Morgunblaðið - 27.06.1996, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996 13
Krossapróf um
forsetaframb j óðanda.
i
Sagði Ólafur Ragnar Grímsson í viðtali á Rás 2 í október
1995 að hann væri „eiginlega“ sannfærður um að guð væri
ekki til?
Var Ólafur Ragnar Grímsson andvígur vamarsamstarfi við
vestrænar þjóðir?
3
4
Gegndi Ólafur Ragnar Grímsson ritstjórastarfi á Þjóðviljanum
1983-1985?
Sagði Ólafur Ragnar Grímsson í viðtali við Helgarpóstinn
1984, að Ceausescu, einræðisherra Rúmernu, væri
heiðursmaður?
AUGLÝSING
5
6
Sagði Ólafur Ragnar Grímsson á Alþingi íslendinga að
forsætisráðherra landsins væri með „skítlegt eðli“?
Braut Ólafur Ragnar Grímsson samninga, sem hann hafði
undirritað við B.H.M.R.?
/ AfgreiddiÓlafiirRagnarGrúnssonsöluskattsmálfyrirtækjanna
' Svart á hvítu hf. og Þýsk-íslenska hf. á ólíkan hátt?
Réðst Ólafur Ragnar Grímsson með óbótaskömmum á
forsvarsmenn Hafskips, þegar það fyrirtæki var í erfiðleikum
haustið 1980?
Réðst Ólafur Ragnar Grímsson með óbótaskömmum á
forsvarsmenn Flugleiða, þegar það fyrirtæki var í erfiðleikum
1980?
Hefur Ólafur Ragnar Grímsson alls staðar valdið hörðum
deilum, þar sem hann hefur starfað í stjórnmálafylkingum?
Ef svarið við þessum spumingum er játandi, er ástæða til
að spyrja hvort shkur maður getur orðið sameiningartákn
íslensku þjóðarinnar.
ÓHÁÐIR áhugamenn um forsetakjör 1996