Morgunblaðið - 27.06.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996 11
AUGLÝSING
C/háðir áhugamenn um forsetakjör 1996 leggja áherslu á mikilvægi
embættis forseta íslands.
Ha mikla vald sem þjóðinni er fengið með því að fela henni að velja
forsetann, ber að nota af ábyrgðartilfinningu og á grundvelli réttra upplýsinga um
þá menn sem í framboði eru.
J5arátta um kjör forseta íslands á að vera drengileg og málefnaleg.
í því felst ekki að opinská og heiðarleg umræða um frambjóðendur sé bönnuð.
Sí sem ákveður að bjóða sig fram til forseta íslands, hefur sjálfur ákveðið
að leggja verk sín, orð og gjörðir, undir dóm þjóðarinnar.
/*að eru gömul sannindi að menn eigi að dæma eftir verkum þeirra og
að reynslan sé ólygnust.
/*au verk sem forsetaframbjóðendur eiga að baki í opinberu lífi og hafa
unnið í augsýn alþjóðar er rétt og skylt að skoða, þegar það er metið hvort þeir eigi
erindi til Bessastaða. Slík skoðun, reist á staðreyndum og réttum upplýsingum, er
málefnaleg og nauðsynleg til þess að kjósendur geti dæmt rétt.
Zí'inn forsetaframbjóðandi hefur þá sérstöðu að eiga að baki fyrirferðarmikinn
feril í íslensku stjórnmálalífi. Ekkert er eðlilegra en að hann lýsi sjálfur fyrir
kjósendum þeim verkum sem hann telur mæla með kjöri sínu. En kjósendur eiga
rétt á meiri upplýsingum svo þeir fái rétta mynd af þessum frambjóðanda sem
til skamms tíma hefur verið talinn líklegastur til að ná kjöri. Á það hefur skort.
Óháðir áhugamenn um forsetakjör vilja ekki kveða upp dóm yfir Ólafi Ragnari
Grímssyni. En þeir vilja með upprifjun á orðum hans og gjörðum auðvelda kjósendum
að dæma rétt.
ÓHÁÐIR ÁHUGAMENN UM FORSETAKJÖR 1996