Morgunblaðið - 27.06.1996, Page 58
58 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
Heimasíða Barb Wire
http:
//vortex.is/pamela
JOHN Lithgow í hlutverki sínu í „3rd Rock from the Sun“.
Úr sjónvarpi á bók
I kapphlaupi
við tímann
► EKKI er gerð kvikmynd eftir
öllum sjónvarpsþáttum sem ná
vinsældum. Sumir þeirra eru aftur
á móti komnir á prent. Hjónin
Bonnie og Ted Turner sem sömdu
handrit sjónvarpsþáttanna „3rd
Rock from the Sun“ fyrir NBC-
sjónvarpsstöðina hafa fengið til-
boð um að skrifa bók byggða á
söguþræði þáttanna. Tilboðið ku
vera það gott að þau geti vart
hafnað því.
Bonnie segir að bókin verði
nokkurs konar viðbót við sögu-
þráð þáttanna. „Sagan verður
sögð af aðalpersónunni, sem í
þáttunum er leikinn af John Lith-
gow, og verður skýrsla hans til
heimaplánetu sinnar. Skýrslan
mun lýsa því sem fyrir augu bar
fyrsta ár þeirra á nýrri plánetu."
Það á eftir að koma í ljós hvort
verkefnið virkar jafnvel á bók og
í sjónvarpi.
KVIKMYNPIR
Laugarásbíó
Á SÍÐUSTU STUNDU
„NICK OF TIME“ ★ ★
Leikstjóri og framleiðandi: John
Badham. Handrit: Patrick Duncan.
Aðalhlutverk: Johnny Depp, Christo
pher Walken, Roma Maffia, Marsha
Mason, Peter Strauss. Paramount.
1996.
í NÝJUSTU spennumynd Johns
Badhams, A síðustu stundu, er
tíminn aðalatriðið. Badham lætur
myndina gerast á raunverulegum
tíma þ.e. hún tekur um 90 mínút-
ur í sýningu og atburðarásin sjálf
gerist á 90 mínútum. Leikstjórinn
er sýnilega mjög hrifinn af þess-
ari hugmynd, sem aðrir og meiri
listamenn hafa notað á undan
honum, og áhorfandinn er minntur
aftur og aftur á hvað tímanum
líður. Klukkur eru einatt að tifa á
tjaldinu, armbandsúr, turnklukk-
ur, hótelklukkur, tölvuklukkur.
Þær eiga sjálfsagt að auka á
spennuna því tíminn skiptir sann-
arlega höfuðmáli í lífi aðalpersón-
anna. En Badham gerir einhvern
veginn alltof mikið úr tímaþættin-
um og ofnotar hann. Þegar skiptir
meira máli að líta á klukkuna en
hvort persónurnar lifa eða deyja
er Badham kominn í vond mál.
Við vitum allt of vel hvað tímanum
líður á kostnað spennunnar, sem
er mjög af skornum skammti.
Hugmyndin er reyndar mjög fín
(þótt hún sé langsótt) og eitthvað
sem Hitchcock sjálfur hefði verið
ánægður með. Johnny Depp er
a.m.k. hin klassíska Hitchcock-
hetja, saklaust fórnarlam er flæk-
ist inn í vef samsæris og morða
þegar hann kemur til Los Angeles
ásamt dóttur sinni. Christopher
Walken og Roma Maffia taka á
móti þeim, ræna dótturinni og
segja við Depp að ef hann ekki
myrðir fyrir þau ríkisstjórann,
Mörthu Mason, muni dóttir hans
deyja. Hann hefur rúman klukku-
tíma til að láta til skarar skríða á
nærliggjandi hóteli.
Depp er góður leikari, gerir
margt gott úr hlutverki sínu sem
hjálpar til við að gera ótrúverðug-
an söguþráð trúverðugri. Það er
eins og hann skilji ekki að þetta
sé að gerast. Hann er allan tímann
að reyna að átta sig á því að þetta
er ekki martröð heldur raunveru-
leiki og nær að draga úr vantrú
áhorfandans í leiðinni. Walken er
í sinni gömlu rullu sem sálfræði-
legt viðundur og fylgir Depp eins
og skugginn og aðrir leikarar
standa sig prýðilega.
Kvikmyndatakan er smart en
Badham gengur ekki nógu vel að
búa til spennu. Eina verulega
spennandi atriðið er ímyndun en
ekki veruleiki og kemur undarlega
fyrir sjónir svo ekki sé meira sagt.
Eltingarleikurinn við tímann er of
gegnsær og það er fátt sem kem-
ur á óvart í myndinni. Hún er
sæmilegasta afþreying en það
hefði mátt vera meira púður í
henni.
Arnaldur Indriðason
LETTERMAN |
.1 .lút GESTIR í KVÖLD
Hringdu strax og við sendum þér
uce Willis
Jimmy Buffet
MISSTU EKKI AF LETTERMAN
ÁSTÖÐ 3 í KVÖLD
loftnet að láni.
Áskriftarsími 533 5633