Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 14
14 B SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
">"í
iiiKP'- ”
Loka Risaeðíur, •,' \
Margrét Kristíí) éiðndal,|
ívar Ragnarssfen,
Sígurður GuðMfnclsson,
Þórarinri KrjaSínsson
og.Hreinn StephenSen
■!L- ' ' - •
„Súper 5“-flokkurinn
AUKIN SAMKEPPNI á
tónlistarsviðinu kallar á
aukið samstarf ef vel á
að vera og ekki skemm-
ir ef samstarfið er
ólíkra sveita. Á morgan
kemur út breiðskífa
„Súper fimm“ sem er
afrakstur fjögurra
ólíkra sveita og sér-
stakrar gestasveitar.
Helgi Björnsson
söngvari SSSólar
átti hugmyndina að
„Súper fimm“-skífunni
og samstarfinu sem
skífan getur af sér.
Hann segir að SSSól
hafi stefnt á að gefa út
einhver lög með vorinu
og eftir nokkrar vanga-
veltur hafi honum þótt
þjóðráð að smala saman
í breiðskífu ýmissa
ólíkra hljómsveita og
gráupplagt væri síðan
að sveitirnar skemmtu
saman eftir því sem
kostur gæfist.
Auk SSSólar eru í
samfloti Funkstrasse,
Spoon, Botnleðja og
Astralsextettinn. Astr-
alsextettinn á aðeins
eitt lag á disknum,
gamlan Dean Martin
slagara, en annars
skiptast lögin þannig að
sveitirnar eiga þrjú lög
hver, utan að SSSól á
fjögur.
Enn hafa sveitirnar
ekki troðið upp saman,
enda þungt í vöfum að
fara um landið með svo
fjölmennan flokk, en
Helgi segir að sá
hátturinn hafi verið á
að SSSól hafi fengið
sveitimar til skiptis til
að hita upp, Funkst-
rasse hafi þannig leikið
í Njálsbúð og Botnleðja
í Ýdölum. „Þetta er
reyndar nokkuð sem við
í Sólinni höfum gert
alla tíð að gefa ungum
hþómsveitum færi á að
spila á stómm böllum,
til að þær geti kynnt sig
og sitt efni fyrir fleiri
áheyrendum.“
„Súper fimm“ flokk-
urinn heldur mikinn
gleðskap í Tunglinu
næstkomandi föstu-
dagskvöld og þar koma
fram allar sveitimar,
SSSól, Spoon, Funk-
strasse, Botnleðja og
Astralsextettinn.
Risaeðlur í út-
rýmingarhættu
RISAEÐLAN var í þremenningaklíkunni sem stefndi í
heimsfrægð á vegum Smekkleysu þegar vegur hennar
var hvað mestur. Klíkan, sem var auk Eðlunnar skipuð
Ham og Bless, fór meðal annars í tónleikaferð til Banda-
ríkjanna og til Evrópu, en Eðlan hitaði meðal annars upp
fyrir Sykurmolana í mikilli tónleikaferð um Bretlandseyj-
ar. Frá þeim tíma er fyrirtaks platan sveitarinnar, Fame
and Fossils, sem gefín var út vestan hafs og austan.
Smám saman dró síðan úr sókn sveitanna ogtónleikum
Risaeðlunnar fækkaði smám saman þar til hún hætti að
koma fram. Aldrei var þó stigið það skref að lýsa því yfír
að sveitin væri hætt en það verður gert nú, fjórum árum
eftir síðustu tónleika, því Risaeðlan kveður þetta líf með
breiðskífu og miklum lokatónleikum í kvöld.
Skömmu áður en Risaeðl-
an hætti tónleikastússi
og reyndar æfíngum líka,
tók hún upp níu lög, en
lauk aldrei við þær upptök-
ur. Fyrir nokkru ákváðu
sveitarmenn að ljúka þó við
upptökurnar og þær komu
út í liðinni viku í bland við
eldri lög frá ævi sveitarinn-
ar, þar á meðal nokkrum
sem ekki hafa komið út á
geisladisk áður, en einnig
úrvali af Fame and Fossils.
Margrét Kristín Blöndal,
söngkona sveitarinnar og
fiðluleikari, segir að þar
sem hljómsveitin hafi aldr-
ei hætt almennilega hafi
það hvílt á henni að hætta
með látum og ekki síst að
gefa út þau lög sem hún
tók upp fyrir margt löngu
og aldrei voru gefin út.
„Þetta er eins og að hafa
verið á stökkpallinum í
fjögur ár og komast aldrei
í laugina,“ segir hún glað-
beitt og bætir við að lögin
hafi ekki komið út á sínum
tíma meðal annars vegna
þess að til sögunnar komu
kærustur, börn og „alls-
konar ónútímalegt kjaft-
æði“. Margrét segir að
Risaeðlan hafi alla tíð verið
„ógeðslega löt“ og vantað
í hana alla löngun í frægð
og frama; metnaðurinn
hafí ekki verið nógur til
að koma sér á framfæri
ytra þegar tækifærin gáf-
ust. „Við skildum ekki
þetta fyrirbæri frægð og
frama.“
Margrét segir að hljóm-
sveitar-
1* hafi kviðið
i fyrirþvíað
, % J koma sam-
eltir Árna fyrstu æf-
Motthíasson ingu small
allt eins og
flís við rass, þau mundu öll
lögin og það eina sem
leggja þurfti áherslu á við
æfingar var að hljósmveitin
yrði eins þett og forðum.
„Þetta er eins og að hjóla,
þú gleymir því ekki svo
glatt.“ Margrét segir að
ekki hafi kviknað nein ný
lög á æfingum fyrir tónleik-
ana, enda hafi það verið
ásetningur þeirra að semja
ekkert; „þetta verður bara
loka og þá verður það loka“,
segir hún ákveðin.
Lokatónleikar Risaeðl-
unnar verða í Tunglinu í
kvöld og Margét segir að
tónleikadagskráin sé löng;
„þetta verður eins og hjá
Bruce Springsteen, fyrst
leikum við í þijá tíma og
svo þegar við erum klöppuð
upp leikum við í þrjá tíma
í viðbót.“ Halldóra Geir-
harðsdóttir, sem lék á saxó-
fón og söng með Eðlunni
kemur einnig fram á tón-
leikunum, en hún var ekki
með síðustu árin eftir að
hún hóf leiklistarnám.
„Á sínum tíma fór hljóm-
sveitin í mat og gleymdi að
koma aftur, en núna á
þessu að ljúka," segir Mar-
gét ákveðin að lokum.
mPLOTUUTGAFA er með
líflegasta móti, alls kemur
út á fjórða tug breiðskífna
um þessar mundir, og eins
gott að menn hafi sig alla
við í kynningarstarfi og tón-
leikahaldi. I vikunni kom
úr fyrsta breiðskífa hljóm-
sveitarinnar
Reggae on
Ice, sem var
endurstofnuð
fyrir skemmstu
með mjög
breyttum
mannskap.
Breiðskífan ber
heitið í berja-
mó og þeir Reggímenn
hyggjast kynna hana með
útgáfuteiti í Astro á mið-
vikudag, þar sem stendur
til að spila plötuna á tónleik-
um. Þeir sem ekki eiga
heimangengt þann dag geta
svo barið Reggae on Ice
augum á sumarsólstöðuballi
á Hótel íslandi föstudags-
kvöldið.
mSJÓMANNADAGUR-
INN var 2. júní sl. og þá
kom út safn sjómannalaga
sem kallast Oskalög sjó-
manna, perlur hafsins.
Útgefandi er Hljóðsmiðjan,
„Súper þrfr“ Helgi
SSSól, Hafþór úr Spoon
og Heiðar úr
Botnleðju.
Morgunblaðið/Sverrir
Mogunblaðið/Kristinn
sem tileinkar plötuna „öllum
þeim sem sótt hafa björg í
bú úr greipum Ægis fyrir
landsmenn í aldaraðir".
Söngvarar á plötunni eru
Ari Jónsson, Björgvin
Halldórsson, María Björk,
Sjgrún Hjálmtýsdóttir og
Öm Ámason, en lögin eru
flest allþekkt, þar á meðal
Ég veit að þú kemur, Ég
fer í nótt, Ship o hoj, Suður
um höfin, Vor við sæinn og
Föðurbæn sjómannsins.