Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 B 17
FRÉTTIR
„Island“ keypt fyrir
indversk götubörn
ÍSLENSK hjálparstofnun, ABC
hjálparstarf, er að kaupa lítið land-
svæði á Indlandi sem hlotið hefur
nafnið Island. Þar er verið að byggja
þriggja hæða hús sem tekið verður
í notkun í þessum mánuði og verður
framtíðarheimili fyrir 150 munaðar-
laus börn. Landið er í Gannvaram,
20 km norðaustur af borginni Vijay-
awada, sem er ein af stærstu borg-
um Andra Pradesh fylkis á suðaust-
urströnd Indlands. Landið er ætlað
munaðarlausum og yfirgefnum
börnum á Indlandi.
Barnaheimilið Litlu ljósin (Little
Lights Orphanage) er í nágrenninu
en það hefur verið heimili nauð-
staddra barna í ij'ögur ár og hafa
nú um 370 börn, sem öll eiga ís-
lenska stuðningsforeldra í gegnum
ABC hjálparstarf, eignast þar heim-
ili. Heldur er þröngt um börnin og
mun nýja húsið bæta þar úr. Áætlað
er að 600 börn eignist þarna heim-
ili um næstu áramót. ÁBC greiðir
allan kostnað við uppihald barnanna,
landakaup og byggingar.
ABC er íslenskt kristileg hjálpar-
starf sem stofnað var fyrir 8 árum.
Starfið er unnið í sjálfboðavinnu og
renna ö!l framlög óskert til hjálpar
nauðstöddum börnum á Indlandi,
Filippseyjum, Úganda, Kambódíu,
Bangladesh, Haiti og Rúmeníu. Nú
fá um 2000 böm læknishjálp, hjálp
til menntunar, fæðis, klæða og í
mörgum tilfellum heimilis vegna
stuðningsforeldra ABC hjáiparstarfs.
Um tvær og hálfa milljón króna
vantar upp á svo að hægt sé að ljúka
við að greiða fyrir landið „ísland“
og bygginguna sem verður tekin í
notkun í þessum mánuði. Það kostar
12.000 krónur að byggja heimili
fyrir hvert barn, en ef allt er reikn-
að með s.s. landið, skóli, sturtur,
Fylgstu meb í
Kaupmanuahöfn
Morgunblabib
faest á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
IfloraunÍJlatofc
-kjami málsins!
salerni og annað, kostar um 25.000
krónur að koma upp framtíðarað-
stöðu fyrir barn. ABC hjálparstarf
hefur markað sér þá stefnu að kosta
engu til við safnanir eða auglýsingar
svo allt sem safnast megi nýtast
óskert til hjálpar. Innborgunarseðlar
liggja frammi í flestum bönkum og
sparisjóðum fyrir þá sem vilja leggja
þessu máli lið, en einnig er hægt
að hafa samband við skrifstofu
starfsins sem rekin er af sjálfboðalið-
um að Sóltúni (Sigtúni) 3, Reykjavík.
Flateyrarkirkja fær góðar gjafir
GÖÐIR gestir heimsóttu Flateyrar-
kirkju annan í hvítasunnu og færðu
þeir kirkjunni rausnarlegar gjafir.
Voru þar á ferð fulltrúar ferm-
ingarbarna í Kjalarnesprófasts-
dæmi í fylgd tveggja presta, þeirra
Jónu Kristínar Þorvaldsdóttur í
Grindavík og Bjarna Þórs Bjarna-
sonar, héraðsprests.
Gáfu börnin Flateyrarkirkju sím-
bréfatæki, myndvarpa og sýningar-
tjald, sem keypt hafði verið fyrir
söfnunarfé fermingarbama í
Kjalarnesprófastsdæmi. Má nærri
geta að gripirnir koma í góðar þarf-
ir og færði sóknarprestur Flateyr-
inga aðkomufólkinu bestu þakkir.
FRÁ afhendingu gjafabréfsins í Flateyrarkirkju. F.v. Tryggvi
Björgvinsson, Garðabæ, Ásta Margrét Halldórsdóttir, Flateyri,
sr. Bjarni Þór Bjarnason, héraðsprestur í Kjalarnesprófasts-
dæmi, sr. Gunnar Björnsson, Flateyri, Georg Rúnar Ragnars-
son, Flateyri og Margrét Kristín Pétursdóttir, Grindavík.
* Sgf£!«B MagMMKMgBMB
PHILIPS
Þynnsti siminn
á markaðnum (I7mm)
Fizzlénur og handhægur
70 tima hleðsla
(200 tima hleðsla táanleg)
Og uerðið aðeins
stgr.
Heimilistæki hf
TÆKNI-OG TOLVUDEILD
SÆTÚNI 8 SfMI 5691500
Umboösmenn um land allt
tgr *
SUMARUTSALAN
HEFST Á fiRlcJUDAGSMORGUN KL. 10:00
AF ALLRIMETRAVORU
Trönuhrauni 6 • Hafnarfir>i • Sími 565 1660 • Opi> mánud.-föstud. 10-18. laugard. 10-14
Su>urlandsbraut 50 V/Fákafen • Sími 588 4545 • Opi> mánud,- föstud. 10-18, laugard. 10-14