Morgunblaðið - 27.06.1996, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Leiðsögii um
V atnsley suströnd
BOKMENNTIR
Fc rd a rit
Ornefni og gönguleiðir í
Vatnsleysustrandarhreppi
eftir Sesselju G. Guðmundsdóttur.
Lionsklúbburinn Keilir. 152 bls.
EINS og titill bókarinnar segir er
hér greint frá ömefnum og göngu-
leiðum í Vatnsleysustrandarhreppi að
hluta til. Það er að vísu ekki fyllilega
ljóst hver mörk þessa hrepps eru að
mati höfundar. Hún (þ.e. höfundur)
telur þó réttast að telja Markhól við
sjó í Hraunsnesi austurmörk sjávar-
megin, en það eru jafnframt landa-
merki jarðanna Hvassahrauns og
Lónkots. Vesturmörkin em á Voga-
stapa (Grynnri Skora). Öllu flóknara
er að lýsa hreppsmörkum að sunnan-
verðu og læt ég það hjá líða.
Eins og vikið var að tekur lýsingin
aðeins til hluta hreppsins, þ.e. ofan
gamla Keflavíkurvegarins. Eftir er
að lýsa strandlengjunni.
Bók þessi er alveg einstaklega vel
gerð að öllu leyti. Mörg kort fylgja
yfir einstök svæði, þar sem örnefni
em merkt inn, svo og vegir og leiðir.
Yfírlitskort er fremst í bók og eru
svæðin sem einstök kort ná yfir merkt
þar skilmerkilega inn. Allmargar
myndir em einnig af athyglisverðum
stöðum. Höfundur skiptir hreppnum
í fímm svæði sem hvert fær sína
umfjöllun.
Jón Böðvarsson ritar formála bók-
arinnar og segir svo: „[höfundur]
hefur skoðað hverja smáhæð og laut
á víðlendi þessu. Hún nefnir staði sem
heiti bera og lýsir þeim sem kostur
er með þeim árangri að lesendur sem
gegnum textann brjótast verða
margs vísari um búskaparhætti sem
aldrei verða endurvaktir."
Höfundur hlýtur að hafa átt ótrú-
lega margar ferðir um þetta svæði
og átt tal við mikinn fjölda fólks.
Hún virðist þekkja þetta land einstak-
lega vel og mér kæmi á óvart ef ein-
hverjir staðir sem nafn eiga hafa
farið framhjá hinu glögga auga henn-
ar. Gönguleiðir sem flestum öðrum
munu týndar hefur hún leitað uppi.
Fyrir fróðleiksfúsan ferðamann
sem vill rölta um þetta svæði, skoða
og læra, er þessi litla bók ómetanleg-
ur ferðafélagi, svo barmafull af
fræðslu sem hún er. Kortin gera hana
einkar aðgengilega og gagnlega.
Uppsetning er með ágætum. Omefni
eru með feitu letri og undirstrikuð
og leiðarlýsingar greinilegar. Ókunn-
ugur mun undrast hversu margt at-
hyglisvert er að sjá og skoða á þess-
um slóðum, sem úr fjarlægð virðast
vera hijóstur eitt, hraun og berang-
ur. Bókin hefur auk þess þann mikla
kost að stærð hennar er hófleg og
auðvelt að stinga henni í vasa eða
hafa í hendi.
Sesselja G. Guðmundsdóttir hefur
hér unnið mikið þarfaverk sem marg-
ir mega vera henni þakklátir fyrir.
Sigurjón Björnsson
Ferðaþjónustan Húsafelli. Úrval
sumarhúsa og smáhýsa fyrir hópa og ein-
staklinga. Tjaldstæði. Hestamenn ath.
beitarhólf.
Uppl-í síma 435-1377.
Akureyri: Leigjum út 2-4 manna stúdió-
íbúðir með öllum bunaði. Opið allt árið.
Stúdióibúöir, Strandgötu 13, Akureyri
sími 461-2035, fax 461-1227.
HÓTIX x .
iming
Sauöárkróki, sími 453 6717
Hótel Áning Sauðárkróki leggur áherslu á
fagmennsku í eldhúsi og sal. Lifandi tónlist
fyrir matargesti og þægileg stemming I
koníaksstofunni við opinn arineld. Staðsett
í hjarta bæjarins, spölkorn frá golfvellinum.
Glæsileg sundlaug með góðu útsýni.
Heitir pottar
Ferðaþjónustan Úthlíð,
Biskupstungum, sími 486-8770.
Njóttu veðursældarinnar I Húsafelli!
Sundlaug, heitir pottar, vatnsrennibraut
kog gufuböð. Opið 10-22 alla daga.
Sími 435-1377.
Ævintýrasiglingar um Breiöafjörð með
skelveiði og smökkun.
Fjölbreytt fuglalíf - lifandi leiðsögn - gisting
á Hótel Eyjaferöum.
Eyjaferðir, Stykkishólmi, sími 438-1450.
Áætlunarferðir
Reykjavik/Akureyri - Akureyri/Reykjavík
um Kjalveg daglega kl. 09.00 i júlí og ágúst
með viðkomu í Kerlingarfjöllum.
Norðurleið-Landleiðir hf., slmi 551 -1145.
Reykjavík - Akureyri alla daga kl. 08.00
og 17.00. Akureyri - Reykjavík alla daga
kl. 09.30 og 17.00.
Norðurteið-Landleiðir hf. sími 551-1145.
Sérféröir
Ferðir með leiðsögn
Reykjavik - Akureyri um Sprengisand
mánudaga og fimmtudaga kl. 08.00 og
Akureyri - Reykjavík um Kjalveg
miðvikudaga og laugardaga kl. 08.30
Norðurleið-Landleiðir hf., sími 551-1145.
Ferðaþjónustan Úthlíð Biskupstungum
Tjaldstæði - verslun - bensinstöð -
hestaleiga.
Slmi 486-8770.
Ferðaþjónustan Húsafelli. Tjaldstæði,
hestaleiga, gönguferðir með leiðsögn,
veiðileyfi, verslun og bensínstöð.
Uppl.fsíma 435-1376.
Nýr og skemmtilegur 9 holu golfvöllur - par
35. Verð 500 kr. dagurinn.
Ferðaþjónustan Úthlfð,
Biskupstungum, sími 486-8770.
Skemmtilegurog krefjandi 9 holu golfvöllur
i fallegu umhverfi.
Ferðaþjónustan Húsafelli.
Uppl.ísfma 435-1377.
Hótel Áning
Golf og gisting. Gisting, morgunverður og
kvöldverður og endalaust golf!
Verð aðeins 5.900 á mann.
j 'Wm?( Veítingar
Réttin - Veitingar og grillpakki fyrir hópa.
Sund - grill - kaffi og konfekt.
Böll öll laugardagskvöld.
Ferðaþjónustan Úthlíð,
Biskupstungum, slmi 486-8770.
Hrútafirði • Opið fré kl. 8.00 - 23.50
Sími 451 1150 • Fax 451 1107
Fjölbreytilegir gistimöguleikar
Sumarhús - svefnpokagisting - uppbúin
rúm. Þjóðlegir réttir - spennandi réttlr -
skyndiréttir.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SKÍÐASKÁLINN í Hveradölum.
„Saga“-veislur í Skíðaskálanum í Hveradölum
REYKTI maturinn, sem er á
boðstólum í Skiðaskáianum,
er reyktur í reykhúsi
staðarins.
Tekið á móti gestum
að góðbændasið
FRÁ áramótum hafa innréttingar
og skreytingar í Skíðaskálanum í
Hveradölum smám saman tekið
stakkaskiptum. Andblær alda-
mótaáranna svífur yfir vötnum í
Krambúðinni á fyrstu hæðinni,
sem hýsir veitingasal fyrir allt að
fjörutíu manns og sannkallaða
krambúð þar sem úir og grúir af
alls kyns varningi, líkt og slíkar
búðir buðu upp á í eina tíð.
Gestir og gangandi geta farið
um skálann að vild og skoðað
ýmsa forna íslenska gripi, muni
og minjar. í Krambúðinni er þó
einungis tekið á móti hópum í
mat, eða „Saga-veislu“ og þarf þá
að panta fyrirfram. Guðmundur
A. Jóhannsson, veitingastjóri, seg-
ir að þjóðlega búið starfsfólk taki
á móti gestum að gömlum góð-
bændasið og sæki þá jafnvel á
hestbaki að hópferðabílnum. „Þeir
eru boðnir velkomnir með „brjóst-
birtu“, harðfisk, hákarli og fleira
góðgæti. Við göngum með gesti
okkar um garðinn og sýnum þeim
reykhúsið, hverasvæðið, böðin og
krambúðina. Síðan bjóðum við
þeim til stofu þar sem snæddur
er íslenskur málsverður og undir
borðum er gestum skemmt með
þjóðlegri tónlist."
Skeldýrasúpa og„heiða“Iamb
Ef gestir eru 35 eða fleiri þarf
ekki að greiða fyrir harmonikku-
leikara. Sem dæmi um matseðil
segir Guðmundur að rjómaliiguð
brandýbætt skeldýrasúpa sé vin-
sæl í forrétt, og sem aðalréttur
njóti glóðarsteikt læri af „heiða-
“íambi, kryddað íslenskum villi-
jurtum, borið fram með jarðeplum,
mikilla vinsælda, og ostaskyrterta
eða skyr með rjóma og bláberjum
sé þá oft haft í eftirrétt. Guðmund-
ur segir að slíkar krásir kosti 3.690
kr. á mann.
Að sögn Guðmundar hafði lengi
verið í bígerð að bjóða upp á
„Saga“-veislur í Skíðaskálanum,
en ekki var hafist handa við það
verkefni fyrr en hann kom til
starfa fyrir tveimur árum. „Mér
leist vel á hugmyndina, því mig
Iangaði til að bjóða gestum upp á
eitthvað meira en góðan mat. Eg
fékk Guðjón Sigmundsson, leik-
myndagerðarmann, til liðs við mig
og síðan höfum við verið að viða
að okkur gömlum munum úr ýms-
um áttum, breyta, bæta og laga
innandyra til þess að skapa hér
sannkallaðan aidamótabrag.
Breytingarnar hafa mælst vel fyr-
ir og þegar er búið að bóka í
nokkrar „Saga“-veislur á næsta
ári.
Guðmundur hefur ýmislegt á
ANDDYRI Krambúðarinnar.
GUÐMUNDUR A. Jóhannsson, veitingastjóri, ásamt Sigrúnu
Krambúðinni.
ÚR Krambúðinni.
pijónunum til að auka enn frekar
á aldamótastemmninguna í Skíða-
skálanum. Hann hefur áhuga á að
útbúa sérstakt sjómannshorn og
baðstofuhorn í Krambúðinni, en
um til skreytingar. „Við þiggjum
með þökkum slíka gripi að gjöf eða
láni, en margir hafa góðfúslega
lánað okkur ýmislegt sem þeir hafa
dregið fram úr kjöllurum sinum
segir að hörgull sé á gömlum mun- og geymslum," segir Guðmundur.
Heimili far-
fuglanna
ÞRJÁTÍU farfuglaheimili eru um
allt land og geta ferðalangar áttað
sig á staðsetningu þeirra á með-
fylgjandi korti. Farfuglaheimilin
eru einkum ætluð þeim sem vilja
ódýra gistingu með möguleikum á
sjálfsþjónustu á sem flestum svið-
um. I herbergjunum eru rúm með
sæng og kodda en ferðalangar
verða að koma með svefnpoka eða
sængurföt, en þau er líka hægt að
leigja á staðnum.
Fyrir félagsmenn í Bandalagi ís-
lenskra farfugla kostar nóttin 1.000
kr., en almennt verð er 1.250 kr.
Lónkot
Fosshóll
Seyðisfjörður
Akureyri
Irauneyjar
Patreksfjörður
Stykkishólmur
HamrarXB /
MosfeHsbærf^'^-'1
Reykjavik
Njarðvík ^ Áí Leirubakki
,.♦4 •• & Fljqtsdalur
Farfuglaheimili á íslandi
1996
^ Bakkafjðrður
Reýðárfjörður
Berunes
Stafafell
Vagnsstaðir
Vestmannaeyjar
Reynisbrekka