Morgunblaðið - 27.06.1996, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Prestar segjast hafa skilning á ákvörðun biskups Islands að hætta störfum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HERRA Ólafur Skúlason biskup ræðir við presta á prestastefnu.
SÉRA Jón Helgi Þórarinsson á Dalvík og Míagnús Guðjónsson fyrrverandi
biskupsritari við upphaf prestastefnu.
Ætti að stuðla að
friði í kirkjunni
Prestar á prestastefnu eru almennt þeirrar
skoðunar að ákvörðun biskups íslands að
láta af störfum í lok næsta árs sé skynsam-
leg út frá þeirri erfíðu stöðu sem hann hef-
ur verið í. Að þeirra mati mun þetta stuðla
að friði í kirkjunni, en benda jafnframt á
að enn séu þar óleyst deilumál. Egill Olafs-
son ræddi við presta á prestastefnu.
Séra Kristján Séra Þórir Jökull Séra Kristinn Jens
Björnsson Þorsteinsson Sigurþórsson
Séra Vigfús Þór Séra Helga Soffía Séra Guðmundur
Arnason Konráðsdóttir Þorsteinsson
PRESTAR á prestastefnu telja
almennt að ákvörðun herra
Ólafs Skúlasonar að láta af
biskupsembætti í árslok 1997 sé til
þess fallin að stuðla að sátt innan
kirkjunnar. Þeir telja að hann hafí
tekið skynsamlega ákvörðun í þeirri
erfíðu stöðu sem hann hafí verið í.
Ákvörðun Ólafs Skúlasonar kom
mörgum prestum á prestastefnu á
óvart. Hún kom t.d. vígslubiskupun-
um báðum algerlega í opna skjöldu.
Ólafur ætlaði sér upphaflega ekki
að tilkynna ákvörðun sína svo
snemma. Hann ákvað hins vegar að
segja frá henni við upphaf presta-
stefnu þegar ljóst var að þær ávirð-
ingar sem bornar hafa verið á hann
yrðu ræddar á fundinum. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins ætluðu
nokkrir prestar að ræða þessi mál á
prestastefnunni og ljóst þótti að ein-
hveijir þeirra myndu setja fram kröfu
um afsögn biskupsins. Biskup vissi
fyrir prestastefnuna í hvað stefndi
og hann mat það svo að hann yrði
að bregðast við kröfum presta um
afsögn. Hann mun þess vegna hafa
tekið ákvörðun um að tilkynna
ákvörðun sína, sem hann hafði þá
þegar tekið ásamt fjölskyldu sinni
og nánustu samstarfsmönnum.
Stuðlar að friði
Þeir prestar sem Morgunblaðið
ræddi við á prestastefnu í
gær voru á einu máli um
að þessi ákvörðun hefði
verið eðlileg í þeirri erfíðu
stöðu sem biskupinn var í.
„Þetta lýsir stórum hug
hjá biskupnum að meta ástandið
þannig að rétt sé af honum að Ijúka
störfum eftir eitt og hálft ár. Með
þessu er hann auðvitað fyrst og
fremst að hugsa um hagsmuni kirkj-
unnar. Þetta er gífurlega stórt skref
af hans hálfu og það hljóta allir að
sjá að það er stigið í átt til friðar,“
sagði séra Vigfús Þór Ámason,
prestur í Grafarvogi.
Séra Vigfús sagði mikilvægt að
prestar tækju höndum saman og
reyndu að stuðla að friði innan kirkj-
unnar. Hann sagði að þeir erfíðleikar
sem kirkjan hefði ratað í hefðu opnað
augu manna fyrir mikilvægi þess að
fundnar yrðu leiðir til að taka á
ágreiningsmálum innan kirkjunnar.
Það væru núna allir sammála um
mikilvægi þess að afgreiða frumvarp
um stöðu, stjóm og starfshætti þjóð-
kirkjunnar, en þetta mál væri búið
að vera í umræðu innan kirkjunnar
í fjölda ára án þess að fást lögfest.
Séra Vigfús sagði að kirkjan yrði
einnig að taka mið af þeim hröðu
breytingum sem væru að verða á þjóð-
félaginu. Hún yrði að taka tillit til
þessara breytinga eins og hún hefði
raunar verið að gera undir forystu
Ólafs Skúlasonar.
Kirkjan þarf að bregðast við
„Mér fínnst þessi ákvörðun mjög
eðlileg og skynsamleg eins og staðan
er orðin. í mínum huga ætti þetta
að gefa möguleika á því að skapa frið
í kirkjunni. Eg vona að við náum að
nýta okkur þá möguleika. Það hefur
mikil áhrif á alla söfnuði í landinu
ef það er ófriður um embætti biskups
íslands," sagði séra Kristján Bjöms-
son, prestur á Hvammstanga.
„Ég saknaði þess hins
vegar að biskupinn skyldi
ekki gefa yfirlýsingu um
að kirkjan þyrfti að móta
tillögur um hvemig hún
ætti að bregðast við þegar
ásakanir eru bomar á þjóna kirkjunn-
ar um kynferðislega áreitrii. Ég vona
að tillögur um þetta efni komi fram
á prestastefnunni. Það hlýtur að vera
forsenda þess að það skapist friður
um þessi mál í framtíðinni að það
verði tekið með öðmm hætti á þessu
en gert var. Það þýðir ekki að neyta
aflsmunar eins og hefur verið gert.“
Kristján sagðist geta tekið undir
með biskupi íslands að það væri
óheppilegt fyrir kirkjuna að efna til
biskupskosninga núna strax. Hann
sagðist einnig hafa skilning á því að
Ólafur vildi ljúka þeim verkefnum sem
hann væri að vinna að fyrir Lúterska
heimssambandið.
Kristján sagði mikilvægt að gera
sér grein fyrir því að þær ásakanir
sem beinst hafa að Ólafi Skúlasyni
væru ekki eina vandamál kirkjunnar.
Þau yrðu til staðar þó að nýr maður
settist í stól biskups. Miklu skipti að
kirkjunni tækist að fínna leiðir til að
leysa þessi mál farsællega. Hann
sagðist fínna fyrir einlægum vilja
presta til að það yrði gert.
Skynsamleg ákvörðun
„Þetta kemur mér ekki algerlega
á óvart. Ég þóttist sjá að þetta væri
það eina rétta í stöðunni. Mér finnst
þessi ákvörðun biskupsins vera vitur-
leg. Ég tel einnig skynsamlegt af
honum að láta einhvem tíma líða
áður en hann hættir störfum,“ sagði
séra Kristinn Jens Sigurþórsson,
prestur í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
„Þetta ætti að auðvelda margt í
uppbyggingarstarfinu sem er fram-
undan. Við þurfum öll að sameinast
um að koma á meiri friði innan kirkj-
unnar. Það eru hins vegar ennþá
óleyst erfíð mál og nægir að nefna
deilumar við Langholtskirkju. Von-
andi tekst að finna þar einhverja
lausn. Það er skelfílegt þegar svo virð-
ist vera sem sóknamefndarmenn
vinni að því að koma
sóknarprestinum frá. Slík
vinnubrögð eiga ekki
heima innan kirkjunnar."
Blendnar tilfinningar
„Tilfínningar mínar gagnvart
þessari ákvörðun biskups em nokkuð
blendnar. Mér hefur þótt allur að-
dragandi hennar afskaplega sorgleg-
ur. Astandið í kirkjunni í vetur hefur
ekki einungis hryggt alla þjóðina
heldur einnig okkur prestana,“ sagði
séra Helga Soffía Konráðsdóttir,
prestur í Háteigskirkju í Reykjavík.
„Ég skil þessa ákvörðun biskups
að draga sig í hlé hins vegar mjög
vel. Það er orðið svo ófriðlegt innan
prestastéttarinnar og einnig er ófrið-
legt kringum embætti biskups. Þetta
er algerlega óviðunandi ástand og
ekki hægt að hafa þetta svona áfram.
Við verðum að taka því ef það er
ekki hægt að skapa frið með öðmm
hætti en að Ólafur víki úr embætti
fyrr en hann ætlaði. Mér fínnst þetta
lýsa góðri dómgreind biskupsins. Ég
vona aðákvörðun biskups stuðli að
friði og einingu innan kirkjunnar. Það
er mér kappsmál. Ég hvet alla sem
hafa tekið afstöðu í þessu máli og
lýst henni opinberlega að einbeita sér
að uppbyggjandi verkefnum fynr
kirkjuna og söfnuðina í landinu."
Erfiður vetur
„Þessi ákvörðun kemur mérj sjálfu
sér ekki á óvart,“ sagði sérá Guð-
mundur Þorsteinsson, prestur við
Árbæjarkirkju í Reykjavík. „Það er
ljóst að liðinn vetur hefur verið bisk-
upnum ákaflega erfiður. Aðförin að
honum hefur verið slík að ég get
ekki annað en dáðst að því hvað hann
hefur þó staðið sig vel í starfí. Ég
óttast aftur á móti ef að það á að
vera hægt að taka menn starfslega
af lífi með rógi og ósönnuðum aðdrótt-
unum. Maður spyr: Hver verður næst-
ur?
Ég harma að hann skuli nánast
vera þvingaður til að segja af sér
fyrr en efni stóðu til. Ég held að
hann geri þetta til þess að reyna að
skapa frið í kirkjunni. Að mínu mati
hefur Ólafur Skúlason unnið mjög
gott starf fyrir íslensku kirkjuna og
safnaðarstarf hefur blómgast undir
hirðisstjóm hans,“ sagði Guðmundur.
Staða biskups erfið
„Þessi ákvörðun kom mér á óvart.
Ég tel að þetta hafi verið skynsamleg
ákvörðun í þeirri erfíðu stöðu sem
biskupinn var í. Menn hafa verið að
ræða hvemig ákvörðun af þessu tagi
gæti borið að. Sumir em þeirrar skoð-
unar að í ljósi alls sé umdeilanlegt
hvort biskupin eigi að bíða svona lengi
með að hætta. Hann hefur gefíð skýr-
ingar á tímasetningunni sem við hljót-
um að virða," sagði séra Þórir Jökull
Þorsteinsson, sóknarprestur á Sel-
fossi.
Séra Þórir Jökull sagðist eiga von
á að prestar fæm strax að líta I kring-
um sig eftir nýjum biskupsefnum og
slíkar vangaveltur væra án efa komn-
ar af stað í hugum margra.
Séra Þórir sagðist vona að þessi
ákvörðun biskupsins ætti
eftir að stuðla að meiri friði
innan kirkjunnar. „En það
má líka spyija, hvað er frið-
ur í kirkjunni? Á hinum
pólitíska vettvangi er frið-
urinn stundum skoðaður sem einhvers
konar ógnaijafnvægi. Er það hinn
eiginlegi friður? Ég held að friður í
kirkjunni sé fyrst og fremst virkur
friður, þ.e. ástand sem knýji menn
til starfa í anda kirkjunnar. Sá friður
er friður umræðu, jafnvel nokkurra
átaka.“
Ætluðu að
ræða mál
biskups
Eðllleg
ákvörðun í
erfiðri stöðu
I
I
}
\
I
I