Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 12

Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 12
12 B SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYIMDIR w jr IBIO U"* RVALIÐ I kvik- myndahúsum borgarinnar er ágætt. Sérstaka athygli hefur vakið breska myndin Trufluð tilvera eða „Trainspotting", ein- staklega mögnuð lýs- ing á lífi heróínfíkla í Edinborg eftir Danny Boyie þann sama og gerði „Shaliow Grave“; er pst að þarna er komið efni í stórfínan kvikmyndagerðar- mann sem gefur Mike Leigh og Ken Loach ekkert eftir. Fuglabúr Mike Nichols er dægi- legasta stundar- skemmtun sem á nokk- uð sameiginiegt með frönsku fyrirmyndinni er naut geysilegra vin- sælda í Tónabíói fyrir tveimur áratugum eða svo. Dauðadæmdir f Denver er góð maflu- mynd um vináttu og tryggð og furðufugla í undirheimum Denver- borgar og Ai Pacino minnir á Guðföðurinn í pólitíska samsær- istryiiinum Spíllingu eða „City Hall“. Þetta er nokkrar myndir sem vert er að gefa gaum. Hver var þessi María? Undan straumi sögunnar EINAR Heimisson, rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður, mun hefja tökur á sinni fyrstu bíómynd í fullri lengd um mánaðamótin ágúst-september næstkomandi. Myndin heitir María og verður tekin bæði á íslandi og í Þýskalandi með þýskum og íslenskum leikurum og býst Einar við að hún verði frumsýnd snemma á næsta ári. Hún fjallar um þýska konu sem kemur til íslands eftir seinna stríð og gerist vinnu- kona í sveit. ÁHUGI á sögulegum myndum; Einar Heimisson. Mikill styrkur fyrir myndina; Barbara Auer, sem fer með hlutverk Maríu. INNBROT í fangelsi; Cage fer með annað að- alhlutverkið í Klettinum. Klettur- inn með Cage EINHVERJIR mestu hasarframleiðendur Hollywoodkvikmyndanna voru Don Simpson og Jerry Bruckheimer en þeirra sam- starf gat af sér m.a. bestu spennumynd síðasta árs, Ognir í undirdjúpunum eða „Crimson Tide“. Sumar- smellurinn þeirra þetta árið heitir Kletturinn eða „The Rock“ og segir, ótrúlegt en satt, af mönnum sem brjót- ast inn í Alcatrazfangelsið eða Klettinn. Hún er síðasta myndin sem Simpson og Bruckheim- er framleiddu saman því Simpson lést fyrr á árinu. Með aðalhlutverkin fara Se- an Connery, sem leikur ein- asta fangann er sloppið hef- ur frá Alcatraz, og Nicholas Cage, sem leikur eiturvopnasérfræðing en Ed Harris er hryðjuverkamaður sem komið hefur sér fyrir á fangaeynni yfirgefnu með eiturefnavopn og hótar að sprengja þau yfir San Francisco. Leikstjóri er Michale Bay, sem gerði „Bad Boys“ en rokkmyndbandastíll hans dugði honum vel í það skipt- ið. „Engin taka í þessari mynd varir lengur en í 5 sekúndur," er haft eftir Harris. 12.000 höfðu séð Fuglabúrið ALLS höfðu um 12.000 manns séð banda- rísku gamanmyndina Fuglabúrið í Háskólabíói og Sambíóunum eftir síð- ustu helgi. Þá höfðu rúm 15.000 séð 12 apa í Háskólabíói og 3.000 manns höfðu séð myndina Neðanjarðar. Réttardramað „Primal Fear“ með Richard Gere var frumsýnt um þessa helgi en næstu myndir Háskólabíós eru m.a. gam- anmynd Mel Brooks, Drak- úla: Dauður og í góðum gír, með Leslie Nielsen, breska myndin „Clockwork Mice“ með Ian Hart (,,Backbeat“) og „Barb Wire“ með Pamelu Ander- son. Síðla sumars munu svo myndirnar „Twister“ og „Mission: Impossible" vera sýndar í Háskólabíói og Sambíóunum. verður í Háskólabíói og Sambíóunum. Einar er kunnur fyrir rit- störf og gerð heimild- armynda fyrir sjónvarp og það var á meðan hann stund- aði nám í kvikmyndaskólan- um í Miinchen sem hugmynd- in að Maríu varð til og bolt- inn fór að rúlla. „Námið byggist meðal annars á því að setja niður allskonar efni og eitt af því sem ég kynnti var saga af þýskri stúlku sem hrökklaðist hingað upp til íslands eftir seinna stríð und- an straumi sögunnar," sagði Einar í samtali. „Ég hafði kannað áður komu þýskra kvenna hingað til lands eftir stríðið og fjallað um efnið í sjónvarpsmynd. Mér þótti þetta efni vera kveikja í spennandi sögu og komst að því að menn voru sama sinn- is. Prófessorinn minn var sjálfur flóttamaður að austan og fékk mikinn áhuga á sög- unni. I fyrra kom svo kvik- myndaframleiðandi í Munc- hen inn í þetta ásamt ís- lensku kvikmyndasamsteyp- unni og ég þróaði handritið í samstarfí við framleiðend- uma. Síðan var farið í fjár- mögnun á myndinni, sem gengið hefur vonum framar. María er frá austurhér- uðum Þýskalands þar sem nú er Pólland og hefst við í flóttamannabúðum í Lubeck þegar hún fær tilboð um að koma til íslands," hélt Einar áfram. „Hún hefur lent í hör- mungum stíðsiokanna og á fullt af slæmum minningum sem hún tekur með sér hing- að upp. Hún ræður sig til starfa úti í sveit hjá einhleyp- um bónda, sem býr með syst- ur sinni.“ Einar vildi taka það skýrt fram að sagan og per- sónur myndarinnar væru hreinn skáldskapur þótt hinn sögulegi rammi og aðstæður sem móta þær séu raunveru- eftir Arnold Indrióason legar. Þekkt þýsk leik- kona, Bar- bara Auer, fer með titilhlutverk myndarinn- ar en hún er mjög eft- irsótt leikkona í sínu heima- landi og þykir mikill akkur í því að hún tók að sér hlut- verkið. „Það er mjög mikill styrkur fyrir þessa mynd að hafa fengið hana í hlutverk Maríu,“ sagði Einar, „en hún hefur getið sér gott orð í Þýskalandi. Hún er í næstum því hveiju atriði myndarinnar og það reynir mjög á hana sem leikkonu.“ Arnar Jóns- son fer væntanlega með ann- að stærsta hlutverk myndar- innar, leikur bóndann sem María lendir hjá þegar hún kemur til Islands, og einnig mun Hinrik Ólafsson fara með hlutverk í myndinni. Aðrir leikarar hafa ekki enn sem komið er verið nefndir til sögunnar. María gerist á árunum kringum 1950 og verður Ari Kristinsson tökumaður en myndin verður tekin á Snæ- fellsnesi og í Reykjavík og í Liibeck og Mecklenburg Vorpommem í Þýskalandi. Munu tökur standa yfir í 30 daga og áætlaður kostnaður við myndina er um 80 milljón- ir króna. María fékk 13,5 milljónir króna í styrk frá Kvik- myndasjóði íslands þegar endurúthlutað var úr sjóðn- um fyrir skemmstu. Myndin er dæmi um form sem Einar hefur mikla trú á: hið sögu- lega drama. „Ég hef lengi ætlað mér að búa til slíkar myndir,“ sagði hann að lok- Fitubollan Eddie Murphy NÝJASTA gamanmynd Eddie Murphy heitir „The Nutty Professor" og er einskonar endurgerð samnefndrar myndar gam- anleikarans Jerry Lewis frá 1963. í henni bjó pró- fessor Lewis til töfraform- úlu sem gjörbreytti per- sónuleika hans og gerði hann mun sjálfsöruggari og áræðnari en í endur- gerðinni býr prófessor Murphy til töfraformúlu sem gerir hann akfeitan. Lewismyndin mun vera ein af betri myndum grín- istans góðkunna en óvíst er hvernig endurgerðin hefur heppnast. Víst er að ekki veitir Eddie Murphy af grínsmelli eftir nokkrar vondar myndir í röð, m.a. Vampíu í Brooklyn. Leik- sljóri er Tom Shadyac en James Coburn fer með hlutverk í myndinni. Murphy tekur miklum breytingum í „The Nutty Professor" en hann fitnar ógurlega sem aðalpersón- an Buddy Love og er sú umbreyting unnin í tölvu. Sjálfur fer Murphy með fjölda smærri hlutverka auk aðalrullunnar og leik- ur m.a. föður sinn, móður, ömmu og frænda. BOLLA, bolla; Murphy sem prófessor Buddy Love. UFÁIR leikarar eru vin- sælli en Robin Williams og sannaðist það nú síðast á gengi myndanna Fugla- búrið og „Jumanji“ í Bandaríkjunum. Þær voru fyrstu myndimar í sögunni með sama aðalleikaranum, sem fóru yfír 100 milljón dollara markið í tekjum um sömu helgina. ■Svo það þarf varla að taka fram að Williams er eftirsóttur leikari. Hann mun á næstunni leika á móti Billy Crystal í mynd- inni „Father’s Day“, sem er endurgerð á franskri mynd með Gérard Dep- ardieu, og hann er einnig að semja við Disneyfyrir- tækið um að leika í endur- gerð á Disneymynd frá 1961 sem heitir „The Abs- ent-Minded Professor" og er með Fred Mac- Murray í aðalhlutverki. ■Jeffrey Katzenberg sem fór frá Disneyfyrir- tækinu og stofnaði kvik- myndafyrirtækið Dream Works við þriðja mann hefur höfðað mál á hendur Disney og heldur því fram að hann eigi rétt á hluta hagnaðarins af Konungi ljónanna og Pocahontas, sem hann ýtti úr vör á sín- um tíma. Ef hann vinnur málið gæti hann fengið 250 milljón dollara í vasann. Það gerir 17 milljarða króna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.