Morgunblaðið - 27.06.1996, Side 42
42 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Gunnar Birgisson
- boðberi friðar
&
ÞAÐ lék andvari frið-
ar og sáttfysi um Gunn-
ar Birgisson, stjómar-
formann LÍN, á síðum
Morgunblaðsins mið-
vikudaginn 12. júní sl.
þar sem hann lýsti sátt-
inni sem ríkir um Lána-
sjóð íslenskra náms-
manna og fór svo há-
stemmdum orðum um
eindrægni og samstöðu
stjómarmanna að lands-
mönnum hlýnaði um
hjartarætur.
Vandi er að sjá hvað
veldur þessum innileg-
heitum stjórnarfor-
mannsins. Helst má ætla að friðarboð-
skapurinn sem hljómar í þjóðfélaginu
um þessar mundir hafí hitt hann í
hjartastað og síðan brotist út í sýndar-
veruleika í blaði allra landsmanna,
því það ríkir ekki friður um LÍN.
Þvert á móti. Það er grundvallar-
ágreiningur um málefni Lánasjóðs
íslenskra námsmanna.
Tillögur námsmanna
Fulltrúar námsmanna í stjóm LÍN
lögðu fram ítarlegar tillögur um
breytingar á úthlutunarreglum sjóðs-
ins í vor. Einhveijar
náðu fram að ganga en
flestar þeirra hlutu ekki
náð fyrir augum fulltrúa
ríkisvaldsins.
Ástæður þess að full-
trúar námsmanna sam-
þykktu úthlutunarreglur
sjóðsins liggja í þeirri
einföldu staðreynd að
breytingamar sem gerð-
ar voru á úthlutunar-
reglunum milli ára vom
spor í rétta átt. Og því
betri kostur fyrir náms-
menn en óbreyttar út-
hlutunarreglur sem full-
trúar ríkisvaldsins hefðu
getað knúið í gegn í krafti meirihluta-
valds í stjórn LIN.
Fráleitt er að halda því fram að
með því að samþykkja þessar breyt-
ingar hafi fulltrúar námsmanna verið
að leggja blessun sína yfir úthlutunar-
reglur stjómar sjóðsins og samstaða
ríki nú um málefni LÍN.
Ágreiningur um LÍN
Aðalágreiningurinn um lánasjóð-
inn verður hins vegar ekki leystur í
stjóm LÍN heldur í því endurskoð-
unarstarfi sem nú fer fram á vegum
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson
Stjómarformaður LÍN
getur, segir Vilhjálmur
H. Vilhiálmsson,
sýnt viljann í verki og
stutt tillögur náms-
manna um mánaðar-
legar útborganir.
ríkisstjómarflokkanna og á Alþingi.
Sá ágreiningur snýst um það hvernig
námsaðstoðarkerfí eigi að vera við
lýði á íslandi í framtíðinni: Ósann-
gjamt eftirágreiðslukerfí með alltof
hárri endurgreiðslubyrði eða sann-
gjarnt samtímagreiðslukerfi með
hóflegri greiðslubyrði. Megi ríkis-
stjórn Framsóknar- og Sjálfstæðis-
flokks bera gæfu til að velja síðari
kostinn.
Hvað varðar friðarhoðskap stjórn-
arformanns LÍN getur hann sýnt
viljann í verki, stutt tillögur náms-
manna um mánaðarlegar útborganir
námslána og léttari endurgreiðslu-
byrði og tekið þannig höndum saman
við námsmenn í baráttu þeirra fyrir
breyttum og betri lánasjóði sem þjóð-
arsátt ríki um.
Höfundur er formaður
Stúdentráðs Háskóla íslands.
Honda Civic 5 dyra 90 hestöfl
traustur fjölskyldubíll
Honda Civic 3ja dyra 90 hestöfl
glæsilegur sportbíll
sumartilboð
fallegustu bílarnir nú meö meíri búnaöi
1.384.000.-
staögreitt á götuna
innifalið umfram staðalbúnaö
- áífelgur
- vindskeiö
- þjófavörn
- samlitir stuöarar
1.399.000.-
staflgreitt á götuna
innifalið umfram staðalbúnað
- álfelgur
- þjófavörn
- geislaspilari
- 150 w hátalarar
1.749.000.-
Honda Accord 1.8i 115 hestöfl
uppfyllir kröfur vandlátra
staflgreitt á götuna
innifalið umfram staðalbúnaö
- álfelgur
- vindskeiö
- þjófavörn
Umboðsaðilar Honda
á Akureyri: Höldur hf., Tryggvabraut 12, S: 461 3000
á Egilsstöðum: Bíla- og Búvélasalan ehf., Miðási 19, S: 471 2011
í Keflavík: Bílasalur Suðurnesja., Qrófinni 8, S: 421 1200
0
VATNAGARÐAR24
S: 568 9900
Lesbíur og
hommar -
til hamingju!
í DAG er alþjóðlegur
baráttu- og frelsisdagur
lesbía og homma; dag-
urinn þegar samkyn-
hneigðir um allan heim
vekja athygli á sérstöðu
sinni innan þeirra sam-
félaga sem þeir byggja.
Á þessum degi fögnum
við því að vera við sjálf,
sýnileg og stolt af tilvist
okkar, menningu og
sögu - en samtímis
minnum við á þær
skuggahliðar samfé-
lagsins sem alltof oft
hafa snúið að samkyn-
hneigðum. Einangrun
þagnar og ósýnileika,
réttleysi og ofbeldi fordóma og
skilningsleysis, mannréttindabrot
og_ kynhneigðarkúgun.
í dag ganga hundruð þúsunda
samkynhneigðra í „Gay-Pride“-
göngum beggja vegna Atlantshafs-
ála, í menningarborg Evrópu,
Kaupmannahöfn, standa lesbíur og
hommar fyrir vikulöngum hátíða-
höldum, „Euro-Pride“. Á íslandi
fögnum við stærsta áfanganum í
mannréttindabaráttu okkar, nýjum
hjúskaparlögum fyrir samkyn-
hneigða sem taka gildi í dag!
Frá niðurlægingu til frelsis
27. júní 1969 markaði aldahvörf
í sögu lesbía og homma eftir niður-
lægingar og ofsóknir um miðja öld-
ina. Talið er að um 700.000 lesbíur
og hommar hafi látið lífið í skipu-
lagðri útrýmingarherferð í gasklef-
um í Þýskalandi Hitlers og síðar
tóku við fangelsanir og pyntingar
í Sovétríkjum Stalíns og Bandarikj-
um McCarthys. Hörmungar kyn-
hneigðarkúgunar höfðu í för með
sér að samkynhneigðir lifðu í felum
og beygðu sig þegjandi undir harð-
ræði af hálfu öfgahópa - og lög-
reglu sem réðist að hópum samkyn-
hneigðra með kylfum og handtök-
um. Arás lögreglunnar að skemmti-
stað samkynhneigðra, Stonewall
Inn í Greenwich Village hinn 27.
júní varð kornið sem fyllti mælinn
og loksins snerust lesbíur og homm-
ar til varnar. Uppreisnin á Stone-
wallkránni var tákn þess sem koma
skyldi og markaði upphafið að þeirri
baráttu fyrir sjálfsvirðingu og
mannréttindum samkynhneigðra
sem stendur enn.
Tilfinningafrelsi er
mannréttindamál
Grundvallarstefið í mannrétt-
indabaráttu samkynhneigðra snýst
um persónulegt frelsi hvers og eins
til að haga lífi sinu i samræmi við
eigin ástarhneigð. Þar af leiðandi
hafa lesbíur og hommar krafist
frelsis til að leita lífshamingju sinn-
ar opinskátt í fullum samhljómi við
dýpstu og eðlislægustu tilfínningar
sínar - án þess að vera látin gjalda
sérstöðu sinnar. Frelsiskröfu sam-
kynhneigðra er því best lýst með
hugtakinu „tilfinningafrelsi" - og
slíkt frelsi er í eðli sínu helgur rétt-
ur hvers einstaklings í samfélagi
sem vill kenna sig við mannrétt-
indi, ekki síður en ritfrelsi, mál-
frelsi eða félagafrelsi.
Mannréttindakrafa
samkynhneigðra um
tilfinningafrelsi mæt-
ir skilningi og stuðn-
ingi í síauknum mæli.
Hjúskaparréttindi
samkynhneigðra líta
dagsins ljós í dag,
þökk sé framsýni og
kjarki ríkisstjórnar og
Alþingis á íslandi og
samkynhneigðir trúa
og treysta að það sé
aðeins fyrsta skrefíð
af mörgum sem lög-
gjafarvaldið mun taka
þar til full mannrétt-
indi samkynhneigðra
verða tryggð á íslandi. Enn er eftir
að tryggja samkynhneigðum rétt
til kirkjulegrar vígslu svo og að
veita heimild til ættleiðinga og
tæknifijóvgana til þess að samvist
samkynhneigðra sé viðurkennd á
sama hátt og hjónabönd annarra.
Þrátt fyrir það er ísland nú fremst
Grundvallarstefið í
mannréttindabaráttu
samkynhneigðra, segir
Margrét Pála Ólafs-
dóttir, snýst um per-
sónulegt frelsi til að lifa
í samræmi við eigið eðli.
í flokki þeirra ríkja sem veita lesb-
íum og hommum lögverndaðan rétt
til að staðfesta sambúð sína með
gagnkvæmum réttindum og skyld-
um og vonandi munu aukin réttindi
á næstu árum gera íslensku samfé-
lagi kleift að vera áfram í farar-
broddi mannréttinda okkar.
Siðaðra samfélag
Mannréttindaleysi samkyn-
hneigðra hefur í aldanna rás fært
lesbíum og hommum þau örlög að
vera útlagar í eigin landi, réttlaus
og sek samkvæmt fordómum þeirra
sem hafa talið sig þess umkomna
að fella dóma. Þannig hafa lesbíur
og hommar verið samviskufangar
eigin sektar - þeirrar sektar sem
skilningsleysi og fordómar um-
hverfisins hafa innrætt okkur vegna
ótta við allt sem brýtur í bága við
hið „venjulega". Vonandi er sá ótti
á undanhaldi og framundan viður-
kenning á margbreytileika í siðaðra
samfélagi þar sem allir þegnar sitja
við sama borð, án tillits til stjórn-
málaskoðana, trúarbragða, kyn-
þáttar, kynferðis, móðurmáls,
menningar, fötlunar - eða kyn-
hneigðar.
Því er full ástæða til að óska
lesbíum og hommum - svo og þjóð-
inni allri - til hamingju með þennan
stóra áfanga í átt að siðaðra og
betra samfélagi.
Höfundur er formaður
Samtakanna 78, félags lesbía og
homma á íslandi.
Margrét Pála
Ólafsdóttir
Sumarútsala
30-40% afsláttur
af nærfötum og sokkabuxum.
Sng/ttisto^an &ékui\d
Snyrting »verslun »ljós. Grænatún 1, Kópavogi, s. 554 4025.