Morgunblaðið - 27.06.1996, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF•FORSETAKJÖR
I DAG
Um trúleysi og
„skítlegt eðli“
Frá Magnúsi Matthíassyni:
ÉG HEF áhyggjur af því að í fyrsta
skipti í sögu lýðveldisins verði kos-
inn forseti sem útilokað er að þjóð-
in geti sameinast um. Með _því að
bjóða sig fram til forseta Islands
hefur Olafur Ragnar Grímsson
beinlínis óskað eftir því að starfsfer-
ill hans sé skoðaður og metinn. Það
ræður enginn mann í vinnu án þess
að spyrja um fyrri störf og það er
fjarstæða að þjóðin velji sér forseta
án þess að þekkja feril hans. Undar-
' legt er að kalla það „aðför að Ólafi
Ragnari" þegar satt og rétt er
greint frá því sem hann hefur sagt
og gert. Ef það telst neikvætt getur
hann sjálfur sér um kennt en ekki
þeim sem man það og rifjar upp.
Ég man þegar Ólafur Ragnar,
ásamt Svavari Gestssyni og fleiri
félögum sínum í Alþýðubandalag-
inu, vel menntuðum í fræðum marx-
ista, talaði gegn því að alþingis-
menn gengju til kirkju og hlýddu á
guðsþjónustu við setningu Alþingis.
Ég hef líka heyrt rödd þessa fram-
bjóðanda í upptöku frá sl. vetri lýsa
trúleysi og staðfesta að það hafi
verið nokkurn veginn óbreytt í 15
ár. Sannkristið fólk getur ekki sam-
einast um þennan mann sem vernd-
ara og æðsta yfirmann þjóðkirkj-
unnar.
Ég hef hlustað á Ólaf Ragnar
Grímsson í beinni útsendingu frá
Alþingi nota slíkt orðbragð að
ástæða þótti til að fjarlægja böm
frá sjónvarpinu. Dæmin eru mörg
en ég spyr hvort þjóðiri vilji forseta
sem hefur sagt á Alþingi að forsæt-
isráðherra landsins hafi „skítlegt
eðli“. Sá er svo mælir sýnir sitt
eigið rétta eðli, sem ábyggilega er
ekki það sem þjóðin vill sameinast
um.
Ég man þegar Ólafur Ragnar
Grímsson skrifaði nafn sitt undir
samninga við ríkisstarfsmenn sem
hann sveik síðan. Er líklegt að þeir
sem sviknir voru og aðrir sem þetta
muna, sameinist um forseta sem
gengur á bak orða sinna?
Enginn vafi er á því að fylgi
Ólafs Ragnars hefur hríðfallið eftir
að umræða hófst um fortíð hans.
Sú fortíð er söguleg staðreynd sem
ekki verður breytt. Hún mun leiða
til þess að fólkið velur sér annan
forseta til að sameinast um.
MAGNÚS MATTHÍASSON,
Kt.: 2804412959.
^ „Sameiningartáknið“
Olafur Ragnar Grímsson
Frá Sigurði Kára Kristjánssyni:
ÓLA.FUR Ragnar Grímsson og
stuðningsmenn hans vita vel hversu
umdeildur hann er. Þeir vita að fjöl-
margir munu aldrei geta sætt sig
við Olaf Ragnar á forsetastóli eða
borið fyrir honum
virðingu. Þeir
þekkja manna best
vafasama pólitíska
fortíð hans. Þeir
vita að hann sveik
loforð sitt við
kennara og tók af
þeim áður um-
samdar launa-
hækkanir. Þeir
vita að hann gaf
vinum sínum og stuðningsmönnum
í Svörtu og hvítu milljónir króna
af almannafé. Þeir vita að hann
hefur barist gegn öllum samningum
okkar við aðrar þjóðir um aukin
viðskipti og öryggi landsins. Þeir
vita að hann talar mál götustráks-
ins þegar hann veitist að pólitískum
andstæðingum. Þeir vita að hann
hefur skrökvað um trúarafstöðu
sína til að sýnast vera það sem
hann er ekki. Og þeim er kunnugt
um ótalmargt annað í fari fyrrver-
andi formanns Alþýðubandalagsins
og úr pólitískri fortíð hans sem
ekki þolir að koma fyrir augu kjós-
enda. Þess vegna reyna þeir nú að
sannfæra kjósendur um að sú gagn-
rýni sem Ólafur Ragnar hefur feng-
ið á sig í þessari kosningabaráttu
sé síst meiri en fyrri forsetar lýð-
veldisins hafa J>urft að sitja undir.
Þessu hefur Olafur sjálfur haldið
fram og einn helsti stuðningsmaður
hans til margra ára, Mörður Ama-
son, reyndi að halda því fram í
Morgunblaðsgrein að Asgeir As-
geirsson hefði þurft að sæta svipuð-
um ákúrum og Ólafur Ragnar nú.
Af þessu er svo dregin sú ályktun
að Ölafur geti orðið sameingartákn
og menn muni sætta sig við hann.
Þetta er vitaskuld mikil fjarstæða
en ef til vill snjöll brella hjá Ólafí
og hans mönnum.
Það er hins vegar ódrengilegt að
draga fyrri og núverandi forseta
lýðveldisins með þessum hætti inn
í kosningabaráttuna og halda því
fram að þeir hafí haft eitthvað svip-
að mjöl í pokahominu og fyrrum
fjármálaráðherra og formaður Al-
þýðubandalagsins, Ólafur Ragnar
Grímsson. Forsetar íslands hafa
hingað til verið sómamenn sem hafa
átt auðvelt með að vera sameining-
artákn þjóðarinnar. Það mun Ólafur
Ragnar Grímsson aldrei verða.
SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON,
laganemi, Suðurhóium 2.
Sigurður Kári
Kristjánsson
Pólitískt sakavottorð
( Frá Ólafi Guðmundssyni:
HÚN er kyndug umræðan sem Ól-
afur Ragnar Grímsson og stuðn-
ingsmenn hans halda uppi þessa
dagana. Hún gengur út á að ekki
megi ræða pólitíska fortíð Ólafs
Ragnars nú þegar hann býður sig
fram til æðsta embættis þjóðarinn-
ar. Þetta er í raun mjög athygliverð
skoðun, en kemur vitaskuld ekki á
óvart úr þessari átt. Að sjálfsögðu
kemur það sér vel fyrir Ólaf Ragn-
ar ef menn láta fortíð hans ekki
bitna á honum. En hvernig skyldi
• þessu nú almennt vera háttað þegar
menn eru ráðnir til einhverra
starfa? Skyldi fortíð þeirra og fyrri
störf þá engu skipta? Það er öðru
nær. Fyrri verk manna skipta vita-
skuld öllu þegar verið er að leggja
mat á það hvers vænta má af þeim
í nýju starfi. Það verður meira að
segja æ algengara þegar verið er
- að ráða til mikilvægra starfa að
sakavottorð manna eru skoðuð, þá
yfirleitt til þess eins að fullvissa sig
um að það sé hreint. Þess vegna
er bæði sjálfsagt og nauðsynlegt
þegar venð er að „ráða“ i æðstu
stöðu á íslandi að „pólitískt saka-
vottorð“ manna sé skoðað. Kjósend-
ur, það er að segja þeir sem „ráða“
forsetann, hljóta að vilja líta til fýrri
verka þeirra sem gefa kost á sér
til starfans. Annað væri fullkomið
ábyrgðarleysi. Ef Ólafi Ragnari og
liðsmönnum hans líkar þetta ekki
er það bara þeirra mál og gefur
það eitt til kynna að hann hafi eitt-
hvað að fela. Þeir sem eru að fara
að velja sér forseta í lok þessa
mánaðar láta ekki segja sér til hvers
þeir skuli líta eða hverju þeim beri
að líta fram hjá við mat á frambjóð-
endum.
ÓIAFUR GUÐMUNDSSON,
söiumaður,
Bauganesi 7.
VELVAKANDI
Svarað í sima 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Sigur en sorg
hjá Dönum
ÉG VIL þakka þeim sem
skrifaði fréttina „Sigur en
sorg hjá Dönum". Sjálfur
er ég íslensk/danskur
drengur, knattspyrnu-
áhugamaður og held með
Dönum. Fallegasta setn-
ingin í fréttinni var: „Sig-
urinn dugði þó skammt,
en þrátt fyrir að draumur
Dana um að veija Evrópu-
meistaratitilinn væri fok-
inn út í veður og vind, eiga
þeir hrós skilið fyrir að
gefast aldrei upp í leiknum
í gær.“
Sebastian R. Storgaard
Vökvun
stofublóma
KONA skrifaði Velvak-
anda eftirfarandi bréf og
spyr lesendur blaðsins
ráða:
„Nú eru margir að fara í
sumarfrí, þess vegna hefir
margt fólk áhyggjur út af
stofublómum. Þeir sem
hafa ekki mannskap til að
annast þau eru í vandræð-
um. Hvað getur fólk gert
og hvaða blóm geta ekki
verið án vökvunar, t.d.í
viku?
Ég er mjög áhyggjufull
út af blómunum mínum
sem eru pelargónía, hawa-
ii-rós, st. paulia, fíkus,
regnhlífarblóm, burkni og
jukka, og spyr lesendur
hvað sé til ráða. Eru til
einhver húsráð varðandi
þessi blóm?“
Ráðvið
sólarexemi
ALDA hringdi til Velvak-
anda og sagðist vita góð
ráð við sólarexemi. Þau eru
eftirfarandi: Við notkun á
náttúrulegu Beta Carotin
(unnið úr gulrótum og
þara), ein tafla á dag, og
ein tafla á dag af Calcium
Sandor (kalk, leyst upp í
einu vatnsglasi) getur sól-
arexem lagast stórlega eða
jafnvel horfið.
Leitað að
Stanley
skiptinema
ÉG ER að reyna að hafa
uppi á skiptinema frá New
York sem var hér á íslandi
í fyrra. Hann er þeldökk-
ur, heitir Stanley og vann
einhvern tíma á Hard Rock
Café. Geti einhver gefið
mér upplysingar um hvar
hann er að finna er hann
vinsamlega beðinn að hafa
samband við Evu Björk í
síma 587-8702.
Tapað/fundið
Veski fannst
VESKI fannst í miðbæ
Reykjavíkur 17. júní sl. I
veskinu er eitthvað af pen-
ingum. Veskið fæst afhent
gegn greinargóðri lýsingu.
Upplýsingar í síma
567-8985.
Úr tapaðist
GULLLITAÐ úr með gull-
litaðri keðju tapaðist við
norðurhöfnina í Hafnar-
firði síðdegis á mánudag-
inn var. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma
553-1626. Fundarlaun.
vík, í byijun maímánaðar.
Þetta eru kvenmannsgler-
augu með litlum, spor-
öskjulaga gleijum í gylltri
umgjörð. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í síma
553-6625.
Hjól tapaðist
SVART glænýtt reiðhjól
af gerðinni Mongoose
Manuver tapaðist úr hjóla-
geymslu við Spóahóla, lík-
lega fimmtudaginn 20.
júní sl. Hafí einhver orðið
var við þetta hjól er hann
beðinn að hringja í síma
557-2443.
Borðdúkur
tapaðist
HVÍTUR útsaumaður
borðdúkur fauk af snúru í
Garðabæ. Ef einhver hefur
orðið hans var er hann
beðinn að hringja í síma
565-9355.
Gæludýr
Gleraugu
töpuðust Kettlingar
GLERAUGU týndust ein- TVO þriggja mánaða
hvers staðar í Þingholtun- högna vantar gott heimili.
um, líklega í nágrenni Upplýsingar í síma
Menntaskólans í Reykja- 565-1459.
Farsi
„ Fyrst kennum þeim undirstö&uohri&in. ■"
Eini titillausi skákniaður-
inn á mótinu Willy
Hendricks (2.425) var
með hvítt, en stórmeistar-
inn Jeroen Piket (2.570)
hafði svart og
átti leik. Hvítur
lék síðast 28.
Hdl-bl og
hugðist greini-
lega leppa svart
eftir b línunni.
En svartur
reyndist eiga
glæsilegt svar:
28. - R3xd4!
(28. - R5xd4!
dugir einnig) 29.
Bxd4 - Rxd4
30. Hxb6 -
Rxf3+ og hvítur
gafst upp því hann sá fram
á 31. Rxf3 - Hxg4+ 32.
Rg3 - Bc5 með tvöfaldri
hótun sem hvítur ræður
ekki við.
SKÁK
llmsjón Margeir
Pctursson
SVARTUR leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á hol-
lenska meistaramótinu
sem lauk í síðustu viku.
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI fjallaði fyrir
skömmu um stuðning stjórn-
valda í Noregi við fyrirtæki þar í
landi til markaðssóknar á erlendri
grundu. Niðurstaða þeirrar umfjöll-
unar var sú, að Norðmenn stæðu
okkur mun framar á þessu sviði
og var litið nokkur ár aftur í tím-
ann. Síðan hefur Víkveiji fengið
ábendingu um að honum hafi sézt
yfir þróttmikið starf Útflutnings-
ráðs Islands undanfama 18 mánuði
á þessu sviði.
Skrifara er bæði ljúft og skylt
að viðurkenna þá yfirsjón, því Út-
flutningsráð hefur vissulega stutt
við íslenzkt atvinnulíf í landvinn-
ingum þess á erlendri grundu. Má
þar nefna skipulagningu viðskipta-
ferðar til Kína í tengslum við heim-
sókn utanríkisráðherra þangað,
þátttöku í fjárfestingaráðstefnu í
Murmansk í Rússlandi, för við-
skiptanefndar á sjávarútvegssýn-
ingu í Suður-Afríku og til Namibíu,
viðskiptaferð til Pakistan og ferð
til Kóreu.
Útflutningsráð íslands vinnur
gott starf í þágu íslenzks atvinnu-
lífs og er það hvergi ætlun Vík-
veija að gera lítið úr því, þvert á
móti.
+
IFRÉTT i Morgunblaðinu í gær
var sagt frá gjöf handverks-
kvenna á Húsavík til bæjarfélags-
ins. Ýmist var í fréttinni sagt að
konurnar hafi gefið skautbúning
eða kyrtil, sem er alls ekki sami
búningurinn að sögn Elsu Guðjóns-
son. I þessu tilviki var um kyrtil
að ræða.
Elsa segir að aðalgerðir íslenska
þjóðbúningsins fyrir konur séu fjór-
ar; upphlutur, peysuföt, skautbún-
ingur og kyrtill. Með þessu er bor-
inn tilheyrandi höfuðbúnaður og
er hægt að skauta hvort sem konur
klæðast kyrtli eða skautbúningi.
xxx
NDANFARIÐ hefur verið
nokkur umræða um það á
síðum blaðsins hvort styðjast beri
við sjónvarpsupptökur þegar knatt-
spyrnumenn eru dæmdir í bann án
þess að dómarar hafi gert athuga-
semdir við framkomu viðkomandi
inni á vellinum. Sýnist sitt hveijum
í þessu sambandi og víst er að fara
verður mjög varlega í að nota sjón-
varp á þennan hátt. Þar sem stuðst
er við þessa aðferð erlendis fara
menn að öllu með gát.
Tilgangurinn er augljóslega sá
að ná að refsa þeim sem án nokk-
urs vafa hafa brotið gróflega af
sér. Þó að sjónvarpsstöðvarnar taki
ekki upp alla leiki og ekki öll atvik
nást þó svona atvik annað slagið á
myndband og það væri fásinna að
sleppa þeim brotlegu á þeirri for-
sendu að einhveijir aðrir sleppi við
refsingar þar sem hvorki dómarar
né tökulið hafi séð brotið eða verið
fjarstaddir.
Slíkt væri sambærilegt og ef
ákveðið væri að styðjast ekki við
sjónvarpsupptöku sem af tilviljun
væri til af t.d. líkamsmeiðingum á
venjulegum borgara.