Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 B 5
FRÉTTIR
Setberg veitir
viðurkenningar
KIWANISKLÚBBURINN Set-
berg, Garðabæ, hefur undanfar-
in ár veitt nemendum í Garðabæ
viðurkenningar fyrir góðan
árangur í íslensku. I ár eru veitt-
ar viðurkenningar til nemenda
sem voru að ljúka prófi úr
Hofstaðaskóla, Flataskóla og
Garðaskóla.
Frá afhendingu viðurkenn-
inganna í Hofsstaðaskóla:
Hilmar Ingólfsson skólastjóri,
Matthías Guðmundur Péturs-
son, Ragnheiður Gröndal,
Huld Hafsteinsdóttir, Steinþór
Eyþórsson og Sigurveig
Sæmundsdóttir aðstoðarskóla-
stjóri.
IO/Intranet með beina
útsendingu frá Ríkis-
útvarpinu á alnetið
IO/INTRANET, Intís og Ríkisút-
varpið hafa tekið höndum saman
um að gera Islendingum nær og
fjær kleift að hlusta á dagskrá RÚV
í gegnum alnetið. Sendingar eru
þegar hafnar og mun verða sent
út allan sólahringinn fram yfir 17.
júní. Þetta er sérstaklega skemmti-
legt fyrir þá íslendinga sem búa
erlendis vegna þess að nú geta þeir
fylgst með hátíðarhöldunum 17.
júní í gegnum tölvur sinar. Þeir
íslendingar erlendis sem hafa átt í
vandræðum með að ná útsending-
um RÚV í gegnum stuttbylgju geta
nú hlustað á ijallkonuna í beinni
útsendingu, hvar sem þeir eru
staddir í heiminum.
Tilraunaútsendingar hafa staðið
yfir um nokkurt skeið á fréttum frá
Ríkisútvarpinu, og hafa viðbrögð
Islendinga erlendis verið einstak-
iega góð. Sérstaklega hafa Vestur-
Islendingar verið ánægðir, því þeir
hafa ekki svo mörg tækifæri til
þess að heyra íslenskuna talaða.
IO/Intranet eru engir nýgræð-
ingar í beinum útsendingum á al-
netið. Fyrirtækið hefur áður sent
út margmiðlunarhátíðina Drápu
sem var fyrsta beina myndútsend-
ingin á alnetið frá íslandi. Og í
samvinnu við útvarpsstöðina X-ið
var sent út frá útgáfutónleikum
veftímaritsins Decode á Ingólfstorgi
1. júní síðastliðinn. Það var fyrsta
beina hljóðútsendingin frá íslandi.
Slóðin inn á beinu útsendinguna
sem er nú þegar í gangi er
http://this.is/live
FORELDRAREKINN
Hljl . '
Sr BB LEIKSKÓLI í MIÐBÆNUM
picnr^iwa hefur laus heilsdagspláss fyrir stúlkur á aldrinum 3-5 ára. Leikskólinn starfar eftir uppeldishugmynd sem byggist á einfaldleika, skýru og rólegu umhverfi, einbeitingu og friði. ímyndun, sköpun og skynjun barnanna sjálfra er í fyrirrúmi. Skýr og skipulögð dagskrá og aldurs- og kynjaskipting hluta úr degi, er ein leiðanna til að gefa hverju barni kost á námi og leik í jafningjahópi. Upplýsingar veitir Sólrún í síma 552 3277.
-kjarni málsins!
Hamlbók garöeigaiulans 1996/1997
48 síðna hugmyndabæklingur með vörunum
frá BM»Vallá fyrir garðinn þinn.
Komdu við eða hringdu í síma 577 4200
(grænt númer 800 4200) og fáðu sent
eintak - þér að kostnaðarlausu.
Netfang: bmvalla.sala@skima.is
BM-VALLA
Breiðhöfða 3
112 Reykjavík.
Forsetafram-
bjóðendur
tala í Kvenna-
kirkjunni
KVENNAKIRKJAN heldur upp á
kvenréttindadaginn með messu í
Seltj arnarneskirkj u miðvikudaginn
19. júní kl. 20.30.
Forsetaframbjóðendurnir Guð-
rún Agnarsdóttir og Guðrún Péturs-
dóttir tala um lífsgildi, trú og kon-
ur. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir
fjytur stutta predikun. Anna Pálína
Árnadóttir syngur við_ undirleik
Gunnar Gunnarssonar. Ásdís Þórð-
ardóttir leikur á trompet. Kór
Kvennakirkjunnar syngur undir
stjórn Bjarneyjar I. Gunnlaugsdótt-
ur við undirleik Mörtu Hlínar
Magnadóttur.
Kaffi í safnaðarheimilinu eftir
messu.
-----»-■».♦----
Gróðursetning*
í Heiðmörk
FARIÐ verður í gróðursetningarferð
á vegum Kvenréttindafélags Islands
miðvikudaginn 19. júní kl. 16.
Þátttakendum er boðið í vorbiót
á Hallveigarstöðum að lokinni ferð.
Áhugasemir félagar eru beðnir um
að skrá sig á skrifstofunni og fá
upplýsingar um staðsetningu gróð-
urreits félagsins í Heiðmörk.
Verðið stenst allan samanburð
Honda Accord 1.8i er búinn 115 hestafla 16 ventla vél meö tölvustýrðri fjölinnsprautun.
Upptak er 11.3 sek. í 100 km/klst. meðan eyðslan við stöðugan 90 km. hraða er aðeins 6,6 lítrar á 100 km.
Honda Accord 1.8i er búinn loftpúða í stýri, rafdrifnum rúðuvindum og loftneti, vökva- og veltistýri,
þjófavörn, samlæsingum, útvarp/segulbandi og bremsuljósi (afturrúöu. Styrktarbitar eru í huröum.
Lengd: 468,5 cm. Breidd: 172 cm. Hjólhaf: 272 cm.
Honda Accord 2.0i LS er búinn 131 hestafla vól, ABS-bremsukerfi, tvöföldum loftpúða, 4 gíra sjálfskiptingu
ásamt fjölmörgum öðrum kostum. Verðið er aðeins 2.185.000,- á götuna.
Tveggja ára alhliða ábyrgð fylgir öllum nýjum Honda bifreiðum og þriggja ára ábyrgð er á lakki.
Tökum aðra bíla uppí sem greiöslu og lánum restina til allt að fimm ára.
1.734.000,-
(H
VATNAGARÐAR24
S: 568 9900
Margfaldur
verðlaunabíll
sameinar glœsilegt útlit,
óviðjafnanlega aksturseiginleika,
ríkulegan staðalbúnað,
mikil gC&ðÍ og
einstaka hagkvœmni ■ rekstn.