Morgunblaðið - 27.06.1996, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
I-
FRÉTTIR
Þess minnst að Barnaheimilið að Ástjörn í Kelduhverfi hefur starfað í hálfa öld
Morgunblaðið/Margrét Þóra
BÁTAR af ýmsum gerðum hafa mikið aðdráttarafl á Ástjörn.
ÁSTIRNINGAR spila mikið og syngja, þessi hópur kom sér fyrir á flötinni og
skemmti gestum.
Forréttindi
að fá að vera
svona lengi
Bogi Pétursson hefur dvalið á
Ástjörn á hverju sumri í 50 ár
*
Bamaheimilið Astjöm í Kelduhverfí á fímm-
tíu ára afmæli um þessar mundir o g var
tímamótanna minnst um helgina. Margrét
Þóra Þórsdóttir fór á staðinn og fylgdist
með hátíðahöldunum.
BOGI Pétursson forstöðumaður hefur dvalið á Ástjörn öll
sumur frá árinu 1946.
FJÖLDI gesta heimsótti Ásljörn í tilefni 50 ára afmælis sumar-
búðanna og naut ríkulegra veitinga.
FJÖLDI gesta, gamlir Ástirning-
ar, foreldrar og fólk úr nálægum
byggðarlögum lagði leið sína að
Ástjörn og samfagnaði með starfs-
fólki og um 80 bömum sem þar
dvelja um þessar mundir og komu
margir færandi hendi.
Þeir skipta þúsundum, íslending-
arnir sem teljast til Ástirninga,
þeirra sem dvalið hafa um lengri
eða skemmri tíma á Ástjöm síðustu
hálfa öld.
Skátar á Akureyri lánuðu stórt
samkomutjald sem komið var fyrir
á lóðinni og þar fór fram dagskrá.
Þau börn sem nú dvelja í sumarbúð-
unum höfðu æft nokkur lög sem
þau sungu fyrir gesti við góðar
undirtektir. Bogi Pétursson for-
stöðumaður flutti ávarp og lýsti
árunum á Ástjörn. Þau hefðu gefið
sér mikið, en hann gerði sér grein
fyrir að hann hefði lagt mikið á
fjölskyldu sína, eiginkonuna, Mar-
gréti Magnúsdóttur og Arthur son
þeirra með starfi sínu í sumarbúð-
unum. Hann hefði ekki verið heima
öll þessi sumur, en mætt miklum
skilningi flölskyldu sinnar sem
hann væri afar þakklátur fyrir.
Leikin voru nokkur lög og þá
færði Þorsteinn Pétursson þeim
hjónum Boga og Margréti gjöf, far-
seðil hvert þangað sem þau kysu
að fara.
Bátarnir heilla
Boðið var upp á veglegar veiting-
ar sem gestir gerðu góð skil í ágætu
veðri. Þá þótti börnunum ekki ónýtt
að fá að leika sér í hoppkastala en
hápunturinn var að prófa risatram-
pólín sem naut mikilla vinsælda.
Fjöldi báta af ýmsum gerðum, ára-
bátar, hjólabátar og seglabátar eru
við Ástjörn og riijuðu margir gaml-
ir Ástirningar upp gamla góða daga
og réru út á vatnið.
Nafn Boga Péturssonar forstöðu-
manns er óijúfanlega tengt Ástjörn,
en hann hefur dvalið í sumarbúðun-
um öll sumur síðustu fimmtíu ár.
„Það var enskur „offísér" sem
dvaldi á Akureyri í stríðslok sem
langaði að gera eitthvað fyrir ís-
lensk böm. Hann gaf fyrsta húsið
sem hér var reist, en Arthur Cooke
sem starfaði fyrir Sjónarhæðarsöfn-
uðinn á Akureyri og Sæmundur
Jóhannesson ráku heimilið fyrstu
13 árin í eigin nafni,“ sagði Bogi
um upphafíð, en hann var aðstoðar-
maður þeirra í fyrstu en tók síðar
við starfi forstöðumanns. Sjónar-
hæðarsöfnuðurinn hefur rekið sum-
arbúðirnar síðan.
Fyrsti hópurinn, sem í voru fimm
strákar, hélt til sumardvalar á
Ástjörn sumarið 1946. Á þeim tíma
settu samgöngur nokkurt strik í
reikninginn, en yfírleitt var ekki
fært yfír Reykjaheiðina sem þá var
farin fyrr en komið var fram á sum-
ar. Frá því starfsemin hófst hefur
mikil uppbygging átt sér stað og
dvelja nú að jafnáði um 80 böm í
einu í sumarbúðunum. „Það hefur
orðið mikill vöxtur hér á þessu tíma-
bili,“ sagði Bogi.
w
30% - 60% AFSLATTUR
0CCO SKÓR
Restar og stakar stærðir af: Kven- og barnaskóm ^Skóverslun ÞÓRÐAR
ÞESSA VIKU GÆÐI & ÞJÓNUSTA Laugavegi 40a - Sími 551 4181
Fimmtíu ár fljót að líða
Síðustu hálfa öld hefur Bogi
pakkað saman föggum sínum í byrj-
un sumars og haldið austur á
Ástjörn þar sem hann hefur dvalið
fram á haust. „Ég hefði ekki fyrir
nokkurn mun viljað missa af þessu
og þegar ég lít til baka þykja mér
fimmtíu ár vera stuttur tími, þau
hafa verið fljót að líða,“ sagði hann.
Vinnuveitendur sína sagði hann
hafa verið sérlega liðiega, það hafí
ævinlega verið auðsótt að fá sig
lausan úr vinnu að sumarlagi.
Bogi sagði að með Guðs blessun
og góðra manna hafi starfsemin
gengið upp. Mikið lán hafi verið
yfir henni því aldrei hafi alvarleg
slys hent í sumarbúðunum. „Það
fylgir því mikil sálarró að dvelja
hér og ég upplifi hana við komuna
hingað á hveiju sumri, Ástjörn er
mikill friðarstaður. Margir sem
hingað koma nefna hversu mikil
sálarbót það sé að heimsækja stað-
inn,“ sagði Bogi og nefndi einnig
að sér virtust börnin sem koma
fyrstu viku sumarsins oft stressuð,
þau komi beint úr prófum í skólan-
um, en þau róist furðu fljótt í fögru
umhverfí og náttúru.
Elur upp
sumarbúðastjóra
Systkini Boga, sem eru 15 tals-
ins, hafa að meira eða minna leyti
lagt hönd á plóginn og tekið þátt
í starfinu með honum. María systir
hans var t.d. ráðskona á Ástjörn
11 sumur og synir Þorsteins bróður
hans, Jóhann, Aðalsteinn og Pétur,
hafa allir verið aðstoðarmenn hans
og starfa að æskulýðsmálum. „Það
er skemmtilegt að segja frá því að
starf mitt hefur borið þann ávöxt
að ég er farinn að ala hér upp sum-
arbúðastjóra sem ég er mjög stoltur
af,“ sagði Bogi.
Miklar breytingar hafa orðið á
hálfri öld og sagði Bogi samkeppni
um börnin og frítíma þeirra sívax-
andi. „Við búum okkur undir harðn-
andi samkeppni, við sættum okkur
við hana og verðum að bregðast
við, það er mín sannfæring að ekk-
ert komi í stað sveitardvalar barna.“
Hæfileiki til að hæna
að sér börn
Bogi sagðist þakklátur öllum sem
stutt hefðu starfsemina. „Sjálfur lít
ég á það sem forréttindi að hafa
fengið að vera í þessu starfi svona
lengi. Ef það er eitthvað sem bless-
ar mann eru það börnin og ég held
mér myndi líða illa ef ég væri ekki
innan um börn,“ sagði hann og við-
urkenndi að vissulega yrði þolin-
mæðin að vera í lagi þegar stjórna
þarf 80 ungum og fjörugum börn-
um. „Bogi hefur einstaka hæfileika
til að hæna að sér börn,“ sagði
Þorsteinn bróðir hans í ávarpi er
hann færði honum og Margréti
Magnúsdóttur eiginkonu hans gjöf
fyrir fórnfúst starf og þeir sem til
hans þekkja taka heilshugar undir
þau orð.
I
I
E>
í
I
I
í
»
t
í
I
í
I
■
i
L
(
i
t
t
t
t
t