, gisting og morgunverður í
þrjár nætur á Clifton Ford í London eða Hotel
Observatoire Luxembourg í París, en bæði
þessi hótel eru vel staðsett
I—lc>t:el Búðir
Búðir á Snæfellsnesi eru af mörgum sagðar
vera einn rómantískasti staðurinn á landinu.
Heppin brúðhjón hljóta f vinning tyær nætur
á Hótel Búðum auk veislukvöldverðar við
kertaljós og hestaferðar eða siglingar um
nágrennið.
Brúðhjón.ættingar og vinir!
Fyllið út seðilinn hér fýrir neðan og
sendið til Morgunblaðsins fyrir 3. júní nk.
Heppin brúðhjón verða síðan dregin úr
innsendingunum.
Eftir því sem fleiri ættingjar og vinir
senda inn seðla aukast möguleikar
brúðhjónanna á að hreppa rómantíska
helgarferð.
Þátttakendur geta verið öll pör sem eru að
staðfesta giftingardag á þessu ári.
Róma.nt:ísl< brúðkaupsferð!
Nafn brúðar....................................
Nafn brúðguma..............................
Heimilisfang brúðhjóna ............. .......
Póstnúmer.......................... Símanúmer
Hvar og hvenær er brúðkaupið?
Utanáskriftin er:
Morgunblaðið - Rómantísk helgarferð • Kringlunni 1,103 Reykjavík
Morgunblaðið/Þorkell
Vignir Olafsson og Asgerður Hrönn Sveinsdóttir sem giftu sig í
gær, laugardaginn 25. maí
Bað hennar
á hnjánum í skeljasandi
W ATJ voru farin að taka eftir
W Bhvort öðru nokkru áður en
#—“^hann fór að stíga í væng-
inn við hana., Hún var að
gjóa á hann augunum þar sem hann
var að mála hús í grenndinni við
hana og hann tók eftir henni þar
sem hún afgreiddi hann með lán í
íslandsbanka. „Hún skrifaði mig
fyrir það fyrsta á skuldabréfið sem
Vigni Ólafsdóttur og roðnaði síðan
það mikið að ég hef líklega átt eitt-
hvað í henni þá þegar“, segir Vign-
ir Ólafsson og er dálítið góður með
sig en í gær, laugardaginn 25. maí
gengu hann og Asgerður Hrönn
Sveinsdóttir í hjónaband.
„Ég bað hennar svo í febrúar
1995, gerði mér lítið fyrir og fór á
hnén, meira að segja í skeljasandi
þar sem við vorum í sumarbústað
við Hreðavatnsskála“, segir Vignir.
„Við vorum búin að ræða þetta
stundum, langaði til að láta gifta
okkur enda ástfangin og ánægð
með lífið. Mér fannst þetta einmitt
vera staðurinn í bústaðnum á
Hreðavatni. Það var nefnilega ein-
mitt þarna sem við hittumst á balli
og hlutirnir fór að gerast.“ Það má
segja að síðan hafi þau verið óað-
skiljanleg . „Móðursystir mín eignar
sér heiðurinn að því að við skyldum
kynnast því hún ýtti mér og vinkonu
minni á ball um árið þegar við vor-
um staddar í bústað með henni og
við létum okkur hafa það að ganga
í spariskónum nokkra kílómetra.
Þar hitti ég Vigni svona fyrir al-
vöru“, segir Ásgerður.“
Stóðu sjálf í öllum
undirbúningi
Brúðkaupið sáu þau um sjálf
Ásgerður og Vignir að öllu leyti.
Þau fengu að vísu ráðleggingar hjá
Hildigunni Johnson en hún hefur
gert töluvert að því að aðstoða
hjónaefni við undirbúninginn.
„Það var mjög gott að leita til
hennar því hún benti okkur á nýjar
leiðir með undirbúninginn. Við höfð-
um í upphafi verið að passa að und-
irbúa veisluna þannig að gestunum
liði sem best og þeir yrðu sem
ánægðastir. Hildigunnur stakk hins-
vegar upp á að við breyttum hugs-
unarhættinum, þetta væri okkar
dagur og við ættum að hafa hann
eins og okkur langaði til. Við tókum
hana á orðinu og skipulögðum brúð-
kaupið og veisluna með þetta að
leiðarijósi. Brúðkaupsdagurinn okk-
ar er eins og við viljum hafa hann
fyrir okkur. Gestirnir koma síðan
og gleðjast með okkur. Fyrst ætluð-
um við að hafa kalt hlaðborð en þá
spurði Hildigunnur: „Hvað finnst
ykkur gott?“ Þá kom ekkert annað
en grillmatur til greina", segir Ás-
gerður. Hún segist síðan hafa haft
ákveðnar skoðanir á því hvað ætti
að vera með grillmatnum og kokk-
arnir hefðu séð að lítið þýddi að
vera með einhveijar mótbárur.
Mér fínnast marsípantertur og
kransakökur vondar og því báðum
við Jóhannes Felixson að búa til
fyrir okkur englaköku sem er súkk-
ulaðikaka með rommi og hún ofsa-
lega góð“, segir hún.
Perlur og pijál passa ekki
Ásgerður vildi hafa kjólinn sinn
einfaldan og hún var í síðum og
beinum silkikjól með léttum jakka
yfir. „Perlur og pijál hæfa mér ekki.
Ég vildi því hafa vöndinn minn sem
náttúrulegastan og rósirnar eru
appelsínugular og síðan voru notað-
ar ýmsar jurtir úr náttúrunni í hann.
Bergflétta fannst okkur passa vel
með útigrillinu og því var mikið
skreytt með_ henni í veislunni.
Vinkona Ásgerðar flaug heim frá
Noregi til að vera svaramaður. „Það
var mikilvægt fyrir mig að hafa
Helgu Bjartsdóttur vinkonu mína
sem svaramann og hún ákvað bara
að skella sér heim en hún býr í
Noregi. Þetta kallar maður sko
vini“, segir hún og leggur áherslu
á hvert orð. Synirnir Róbert og
Theódór voru hringaberar og brúð-
arsveinar og eftir brúðkaup var
ekið til ljósmyndarans í eldrauðum
Chervolet Bel Air árgerð 1957 takk
fynr.
í veislunni var líf og fjör, brúð-
guminn sem leikur á gítar og banjó
með Pöpunum tróð upp með bróður
sínúm og föður sem báðir spila á
hljóðfæri og hljómsveitin Hálft í
hvoru lék fyrir dansi þegar leið á
veisluna. Brúðhjónin höfðu að ráði
Hildigunnar útbúið ýmsar fleygar
setningar um hjónabandið sem fest-
ar voru í augnhæð á salernum og
víðar. Brúðhjónin létu sig hverfa í
lok veislunnar þegar hæst lét .
Spakmœli
Hundrað karlar geta myndað
herbóðir en það þarf eina
konu til að skapa heimili
kínverskt spakmæli
Þrá er sauðkindin en hvað er
það á móts við kvenkindina.
Halldór Laxness: Sjálfstætt fóik
(Bjartur)
Guð hjálpi þeim sem vill ekki
giftast fyrr en hann rekst á
fullkomna konu. Guð hjálpi
honum þó enn betur ef hann
skyldi finna hana.
Ben Tillet
Kvæntur maður ætti að
gleyma mistökum sinum, það
er engin þörf á að tvær mann-
eskjur muni alltaf það sama.
Dewal
Ó þó lýónaband. Enn einn sig-
ur vonarinnar yfir reynslunni.
Johnson