Morgunblaðið - 27.06.1996, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ1996 53
BRÉF TIL BLAÐSINS
íbúar í Laugames-
hverfi, opnið augun
Frá Ingiríði Lúðvíksdóttur:
VERÐI ekki einhver undur og stór-
merki innan tíðar munu íbúar í
Laugarneshverfi sjá mikla breyt-
ingu í hverfi sínu á komandi mánuð-
um. Fyrirhugað er að reisa þrjá
íbúðarturna á lóð á horni Lauga-
lækjar og Sæbrautar. Þessi hús eiga
að vera 9, 7 og 6 hæðir. Skv. nú-
gildandi aðalskipulagi á þarna að
vera athafnasvæði og skv. deiii-
skipulagi mega hús þarna mest
vera fjögurra hæða.
Þetta þýðir að ekki er heimilt að
veita byggingarleyfi fyrir tumunum
fyrr en breytt hefur verið aðalskipu-
lagi á reitnum þannig að þar megi
reisa íbúðir. Einnig þarf að breyta
deiliskipulagi þannig að húsin megi
vera svo há. Hver sem áhuga hef-
ur, hefur skv. skipulagslögum rétt
til að gera athugasemdir við þessar
skipulagsbreytingar fram til 4. júlí.
Byggingarverktakinn er farinn
að grafa grunn húsanna og búið
er að selja þó nokkrar íbúðir í þeim.
Þetta er herbragð til að láta fólk
halda að öll leyfi séu fengin og of
seint sé að reyna að reisa rönd við
þessu. Svo er ekki. Enn eru óupp-
fyllt ýmis skilyrði laga til þess að
veita megi byggingarleyfi, m.a.
þurfa borgaryfirvöld að taka af-
stöðu til þeirra andmæla sem ber-
ast.
Afleiðingar þess að fyrirhugaðar
blokkir rísi em í stuttu máli:
- að íbúðir við Laugarnesveg
verða, svo tugum skiptir, verðlitlar
vegna þess að þær eru sviptar því
útsýni sem úr þeim er nú og gerði
þær mikils virði þegar þær voru
Hilmir Hæstiréttur
yfir með kynferðis-
afbrotamönnum?
Hvort er betra: Sálarmorð eða algjört morð?
Frá Gísla Helgasyni:
RÉTT fýrir helgina 15. og 16. júní
sl. var sagt frá því að Hæstiréttur
hefði mildað dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur í kynferðisafbrotamáli,
úr rúmum sjö ámm í rúm fjögur
ár. Var til þess tekið að maðurinn
sem misnotaði dóttur sína um ára-
bil játaði greiðlega brot sín og
greiddi henni „bætur“ fyrir að hafa
misnotað hana frá sjö ára aldri.
Dr. Guðrún Jónsdóttir, starfsmaður
Stígamóta, kom svo í sjónvarpið og
sagi þetta skýr skilaboð Hæstarétt-
ar til dómstóla landsins um að fara
sér mildilega í svona málum.
Eru dómarar samsekir?
Þegar ég heyrði þetta velti ég
fyrir mér hvort dómarar Hæstarétt-
ar hefðu einhvejar ástæður til að
taka svona mildilega á málum sem
þessum.
Jafnframt komst ég að þeirri nið-
urstöðu að dómarar Hæstaréttar
væru með þessu búnir að lýsa því
yfir að kynferðisafbrot væru í raun-
inni ekkert mjög alvarlegir glæpir,
sérstaklega ef börn viðkomandi
væru þolendur. Ég velti því líka
fyrir mér hvort dómarar Hæstarétt-
ar vissu nokkuð um þá sálarangist
og vanlíðan á sinni, sem þolendur
í slíkum málum verða að líða, jafn-
vel fyrir lífstíð.
Þá langar mig að lokum að varpa
eftirfarandi fram.
Ef mér yrði á að drap mann,
hvort sem væri með hnífi eða öðru
vopni, játaði brot mitt, færi af
sjálfsdáun í geðmeðferð og greiddi
eftirlifendum þess, sem ég hefði
drepið, einhveijar bætur, myndi þá
Hæstiréttur milda dóm yfir mér úr
lífstíðarfangelsi og niður í nokkur
ár?
GÍSLIHELGASON,
Skildingatanga 6, Reykjavík.
- Gœðavara
GjdídVdi a — mdtdi og kdfíislell.
Allii vei ðílokkar.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
HeiinsfiíFgii liönnuðii
m.a. Gianni Versate.
fullri einlægni langar mig mjög að biðja
alla íslensku þjóðina að hugleiða af fullri alvöru
hvort það sé sæmandi sannkristnum einstakl-
ingi að kjósa trúlaust (heiðið) forsetaefni sem
forseta Islands til næstu fjögurra ára.
Eigum við, sem í einlægni trúum á góðan
Guð og Jesúm Krist, í raun völ á meira en þremur
forsetaefnum að kjósa um á laugardaginn kemur?
Heiðingi á Bessastöðum er mér persónulega
alveg óbærileg hugsun, sem ég á erfitt með að
hugsa til enda.
Oddur C.S. Thorarensen
Em.: Þetta er auglýsing greidd af mér sjálfum.
Aldur skírnarvotta
byggðar, skv. þágildandi skipulagi.
Verktakanum er heimilað að rýra
á þennan hátt söluverðmæti þess-
arra eigna, en hann mun hagnast
margfalt á því, án þess að þurfa
að bæta hinum tjónið.
- að umferð í hverfinu eykst,
sérstaklega um Laugarnesveg og
Laugalæk. Er þó næg fyrir.
- ekki er í hverfinu þjónusta sem
þessi fjölgun íbúa kallar á svo sem
skólahúsnæði
- að vaxtarrými Listaháskólans
verður af honum tekið þannig að
hann á ekki framtíð fyrir sér í því
húsi sem honum er nú ætlað.
íbúar í Laugarneshverfi hugleiðið
þetta:
- eru skynsemisrök fyrir íbúða-
byggð á þessum stað, sem umlukinn
er athafnahúsnæði, sem m.a. er
fyrirsjáanlegt að þurfi að stækka
svo sem Listaskólahúsið?
- eru skynsemisrök fyrir svo
háum húsum i þessu hverfi? Hæð
þeirra samrýmist hvorki húsum á
nærliggjandi lóðum né byggingum
í hverfinu yfirleitt.
- liggja ekki skynsemisrökin til
þess að Listaskólinn hafi athafna-
rými á þessari lóð? Kynnið ykkur
nánar rökin fyrir því að ekki eigi
að breyta borgarskipulagi á þann
hátt sem nú er fyrirhugað, á undir-
skriftalistum sem eru látnir ganga
í húsfélagi ykkar eða raðhúsalengju.
Málið snýst um fleira en missi útsýn-
is. Vanti ykkur undirskriftalista haf-
ið þá samband við undirritaða.
INGIRÍÐUR LÚÐVÍKSDÓTTIR,
Kleppsvegi 4, Reykjavík.
Fri Ólöfu Sigurjónsdóttur:
Á HVAÐA aldri mega skírnarvott-
ar vera, eru einhveijar reglur þar
um? Það er langt um liðið síðan
ég heyrði lýsingu á skírnarathöfn,
sem var fyrirhuguð í Langholts-
kirkju, en átti ekki gott með að
trúa sögunni.
Svo nú fyrir skömmu fékk ég
staðfestingu á að þarna hafði ver-
ið rétt sagt frá.
Foreldrar lítillar stúlku hugðust
færa barn sitt til skírnar í kirkj-
unni og höfðu samband við prest
safnaðarins, séra Flóka Kristins-
son, og báru upp erindi sitt við
hann. En þá kom í ljós að skímar-
vottar, sem þau hugðust óska eft-
ir til handa litlu dóttur sinni, voru
ekki nothæfir að mati sóknar-
prestsins, þeir voru ekki nógu
ungir, en þarna áttu hlut að máli
afar og ömmur barnsins sem voru
þegar þetta atvik átti sér stað, vel
innan við 60 ára aldur, presturinn
sagðist alfarið vera andvígur því
að afar og ömmur væru skírnar-
vottar, þau væru of öldruð til að
geta verið barninu stoð og stytta
til fullorðinsára. Foreldrum barns-
ins datt í hug að leita til annars
prests, en þetta var nú þeirra sókn-
arprestur svo þau ákveða að nefna
til aðra skírnarvotta, sem voru
móður- og föðursystur barnsins,
og það samþykkti presturinn. Gat
hann þarna á þessari stundu vitað
hversu lengi skírnarvottarnir lifðu?
Gamalt máltæki segir: Enginn
veit hver annan grefur.
Þessi breyting á skírnarvottum
særði aðstendendur litlu telpunnar
mikið, en presturinn réð í þessu
máli. Nálgaðist nú skírnardagur-
inn, en þetta viðtal við prestinn
hafði farið fram með góðum fyrir-
vara, svo allt átti að vera ákveðið.
Skírnarathöfnin átti að fara fram
við messuathöfn á sunnudegi, en
föstudaginn næstan á undan
hringir séra Flóki Kristinsson og
tilkynnir þeim að hann gæti ekki
framkvæmt þessa skírnarathöfn,
hann væri upptekinn við annað.
En það muni annar prestur leysa
hann af hólmi við messuna. Þar
sem stuttur tími var til stefnu og
búið að bjóða ættingjum og vinum
í heimsókn í tilefni skírnarinnar
ákváðu foreldrarnir að ekki yrði
hætt við athöfnina að þessu sinni,
jafnvel þótt sóknarpresturinn gæti
ekki framkvæmt hana.
Er sennilegt að foreldrar þessar
telpu leiti til séra Flóka Kristins-
sonar í framtíðinni og skyldi engan
undra þótt „presturinn trítli um
tóma bekki, sem troðfyllast, þegar
aðrir messa“, eins og segir í vís-
unni.
ÓLÖF SIGURJÓNSDÓTTIR,
Goðheimum 10, Reykjavík.
8-vikna fitubrennslu-
námskeið:
• Þjálfun 3-5x (viku
• Fræðslu- og kynningarfundur
• Fitumælingar og vigtun
• Matardagbók
• Uppskriftabókin “Léttir réttir,,
150 frábærar uppskriftir
• Mappa m. fróöleik og
upplýsingum
• Mjög mikið aðhald
• Vinningar dregnir út
í hverri viku
• Frftt 3ja mán. kort fyrir
5 heppnar og samviskusamar
Kvöldhópar
Daghópur
Morgunhópur
Framhaldshópur
-fyrir allar þær sem hafa verið
áður á námskeiðunum okkar.
Nýtt fræðsluefni. Mikið aðhald.
Barnagæsla
UETURÞU
AUKAKÍLjHN
ÍÞVNGIA ÞER?
Utan á stúlkunni hanga samtals
8 kg af matvöru. Eftir 8 vikna
fitubrennslunámskeið er
algengt að konur losni við sama
magn af fitu um leið og þær
byggja upp vöðva og auka þol.
Láttu skrá þig strax í síma
533-3355.
Hefst 1. júlí
SKEIFAN I 108 REYKJAVÍK S. 533-33S5