Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 21

Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JUNl 1996 B 21 \ /C//\ A D Æm. ■ ■ BMI r o//X/Cj7/l\/\ NM Pharma óskar eftir lyfjafræðingi til sjálfstæðra og fjölbreyttra starfa. NM Pharma er framsækið og vaxandi um- boðsfyrirtæki fyrir lyf. Starfið, sem er fjölbreytt, felst aðallega í samskiptum við apótek, sjúkrahús, lækna, heilbrigðisyfirvöld og innlenda og erlenda samstarfsaðila, auk margvíslegra annarra verkefna til að tryggja árangur fyrirtækisins. Óskað er eftir lyfjafræðingi með eiginleika til að starfa sjálfstætt, taka frumkvæði og hafa góð samskipti við fólk. Vinnutíminn er mjög sveigjanlegur og laun miðast við árangur en ekki viðveru. Umsóknarfrestur er til og með 21. júní nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Liðsauka kl. 9-14. Lidsauki Skólavörðustíg 1a -101 Reykjavík - Sími: 562 1355 Fax: 562 1311 - Kt. 600182-0729 Ráðgjafastörf við skólaskrifstofu Akraness Akraneskaupstaður hefur í tengslum við yfir- töku grunnskólanna komið á fót skólaskrif- stofu. Skólaskrifstofunni er ætlað að þjóna leikskólunum, grunnskólunum og tónlistar- skóla bæjarins. Við leitum eftir tveimur starfsmönnum sem starfa með skólafulltrúa að uppbyggingu þjónustunnar í samstarfi við skólayfirvöld og félagsþjónustu bæjarsins. Við leitum fyrst og fremst eftir skólasálfræðingum en til greina koma grunnskólakennarar með fram- haldsmenntun, leikskólakennarar með fram- haldsmenntun, sálfræðingar eða sérfræðingar með menntun á sviði kennslu- og uppeldismála. Um nýjan starfsvettvang er að ræða þar sem áhersla verður lögð á: - ráðgjöf við starfsfólk skólanna - þjónustu við foreldra og nemendur - stuðning við þróunarstarf skólanna - samstarf við félagsþjónustu bæjarins Ráðið verður í störfin frá 1. ágúst nk. Laun verða samkvæmt kjarasamningum Akraneskaupstaðar og Starfsmannafélags Akraneskaupstaðar. Umsóknarfrestur er til 29. júní nk. og skulu skriflegar umsóknir berast til skólafulltrúa Akraness að Stillholti 16-18, Akranesi, sem einnig veitir nánari upplýsingar. Kennarar Lausar stöður við grunnskólana á Akranesi Brekkubæjarskóli. Kennara vantar til al- mennrar bekkjarkennslu og íþróttakennslu pilta. Upplýsingar veita: Ingi Steinar Gunnlaugs- son, skólastjóri, vs. 431 1938 hf., 431 1193, Ingvar Ingvarsson, aðstoðarskólastjóri, vs. 431 1938, hs. 431 3090. Grundaskóli. Kennara vantar til almennrar bekkjarkennslu, tónlistarkennslu og smíða- kennslu. Upplýsingar veitir Ólína Jónsdóttir aðstoðar- skólastjóri, vs. 431 2811, hs. 431 1408. Umsóknarfrestur er til 29. júní nk. Umsóknarfrestur um áður auglýstar stöður er framlengdur til 24. júní nk. Nánari upplýsingar hjá undirrituðum í síma 431 1211. Skólafulltrúi Akraness. Ritstjóri Starf ritstjóra Eiðfaxa og Eiðfaxa International er laust til umsóknar. í boði er krefjandi og skemmtilegt starf í vaxandi fyrirtæki. Hæfniskröfur: Menntun eða reynsla af fjöl- miðlun, stjórnunarhæfileikar, góð íslensku- og tungumálakunnátta, tölvuþekking og inn- sýn í heim hestamennskunnar. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 15. ágúst nk. Nánari upplýsingar um starfið veita Gyða Gerðarsdóttir, framkvæmdastjóri, og Rafn Jónsson, ritstjóri, í síma 588 2525. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist til Eiðfaxa ehf., Ármúla 38, 108 Reykjavík. Að lifa er að skapa Hefur þú áhuga á spennandi og fjölbreyttri vinnu... ? Hefur þú hugmyndir og lífskraft... ? Hefur þú áhuga á að vinna á stórum og líflegum vinnustað, þar sem þú gætir fengið að láta sköpunarhæfileikann njóta sín. . . ? Ef svo er þá óskum við eftir þér til starfa í útstillingadeild okkar í Hagkaup í Kringlunni!! Menntun eða reynsla af útstillingastörfum er æskileg. Upplýsingar veittar í Kringlunni, sérvörur. Iðntæknistofnun vinnur að tækniþróun og aukinni fram- leiðni i íslensku atvinnulifi. Á stofnuninni eru stundaðar hagnýtar rannsóknir, þróun, ráðgjöf, gæðaeftirlit, þjón- usta, fræðsla og stöðlun. Áhersla er lögð á hæft starfs- fólk til að trygja gæði þeirrar þjónustu sem veitt er. Umsjónarmaður tölvukerfis Iðntæknistofnun óskar eftir að ráða starfs- mann til að hafa umsjón með tölvukerfi stofn- unarinnar. Starfssvið hans verður að annast daglegan rekstur tölvukerfa Iðntæknistofn- unar og veita notendum aðstoð. Nánartiltek- ið felst starfið í aðstoð við notendur og fræðslu um notkun tölvanna, umsjón með afritunartöku og öryggismálum tölvukerfisins auk þess að sjá um bilanaþjónustu tölvubún- aðar ásamt uppsetningu búnaðar er tengist tölvukerfinu. Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með hagnýta menntun á sviði tölvumála og/eða reynslu af tölvum og tölvunotkun. Æskilegt er að umsækjendur séu með menntun í tölv- unarfræði, kerfisfræði, verkfræði, tæknifræði eða hafi aðra sambærilega menntun. Umsækjendur þurfa að hafa haldbæra reynslu og þekkingu í Unix og NT-stýrikerfi og Windows-umhverfi ásamt forritum sem því tengist, s.s. Word og Excel. Einnig er æskilegt að umsækjendur hafi þekkingu á hugbúnaðarkerfinu Lotus Notes og bók- haldskerfinu Fjölni. Starfsreynsla er enn- fremur talin æskileg. Um er að ræða áhugavert og sjálfstætt starf fyrir réttan aðila. Áhersla er lögð á að við- komandi eigi auðvelt með mannleg sam- skipti, hafi til að bera útsjónarsemi og skipu- lagsgáfu. Hvatt er til að konur, jafnt sem karlar, sæki um staríið. Allar nánari upplýsingar veitir Örn Gylfason, starfsmannastjóri, í síma 587 7000. Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal skila til hans fyrir 25. júní næstkomandi. Iðntæknistofnun 11 IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSUNDS Keldnahotti, 112 Reykjavík Sími 587 7000 Dalvíkurbær Frá Dalvíkurskóla Við auglýsum eftir kennurum til starfa í almenna kennslu, hannyrðir og myndmennt og vegna forfalla frá miðjum október 1996 vantar kennara í heimilisfræði- (V2 staða), ritvinnslu- og bókfærslukennslu. Einnig vantar skólaritara í 50% starf eftir hédegi frá 10. ágúst. Umsóknarfrestur er til 30. júní 1996. Umsóknir berist til Dalvíkurskóla. Nánari upplýsingar veita skólastjóri, Svein- björn Markús Njálsson, og aðstoðarskóla- stjóri, Anna Baldvina Jóhannesdóttir, í síma 466 1380 og 466 1381. Sveinbjörn Markús Njálsson, skólastjóri. Út á land! Verkstjóri Frosti hf., Súðavík óskar að ráða verkstjóri í rækjuvinnslu. Framtíðarstarf. Hjá fyrirtæk- inu starfa um 30 manns og er unnið á vökt- um. Byrjunartími er samkomulag. Húsnæði er til staðar. Við leitum að dugmiklum og metnaðarfullum verkstjóra. Starfsreynsla úr rækjuvinnslu er æskileg en ekki skilyrði. Upplýsingar eru einungis veittar hjá Katrfnu S. Óladóttir, Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til 1 Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. fyrir 21. júní nk. merktar: „Verkstjóri 313.“ Gott sölufólk óskast Tímaritið Bleikt og blátt óskar eftir vönu sölufólki tiLað selja áskriftir í gegnum síma á kvöldin. Unnið er eftir mjög hvetjandi bónuskerfi. Vinnutíminn er mánudaga -fimmtudaga frá kl. 18-22. Ef þú ert góður, reyndur sölumaður og ert eldri en átján ára, þá hafðu samband við Sigrúnu Láru Shanko á þriðjudag í síma 515 5616 á milli kl. 15.30 og 22.00. á FRÓDI BÓKA f- BLAÐAUTGAFA Héðinshúsinu, Seljavegi 2, 101 Reykjavík. Arkitekt óskast til starfa á teiknistofu okkar. Við erum að vinna að skemmtilegum og fjöl- breyttum verkefnum og bjóðum upp á gott vinnuumhverfi. Leitum að framsæknum arkitekt með stað- góða menntun, þekkingu í notkun teiknifor- rita og helst með einhverja starfsreynslu. Óskum eftir að umsækjendur leggi skriflega inn nafn sitt og aðrar upplýsingar, sem farið verður með sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Vinnustofa arkitekta ehf., Skólavörðustíg 12, 101 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.