Morgunblaðið - 27.06.1996, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ1996 25
Sól hf og Potta-
galdrar í samstarf
Afraksturinn
tvenns konar
grillolíur
ÞESSA dagana eru að koma í
verslanir Víóla grillolíur frá Sól
hf. en þær eru búnar til í sam-
starfi við Pottagaldra ehf.
Sól framleiðir og markaðssetur
olíurnar en kryddið í þær kemur
frá Pottagöldrum. í fyrstu er um
að ræða tvær tegundir, Lamb Is-
landia grillolía sem er einkum ætl-
uð fyrir lambakjöt og síðan Chorizo
olía sem er sérstaklega mælt með
fyrir svínakjöt.
Grillolíurnar geymast vel við
stofuhita í lokuðum skáp þar sem
sól kemst ekki að þeim. Þessar
olíur má einnig nota sem salatolíu.
Þá er blandað saman við olíuna
góðu vínediki og það notað út á
salatið. Þá er hægt að nota grillol-
íuna þegar verið er að pönnus-
teikja.
Sé kjöt marínerað í kryddolíunni
Finnskir
dagar í Mun-
aðarnesi
FINNSKIR dagar hefjast 29. júní
næstkomandi í veitingahúsinu Mun-
aðarnesi í Borgarfirði. Finnskur
matreiðslumeistri, Juha Vaini-
onpáá, stýrir matargerðinni þessa
daga, en hann hefur valið nokkra
þjóðlega finnska
rétti á matseðil-
inn til að kynna
Islendingum.
Juha er ungur
matreiðslumað-
ur sem hefur
meðal annars
starfað í listam-
iðstöðinni Ret-
retti í austur
Finnlandi. Kona
hans Eva Arna-
dóttir matreiðslumaður er með hon-
um í för.
í veitingahúsinu Munaðarnes
hefur verið lögð áhersla á menningu
i mat, listsýningar og tónlistarvið-
burði, auk þess að þjóna orlofsgest-
um í sumarhúsum. Veistingahúsið
er öllum opið frá fimmtudegi til
laugardags kl. 18:00 og á sunnu-
degi frá kl. 11.30.
Juha
Vainionpaa.
GAROSLÖNGUR
SLONGUTENGI
GARÐÚÐARAR .
ÚOAKÚTAR I
PÓR HF
Doykjavík - Akureyri
Reykjavík: Ármúla 11 -Slmi 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Sími 461-1070 ;
NEYTENDUR
MARBERT
kaupauki
Glæsileg svört
hliðartaska fylgir
með HYDROSOME
og einum hlut úr nýju
förðunarlínunni.
HYDROSOME er
rakakrem sem sér
húðinni fyrir
stöðugum og
langvarandi raka í allt
að 24 klukkustundir.
HYDROSOME
Rakakrem fyrir allar húðgerðir.
MARIANNE Tofdal þróunar-
stjóri hjá Sól hf og Sigfríð
Þórisdóttir eigandi Potta-
galdra ehf.
má geyma kjötið þannig svo dögum
skiptir en síðan er líka hægt að
pensla hráefnið fyrir grillun. Mikil-
vægt er að salta og pipra um leið
og eldað er til að draga fram bragð
olíanna.
Grillolíurnar innihalda hrein-
ar afurðir, engum aukefnum né
salti er bætt í þær.
Morgunblaðið/Sverrir
LAMB Islandia grillolía og
Chorizo grillolía.
FersMr kjvtfdingvir
á fiwivvrtvuteqi
Heilsteiktur kjúklingur
með vínberjasósu
(Uppskrift fyrir fjóra)
2 heilir ferskir kjúklingar
1 dl græn vínber
1 dl blá vínber
2 skallotlaukar, fínt hakkaðir
1 msk balsamico edik
1 tsk hlynsíróp
1/2 lítri soð úr kjúklinga- eða
andakjötskrafti (Oscar)
1 dl rjómi
örlítil sletta af púrtvíni (má sleppa)
sósujafnari
Hreinsið kjúklinginn vel og
kryddið bæði að innan og utan með
kjúklingakryddi. Látið á grind í
ofninn og ofnskúffu undir. Steikið í
ofninum við 160 gráðu hita í einn tíma.
Hækkið hitann á ofninum í 220 gráður
og steikið í 15 - 20 mínútur í viðbót.
Fylgist vei með kjúklingnum eftir að
hitinn hefur verið hækkaður.
Sósan:
Skerið vínberin í tvennt og fjarlægið stein-
ana. Látið í skál og setjið edikið og hlyn-
sírópið yfir þau. Látið standa saman við
stofuhita i hálftíma. Steikið skallotlaukinn í
smjöri án þess að brúna hann. Bætið þar út í
vínberjunum og ediksafanum. Hellið soðinu
yfir og látið sjóða saman í smátíma. Bætið
rjómanum í og sjóðið saman. Þykkið létt
með sósujafnara og slettið örlitlu af púrtvíni
út í ef vill.
Berið kjúklinginn fram með nýju íslensku
grænmeti og bökuðum kartöflum.
HAGKAUP
- fyrlrfjölskHldunaz
Afskornar
rósir
1. flokkur
(stórar og flottar)
aðeins
kr/stk
hansarós