Morgunblaðið - 27.06.1996, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.06.1996, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Standandi á hestbaki SÁ er ekki hræddur strákurinn sem stendur ekki tekin í fjölleikahúsi heldur við bæinn uppréttur á hestinum og veifar. Myndin er Borgarkot á Skeiðum. Fræðslumiðstöð Reykjavíkur 100 millj. aukafj árveiting- Skoðanakönnun Gallups Nánast engar breytingar á fylgi BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum á þriðjudag 100 milljóna króna aukaf|árveitingu vegna Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. Rúmlega helmingur fjármagnsins, 55 milljónir, fer í viðhald og lagfær- ingar á húsi Miðbæjarskólans að Fríkirkjuvegi 1 og 45 milljónir fara í aðstöðu og búnað fyrir Fræðslu- miðstöðina. Viðhaldskostnaðurinn skiptist þannig að í endumýjun rafmagns fara tólf milljónir, í eldvafnamál þrjár, í lyftu þrjár og hálf, í endur- málun, dúkalagnir, tréverk o.fl. 34 milljónir og í hönnun, umsjón og eftirlit tvær og hálf milljón króna. Kostnaður vegna Fræðslumið- stöðvar skiptist þannig að verk- kostnaður við Námsflokka er tólf milljónir, verkkostnaður við skrif- stofur 17 milljónir, í búnað fara fimm milljónir, frágang lóðar fímm Rúmlega helm- ingur fer í viðhald og lagfæringar Miðbæjarskólans milljónir og í hönnun, umsjón og eftirlit sex milljónir króna. Sjálfstæðismenn mótmæla í bókun frá borgarráðsfulltrúum Sjálfstæðisflokksins kemur fram að þeir hafi bent á að með flutningi Fræðslumiðstöðvar í Miðbæjarskóla væri verið að stofna til mikils kostn- aðar sem væri óþarfur ef annað hentugra húsnæði yrði fyrir valinu. Þessu hafi verið mótmælt af R-list- anum. Nú þurfi að samþykkja 100 milljóna króna aukafjárveitingu vegna þessa auk allt að 20 milljóna króna aukafjárveitingar vegna flutnings Námsflokkanna úr Mið- bæjarskólanum. Endurbótum lokið árið 1998 í bókun frá borgarstjóra segir að hefði borgin farið út í kaup á húsnæði eða nýbyggingu fyrir Fræðslumiðstöð hefði það með standsetningu og búnaði kostað á milli 150 og 180 milljónir. I bókun borgarstjóra kemur enn- fremur fram að fræðslu- og borgar- yfirvöld leggi á það áherslu að vel verði staðið að endurbótunum með tilliti til varðveislugildis hússins en jafnframt að húsið geti sem best nýst eigendum sínum. Áætlað er að endurbótunum verði lokið fyrir 100 ára afmæli hússins árið 1998. SAMKVÆMT niðurstöðum skoð- anakönnunar Gallups sem gerð var 22.-24. júní mælist fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar 44,6%, Péturs Kr. Hafstein 28,7%, Guðrúnar Agn- arsdóttur 23,0% og Ástþórs Magn- ússonar 3,7%. Þetta er fjórða könnunin sem Gallup gerir eftir að framboðsfrest- ur til forsetakosninga 29. júní nk. rann út. Nánast engar breytingar hafa orðið á fylgi frambjóðenda á milli kannana hjá Gallup og það sem hreyfist telst ijarri því að vera marktækt. Kannanirnar voru gerð- Greint á milli auðra seðla og ógildra VIÐ talingu atkvæða í forseta- kosningunum næstkomandi laugardag verða auðir at- kvæðaseðlar og ógiidir að- greindir eins og verið hefur við kosningar á undanförnum árum, þannig að fyrir liggur að lokinni talningu hversu margir skiluðu auðu og hversu margir ógiltu atkvæði sín, sam- kvæmt upplýsingum Hjörleifs Kvarans formanns yfirkjör- stjórnar í Reykjavík. Skv. kosningalögum eru auðir seðlar úrskurðaðir ógildir. Við seinustu forsetakosningar árið 1980 voru 355 atkvæða- seðlar auðir og 191 seðill ógild- ur. Námu auðu seðlamir 0,3% af greiddum atkvæðum. Við forsetakosningar 1968 voru auðir seðlar og ógildir 918 en við forsetakosningarnar árið 1952 voru 1.940 seðlar auðir, eða 2,8% af greiddum atkvæð- um og 283 ógildir. ar að meðaltali með um tveggja daga millibili. I síðustu könnun Gallups, sem gerð var 20.-23. júní, mældist fylgi Ölafs Ragnars Grímssonar 43,7%, Péturs Kr. Hafstein 28,1%, Guðrún- ar Agnarsdóttur 24,0% og Ástþórs Magnússonar 4,3%. I nýjustu könnun Gailups var valið 900 manna slembiúrtak úr þjóðskrá á aldrinum 18-75 ára. Um 20% úrtaksins var einnig í síðustu könnun Gallups. Svarhlutfall var rúmlega 70% og skekkjumörk fyrir fylgi frambjóðenda 1-4%. Lok utan- kjörfundar- atkvæða- greiðslu SÝSLUMANNSEMBÆTTIN hafa umsjón með utankjörfundarat- kvæðagreiðslum fyrir forsetakosn- ingamar og misjafnt er hvenær atkvæðagreiðslu lýkur. Sýslu- mannsembættin á hverjum stað geta gefið upplýsingar um opnunar- tíma utankjörfundar. í Reykjavík fer utankjörfundar- atkvæðagreiðsla fram í Ármúla- skóla. Þar verður hægt að greiða atkvæði til kl. 22 á föstudagskvöld og á kjördag frá kl. 10 til 12 og milli kl. 14 og 18. -----♦ ♦ ♦---- Veðurhorfur á kjördag Á kjördag er gert ráð fyrir suðaust- an kalda um land allt. Útlit er fyrir rigningu á suðvest- urhorninu en annars staðar á land- inu ætti að verða þurrt að mestu. Hiti verður líklega á bilinu 11 til 18 stig. Fjármálaráðherra segir breytt viðhorf í heiminum um gagnsemi opinberrar þróunaraðstoðar FORMAÐUR Rauða krossins gagnrýndi stjórnvöld harðlega í sein- ustu viku fyrir það hversu lág fram- lög íslendinga til alþjóðlegs þróunar- starfs væru í samanburði við ná- grannaríkin. Markmið Sameinuðu þjóðanna er að framlög ríkja til þró- unaraðstoðar nemi 0,7% af vergri þjóðarframleiðslu en að meðaltali nam aðstoð íslendinga 0,11% á árun- um 1990-1995. í nýjasta tölublaði breska viku- blaðins The Economist er birt yfirlit yfír þróunaraðstoð ríkja heims og þar kemur fram að verulega hefur drégið úr opinberum framlögum ríkja til þróunaraðstoðar frá árinu 1993. Á sl. fjórum árum hafa fram- lögin lækkað um rúmlega tíu millj- arða bandaríkjadala. Framlög ríkari þjóða nema nú að meðaltali 0,27% af vergri þjóðarframleiðslu sem er lægsta hlutfall þróunaraðstoðar í 20 ár. Talið er að aðstoð við vanþróuð ríki í formi efnahagsaðstoðar og með stuðningi við uppbyggingu fyrir- tækja nemi nú um 15% af allri þróun- araðstoð í heiminum. Aðeins 0,1% framlaganna fari beint til að aðstoða fátækustu ríkin í menntamálum og 0,3% til heilbrigðismála. Málefni þróunarsamvinnu heyra undir utanríkisráðuneytið en ekki náðist í utanríkisráðherra vegna þessa máls. Friðrik Sophusson fjár- málaraðherra segir að þróunarað- stoð Islendinga hafí verið nokkuð svipuð að 'umfangi á umliðnum árum. Hann bendir á að þróunarað- stoð sé skilgreind mjög þröngt. Þannig séu framlög Islendinga sem varið hefur verið til að byggja upp Leitað nýrra og virkari leiða Lág framlög íslands til þróunaraðstoðar hafa sætt mikilli gagnrýni. Fjármálaráðherra ----------------------------—---------- segir í samtali við Omar Friðriksson að þróunaraðstoð íslendinga hafí verið svipuð að umfangi á umliðnum árum en aðrar þjóð- ir hafí átt auðveldara með að nýta þróunar- samvinnu til að stuðla aö viðskiptum og uppbyggingu í vanþróuðum ríkjum. fjárhag Eystrasaltsríkjanna, Palest- ínu og ríkja fyrrum Sovétríkja og Júgóslavíu, ekki talin vera þróunar- aðstoð. Neyðarhjálp sem ríkið, Rauði krossinn og Hjálparstofnun kirkj- unnar hafa lagt til sé ekki heldur þróunaraðstoð í þessum skilningi. Fjármálaráðherra sagði einnig að Rauði kross íslands velti árlega mjög miklum íjármunum sem fengjust með starfsemi sem byggðist á leyfi íslenska ríkisins. „Það má ekki gleyma því að í sumum löndum er slík starfsemi eins og spilakassar látin skila fjármunum beint í ríkis- sjóð en við höfum kosið að hafa þann háttinn á að láta fijáls félaga- samtök eins og Rauða krossinn, sem nýtur virðingar, koma þeim fjármun- um til skila með skilvirkum hætti. Rauði krossinn hefði kannski mátt minnast á það fyrst þeir voru að fjalla um þessi mál á annað borð,“ sagði Friðrik. Ríkisstjórnin samþykkti sl þriðju- dag að halda áfram að leggja fjár- Opinber þróunaraðstoð íheiminum 1985-1995 muni til Norræna þróunarsjóðsins á næstu fjórum árum. Friðrik segir að hafa verði í huga þegar rætt sé um þróunaraðstoð að aðrar þjóðir eigi yfirleitt mun auðveldara með að nýta þróunaraðstoð og þróunar- samvinnu til hagsbóta fyrir eigin framleiðslu. „Það eru mörg þekkt dæmi, til dæmis hjá nágrönnum okkar á Norðurlöndum og í öðrum iðnvæddum ríkjum, að þau nota að- stoðina til að leggja drög að viðskipt- um framtíðarinnar. Það örlar á þessu hjá okkur eins og dæmin sanna og má nefna Namibíu í því sambandi," segir hann. „Við höfum einnig lagt okkar skerf til þróunaraðstoðar Alþjóða- bankans, ásamt hinum Norðurlönd- unum, en sú aðstoð er talin hafa komið einna mest að gagni í vanþró- uðustu ríkjunum. Auk þessa höfum við lagt fjármuni beint til vissra verkefna," segir fjármálaráðherra. Friðrik segir alþekkt að opinber þróunaraðstoð hafí verið stórkost- lega misnotuð af valdaaðilum í ein- stökum ríkjum og ekki komið að ti- lætluðu gagni. „I staðinn hafa menn verið að leita nýrra leiða og mikil áhersla hefur verið lögð á það upp á síðkastið að finna aðrar og betri leiðir, ekki síst með því að beina einkafjármagni til uppbyggingar í vanþróuðu ríkjunum. Þetta var með- al annars til umræðu á ráðstefnu umhverfisnefndar Sameinuðu þjóð- anna, um sjálfbæra þróun, sem hald- in var í apríl og maí, en ég tók þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnunni. Þar var brotið blað í umræðum um þessi mál þegar einn vinnuhópur ráðstefnunnar ályktaði með afger- andi hætti um ágæti hagrænna stjórntækja en þannig má skapa móttökuskilyrði fyrir einkaljármagn til að fjárfesta og byggja upp at- vinnulíf í viðkomandi löndum og skila stöðugum hagvexti, sem ekki er háður gjafmildi einstakra ríkis- stjórna," segir fjármálaráðherra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.