Morgunblaðið - 27.06.1996, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Yar
kveikt í
Feneyja-
óperunni?
Feneyjum. Reuter.
ÍTALSKA rannsóknarlög-
reglan telur að kveikt hafi
verið í hinu sögufræga óperu-
húsi La Fenice í Feneyjum,
að því er ítalskir fjölmiðlar
greindu frá á þriðjudag.
Samkvæmt fyrstu niður-
stöðum rannsóknar málsins,
sem var lekið til fjölmiðla,
leikur grunur á að um
íkveikju hafi verið að ræða
eftir að sérfræðingar fundu
að nokkrir eldar hefðu kvikn-
að inni í húsinu, sem fór mjög
illa í brunanum 29. janúar.
Upphaflega var talið að
skammhlaup vegna viðgerða
hefði valdið brunanum. La
Fenice, sem þýðir Fönix, er
204 ára gamalt og var endur-
reist eftir bruna árið 1836.
Feneyjaborg hefur sagst
munu endurreisa óperuna, en
talið er að það muni kosta
6,6 milljarða. Ekki hefur ver-
ið hægt að heíja það starf
vegna rannsóknar málsins.
Útför
Papan-
dreou
ALLIR helstu stjórnmálamenn
Grikklands, fjöldi erlendra ráða-
manna og á hundrað þúsund grísk-
ir stuðningsmenn fylgdu Andreas
Papandreou, fyrrum forsætisráð-
herra, til grafar í Aþenu í gær.
Miðborg Aþenu var troðfull af
fólki er hafði komið af löndinu
öllu til að votta Papandreou hinstu
virðingu. „Það er skylda hvers
Grikkja að vera hér í dag vegna
þess að Papandreou gerði svo mik-
ið fyrir Grikkland og lýðræðið,"
sagði hinn fimmtán ára Stasis
Xatziyakoumis.
Hinn 78 ára gamli Aristos Ko-
utroulis, er barðist í síðari heims-
styijöldinni, sagði: „Ég er kominn
til að kveðja hetjuna er færði okk-
ur lýðræði.“
Dómkirkja grísku réttrúnaðar-
kirkjunnar var full af blómsveigum
og kveðjum, m.a. frá hinu vinsæla
fótboltaliði Olympiakos og Verka-
mannaflokki Kúrda (PKK) í Tyrk-
landi.
Papandreou lést eftir hjarta-
áfall aðfaranótt sunnudagsins, 77
ár að aldri.
Úkraínumenn hafna ríkja-
sambandi við Rússland
Kíev, Moskvu. Reuter.
ÚKRAÍNUMENN höfnuðu í gær
með mikilli varfærni hugmyndum
Borís Jeltsíns Rússlandsforseta um
nýtt ríkjasamband Rússlands, Kaz-
akstans, Hvíta-Rússlands og Úkra-
ínu. í árlegri skýrslu Jeltsíns á
þriðjudag til þingsins um öryggis-
mál varpaði hann hugmyndinni
fram en lagði áherslu á að fram-
kvæmd hennar væri komin undir
„velvilja" Úkraínumanna.
Rússar undirrituðu samninga um
nánara samstarf við Kazaka og
Hvít-Rússa fyrr á árinu. Úkraína á
aðild að lauslegu samstarfí 12
þjóða, Samveldi sjálfstæðra ríkja,
eins og önnur fýrrverandi sovét-lýð-
veldi að Eystrasaltsríkjunum und-
anskildum en hefur lýst andstöðu
við að samstarfíð verið eflt.
Skrifstofustjóri Leoníd Kútsjma
Úkraínuforseta, D_mítro Tabatsík,
sagði í gær að Úkraínumönnum
nægði aðildin að Samveldinu, það
væri eins konar ríkjasamband.
Hann gaf í skyn að um kosninga-
áróður væri að ræða hjá Jeltsín
sem reynt hefur að laða að sér
kjósendur er taka undir hugmynd-
ir kommúnistans Gennadís Zjúg-
anovs um endurreisn Sovétríkj-
anna. „Þetta hefur komið upp í
tengslum við kosningabaráttuna í
Rússlandi og við skiljum það mjög
vel,_“ sagði Tabatsík.
Akafir þjóðemissinnar, sem
annars eru andvígir kommúnistum
telja einnig að kapp beri að leggja
á endurreisn hins forna stórveldis
Rússa. Kútsjma og nær allir aðrir
leiðtogar Samveldisríkjanna styðja
leynt og ljóst Jeltsín í baráttu hans
við Zjúganov.
Bann við erlendum
herstöðvum
Heimildarmenn úr herbúðum
Kútsjma sögðu að ákvæði um bann
við erlendum herstöðvum á úkra-
ínsku landi, sem væri í drögum að
nýrri stjómarskrá landsins, gæti
hafa valdið ótta og ýtt undir hug-
myndir í Rússlandi um ríkjasam-
band. Helsti ásteytingarsteinninn
í samskiptum Rússa og Úkraínu
er ósamkomulag um yfirráð gamla
Svartahafsflotans sem hefur aðal-
bækistöð í Sevastopol í Úkraínu.
Jeltsín hefur sex sinnum frestað
opinberri heimsókn til grannlands-
ins vegna deilnanna um flotann
en mörg af skipum hans munu nú
illa farin vegna lítils viðhalds.
Stækkun NATO
Úkraínumenn hafa farið afar
varlega í umljöllun sinni um
stækkun Atlantshafsbandalagsins,
NATO, en Rússar segja að áætlan-
ir um stækkunina séu ógnun við
þá. Kútsjma sagði í opinberri heim-
sókn í Póllandi á þriðjudag að
Úkraínustjórn myndi ekki reyna
að hindra aðild Pólverja að NATO.
Sjálfír segjast Úkraínumenn ætla
að vera utan slíkra bandalaga og
hafa afhent Rússum öll sovésk
kjarnavopn sem voru í landinu eða
látið eyða þeim.
Dick Spring utanríkisráðherra írlands
Upplýsingar skortir um
áhrif nýrra aðildarríkja
Dublin. Rcutcr.
DICK Spring, utanríkisráðherra ír-
lands, sagði í gær að Evrópusam-
bandið skorti ítarlegi upplýsingar
um afleiðingar þess að fjölga aðild-
arríkjum verulega.
Á fundi með fréttamönnum sagði
Spring nauðsynlegt að fjölga aðild-
arríkjum. „Stækkuð Evrópa er Evr-
ópa sem er sátt við sjálfa sig,“ sagði
Spring.
Hins vegar sagðist hann draga í
efa að nokkur starfsbræðra sinna
gæti sagt fyrir um afleiðingar þess
að eitthvert tiltekið ríki fengi aðild
og að það gerði að verkum að eng-
inn gæti sagt hversu mörg ríki
myndu fá aðild í fyrstu lotu.
Evrópusambandið hefur heitið
tólf ríkjum aðild í framtíðinni: Pól-
landi, Ungverjalandi, Tékklandi,
Slóvakíu, Slóveníu, Búlgaríu, Rúm-
eníu, Eistlandi, Lettlandi, Kýpur og
Möltu.
Þó að oft séu umsóknarríkin
flokkuð sem ein heild eru embættis-
menn ESB í auknum mæli famir
að gera sér grein fyrir því að hvert
fyrir sig felur í sér ákveðin vanda-
mál fyrir bandalagið.
Spring sagði að sumar þessar
upplýsingar ættu að liggja fyrir
áður en írar halda leiðtogafund í
Dublin í desember.
Meðal annars yrðu menn að átta
sig á því hversu langan aðlögunar-
tíma ríki yrðu að fá frá ákveðnum
þáttum Evrópusamstarfsins.
Hann sagðist ekki vilja spá fyrir
um hvenær fyrstu ríkin myndu fá
aðild né heldur hvaða ríki það yrðu.
Það virtist hins vegar nær ljóst að
samningaviðræður myndu hefjast
við flest ef ekki öll þeirra á sama
tíma.
Wienand
dæmdur
fyrir
njósnir
Dlisseldorf. Rcutcr.
KARL Wienand, náinn samstarfs-
maður Willy Brandts fyrrverandi
kanslara Þýskalands, var dæmdur
í tveggja og hálfs árs fangelsi í
gær fyrir njósnir í þágu Austur-
Þýskalands.
Krantz var fundinn sekur um
að hafa þáð eina milljón marka,
jafnvirði 44 milljóna króna, af
austur-þýski öryggisþjónustunni
(Stasi), í byijun áttunda áratugar-
ins. Hann var agameistari þýska
jafnaðarmannaflokksins (SPD) á
þeim tíma sem njósnirnar áttu sér
stað.
Hvetur Dí-
önu til að
samþykkja
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, telur að skilnaðar-
samningur sá sem Karl Breta-
prins hefur boðið Díönu prins-
essu, fyrrverandi eiginkonu
sinni, sé henni afar hagstæður
og hefur hvatt hana til að sam-
þykkja hann. Þetta er fullyrt
í breska blaðinu Sun. Þar seg-
ir jafnframt að samkomulagið
sé jafnvirði um 2 milljarða ísl.
kr. í eignum, árlegum greiðsl-
um og hárri eingreiðslu.
Simpson
lengur fyrir
dómi
DÓMARI í Santa Monica úr-
skurðaði í gær að O.J. Simp-
son, sem sýknaður var á síð-
asta ári af ákæru um að hafa
myrt eiginkonu sína og vin
hennar, yrði að bera enn frek-
ara vitni fyrir dómi en hann
hefur verið í vitnastúkunni í tíu
daga. Ættingjar hinna myrtu
höfðuðu einkamál á hendur
Simpson í kjölfar sýknu-
dómsins, og ber hann vitni í
því. Þá hefur verið gefín út
handtökuskipun á vin Simp-
sons, sem hefur komið sér hjá
því að bera vitni í málinu.
Kúariða veld-
ur heilarýrn-
un í öpum
FRANSKIR vísindamenn hafa
sýnt fram á að apar, sem
sprautaðir voru með hlutum
úr heila kúa sýktum af kúa-
riðu, geta fengið sjúkdóm
skyldan Creutzfeldt-Jakob-
sjúkdóminn, sem veldur heila-
rýrnun í mönnum. Segja sér-
fræðingarnir niðurstöðurnar
vissulega valda áhyggjum en
að frekari rannsóknir þurfi að
koma til. Fyrr á þessu ári lýstu
breskir vísindamenn því yfir
að þeir teldu að menn gætu
fengið Creutzfeldt-Jakob-
sjúkdóminn ef þeir neyttu
kjöts af nautgripum sem sýkt-
ir væru að kúariðu.
Ævagamlir
helgitextar
fundnir
BRESKA landsbókasafnið
festi nýverið kaup á búddísk-
um ritum sem talin eru jafnast
á við Dauðahafshandritin svo-
kölluðu. Um er að ræða helga
texta skrifaða á birkibörk sem
talið er að séu frá annarri til
fimmtu öld e. Kr. Textarnir
eru í sextíu hlutum og á þeim
eru ljóð, predikanir og fræði-
rit. Eru þetta elstu textar
búddista sem vitað er um.
Harðar árásir
á Kabúl
AÐ MINNSTA kosti fimmtán
manns létu lífíð í sprengju-
árásum afganskra uppreisnar-
manna Taleban á höfuðborg-
ina Kabúl í gær. Á sama tíma
sóttu Gulbuddin Hekmatyar
og menn hans til borgarinnar
en hann hyggst taka að nýju
sæti í stjórn Afganistan í kjöl-
far friðarsamkomulags sem
hann gerði við forseta landsins
í síðasta mánuði.