Morgunblaðið - 27.06.1996, Page 48
48 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
■UIÐAlia YSÍNGAR
Völundarverk ehf.,
Suðurlandsbraut 10,
óskar eftir að ráða múrara eða menn vana
múrvinnu. Um er að ræða mikla vinnu sem
hæfist strax og stæði fram eftir vetri 1997.
Upplýsingar í síma 588 0665 milli kl. 9.00
og 17.00 virka daga.
Jarðýtumaður
Vanan ýtumann vantar strax á Komatsu 155
jarðýtu.
Upplýsingar í símum 852 1137, 434 7850
og 565 3140.
Klæðning hf.
Aðstoðarstarf
Aðstoðarmanneskja óskast nú þegar
á heiisugæslu.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
í síma 552 6222.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Kennari
Kennara vantarað Laugalandsskóla, Holtum,
Rang. Æskilegar greinar sérkennsla og/eða
náttúrufræði. Ódýrt og gott húsnæði á staðn-
um. í Laugalandsskóla eru rúmlega 80 nem-
endur í 1. til 10. bekk.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí.
Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 487 6585
og hjá formanni skólanefndar í síma
487 5938.
MENNTASKÓLINN
í KÓPAVOGI
Kennarar
Menntaskólinn í Kópavogi auglýsir eftir
stundakennurum á haustönn í eftirtaldar
greinar:
íslensku 16 stundir.
Eðlisfræði 14 stundir.
Umsóknarfrestur er til 5. júlí.
Nánari upplýsingar gefur skólameistari eða
aðstoðarskólameistari í síma 554 3861
eða 564 3865.
Skólameistari.
FLENSBORGARSKÓLINN
í HAFNARFIRÐI
Kennararóskast
Flensborgarskólinn óskar að ráða stunda-
kennara á haustönn 1996 í eftirtaldar
kennslugreinar:
a) Stærðfræði,
b) viðskiptagreinar,
c) efnafræði,
e) dönsku.
Umsóknarfrestur um þessi störf er hér með
framlengdur til 2. júlí nk.
Allar nánari upplýsingar veitir skólameistari
í síma 565 0400 eða 555 0560.
Skóiameistari.
Verkstæðismaður
Óska eftir að ráða verkstæðismann á véla-
verkstæði okkar. Heilsársvinna.
Upplýsingar í síma 567 3555.
Sandur ehf.
Kjörfundur
Hafnarfjörður f Hafnarfirði
Kjörfundur í Hafnarfirði vegna kjörs forseta
íslands laugardaginn 29. júní 1996 hefst kl.
09.00 og lýkur kl. 22.00. Kosið verður í Lækj-
arskóla, Víðistaðaskóla og Setbergsskóla.
Kjörstöðum er skipt þannig, að íbúar við
Reykjavíkurveg og vestan hans kjósa í Víði-
staðaskóla, íbúar austan við Reykjavíkurveg
að Reykjanesbraut kjósa í Lækjarskóla, og
íbúar austan Reykjanesbrautar kjósa í Set-
bergsskóla. Þá verða kjördeildir fyrir vistfólk
á Hrafnistu og Sólvangi.
Vakin er á þvf sérstök athygli, að kjósanda
ber að hafa meðferðis persónuskilríki og
framvísa þeim við kjörstjórn, ef krafist
verður. Kjósandi getur ella átt von á því
að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstjórn mun á kjördegi hafa aðsetur í
Lækjarskóla.
Hafnarfirði, 21. júní 1996.
Kjörstjórn Hafnarfjarðar.
Ingimundur Einarsson, oddviti,
Gísli Jónsson,
Jón Auðunn Jónsson.
Reykvískar húsmæður
athugið!
Nokkur sæti laus í ferð til Algarve í Portúgal
18. september nk.
Vinsamlegast hafið samband við einhverja
undirritaða:
Helgu, sími 553 1121,
Ingunni, sími 553 6217, eða
Eddu, 552 0910,
Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík.
Vantar þig
atvinnuhúsnæði til leigu?
1. Ca 450 fm skrifstofu- og lagerhúsnæði.
Góð aðkoma. Næg bílastæði.
2. Ca 350 fm skrifstofuhúsnæði miðsvæðis
og ca 200 fm skrifstofuhúsnæði á sama
stað. Rúmgott og bjart húsnæði. Fallegt
útsýni.
3. Ca 85 fm hús á tveimur hæðum. Vel stað-
sett hús með sál í miðbænum.
4. Ca 800 fm húsnæði. Góð lofthæð. Tilval-
ið fyrir félagasamtök, listagallerí, líkams-
ræktaraðstöðu, skrifstofur eða skildan
rekstur.
Mjög hagstæð leiga. Næg bílastæði.
Langtímaleiga í boði fyrir trausta aðila.
Upplýsingar veitir Karl í síma 552 0160, milli
kl. 13 og 18, heimasíma 553 9373 og farsíma
852 0160.
Skriflegar umsóknir sendist í pósthólf 1100,
121 Reykjavík.
Kirkjuhvoll sf.
Árbæjarsafn
Söguganga um Laugarnes
í kvöld kl. 20.00.
Lagt upp frá Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar. Ókeypis þátttaka.
*Hjálpræðis-
herinn
Kirkjuttræti 2
( kvöld kl. 20.30: Lofgjörðarsam-
koma. Hilmar Símonarson og
Pálína Imsland stjórna og tala.'
Allir velkomnir.
jÓGASTÖÐifS
HEIMSLJOS
Ármúla 15,
sfmi 588 4200
Vellíðunarnámskeið
3.-12. júlí mið./
fös. kl. 18.15-
20.15.
Vöðvabólga,
höfuðverkir
og orkuleysi.
Kanntu að lesa úr skilaboöum
líkamans?
Jóga, hugleiðslur, öndunar-
aef íngar og slökun.
Leiðbeinandi: Helga Mogensen.
Upplýsingar og skráníng í síma
588 4200 kl. 17-19 í Jógastöð-
inni Heimsljósi, Ármúla 15.
Mót fyrir ungt fólk á öllum aldri
dagana 26.-29. júní kl. 16.00-
19.00. Tjaldsamkomur við Suð-
urhlfðarskóla, Fossvogi, öll
kvöldin kl. 20.30. Richard Per-
inchief frá Flórída, USA, predik-
ar. Dans, dramaleiklist og kröft-
ug tónlist.
Allir velkomnir.
Upplýsingar f símum 893 4790
og 568 7870.
Láttu sjá þig!
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Komið með
íhelgarferðir F.Í.:
1. Fjölskylduhelgi í Þórsmörk
28.-30. júní. Brottför föstud. kl.
20.00. Tjölbreytt dagskrá fyrir
alla. Léttar gönguferðir, ratleik-
ur, grill og kvöldvaka. Mjög hag-
stætt verð. Gist í skála og tjöld-
um I Langadal. Pantiö tímanlega
f eina af vinsælustu helgarferð-
um sumarsins.
2. Fimmvörðuháls-Þórsmörk
28.-30. júní. Brottför föstud. kl.
20.00. Nýstárleg Fimmvörðu-
hálsganga í tengslum við fjöl-
skylduhelgarferðina. Gengið
verður úr Þórsmörk yfir hálsinn
og komið niður vestan Skógár,
hjá hinu stórfenglega Kalda-
klifsgili. Leið sem ekki hefur ver-
ið farin áður í þessum ferðum.
ylýsingar
Farið í Seljavallalaug eftir
gönguna.
Tilboðsverð í ofangreindar
ferðir: í skála: Utanfél. kr. 4.700
og féi. kr. 4.200. f tjöld: Utan-
fél. kr. 4.100 og félagsv. kr.
3.700. Frítt f. börn 10 ára og
yngri og hálft gjald 11-18 ára
(m. foreldrum sínum) í þessa
ferð. Tilvalið fyrir börn, ung-
menni og foreldra að fjölmenna
í skemmtilega ferð um helgina.
3. Landmannalaugar - Hrafn-
tinnusker 29.-30. júnf. Brottför
laugardag kl. 08.00. Gengið úr
Laugum í nýja skálann í Hrafn-
tinnuskeri og gist þar. M.a. farið
áTorfajökul. Tilvaliðað hafa með
gönguskíði. Farmiðar á skrifst.
Mörkinni 6.
Kynnið ykkur fjölbreyttar sum-
arleyfisferðir Ferðafélagsins.
Meðal næstu ferða er 6 daga
hringferð um Vestfirði (Vest-
fjarðastiklur) með brottför
laugardaginn 29. júní. Minnum
einnig á hagstætt verð á sum-
arleyfi í Skagfjörðsskála, Þórs-
mörk. Sunnudags- og miðviku-
dagsferðir eru hafnar og mánu-
dagsferðir i Þórsmörk hefjast
8. júlí.
Ferðafélag (slands.
Dagsferð 30.júní
kl. 10.30 Reykjavegurinn,
5. áfangi, Kaldársel - Bláfjöll.
Helgarferð 28.-30. júní
kl. 20.00 Básar, unglingaferð,
þar sem leiðbeint verður útivist.
Farið í grunnatriði fjallamennsku
og ferðast um Mörkina. Verð
2.500. Ath.: Ferðir í Bása alla
daga vikunnar - lækkað verð
frá fyrri árum.
Helgarferð 29.-30. júní
kl. 08.00 Fimmvörðuháls, ein
vinsælasta gönguleið landsins -
og ekki að ástæðulausu.
Landmannalaugar- Básar
3.-7. júlí
kl. 08.00 nokkur sæti laus.
Verð 13.900/12.700.
Fararstjóri Árni Jóhannsson.
Útivist auglýsir eftir sjálfboða-
liðum til skálavörslu i Fimm-
vörðuskála.
Netslóð:
http://wwww.centrum.is/utivist
Útivist.
nritri
Fræðslumiðstöð
andlegrar vitundar
Skyggnilýsingarfundur
Björgvin Guð-
jónsson, miðill,
heldur skyggni-
lýsingarfund í
Dugguvogi 12 í
kvöld kl. 20.30
(græna húsið á
horni Dugguvogs
og Sæbrautar). Fyrir skyggnilýs-
inguna leiðir Hannes Stígsson
hugleiðslu og flytur nokkur orð
um sjálfsrækt. Aðgöngumiðar
seldir við innganginn.
Dulheimar,
Dugguvogi 12,
sími581 3560.