Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 10

Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 10
10 B SUNNUDÁGUR 16. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Tilbúin skekkja Skoðanakann- anir birtast nú títt um meint fylgi forsetaframbjóð- enda og eru þraut- nýttar þótt stórt hlutfall svari ekki. í þessu er önnur skekkja. Eldri kjósendur en 75 ára eru óhreinu bömin, útilokaðir í úr- takinu. Þó kýs þetta fólk engu síður en aðrir. Er jafnvel dug- legra við að nýta þessi mannrétt- indi sín. Fyrir utan dónaskapinn við fólk með kosningarétt, þá er þetta tilbúin skekkja. í þetta sinn spyija flestir 18-75 ára kjósendur, en þar fyrir ofan eru 6,9% kjósenda, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Tíu pró- sent kjósenda eru eldri en sjö- tugir. I könnunum eru iðulega ekki teknir með þeir sem komnir eru yfir 67 ára aldur, en sá hópur er hvorki meira né minna en 13,8% af kosningabæru fólki. í símakönnunum eins og hjá DV er þó sá spurður álits sem svarar burt séð frá aldri. Þegar grennslast var fyrir um þetta furðulega tiltæki könnunarfyrirtækj- anna, sem hlýtur að skekkja útkomuna hvemig sem úrtakið er unnið, fengust þau svör að svona hefði þetta bara alltaf ver- ið. Líklega komið frá útlöndum. En þegar ofan í það var farið kom fram að stór þáttur í þessu er að sama könnun er nýtt til að spyija um alls óskyld efni. Þar ráði auglýs- endur ferðinni, telji sig líklega ekkert varða um aldraða við- skiptavini. Það er úreltur hugs- unarháttur síðan fáir urðu svona aldraðir. Bandaríkjamenn eru löngu búnir að átta sig á því að einmitt eldra fólkið eru góðir viðskiptavinir. Hefur þá oft rýmri ú’árráð og tíma til að eyða í ferðalög og tómstundagaman, punta sig, bjóða fólki og gefa gjafir. Og það er ekki að borga skuldir eða er atvinnulaust. Tryggustu gestir á menningar- atburði svo sem tónleika og leik- hús eru t.d. eldra fólk, einkum eldri konur. Með örri fjölgun aldraðra er sá markaður orðinn mikill og gróðavænlegur. Sumir auglýsendur hér virðast a.m.k. vilja selja þessu fólki, því póst- kassamir í háhýsum þar sem eldri borgarar búa em alltaf troðfullir af rándýram litprent- uðum auglýsingabæklingum um aðskiljanlegan varning og sértil- boð. Þeir auglýsendur vilja væntanlega kanna hvað þetta fólk vill kaupa. I landinu era um 20 þúsund manns yfir sjötugt og reiknað með að á næstu áram muni þeim snarfjölga, mest fólki yfir 85 ára. Hér á íslandi sýnir styrkur aldraðra sig kannski einna best í því að stjómvöld virðast helst finna hjá þessum aldurshópi matarholur í skattheimtuna þegar harðnar á dalnum hjá aumingja ríkissjóði, sbr. aðferð- irnar við tvísköttun lífeyrissjóð- anna og skattinn á spariféð. Yfirleitt þykir ekki við hæfi að sýna þeim sem maður ætlar að hafa eitthvað út úr dónaskap. Þessi dónaskapur við kjósendur að afskrifa þá og skoðanir þeirra fyrirfram er þeim mun furðulegri. Frambjóðendurnir munu áreiðanlega ekki fúlsa við atkvæðum þessa fólks. I grein Gárur eftir Elínu Pálmadóttur í Mbl. síðasta sunnudag hefur Inga Huld eftir hjúkrunarfræðingi og djákna á öldr- unarlæknigadeild að henni finn- ist skelfilegt þegar talað sé við fólk með 80-90 ára vinnu og reynslu að baki eins og óvita. Þeir sem kaupa skoðanakann- anir nálgast þessa kjósendur vitanlega af slíku virðingar- leysi. Er verið að gefa í skyn að setja megi hámarksaldur á kjósendur? Það er kannski ráð áður en þeir verða svo margir að þeir geta varið sig með at- kvæðum sínum. Þegar litið var yfir litríkt línurit yfir sumarlok- anir spítala 1996 í blaðinu var óneitanlega dulítið sláandi hve stórt hlutfall af þeim deildum sem lengst verður lokað, alveg eða næstum til áramóta, eru öldranar- og hjúkrunardeildir aldraðra. Allt samfélagið úir og grúir af hefðbundnum klissíum varð- andi eldri borgara þessa lands. Einna vitlausust virðist samt sú að þeir hafí ekki skoðun á því hvemig þeir vilji veija atkvæði sínu eða að það skipti ekki máli á kosningadag. Það gamla fólk sem ég hefi rætt við um forseta- frambjóðendur að undanfömu eru einmitt þeir sem vita og muna hvemig viðkomandi hefur komið fram og hvað sýnt af sér hingað til. Þekkja dæmi til hróss eða lasts, velta því fyrir sér þeg- ar þeir spá í hugsanleg viðbrögð framtíðarforseta og traust á honum. Vitanlega er það gegn- særra hjá þeim frambjóðendum sem verið hafa í pólitík á opin- berum vettvangi. En lýðræðið er sagt byggja á því að stjóm- málamenn eigi, með réttu eða röngu, að standa og falla með gerðum sínum í kosningum. Þar dæmi kjósendur verk þeirra. Þetta er vinsæl klissía og óvíst að lýðræðið virki þannig í raun. En kjarni málsins er að ekki er búið að setja gamalt fólk út af kjörskrá ennþá og kannski stappar svona dónaskapur bara stálinu í það að fara á kjörstað hvað sem tautar og raular og halda reisn sinni með því að sýna að enn verður að reikna með því. Það láti ekki þegjandi og hljóðalaust slá sig út úr sam- félaginu. Það getur orðið ofan á, því sá ku hlæja best sem síð- ast hlær og öldruðum fjölgar mest. Annars virðist umheimurinn vera farinn að átta sig á því að kerfíð, þar sem öldraðum er bara ýtt af sviðinu án þess að þeir hafi nokkuð um það að segja, sé ekki í lagi. Það er sí- fellt meira til umfjöllunar í ræðu, riti, í leikritum og kvikmyndum, sbr. nýleg leikrit Jónasar Áma- sonar og Súsönnu Svavarsdóttur og hollenskan myndaflokk um mannleg samskipti á efri áram, sem þessa dagana er í sjónvarp- inu. MANNLIFSSTRAUMAR TÆKNI/ Erhægt að hreyta okkur í bylgju? Um efiii og bylgjur EFNISFYRIRBRIGÐI era ekki öll þar sem þau era séð. Segja má að deila um innsta eðli þeirra heijist á milli eðlis- fræðinganna Isac Newtons og hins hollenska Cristians Huygens á átjándu öld. Hinn fyrmefndi leit á ljósið sem agnir, hinn síðamefndi sem bylgjur. Við fyrstu sýn virðist sem þetta sé ein fárra deilna sem Newton hefur tapað, því að Englendingurinn Thomas Yong framkvæmdi tilraun árið 1801 sem sýndi að það væri bylgur. Ljós gat slökkt sjálft sig eins og bylgjur gera ef öldutoppur mætir öldudal. Alla nítjándu öldina stendur Huygens uppi sem sigurvegari deil- unnar. Uns að um aldamót era menn að athuga endurkast ljóss frá málmyfírborði, og fá niðurstöður ósamrýmanlegar bylgjuhugtakinu. Það er hinn ungi Albert Einstein sem leys- ir úr gátunni, og slær föstu að ljós geti haft agnareigin- leika. Ekki að það sé agnir almennt, heldu að í þessu sér- staka samhengi komi eindareiginleikinn fram. Fyrir þessa útskýringu, sem stendurtil hliðar við annað sem Einstein gerði, fékk hann Nóbelsverðlaunin, en ekki fyrir hið mikla meginverk sitt, afstæðiskenninguna. Þetta er ein af fyrstu fæðingar- hríðum skammtafræðinnar, sem Einstein lagði minna af mörk- um til en margir aðrir. Skammta- kenningin er fráleitt verks nokkurs eins manns. En franski greifinn de Broglie (Les: Dubroj) setur um 1920 fram við- snúna kenningu: Rétt eins og það sem talið var bylgjur getur hegðað sér eins og sér eins og agnir í ákveðnu samhengi, geti það sem talið var eindir hagar sér eins og bylgjur. Seint á þriðja ára- tugnum glæpast eðlisfræðingamir eftir Egil Egilsson C.J. Davisson og L.H. Germer á að gera til- raun sem leiðir í ljós að rafeindir geti hagað sér eins og bylgjur. Þetta er ein þeirra til- rauna sem tókust fyrir „óheppni", nefnilega þá að það kviknaði í tilraunastofunni. Málmsýnið hitnaði. Það var sú meðferð sem þurfti til að bylgjueiginleikarnir kæmu fram. Segja má að þetta séu grófír megindrættir hinnar miklu þróun- ar nútíma skammtafræði, sem verður að telja helstu forsendu tækniframfara aldarinnar. Sú EF UÓSBYLGJUR frá tveimur raufum falla á skjá, myndast víxlmynstur. Þar sem toppur einnar bylgju mætir dal ann- arrar verður myrkur. Þar sem toppur mætir toppi verður (jós. fræðigrein er lykill að skilningi á rafeiginleikum fastra efna, sem era aftur undirstaða tölvutækni, fjarskiptatækni, gagnavinnslu og -geymslu, ásamt því að tölvur /Er hcegt að auka líkumar á heppnt? Hugsað um heppni Aristóteles nefndi heppnina sem þátt í lífshamingjunni. Þrátt fyrir dyggð- ugt lífemi, þekkingu, volduga vini og blómlega ást yrði heppnin að fylgja með. Happ virðist vera tilviljunarkennt enda er talað um einskæra og algera heppni. Heppni getur líka virst óþörf skýring, en er hún það? Er hún ef til vill ekki til? ÞAÐ ER eins og heppnin fylgi sumum mönnum ævina alla, aðrir búa við ólánið þrátt fyrir góða greind. Til eru dæmi um fólk sem hefur öðlast hamingju - en ■mBMi svo snýst ham- ingjuhjólið við og það byijar að missa allt eins og Job í Jobsbók Gamla testament- is, sem glataði blessun guðs. Skýringin er hul- eftir Gunnar Hersvein ín. Aðrir sigla lygnan sjó lífíð á enda. Þeir fá það sem þeir þrá, og heppnast iðulega ætlunarverk sín. Ef til vill búa heppnir sig betur undir lífíð, gera fleiri ráðstafanir og hreinlega vinna betur að mark- miðum sínum í lífínu en hinir óheppnu. Aðrir segja síðan við þá: „Þú varst aldeilis heppinn af fá starfið," - eða annað sem þeir kepptu að. Einkunnir í skóla era að sára- litlu leyti háðar heppni. Bak við háar einkunnir er vinna og góð greind, bak við lágar að minnsta kosti leti og áhugaleysi. Heppni í prófum er vart mælanleg. En gild- ir það sama í lífínu? Imyndum okkur tvo menn sem báðir hafa góða greind, áhuga og era vinnusamir. Báðir ná góðum árangri í vinnu og fá það sem þeir keppa að til dæmis fjölskyldu og möguleika til að leyfa sér margt í lífinu. Báðir telja sig hamingju- sama. Þeir era heiðarlegir og leggja stund á dyggðugt líferni. En nú fer ólánið að elta annan þeirra á röndum. Svikahrappur í fyrirtækinu setur það á hausinn, og hann verður atvinnulaus, konan hans verður ástfangin af öðram manni, bömin lenda í slæmum fé- lagsskap. Byggingafélagið sem hann keypti íbúð af sendir himin- háa bakreikninga. Bílnum hans er stolið. Með öðram orðum, allt snýst á verri veg án sjáanlegrar ástæðu hjá góðum og gildum manni. Eða var hann ef til vill ekki vakandi á verðinum? Hinn maðurinn heldur áfram veg heppninnar allt sitt líf eins og hann sé með töfrasprota í höndun- um. Samt er hann að engu leyti ólíkur hinum. Hann er sagður heppinn, hinn óheppinn og eina skiljanlega skýringin er að um til- viljun sé að ræða sem hvorugur hefur neitt um að segja. Óheppni maðurinn getur farið með æðraleysibænina. Hann gat ekki ráðið því sem gerðist, hann gerði ávallt sitt besta eins og hinn heppni. Atburðimir vora ekki á hans valdi. Hann var bara óhepp- inn. Menn geta látið lífíð vegna óheppni eða án ástæðu og af hreinni tilviljun. Að keyra bíl í umferðinni er áhætta og það er ekki nóg að vera öruggur og góður bílstjóri. Aðstæður geta skapast í umferðinni sem enginn ræður við. ÓHEPPNI og heppni. Blindbylur skellur á, eða einhver bílstjóri missir stjóm á bifreið sinni og veldur slysi. Samt er alltaf hægt að verða fyrir hundaheppni og vinna í happ- drætti eða lottói, einhveijir hljóta alltaf að vinna pottinn og það get- ur jafnvel breytt lífi fólks, stundum til betri vegar og stundum til verri ef þeir hafa ekki vit til að höndla heppnina og græðgin nær tökum á þeim eins og fjölskyldunni í Eng- landi sem vann í lottói, sem leiddi til morðs vegna deilna um skipting- una. Heppni krefst þroska. En hvernig lifir hin heppna manneskja? Hún er Iukkunnar pamfíll í einu orði sagt. Allt sem hún tekur sér fyrir hendur heppn- ast. Hún fæðist í friðsömu landi, fæðist inn í vandamálalausa fjöl- skyldu sem hefur þroskandi áhuga- mál, elst upp við ást og umhyggju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.