Morgunblaðið - 27.06.1996, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Blákaldur
veruleikinn
FJOLMIÐLAR
hafa síðustu daga
rætt um greiðslu
vegna endurlífgunar
sjúklinga. Tilefni er
óvænt upphlaup fyrir-
tækis í Hafnarfirði.
Mál þetta birtist
Tryggingastofnun á
þann veg að um miðj-
an dag á fimmtudegi
barst stofnuninni sím-
bréf stílað á bréfsefni
Háskóla íslands þar
sem fullyrt er:
„Tryggingastofnun
ætlast ekki til að
læknar reyni að end-
urlífga sjúklinga eða sinni slysa-
hjálp á vettvangi á þessu svæði“,
þ.e. Hafnarfirði, Garðabæ og
Bessastaðahreppi.
Þá er látið að því liggja að lækn-
ar í téðum byggðarlögum fái ekki
greitt fyrir endurlífgun sjúklinga.
Að vonum brá starfsfólki stofn-
unarinnar því í þessari fullyrðingu
felast grófar og tilhæfulausar
ásakanir, sem eiga ekki við rök
að styðjast.
Þann 15. júní 1995 skrifuðu
Tryggingatofnun ríkisins og
Læknafélag íslands undir samning
um gjaldskrá heilsugæslulækna.
Meginefni þeirra saminga var
gjaldskrárhækkun sem nam um
9%o. Ýmsar lagfæringar fylgdu
samningsgerðinni, m.a. lagði
samninganefnd heilsugæslulækna
áherslu á að aðstæður
lækna í dreifbýli væru
almennt lakari en á
höfuðborgarsvæðinu
og því væri ástæða til
að meta það sérsak-
lega.
Samninganefnd
Tryggingastofnunar
féllst á þetta sjónar-
mið og var m.a. samið
um sérstakan gjaldlið
sem gilti einungis
utan Stór-Reykjavík-
ursvæðisins.
Greiðslur fyrir end-
urlífgun á Stór-
Reykj avíkursvæðinu
voru ákveðnar með sama hætti
og verið hafði.
Alger sátt var á milli samninga-
Greiðslur fyrir endur-
lífgun á Stór-Reykja-
víkursvæðinu, segir
Karl Steinar Guðna-
son, voru ákveðnar
með sama hætti og
verið hafði.
nefnda læknafélagsins og Trygg-
ingastofnunar um þessa niður-
stöðu. Samningur var undirritað-
Karl Steinar
Guðnason
ur. Hann var síðan borinn upp og
samþykktur af félagsmönnum.
Tryggingastofnun leggur
áherslu á að standa við samninga
og hafa greiðslur stofnunarinnar
miðast við það. Þeir sem senda
reikninga sem eru rangir fá þá
endursenda. Fyrir þessu er auðvit-
að áralöng hefð.
Þá er fullyrt að yfirvöld hafa
lofað að „kippa þessu í liðinn“.
Enginn kannast við þetta loforð
en væntanlega upplýstist það í
viðræðum.
í fjölmiðlum og nefndu símbréfi
er rætt um útskúfaða íbúa og fl.
í þeim dúr. Það er ijarri sanni að
túlka megi umrædda gjaldskrár-
breytingu á þann veg, reyndar
óskiljanlegt hvernig það er hægt.
Staðreyndin er sú að læknar í
Hafnarfirði, Garðabæ og Bessa-
staðahreppi fá greitt fyrir endur-
lífgun eins og fyrr. Þeir fá greidd-
ar í dagvinnu kr. 1.855, fyrir
kvöldvinnu fá þeir kr. 2.968, og í
næturvinnu kr. 3.710, (vitjun, inn-
helling í æð, hjartalínurit).
Starfsfólki Tryggingastofnunar
þykir miður að kjaramál sem þessi
skuli einungis rekin í fjölmiðlum
og með tilheyrandi ásökunum og
aðdróttunum. Það er Trygginga-
stofnun metnaðarmál að afgreiða
lækna og aðra viðskiptavini á rétt-
an hátt. Við viljum gjarnan
ástunda góða samvinnu og sam-
starf um þau málefni sem við eig-
um sameiginleg án þess að kallast
á í fjölmiðlum.
Starfsfólki Tryggingastofnunar
er vissulega ljóst hve mikil ábyrgð
hvílir á heilsugæslulæknum og
fáum er ljósara hve starf þeirra
er þýðingarmikið.
Höfundur er forsijóri
Tryggingastofnunar ríkisins.
.LITUR EÐA SVART EDSl
MJVMFORSEttHW
ÞÖGETURTREYSTHONUM.
Þann 29. júní býðst jiér að velja ákveðinn og steikan mann í forsetastól, sem lætur ekki bugast þótt á móti blási.
tó getur tœyst því að Ástþór Magnússon mun ekki láta undan þrýstingi ffá valdaklíkum áa
stj' ómariierrum Jiegar foisetinn þarfað standa vöið um hagsmuni fólksins í landinu. Ástþór heíúr einnig
víðtæka reynslu í viðskiptum á alþjóðlegum vettvangi og mun stuðla að uppbyggingu nýrra
atwnnuvega hér á landi og víðtækri kynningu á landi og þjóð um allan heim.
EKKITRAUSTSINS VERÐ
Hinn kosturinn í framboði er tœkinnun^háttur stjómmálanna og litlaus forseti sem líklegt er að hagi seglum
efitir því hvemig vindurinn blæs frá keánu. Það hefúr komið bersýnilega í ljós áfiantóíúndum að litlu
mi skiptir hvem af þessum litlausu frambjóðendum þú velur. Engimi þeirra hefúr viljað gefa
afdráttariausa afetöðu gegn kj amorkuvqonastefnu ríkisstjómarinnarné ganga fram f>Tir skj öldu íbaráttu fyrir
betri likjörum í landinu með því að gegna forsetaembættinu á launum sem samsvara meðianum
fjölskyldu í landinu.
Maður sem sefur ekki ó verðinum
STUÐNINGSMENN PRIfiAR
Sofið á verð-
ínum um
Kolbeinsey
FRÉTTIR um að
enn hafi verulega
gengið á Kolbeinsey
síðastliðinn vetur
koma ekki á óvart.
Þær hafa þó ýtt við
ýmsum og meira að
segja ríkisstjórnin
hefur vaknað af dvala
og ákveðið að skipa
nefnd um málið. Um
það er gott eitt að
segja annað en að það
hefur tekið ríkis-
stjórnina, með hæstv-
irtan samgönguráð-
herra Halldór Blöndal
í fararbroddi, heil
fjögur ár að koma nefndinni á
koppinn. En betra er seint en aldr-
ei og nú er að hvetja Halldór til
dáða. Af áhuga sjávarútvegsráð-
herra Þorsteins Pálssonar á mál-
inu, en hann er jafnframt dóms-
málaráðherra og yfirmaður land-
helgisgæslunnar, fer hins vegar
engum sögum.
koma pallsins, sem er
rækilega járnbentur
og festur út í bergið í
kring, styrkti einnig
eyjuna eins og nú er
að koma í ljós.
Seinna árið, þ.e.
1990, var unnið að
áframhaldandi rann-
sóknum og m.a. kafað
við eyjuna. Þessar að-
gerðir fóru fram í
góðri samvinnu Vita-
og hafnamálastofnun-
ar og Landhelgisgæsl-
unnar. Með því að
nota áhugasaman
mannafla og tækja-
kost þessara stofnana tókst að
gera ótrúlega mikið fyrir takmark-
aða fjárveitingu.
Málið sofnar
Því miður fór svo að málið sofn-
aði á vettvangi ríkisstjórnar eftir
stjórnarskiptin 1991 og aldrei var
lokið rannsóknum né úrvinnslu
Sigfússon
Saga Kolbeinseyjar
Af sögulegum heimildum og því
sem gerst hefur síðustu ár og ára-
tugi er ljóst að Kolbeinseyjar bíða
að óbreyttu þau örlög að hverfa í
sæ á næstu árum, eða í besta falli
áratugum.
Á níunda áratugnum hreyfði ég
þessu máli, þar á meðal á Al-
þingi, og hvatti til þess að hugað
yrði að því að reyna að verja eyj-
una eða a.m.k. lengja líftíma henn-
ar. Áður hafði Stefán Guðmunds-
son fengið samþykkta tillögu um
að setja upp sjómerki á eyjunni
og athuga með varðveislu hennar.
Þegar ég tók við embætti sam-
gönguráðherra haustið 1988 setti
ég málið strax á dagskrá. Vita-
og hafnamálastofnun annaðist
undirbúning rannsókna og að-
gerða. Tókst að útvega nokkurt
fé í verkefnið árin 1989 og 1990.
Fyrra árið voru framkvæmdar
mælingar og ráðist í að steypa
þyrlupall til að auðveldara yrði að
athafna sig í eyjunni við allar frelc-
ari rannsóknir og aðgerðir. Til-
Gail flísar
TBSl
Pcna*F!iriUiJLUu
■ ’.inkteáMiiin
u
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
BRETTALYFTUR
ÓTRÚLEGT VERÐ!
CML brettalyftur
eru úrvalsvara
á fínu verði.
Þær eru á einföldum
eða tvöföldum
mjúkum hjólum,
sem ekki skaða gólf.
Verð m/vsk frá
kr. 35.990 stgr.
Hringás ehf.
Langholtsvegi 84, Rvk. S. 533 1330
Það var ekki barist o g
færðar fórnir við út-
færslu landhelginnar,
segir Steingrímur
J. Sigfússon, til þess
að glata svo 9.400
ferkílómetrum fyrir
sofandahátt.
gagna eins og ætlunin var til að
undirbúa ákvarðanatöku í málinu.
Ég flutti því ásamt fleirum til-
lögu til þingsályktunar veturinn
1991 - 1992 um að fela ríkisstjórn-
inni að ljúka úrvinnslu gagna og
gera áætlun um styrkingu eyjar-
innar. Var tillagan samþykkt og
verkefnið þar með falið ríkisstjórn.
En skemmst er frá því að segja
að þrátt fyrir árlegan eftirrekstur
af hálfu undirritaðs hefur fátt
gerst í málinu fyrr en nú. Er það
þeim mun bagalegra sem ljóst má
vera að eftir því sem gengur á
eyjuna verður verkefnið erfiðara,
bæði minna svæði ofansjávar til
að athafna sig á og til að veija.
Tilefni þessara skrifa er ekki
að rökstyðja mikilvægi þess að
Kolbeinsey verði varin sé þess
nokkur kostur. Það er eindregin
skoðun undirritaðs að hverri kyn-
slóð beri rík skylda að gæta ítrustu
landsréttinda þjóðarinnar. Það var
ekki barist og færðar fórnir við
útfærslu landhelginnar til þess að
glata svo 9.400 ferkílómetrum
fyrir sofandahátt. Sé það tækni-
lega viðráðanlegt að bjarga Kol-
beinsey, eða a.m.k. með nokkuð
öruggri vissu tefja fyrir því um
t.d. hundrað ár að hún hverfi, má
ekki horfa af smámunasemi og
út frá skammtíma hagsmunum í
kostnað þó auðvitað eigi sér allt
sín takmörk. Það er a.m.k. algert
lágmark og skylda stjórnvalda að
valkostirnir liggi fyrir þannig að
hægt sé að taka ákvörðun á grund-
velli vandaðra athugana. Þær at-
huganir þurfa að sjálfsögðu einnig
að snúa að hinum lögfræðilega eða
þjóðréttarlega þætti málsins eins
og hinum tæknilega.
Dýrmætur tími hefur glatast
fyrir sofandahátt og þess vegna
verður nú að vinna hratt og vel.
Höfundur er þingmaður og
formaóur Sjávarútvegsnefndar.