Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 22
22 B SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N U A UGL YSINGAR
i MÝRDALSHREPPCIR
■k Mýrarbraut 13, 870 Vlk í Mýrda
Skólastjóri
Tónskóla
Laus er til umsóknar staða skólastjóra Tón-
skóla Mýrdælinga frá 1. september nk.
Leitað er eftir einstaklingi sem getur kennt
á sem flest hljóðfæri og jafnframt tekið að
sér stöðu organista við Víkurkirkju. Aðsetur
Tónskóla Mýrdælinga er í Vík í Mýrdal.
Vík er 182 km frá Reykjavík (u.þ.b. 2 tíma akstur). Mýrdalurinn er rómaö-
ur fyrir náttúrufegurð. íbúar Mýrdalshrepps eru 563 og er tónlistarlíf í
hreppnum öflugt. í Víkurkirkju er 3 ára íslenskt 11 radda pípuorgel.
Unnið er að nánu samstarfi Tónskóla, leik-
skóla og grunnskóla.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Mýrdalshrepps í síma 487 1210 og hjá for-
manni Tónskólanefndar í síma 487 1118.
ÍSLANDSBANKI
Viðskiptafræðingur
eða sambærileg
menntun
íslandsbanki hf. auglýsir eftir viðskiptafræð-
ingi eða aðila með sambærilega menntun til
starfa í tölvu- og upplýsingadeild bankans.
Tölvu- og upplýsingadeild sér um þróun
margvíslegra upplýsingakerfa fyrir bankann.
Helstu hugbúnaðarverkfæri eru Oracle og
Delphi. Helstu stýrikerfi eru: Unix, Novell,
VMS, Windows og MS-DOS.
Umsækjandi þarf að hafa góða skipulags-
hæfileika og eiga gott með að umgangast
starfsmenn og viðskiptavini deildarinnar.
Hann þarf auk þess að vera jafnvígur á hóp-
vinnu og sjálfstæðl í vinnubrögðum.
Nánari upplýsingar veitir Hákonía Guð-
mundsdóttir, deildarstjóri hugbúnaðardeild-
ar í síma 560-8000.
Laun og kjör samkvæmt samningum í S.Í.B.
og bankanna.
Umsóknir sendist Guðmundi Eiríkssyni,
starfsmannaþjónustu íslandsbanka hf.,
Kirkjusandi 2,155 Reykjavík, fyrir 1. júlí 1996.
Kennarar
Okkur vantar nokkra kennara til starfa við
grunnskólann í Vestmannaeyjum.
Við Barnaskóla Vestmannaeyja eru lausar
3 kennarastöður. Um er að ræða 1 stöðu
við handmenntakennslu (smíðar), 1 staða við
tónlistarkennslu (bekkjarkennsla og skóla-
kór) og 1 staða við dönskukennslu.
Nánari upplýsingar gefur Hjálmfríður skóla-
stjóri í símum 481 1944 og 481 1898.
Við Hamarskóla f Eyjum eru lausar 3-4
kennarastöður. Um er að ræða 1 stöðu sér-
kennara, 1-2 stöður við almenna kennslu
(yngri börn) og 1-2 stöður á unglingastigi,
kennslugreinar eðlisfræði, stærðfræði og
tölvur.
Ef þú ert áhugasamur kennari og vilt taka
þátt í virku skólastarfi hafðu samband við
Halldóru skólastjóra í síma 481 2644 eða
481 2265 eða Ástríði í síma 481 2355.
Skólastarf í Vestmannaeyjum stendur á gömlum og traustum
grunni og tók fyrsti barnaskóli á islandi til starfa í Eyjum árið
1745. Barnaskóli Vestmannaeyja er heilstæður grunnskóli og
eru nemendur 450 talsins. Skóíinn er vel búinn kennslutækjum,
hressum krökkum og áhugasömu starfsfólki. Hamarsskóli er
nýlegur skóli og var fyrsti áfangi tekinn í notkun 1982. I skólan-
um eru 360 nemendur á aldrinum 6-16 ára. Þar eru skemmtileg-
ir krakkar, hresst starfsfólk og góður starfsandi.
Skólanefnd grunnskóla í Vestmannaeyjum.
Hlutastarf
Keilusamband íslands óskar eftir starfs-
manni á skrifstofu í hlutastarf. Vinnutími er
10-15 tímar á viku á skrifstofutíma.
Umsóknir sendist til Keilusambands íslands,
íþróttamiðstöðinni Laugardal, 105 Reykjavík,
fyrir 25. júní nk.
LANDSPÍTALINN
.../' þágu mannúðar og vísinda...
í þágu mannúðar og vfsinda
BARNASPITALI HRINGSINS
Sérfræðingur
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í
barnalækningum með hjartasjúkdóma barna
sem undirgrein. í starfinu felst, auk lækn-
inga, þátttaka í kennslu og rannsóknum í
samráði við forstöðulækni Barnaspítala
Hringsins. Einnig felst í starfinu greining og
meðferð á hjartasjúkdómum barna, tengdum
hjartaaðgerðum.
Umsóknir með upplýsingum um nám, fyrri
störf og reynslu af kennslu og vísindastörfum
sendist á eyðublöðum stöðunefndar lækna
til forstöðulæknis Barnaspítala Hringsins,
Ásgeirs Haraldssonar, prófessors, sem veit-
ir og nánari upplýsingar, sími 560 1050.
Mat stöðunefndar byggist á innsendum
umsóknargögnum. Eyðublöð fást hjá heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og
skrifstofu Ríkisspítala.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst nk.
Sérfræðingur
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í
barnalækningum. Sérfræðingurinn skal hafa
víðtæka reynslu í gjörgæslu barna.
í starfinu felst, auk lækninga, þátttaka í rann-
sóknum og kennslu í samráði við forstöðu-
lækni Barnaspítala Hringsins.
Umsóknir með upplýsingum um nám, fyrri
störf og reynslu af kennslu og vísindastörfum
sendist á eyðublöðum stöðunefndar lækna
til forstöðulæknis Barnaspítala Hringsins,
Ásgeirs Haraldssonar, prófessors, sem veit-
ir og nánari upplýsingar, sími 560-1050.
Mat stöðunefndar byggist á innsendum
umsóknargögnum. Eyðublöð fást hjá Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og
skrifstofu Ríkisspítala. Umsóknarfrestur er
til 1. ágúst nk.
KVENNADEILD LANDSPITALANS
Aðstoðarlæknar
Aðstoðarlæknar óskast til lengri og skemmri
tíma á kvennadeild Landspítalans. Ráðning
felur í sér störf á ýmsum skorum kvenna-
deildar samkvæmt vinnuskipulagi deildarinn-
ar og þátttöku í vöktum. Möguleikar eru á
vísindastörfum í samráði við prófessor og
forstöðulækni.
Upplýsingar veita Reynir T. Geirsson, pró-
fessor/forstöðulæknir, eða Jón Þ. Hallgríms-
son yfirlæknir, kvennadeild Landspítalans.
Ritari í móttöku glasafrjóvgunar-
deildar
Ritari í móttöku glasafrjóvgunardeildar
kvennadeildar Landspítalans (100% starf)
óskast frá 1. ágúst 1996. Ráðning er til eins
árs með möguleika á framlengingu. Starfið
felst í daglegum rekstri móttöku glasafrjóvg-
unar, símavörslu, ritun læknabréfa og þátt-
töku í tölvuvæðingu deildarinnar. Reynsla af
tölvuvinnu og störfum læknaritara eræskileg.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí 1996.
Upplýsingar veitir Þórður Óskarsson sér-
fræðingur í síma 560 1175. Umsóknum
ásamt meðmælum skal skila á skrifstofu
Reynis T. Geirssonar, forstöðulæknis
kvennadeildar Landspítalans, 101 Reykjavík.
AKUREYRARBÆR
Barnaskóli
Akureyrar
í Barnaskóla Akureyrar er laus heil staða
forstöðumanns skólavistunar og auk þess
nokkur störf við síðdegisvistun, ræstingu og
gæslu (blönduð störf) og aðstoð við börn
með sérþarfir.
Einnig vantar kennara við sama skóla við
eftirtaldar kennslugreinar:
• Sérkennslu 1/1 staða.
• Alm. bekkjarkennslu (5.-7. bekk).
• Heimilisfræði 1/2 staða.
í Barnaskóla Akureyrar er lögð áhersla á
endurmenntun og samvinnu allra starfs-
manna og þar er hefð fyrir því að sinna ný-
breytnistarfi. Ákjósanlegt tækifæri fyrir fólk
með frumkvæði og vilja til að vinna að
skólaþróun.
Upplýsingar gefur skólastjóri/aðstoðarskóla-
stjóri í síma 462 4172 eða aðstoðarskóla-
stjóri, Birgir Sveinbjörnsson, í heimasíma
462 6747.
Upplýsingar veitir einnig starfsmannastjóri
Akureyrarbæjar í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 2. hæð.
Umsóknarfrestur er til 28. júní.
Starfsmannastjóri.
NESKAUPSTAÐUR
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar
stöður í Neskaupstað:
Grunnskólinn f Neskaupstað
• Almenn kennsla
• Mynd- og handmennt
• Sérkennsla
Grunnskólinn í Neskaupstað er tvískiptur,
annars vegar Nesskóli, þar sem börnum í
1.-7. bekk er kennt og hins vegar Verk-
menntaskóli Austurlands þar sem 8.-10.
bekk er kennt.
Upplýsingar veita Gísli Sighvatsson í síma
477 1726 og Einar Már Sigurðarson í síma
477 1620.
Tónskólinn í Neskaupstað:
• Gítarkennara
• Þverflautu-, klarinett- og saxafónkennara
• Leiðbeinanda fyrir forskólanemendur
Um er að ræða tvær stöður. Upplýsingar
veitir Egill Jónsson í síma 477 1822.
Leikskólinn Sólvellir
• Stöður leikskólakennara.
Upplýsingar veitir Guðrún Hólmfríður Jóns-
dóttir í síma 477 1485.
Umsóknarfrestur um ofangreindar stöður er
til 1. júlí.
Fræðslumálaráð Neskaupstaðar
Hrútafjörður
Skólabúðirnar að Reykjum
og Barnaskóli Staðarhrepps
auglýsa eftirfarandi stöður lausartil umsóknar:
Við Skólabúðirnarerlaus staða íþróttakennara.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 451 0001
heima eða 451 0000.
Við Barnaskóla Staðarhrepps er laus 11/2
staða kennara. Um er að ræða kennslu í
1.-7. bekk og er þeim skipt í tvær deildir,
eldri og yngri. Eru 10-12 nemendur í hvorri
deild. Um er að ræða bæði almenna kennslu
og kennslu í verkgreinum.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
451 0030 heima eða 451 0025.