Morgunblaðið - 27.06.1996, Síða 1
100 SÍÐUR B/C/D/E
143. TBL. 84. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ottast
tafir
í flugi
Genf. Reuter.
PIERRE Jeanniot, forstjóri Al-
þjóðasambands áætlunarflug-
félaga (IATA), sagðist í gær
óttast að verulegar tafír yrðu í
farþegaflugi í Evrópu gæfu rík-
isstjórnir ekki eftir meira af loft-
rými sínu til millilandaflugs.
Aðvörun Jeanniots er sett
fram daginn fyrir ársfund evr-
ópskra flugumferðarstjóra, sem
hefst í París í dag. Hann sagði
að tölur sýndu, að rúmlega 12%
flugferða á fyrstu fjórurn mán-
uðum ársins hefði seinkað eða
tæplega tvöfalt fleiri en á sama
tíma í fyrra.
„Það verður að aðhafast eitt-
hvað strax svo hægt verði að
afstýra miklum óþægindum fyr-
ir flugfarþega í sumar,“ sagði
Jeanniot.
í apríl seinkaði 15% brott-
ferða í Evrópu að meðaltali um
16 mínútur en óttast er að
ástandið versni til muna á næstu
tveimur mánuðum. Jeanniot
sagði að vandann mætti fyrst
og fremst rekja til tregðu flug-
stjórnarmiðstöðva einstakra
ríkja í Mið-Evrópu til þess að
gefa eftir loftrými yfir 25.000
fetum til farþegaflugs sem
stjórnað væri frá evrópsku flug-
stjórnarmiðstöðinni Eurocontrol
í Brussel.
Eurocontrol hefur takmarkað
loftrými til afnota og sagði Je-
anniot að IATA væri ánægt með
hvernig rekstur þess hefði tek-
ist. Koma mætti í veg fyrir öng-
þveiti og seinkanir með því að
láta stofnuninni eftir aukið og
ónotað loftrými til yfirflugs.
Fögnuður í Prag
Reuter
MIKILL fögnuður braust út í
Tékklandi í gær eftir sigur
tékkneska landsliðsins í öðrum
undanúrslitaleik Evrópumóts-
ins í knattspyrnu í Englandi.
Myndin var tekin á Wenceslas-
torginu í Prag þar sem um tíu
þúsund manns fögnuðu. Mæta
Tékkar Þjóðverjum í úrslita-
leiknum.
■ Tékkar mæta/El
Jeltsín varar við stækkun NATO
Vill efla herinn
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti
ávarpaði liðsforingjaefni í Kreml í
gær og hét því að efla á ný varnir
landsins. Hann sagði að líkur á
heimsstyijöld hefðu minnkað en
Rússum stæði enn ógn af staðbundn-
um hættum og átökum á landamær-
unum.
Forsetinn hefur lofað að afnema
herskyldu en andstæðingar hans
segja að ríkið hafí ekki efni á þeim
umskiptum.
„Aætlanir Atlantshafsbandalags-
ins um stækkun og nýjan klofning í
Evrópu eru sérstakt áhyggjuefni,"
sagði forsetinn. „Öll þessi mál valda
því að Rússar verða að hafa sterkan
her sem eina af stoðum sjálfs ríkis-
ins.“
Hann minntist á stríðið í
Tsjetsjníju þar sem þúsundir rúss-
neskra hermanna og tugþúsundir
óbreyttra borgara hafa týnt lífi,
Jeltsín sagði að þar hefði mjög reynt
á siðferðisþrek hermanna. Þeir hefðu
staðist prófið og sýnt hugrekki og
fórnarlund.
Kommúnistinn Víktor Íljúkín, for-
maður öryggismálanefndar Dúm-
unnar, gagnrýndi i gær brottrekstur
nokkurra háttsettra -hershöfðingja
og yfirmanns leyniþjónustunnar í
vikunni. Jeltsín er talinn hafa vikið
þeim að kröfu Alexanders Lebeds,
nýs yfirmanns öryggisráðs Rúss-
lands. „Þetta var árás á þá liðsmenn
sem hafa a.m.k. reynt að stöðva
þjófnað á fjármunum ríkisins, spill-
ingu á æðstu stöðum og almenna
lögleysu," sagði Íljúkín.
■ Hafna ríkjasambandi/30
Reuter
Vertu velkominn, Bill!
FUNDUR leiðtoga sjö helstu iðn- Citroen-bragganum er hér ekið
ríkja heims hefst í Lyon í Frakk- framhjá, er Bill Clinton, Banda-
landi í dag. A þessu skilti, sem ríkjaforseti, boðinn velkominn.
Öþekkt samtök segjast ábyrg fyrir sprengjutilræðinu í Saudi-Arabíu
Vara við frekari tilræðum
gegn Bandaríkjamönnum
Dharan í Saudi-Arabíu, Washington. Reuter.
Ná saman í
Tékklandi
Prag. Reuter.
SAMKOMULAG tókst í gærkvöldi
milli fráfarandi stjórnarflokka í
Tékklandi um myndun nýrrar
ríkisstjórnar en stærsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn, Jafnaðar-
mannaflokkurinn, verður að leggja
blessun sína yfir stjórnarsáttmál-
ann svo stjórnin verði að veruleika.
Samkvæmt samkomulagi, sem
Vaclav Havel forseti kom í kring
eftir kosningarnar fyrir fjórum
vikum, hefur Jafnaðarmanna-
flokkurinn, sem vann mjög á í
kosningunum, goldið jáyrði við að
styðja minnihlutastjórn Vaclavs
KÍaus á þingi. I staðinn fær flokk-
urinn lykilembætti í þinginu. Eftir
er þó að ganga frá slíku samkomu-
lagi og er það talið munu draga
dám af því að Klaus og Milos
Zeman, leiðtogi Jafnaðarmanna-
flokksins, eru svarnir óvinir. Efast
stjórnmálaskýrendur um að sam-
komulag þeirra í milii muni halda
út kjörtímabilið.
BANDARISKIR og saudi-arabískir
embættismenn sögðust í gær hafa
litla hugmynd um hver gæti hafa
staðið að sprengjutilræði sem varð
23 að bana og særði tæplega 400,
þar af 105 alvarlega, í bækistöð
Bandaríkjahers í austurhluta Saudi-
Arabíu í fyrrakvöld. Áður óþekkt
samtök höfðu samband við arabískt
blað, sem gefið er út í London, og
lýstu sig ábyrg fyrir tilræðinu.
Sagði sá er hringdi, að búast mætti
við fleiri árásum á erlendar her-
stöðvar í Saudi-Arabíu ef Banda-
ríkjaher yrði ekki á brott úr landinu.
Sprengingin rústaði framhlið
fjölbýlishúss þar sem bandarískir
hermenn bjuggu, í borginni Khob-
ar, þar sem er bækistöð banda-
rískra flugvéla er gæta flugbann-
svæðis yfir suðurhluta íraks.
Norman Schwarzkopf, fyrrum
yfirmaður herafla Bandaríkjanna,
sagði að ofbeldi og andstaða við
Bandaríkjaher væri að aukast í
Saudi-Arabíu. „Við verðum að sýna
þeim að við erum harðari af okkur
en þeir,“ sagði hann í sjónvarpsvið-
tali. Bætti Schwarzkopf því við, að
það yrðu „hörmuleg mistök“ ef
Bandaríkjamenn héldu á brott frá
þessum heimshluta.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna beindi í gærkvöldi þeim til-
mælum til bandarískra ríkisborg-
ara í Saudi-Arabíu, að fara með
allri gát, láta sem minnst fara fyr-
ir sér og tilkynna sendiráðinu um
allt sem grunsamlegt gæti talist.
Þetta var mannskæðasta tilræði
gegn Bandaríkjamönnum í Mið-
Austurlöndum frá því 1983, er 241
bandarískur sjóliði var felldur í
Beirút. Yfirvöld í Saudi-Arabíu,
sem í síðasta mánuði tóku af lífi
fjóra menn sem viðurkenndu í sjón-
varpsviðtali að hafa staðið að
sprengjutilræði í annarri banda-
rískri herbækistöð, hétu því í gær
að þeim sem stóðu að tilræðinu í
fyrrakvöld yrði refsað „harkalega
og snarlega".
Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, flaug til
Saudi-Arabíu í gær til þess að
skoða með eigin augum afleiðingar
sprengingarinnar. Sagði hann við
fréttamenn, að tilræðið myndi ekki
hindra Bandaríkjamenn í að reka
þau erindi sem þeir ættu.
Christopher heimsótti slasaða
sem eru á sjúkrahúsi. Hét hann
því að tilræðismanna yrði leitað og
þeim refsað.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í gær að hann myndi
leggja megináherslu á „baráttuna
gegn hryðjuverkum," á fundi leið-
toga sjö helstu iðnríkja heims, sem
hefst í Lyon í Frakklandi í dag.
Sagði Clinton að efnahagslegt ör-
yggi væri óhugsandi ef lífi fólks
væri hætta búin.
Sagði Clinton fyrir um, að fánar
skyldu hafðir í hálfa stöng í Banda-
ríkjunum.