Morgunblaðið - 27.06.1996, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 27.06.1996, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vopnað rán framið á ís- lenskum leikurum í Tékklandi ÚTRÝMINGARBÚÐIRNAR voru í smáþorpinu Theresienstadt og voru í raun heilt samfélag, en þar er nú safn og í gær [þriðjudag] var þar varla nokkur sála á ferli. Eftir að við Viðar Eggertsson höfðum skoðað brennsluofnana gengum við til baka inn í sjálft þorpið, framhjá öskuhaugunum fyrrverandi, kvennadeildinni og barnadeildinni, og vorum í leit að kaffíhúsi. Við komum þá inn á stórt grasi gróið torg þar sem stóð stór steinkirkja, sem hafði á sínum tíma verið bæki- stöðvar Gestapo, þýsku öryggislög- reglunnar. Á korti yfír búðirnar eða safnið var eitt húsanna merkt sem kaffihús, sem opnað hefði verið árið 1942. En þegar við héldum þangað í leit að kaffi reyndist þar vera komin antik- eða fornmuna- verslun, og við brugðum okkur inn að skoða, enda þótt klukkan væri orðin sex og verslanir að loka. Búðareigandanum virtist þykja það allt í lagi þótt við værum að þvæl- ast þarna eftir lokun, og við skoð- uðum ýmsa hluti í um það bil tíu mínútur. Ég ákvað að kaupa mín fyrstu gleraugu, auk þess einn bolla og hnífapör. En meðan eigandinn var að pakka þessu inn fyrir mig opnaðist hurðin og inn komu þrír menn með vélbyssur. Einn þeirra var með sokk yfír höfðinu. Við héldum að þetta væri auðvitað hluti af ein- hvers konar útiskemmtun, en svo reyndist ekki vera, langt í frá. Þeir skipuðu okkur á einhvers konar hrognamáli að leggjast í gólfíð, og við gerðum það umsvifa- laust og steinþegjandi. Búðareig- andinn stundi aftur á móti og grét og þeir baukuðu lengi eitthvað við Tveir íslenskir leikarar, þau Guðrún Snæ- fríður Gísladóttir og Viðar Eggertsson lentu í fyrrakvöld í vopnuðu ráni í fyrrver- andi útrýmingarbúðum nasista í Tékk- landi. Þau Guðrún og Viðar hafa að undan- förnu verið á leiklistarhátíð í Dresden í Þýskalandi en fóru í fyrradag í dagsferð yfir til Tékklands. Frásögn Guðrúnar af atburðinum fer hér á eftir. hann, en þar sem ég leit ekki upp veit ég ekki ná- kvæmlega hvað það var. Eftir það sem mér fannst vera heil eilífð kom einn mann- anna til mín og miðaði á mig byssunni. Ég benti á töskuna mína og bauð honum „pass- port“, þar sem ég hafði heyrt að ís- lensk vegabréf væru í hávegum höfð af glæpa- mönnum margra ríkja. En þessi sagði bara nei takk. með einhvers konar vír. Sama var Annar kom þá framan að mér, gert við Viðar Eggertsson, fyrrver- sagði: „Sorrí“, og setti heftiplástur andi Borgarleikhússtjóra. fyrir munninn á mér. Því næst Við reyndum bæði að láta sem batt hann saman hendurnar á mér minnst fyrir okkur fara, og eftir mikið brauk og taut fóru mennim- ir um síðir með stóran poka af málverkum, gömlum byssum og peningum. Þeir tóku líka kredit- kortin okkar Viðars eins og í fram- hjáhlaupi, og það sem verst var, myndavélina mína með heilli filmu sem ég hafði tekið í Theresienstadt og víðar. Búðareigandinn grenjandi reyndist þá ekki vera bundinn líkt og við; að minnsta kosti gat hann skorið böndin af okkur Viðari, og sendi svo Viðar út í bláinn að sækja lögregluna, þar sem hann hafði engan síma. Seint og um síðir kom Viðar með lögregluna og þá fyrst þorði ég að líta upp frá gólfínu. Síðan tóku við sjö klukkutíma yfirheyrslur í næsta húsi við fyrr- verandi aðalbækistöðvar Gestapó. Ég fékk að hringja eitt símtal og hringdi þá í neyðarsíma Kredit- korta og lét loka kortunum okkar. Lögreglumennirnir hringdu síðan í íslenska ræðismanninn í Prag, Þóri Gunnarsson, og hann kom keyrandi um miðja nótt með ís- Ienskusérfræðinginn Helenu Kad- ekovu, og gegnum hana fór öll skýrslugerðin fram. Við vorum meðal annars látin fara aftur á vettvang í antíkbúðina og látin leika þar atburðinn, hvort í sínu lagi, inn á myndband. Þar kom sér vel að allir kunnu sitt fag, bæði leikararnir og túlkurinn. Þessir íslendingar voru því heil- ir á húfi á eftir, að vísu hálfgert á nærbuxunum, en í fanginu á hinum ótrúlega skipulagða og dug- lega ræðismanni okkar í Prag, sem stendur þessa dagana fyrir heil- mikilli íslenskri kvikmyndahátíð í borginni. Margrét styður Olaf Ragnar MARGRÉT Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins, segist styðja Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta íslands. „Það hefur legið fyrir frá því að Ólafur ákvað að gefa kost á sér að ég styddi hann,“ sagði Mar- grét. „Ég tel að þau hjón muni gegna þessu embætti mjög vel.“ ----» ♦ »---- Vitni vantar að ákeyrsl- um á börn LÖGREGLAN í Reykjavík leitar eftir vitnum að tveimur slysum í Reykjavík síðustu daga._ Umferðarslys varð í Álfheimum skömmu fyrir klukkan hálftíu mið- vikudagskvöldið 19. júní sl. Þá hljóp stúlka áleiðis vestur yfir götuna á móts við hús númer 11A þegar hún varð fyrir bíl og slasaðist. Kona nokkur mun hafa gefið sig á tal við móður stúlkunnar og er konan vinsamlegast beðin um að gefa sig fram við rannsóknardeild lögregl- unnar og vitni ef einhver hafa verið. Fimm ára drengur mun hafa orðið fyrir bíl við Kambasel 49 síð- degis laugardaginn 19. júní. Dreng- urinn fannst meðvitundarlítill í veg- kantinum. Hann segir að þarna hafi kona skrensað á bíl og skilið sig eftir á götunni. Atvikið var til- kynnt lögreglu kl. 17.03. Þessi ökumaður og vitni að atburðinum eru beðin um að gefa sig fram við rannsóknardeild lögreglunnar. FAST6IG NASALA ViTASTÍG 13 Miðleiti 5-6 herb. íbúð á 3. hæð, endaíbúð í vesturenda, 132 fm, ásamt 25 fm bílskýli. 4 svefnherb., rúmgóðar stofur. Þvottaherb. og búr innaf eldhúsi. Parket og flísar. Suðursvalir. Falleg sameign. FASTEIGN ER FRAMTÍD SÍMI 568 77 68 FASTEIGNA £ ö JMIÐLUN Suöurlandsbraut 12, 108 Reykjavik, Sverrir Kristjansson XZ fax 568 7072 lögg. fasteignasali Ljósaland við Miðdal Ljósaland, Miödalslandi: Til sölu stórt sumarhús, ca 18 km frá Reykjavík. 1,65 hs eignarland Sumar- eða heilsárshús Brú í landi Elliöakots. Þessi snotri sumarbústaður, rétt viö bæjarmörkin, er til sölu. í húsinu eru tvö svefn herb., stofa, eldhús og snyrting. Sér borhola fyrir kalt vatn. Stór sólpallur. Mikið útsýni. Stór, fallega ræktuö og girt lóö. Verö 2.850 þús. Hægt að flýta framkvæmdum á Nesjavöllum um 4-6 mánuði með umtalsverðum kostnaðarauka Ákveðið að stækka Kröflu virkjun um 15 megawött STJÓRN Landsvirkjunar samþykkti á fundi í gær að ráðast í stækkun á Kröfluvirkjun um 15 megawött, eða úr 30 megawöttum í 45 mega- wött, sem er um 120 GWst á ári. Framkvæmdum ætti að geta verið lokið á næsta ári og þessi áfangi Kröfluvirkjunar kominn í rekstur í lok ársins 1997. Að sögn Helgu Jónsdóttur, stjórnarformanns Landsvirkjunar, er kostnaður við stækkunina áætiaður 698 milijónir króna, 173 milljónir á þessu ári og 525 milljónir á næsta ári. Talið er að hægt sé að flýta áætluðum virkjunarframkvæmdum á Nesjavöllum með sértækum að- gerðum um 4-6 mánuði, en áætlan- ir hafa miðast við að framkvæmd- um yrði lokið í árslok 1998. Áætlað er að virkja í tveimur áföngum á Nesjavöllum og að þeir skili sam- tals 360 GWst orku. Að sögn Al- freðs Þorsteinssonar, formanns stjórnar Veitustofnana Reykjavík- urborgar, myndi flýtingin hafa í för með sér umtalsverðan kostnaðar- auka, en á þessu stigi væri ekki Ijóst hver hann yrði. Áhugi hjá ýmsum á að kaupa orku af Landsvirkjun Columbia Ventures Corporation hefur óskað eftir því við Markaðs- skrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar að hún svari því hvort Landsvirkjun geti afhent raf- orku fyrir 30 þúsund tonna álver sem taki til starfa á íslandi snemma árs 1998. Helga sagði að enn sem komið er væru hugmyndir Columb- ia Ventures dæmi sem væri fjarri því að vera fast í hendi. „Það ligg- ur fyrir að það er hagkvæmara verðtilboð frá Venesuela og þeir eru að kanna þann kost til fulls í raun og veru áður en þeir gera upp við sig hvort þeir ætla að ganga til samningaviðræðna við okkur," sagði hún. Helga sagði að annar fundur yrði í stjórn Landsvirkjunar næst- komandi miðvikudag þar sem áhugi væri nú hjá ýmsum aðilum á því að kaupa orku af Landsvirkjun. Sagði hún að verið væri að ræða hugmyndir Columbia Ventures í samhengi við hugmyndir fleiri aðila um frekari orkukaup, t.d. ísals og J árnblendifélagsins. „Til hvers sem það kann svo að leiða í framhaldinu þá erum við að setja upp yfirlit yfir orkukostina og virkjanaröðina eins og þetta blasir við okkur. Á fundinum í morgun [í gær] var samþykkt að fara í Kröflustækkun og það var líka sam- þykkt að fara til viðræðna við Reykjavíkurborg um Nesjavelli á grundvelli þess samkomulags- grundvallar sem áður hefur verið ræddur og samþykktur í borgarráði Reykjavíkur. Það þýðir að nú fara menn út í praktískar viðræður um samrekstur og verð,“ sagði Helga. Rafmagnsveitunni falið að undirbúa línulagningu Alfreð Þorsteinsson sagði að svar Hitaveitu Reykjavíkur við fyrir- spurn Columbia Ventures um hvort hægt væri að flýta framkvæmdum á Nesjavöllum væri efnislega það að það sé hægt með sértækum að- gerðum og umtalsverðum kostnað- arauka. „Við getum á þessu stigi ekki sagt hversu miklu dýrara það verður en það er alveg augljóst að öll svona flýting kostar sitt. Það er aftur stærra reikningsdæmi sem menn þyrftu að fara yfir,“ sagði hann. Alfreð sagði að allur undirbún- ingur við Nesjavallavirkjun væri kominn á það skrið sem hægt væri að setja hann. Stjórn Veitustofnana hefði samþykkt í gær að fela Raf- magnsveitu Reykjavíkur að annast undirbúning að lagningu háspennu- línu frá virkjuninni að aðveitustöð Rafmagnsveitunnar við Korpu, og jafnframt að undirbúa stækkun aðveitustöðvarinnar sem nauðsyn- leg væri vegna tengingar háspennu- línunnar við stöðina. „Ástæða þess að Rafmagnsveit- an er beðin um þetta er sú að þótt það hafi ekki verið formlega sam- þykkt þá liggur það nokkurn veginn fyrir að Hitaveitan og Rafmagns- veitan komi báðar að þessu máli, þ.e. að Hitaveitan sjái um sjálfa virkjunina en Rafmagnsveitan ann- ist línulögnina og uppsetningu hennar. Allt þetta hefur sinn undir- búningstíma, en það þarf umhverf- ismat og samráð þarf að hafa við skipulagsyfirvöld aðallega í Mos- fellsbæ um það hvar línan kemur þar að. Þetta eru allt hlutir sem menn þurfa nú að gefa sér til að fara yfir,“ sagði Alfreð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.