Morgunblaðið - 27.06.1996, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 27.06.1996, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ1996 39 AÐSENDAR GREINAR Ungt fólk í miðbæ Reykjavíkur ÞAÐ er allt of al- gengt að það sé agnúast út í unglinga og það oft ómaklega. Umræðan um ungmenni í miðbæ Reykjavíkur er nokkuð lituð af neikvæðum við- horfum í garð unglinga og þessa dagana er tölu- vert rætt um vandann sem fylgi komu ungs fólks í miðbæinn, að ástandið sé slæmt og ölvuð ungmenni séu áberandi í fólksfjöldan- um sem þar safnist sam- an. Þegar að er gáð kemur í ljós að allt er þetta orðum aukið og unga fólkið, að minnsta kosti ungl- ingar undir lögaldri, ekki það fólk sem til vandræða er. Neikvæð viðhorf í garð unglinga Umræða spannst í fjölmiðlum fyr- ir tveimur vikum og var fullyrt í ein- um þeirra að aðfaranótt sunnudags- ins 9. júní hefðu mikið ölvaðir ungl- ingar verið áberandi í Austurstræti. En lögregluskýrslur segja allt annað. Þar segir um föstudagskvöldið að um 2.500 manns hafi verið á ferli i miðbænúm þegar flest var, gott yfir- bragð hafi verið yfir fólkinu í góða veðrinu og engin afskipti höfð af unglingum vegna aldurs. Sama er um laugardagskvöldið og í skýrslu lögreglunnar kemur fram að engin ungmenni hafi verið á svæðinu undir 16 ára aldri. Það er varhugavert að ala á þeirri tilfinningu hjá börnum og unglingum að þeir séu alls staðar til vandræða. Það er líka ósanngjarnt því þorri unglinga er til fyrirmyndar. Miðbæjarathvarfið Borgaryfirvöld hafa beitt sér fyrir því að efla og styrkja forvamarstarf fyrir börn og unglinga. Það kemur m.a. fram í því að lögð er áhersla á að reglum um útivistartíma sé fram- fylgt og hefur það borið þann árang- ur að hópamyndun unglinga undir sjálfræðisaldri hefur minnkað að næturlagi um helgar, bæði í hverfum borgarinnar og í miðbænum. Til þess að sporna við því að unglingar undir sjálfræðisaldri séu eftirlitslausir í miðbænum að næturlagi um helgar er starfrækt svokallað Miðbæjarat- hvarf í samvinnu ÍTR, Félagsmála- stofnunar og lögreglunnar. Starf- semi þess er í því fólgin að vakt er í miðbænum á þessum tíma sem fylg- ist með því hvort þar séu á ferli unglingar undir aldri og sé svo er haft samband við foreldra þeirra sem sækja síðan börn sín í athvarfið. Þetta starf hefur skilað tiiætluðum árangri og mælst vel fyrir meðal foreldra. Menningarauki að Hinu húsinu Daglega leggur nú mikill fjöldi ungs fólks leið sína niður í miðbæ til þess að taka þátt í þeirri fjöl- breyttu starfsemi sem á boðstólum er í Hinu húsinu. í sumar má gera ráð fyrir að minnsta kosti 200-300 manns eigi erindi þangað á hveijum degi, ýmist til vinnu eða starfs eða í tilfallandi erindagjörðum. Hitt húsið hóf starfsemi í gamla Geysishúsinu á horni Vesturgötu og Aðalstrætis fyrir réttu ári og er rekið af Iþrótta- og tómstundar- áði Reykjavíkurborgar. Markmiðið með starf- semi Hins hússins er fjölþætt og ýmsar nýj- ungar í starfinu' sem svigrúm skapaðist fyrir við flutninginn í gamla Geysishúsið. í Hinu húsinu er nú rekin um- svifamikil menningar- og upplýsingamiðstöð fyrir ungt fólk, þar starfa leikhópar og hafa æfingaaðstöðu, þar er rekið gallerí sem auðveldar ungu fólki að sýna listaverk sín og koma þeim á framfæri, starfsemi er fyrir fatlaða sem jafnframt auðveldar fötluðum að umgangast jafnaldra sína, þar er vinnuaðstaða fyrir margháttaða út- gáfu-, kynningar- og fræðslustarf- semi og ýmis félög og samtök hafa aðstöðu í húsinu. Á vegum Hins hússins er starfrækt listasmiðja í Hafnarhúsinu og þar er jafnframt æfíngaaðstaða fyrir hljómsveitir. Þorri unglinga er til fyrirmyndar, segir Kristín A. Arnadóttir, og þegar að er gáð er það ekki fólk undir lögaldri sem er til vand- ræða í miðbænum. Framan af stóð nokkur styrr um flutning þessarar starfsemi niður í miðbæ og ýmnsir lögðust gegn því. Því verður ekki neitað að þar vógu nokkuð fordómar í garð ungs fólks sem talin var hætta á að myndi spilla fyrir annarri starfsemi í miðbænum sem ætti í vök að veijast eða að starf- semin væri ekki samboðin þessu gamla húsi. í dag eru þessar raddir þagnaðar og engum blandast hugur um að mikill menningarauki sé að starfseminni í miðbæ Reykjavíkur. Uppbyggjandi starfsemi í miðbænum Að lokum vil ég vekja athygli á því að í Hinu húsinu er miðstöð úr- ræða Reykjavíkurborgar í atvinnu- málum ungs fólks og þar er ýmislegt gert til þess að mæta auknu atvinnu- leysi meðal þessa aldurshóps. Má nefna sem dæmi að 30 ungmenni hafa nú nýlokið 4 vikna starfsnámi og hófu 5 mánaða starfsþjálfun hjá stofnunum, félögum og menningar- samtökum fyrir fáum dögum. Þá hafa 23 verið ráðnir til að vinna að forvamarstarfi með ungu fólki undir formerkjum jafningafræðslu og fleira mætti telja. Staðreyndin er nú sú að hin upp- byggjandi starfsemi sem Hitt húsið stendur fyrir í miðbænum hefur breytt ímynd miðbæjarins í huga ungs fólks og það er tímabært að ungt fólk í miðbænum fái einnig þá sanngjömu og jákvæðu umfjöllun sem það á skilið. Höfundur er aðstoðarkona borgarstjórn Kristín A.Árnadóttir MARBERT kaupauki Glæsileg svört hliðartaska fylgir með. CELL ACTIVATION. CELL ACTIVATION er frumuörvandi. Tvö þrep fyrir einstakan árangur. Krem fyrir konur komnar um og yfir miðjan aldur. Húðin getur svo sannar- lega litlð út fyrir að vera yngri en árin segja til um. ■ iSft Xr.:m'Atsð*j jum sjjá Krínglukastsblað Meraun^liðnu í vikunni £■ MQrghMHdryLÖ tllboA a nyjum vorum „ veiður fovseti eikur á nglukasti v goö kaup 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.