Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 20
20 B SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
+
ATVINNUA UGL YSINGA R
Kennarar athugið!
Hafralækjarskóla í Aðaldal vantar sérkennara
til starfa við sérdeild skólans, sem verður
rekin í tengslum við vistheimilið í Árbót,
skólaárið 1996-1997.
Um er að ræða heila stöðu sérkennara til
að kenna tveimur til þremur nemendum frá
vistheimilinu.
Nánari upplýsingar veitir Sigmar Ólafsson,
skólastjóri, vinnusími 464 3580 og heimasími
464 3581.
Tónlistarskóli
Dalvíkur
Laus er staða píanókennara næsta vetur.
Um er að ræða fulla stöðu. Skólinn þjónar
þremur sveitarfélögum, Dalvík, Svarfaðardal
og Árskógsströnd.
Hér eru miklir möguleikar fyrir áhugasaman
kennara og píanista.
Hringdu í síma 466 1863 fyrir hádegi (Hlín)
og kynntu þér málin.
Skólastjóri.
Skólaskrifstofa
Vestfjarða b.s.
auglýsir
Til umsóknar eru störf við sérfræðiþjónustu
Skólaskrifstofu Vestfjarða. Til greina koma
grunnskóla- og leikskólakennarar með fram-
haldsmenntun, sálfræðingar og aðrir sér-
fræðingar. Ennfremur ein staða ritara á
ísafirði. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst
en umsóknarfresturertil 5. júlí næstkomandi.
Skólaskrifstofa Vestfjarða er byggðasamlag
sveitarfélaga á Vestfjörðum og hefur aðsetur
á ísafirði, en mun þjóna grunnskólum og
leikskólum á Vestfjörðum. Búseta sérfræð-
inga er í ísafjarðarbæ, en einnig er reiknað
með að ráða sérfræðinga í hlutastörf á
Hólmavík og í Vestur-Barðastrandarsýslu.
Umsóknir sendist til Péturs Bjarnasonar,
Skólaskrifstofu Vestfjarða, Hafnarstræti 1,
400 ísafjörður. Nánari upplýsingar veitir for-
maður skólaráðs Vestfjarða, Ragnheiður
Hákonardóttir, í síma 456 4130 og Pétur
Bjarnason, viðtakandi forstöðumaður, í síma
456 3855 og 456 4684.
Lausar stöður
við Grunnskólann
á ísafirði
Á næsta skólaári eru lausar nokkrar kennara-
stöður við Grunnskólann á ísafirði.
Meðal kennslugreina eru:
Náttúrufræði á unglingastigi.
íþróttir pilta.
Heimilisfræði.
Myndmennt.
Handmennt, m.a. smíðar.
Tónmennt.
Sérkennsla.
Vélritun/tölvufræði.
Einnig eru lausar stöður:
Útibússtjóra í Hnífsdalsskóla.
Skólabókavarðar skólaárið 1996/’97.
Við bjóðum flutningsstyrk og hagstæða
húsaleigu.
* Nánari upplýsingar gefur skólastjóri, Kristinn
Breiðfjörð Guðmundsson í síma 456 3044/
4305 og aðstoðarskólastjóri Jónína Ólöf
Emilsdóttir í síma 456 4132.
Slóð (URL): http://isafjord.ismennt.is/-krbg
(Menntavefurinn á ísmennt).
Sálfræðingar
- sálfræðingar
Framlengdur er umsóknarfrestur um áður
auglýsta stöðu sálfræðings á Skólamálaskrif-
stofu Reykjanesbæjar til 1. júlí 1996.
Umsóknir berist undirrituðum, sem einnig
veitir nánari upplýsingar.
Bæjarstjórirm í Reykjanesbæ,
Ellert Eiríksson.
Frá Hrafnagilsskóla
Kennara vantar að Hrafnagilsskóla,
Eyjafjarðarsveit. Meðal kennslugreina eru
almenn kennsla í 1. - 7. bekk, raungreinar
og ritvinnsla á unglingastigi, íþróttir og
smíðar.
Einnig vantar kennara til forfallakennslu frá
hausti til áramóta til kennslu í 4. bekk og/eða
heimilisfræði.
Hrafnagilsskóli er 12 km sunnan Akureyrar. Nemendur eru 175 í
1.-10. bekk og flestir í heimanakstri. Við skólann er nýtt og gott
íþróttahús og sundlaug. Leikskóli er á staðnum. Skólinn er þátttak-
andi f viðamiklu þróunarverkefni, sem nefnist Aukin gæði náms,
ásamt þremur öðrum skólum á Norðurlandi eystra.
Ódýrt húsnæði í boði.
Umsóknarfrestur er til 22. júní.
Upplýsingar gefa Sigurður Aðalgeirsson, skóla-
stjóri, í símum 463 1137 og 463 1230 og Anna
Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í símum
463 1137 og 463 1127 (heimasími).
Kennarar
Kennara vantar í Grunnskólann á Eiðum.
Grsk. á Eiðum er skóli með u.þ.b. 40 nem-
endum í 3 deildum, 1.-3. bekk, 4.-6. bekk
og 7.-9. bekk. Rekstraraðilar skólans eru
Hjaltastaðarþinghá og Eiðaþinghá.
Við erum að leita að líflegum bekkjarkennara
fyrir miðdeildina okkar, sem í eru 15 nemend-
ur. Auk þess eru möguleikar á fagkennslu í
elstu deildinni.
Grsk. á Eiðum er á einu gróðursælasta svæði
landsins, Héraði, u.þ.b. 13 kílómetra frá
Egilsstöðum. í boði er ódýrt húsnæði, flutn-
ingur verður greiddur og auk þess eru tekju-
möguleikar nokkuð góðir þar sem skólinn
er heimavistarskóli lungann úr vetrinum.
Ef þú hefur áhuga, hringdu þá í formann
skólanefndar í síma 471 3835, eða oddvita
Eiðahrepps í síma 471 3840.
Byggingafulltrúi/
húsnæðisfulltrúi
Húsavíkurkaupstaður auglýsir eftir bygginga-
fulltrúa/húsnæðisfulltrúa.
Um er að ræða 100% starf sem skiptist jafnt
milli ofangreindra sviða.
Um menntun og starfssvið byggingafulltrúa
vísast til 4. kafla byggingalaga nr. 54/1978
og byggingareglugerðar, kafla 2.5.
Húsnæðisfulltrúi er starfsmaður húsnæðis-
nefndar og vinnur að verkefnum, sem skil-
greind eru í 45. gr. 1. nr. 97/1993 um Hús-
næðisstofnun ríkisins.
Önnur verkefni verða skilgreind í erindisbréfi.
Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi
Launanefndar sveitarfélaga og Stéttarfélags
tæknifræðinga.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí 1996.
Umsóknir skulu berast bæjarstjóranum
á Húsavík, sem veitir nánari upplýsingar.
Bæjarstjórinn á Húsavík.
Kennarar!
Enn er möguleiki
Við erum að byggja upp frábæran skóla.
Undir Esjuhlíðum í stórkostlegu umhverfi og
aðeins 25 mín. akstri frá Reykjavík er Klé-
bergsskóli, fullbúinn, einsetinn skóli með um
120 nemendum, 1.-10. bekk.
Hjá okkur er laus staða fyrir kennara á ung-
lingastigi og við kennslu í heimilisfræði og
tónmennt. Ef þú ert hugmyndaríkur og
áhugasamur kennari, hvetjum við þig til að
koma og vinna með okkur að uppbyggingu
skólans.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Sigþór
Magnússon, í símum 566 6083 og 566 6035.
NESKAUPSTAÐUR
Skólastjóri
Laust er til umsóknar starf skólastjóra við
Grunnskólann í Neskaupstað, 8.-10. bekk.
Kennsla 8.-10. bekkjar fer fram í húsnæði
Verkmenntaskóla Austurlands og skipulag
skólastarfsins er unnið í samráði við skóla-
meistara Verkmenntaskóla Austurlands og
skólastjóra Nesskóla. (Nesskóli annast
kennslu 1.-7. bekkjar.) Ráðið verður í
starfið til eins árs. Umsóknarfrestur um ofan-
greinda stöðu er til 1. júlí.
Upplýsingar veita formaður fræðslumálaráðs
og bæjarstjóri í síma 477 1700.
Fræðslumálaráð Neskaupstaðar.
Viðhaldsstjóri
Fiskiðjan Skagfirðingur hf. á Sauðárkróki vill
ráða viðhaldsstjóra sem hefur umsjón með
viðhaldi og þjónustu við skip fyrirtækisins.
Viðkomandi verður að vera vélfræðingur og
tæknifræðingur.
Upplýsingar gefur útgerðarstjóri í síma
455 4409 og 455 4400, fax 453 5839.
Umsóknir sendist fyrir 22. júlí til:
Fiskiðjan Skagfirðingurhf.,
Gísli Svan Einarsson,
Eyrarvegi 18,
550 Sauðárkróki.
M
Arskógshreppur
Árskógarskóli:
Afleysingarskólastjóra vantar næsta skóla-
ár 1996-’97. Einnig vantar kennara til al-
mennrar kennslu.
Þetta er fámennur skóli, u.þ.b. 60 nemendur
í 1.-9. bekk. Hann er staðsettur um 12 km
frá Dalvík og 30 km frá Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 27. júní.
Nánari upplýsingar gefa skólastjóri, Arnþór
Angantýsson, í síma 466 1920, formaður
skólanefndar, Helga Haraldsdóttir, í síma
466 1924 eftir kl. 17 og skrifstofa Árskógs-
hrepps í síma 466 1901.
Umsóknir skulu sendar á skrifstofu hrepps-
ins, Melbrún 2, 621 Dalvík.
Leikskólinn Leikbær:
Leikskólastjóra vantar sem fyrst á leikskól-
ann Leikbæ. Þetta er leikskóli með 24 heils-
dagsplássum.
Allar upplýsingar eru gefnar í Leikbæ í síma
466 1971 og hjá skrifstofu Árskógshrepps í
síma 466 1901.
J