Morgunblaðið - 27.06.1996, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ1996 59
h
16. ÍTHX DIGITAL
Sýnd kl. 5, 7, 9.10 og 11 í THX DIGITAL
INKHOUnut
DIGITAL
Skemmtanir
Ein stærsta kvikmynd sumarsins er komin til íslands.
Óskarsverðlaunahafarnir Scan Connery og Nicholas Cage fara
á kostum í magnaðri spennumynd ásamt fjölda annara
heimsþekktra leikara. Alcatrazkletturinn hefur verið
hertekinn og hótað er sprengjuárás á San Fransisco. Á meðan
klukkan tifar er árás á Klettinn skipulögð og til aðstoðar er
fenginn eini maðurinn sem nokkru sinni hefur flúið
Klettinn—lifandi.
■ ÚTGÁFUTÓNLEIKAR SÚPER 5
verða haldnir i Tunglinu fimmtudagskvöld
og heljast þeir kl. 23. Fram koma fimm
hljómsveitir sem eiga efni á disknum, SSSól,
Funkstrasse, Spoon, Botnleðja og Astr-
alsextettinn. Diskurinn innheldur 14
frumsamin lög en hver hljómsvcit leggur
til þijú lög utan SSSól sem á fjögur lög
á plötunni og Astralsextettinn leikur eitt
lag.
■ KIRSUBER leikur föstudags- og laugar-
dagskvöld á Gauki á Stöng en hljómsveitin
á eins árs starfsafmæli um þessar mundir.
Hljómsveitina skipa: Örlygur Smári, gítar,
Bergþór Smári rafgítar, Óli, rafbassi,
Hreiðar Júlíusson, trommur og Sigurður
Jónsson, hljómborð.
■ KAFFI REYKJAVÍK Á fimmtudags-
kvöld leikur hljómsveitin Spur og á föstu-
dags- og laugardagskvöld leika Paparnir
og verða þeir með írska stemmningu í
bland við annað. Á sunnudagskvöld leikur
K.O.S. og á mánudagskvöld tekur Ric-
hard Scobie við.
■ SIXTIES verður með dansleiki um
helgina á Norðurlandi. Á föstudagskvöld
leikur hljómsveitin á Kaffi Krók, Sauð-
árkróki en á laugardagskvöld verða þeir
á kosningadansleik i Sjallanum, Akur-
eyri.
■ SÓLON ÍSLANDUS Á sunnudags-
kvöld syngur söngkonan Kristjana Stef-
ánsdóttir og hennir til aðstoðar verður
Vignir Þór Stefánsson, píanóleikari.
Uppistaðan ( efnisskránni verða þekkt
djasslög. Kristjana mun heíja upp raust
sina um kl. 21.30.
■ EIKI OG ENDURVINNSLAN halda
áfram tónleikaferð sinni um landið og um
helgina liggur leið þeirra norður í land. Nk.
fimmtudag halda þeir tónleika á Oddvitan-
um, Akureyri og hefjast þeir kl. 23, föstu-
dagskvöld Hótel Mælifell, Sauðárkróki,
kl. 24, laugardag Ráðhústorg, Akureyri kl.
16 og um kvöldið leikur hljómsveitin í Hlöðu-
felli, Húsavík og hefst dansleikurinn kl. 24.
Yfirskrift tónleikaferðalagsins er Rokk
gcgn rusli.
■ HÓTEL ÍSLAND Á laugardagskvöid
verður kosningavaka Pétur Kr. Hafstein.
Húsið opnar kl. 21 og eru allir velkomnir.
■ SSSÓL leikur föstudagskvöld f Sjall-
arium á ísafirði. 16 ára aldurtakmark.
■ SPUR leikur fimmtudagskvöld á Kaffi
Reykjavík og á föstudags- og laugardags-
kvöld leikur hljómsveitin á veitingahúsinu
Pógetanum. Hljómsveitina skipa: Telma
Ágústsdóttir, Sveinn Áki Sveinsson, Gunn-
ar Þór Jónsson og Helgi Guðbjartsson.
■ HÓTEL SAGA Á Mimisbar er opið
fimmtudagskvöld frá kl. 19-1, föstudags-
og laugardagskvöld kl. 19-3: Geir og Kalli
skemmta. Á sunnudagskvöld er opið frá kl.
19-1. í Súlnasal verður Kosningavaka
Ólafs Ragnars Grímssonar. Opið hús,
ókeypis aðgangur. Kosningatölur á breið-
tjaldi. Skemmtiatriði og dansleikur með
hljómsveitinni Saga Klass eftir nóttu.
■ NAUSTKJALLARINN Á fiinmtudags-
og sunnudagskvöld veiður haldið kántrý-
kvöld með Hljómsveit Önnu Vilhjálms. Á
föstudags- og laugardagskvöld leikur hljóm-
sveitin Sunnan Tveir.
■ SJÖ RÓSIR Grand Hótel leggur áherslu
á suðræna matargerð. Um tónlist sér Gunn-
ar Páll, en hann leikur öll fimmtudags-,
föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld.
■ DANSHÚSIÐ GLÆSIBÆ Á föstudags-
FORS V ARSMENN hlj óms veitanna
Botnleðju, SSSsól og Spoon þeir Heiðar
Orn Kristjánsson, Helgi Björnsson og
Höskuldur Örn Lárusson en þeir koma
fram ásamt Funkstrasse og Astralsext-
ettinum í Tunglinu fimmtudagskvöld.
og laugardagskvöld sér hljómsveitin Upp-
lyfting um að halda uppi kosningasveiflu.
Hljómsveitina skipa: Kristján Snorrason,
Már Elfsson og Haukur Ingibergsson.
■ MILLJÓNAMÆRINGARNIR leggja
land undir fót og hafa að þessu sinni sér
til fulltingis þá Stephan Hilmarz og Pál
Óskar Hjálmtýsson en Páll er á leiðinni
til Englands þar sem hann ætlar að taka
upp sólóplötu. Förinni er heitið I Hreða-
vatnsskála í Borgarfirði. Þess má geta að
nýjustu kosningatölur verða aðgengilegar á
sjónvarpsskjám hvarvetna um húsið.
■ TWIST & BAST leika um helgina á
veitingastaðnum Víkinni á Höfn. Óhætt er
að gera ráð fyrir að þeir félagar spili lög
af nýútkomnum geisladiski sínum, Upp-
stökk.
■ STJÓRNIN leikur föstdagskvöld i Sjall-
anum, Akureyri ásamt Afródansaranum
Helga sem kemur fram upp úr miðnætti. Á
laugardagskvöld leikur hljómsveitin á kosn-
ingadansleik i Miðgarði ásamt hljómsveitin-
in Pankik frá Selfossi og Afródansaranum
Helga frá Keflavik.
■ RÚNAR ÞÓR leikur föstudags- og laug-
ardagskvöld í Ránni, Keflavík ásamt h|jóm-
sveit sinni.
■ KARMA leikur laugardagskvöld í Höfð-
anum, Vestmannaeyjum.
■ SÓL DÖGG leikur í Gjánni, Selfossi
föstudagskvöld og á Langasandi, Akranesi
laugardagskvöld.
■ GULLÖLDIN Á föstudagskvöld leikur
Meistari Tamús fyrir dansi og á laugar-
dagskvöld verður kosningavaka. Að henni
lokinni leikur Tommi Gull á gítarinn.
■ THE DUBLINER Á fimmtudags- og
sunnudagskvöld leikur írska þjóðlagadúóið
The Wild Rovers og á mánudags- og þriðju-
dagskvöld verða Tónar írlands. Hljóm-
sveitin Papar tekur við og leikur miðviku-
dags- og fimmtudagskvöld.
■ BLÚSBARINN Á föstudags- og
laugardagskvöld leikur trúbadorinn og
leikarinn Valdimar Örn Flygering.
■ GREIFARNIR leika á kosningadans-
léik í Inghóli, Selfossi, laugardagskvöld.
■ HANA-STÉL KÓPAVOGI Á laugar-
dagskvöld verður kosningavaka og í til-
efni þess verður tilboð á drykkjum.
■ ZALKA leikur á Hótel Stykkishólmi
laugardaginn 29. júní. Hljómsveitin leikur
íslenskt rokk og hana skipa: Þór Breið-
fjörð, Tómas Tómasson, Björgvin
Bjamason, Georg Bjarnason og Ólafur
Hólm.
■ VIRIDIAN GREEN leikur i Rósen-
bergkjallaranum föstudags- og laugar-
dagskvöld. Hljómsveitina skipa: Karl Guð-
mundsson, söngur, Magnús Guðnason,
bassi, Siguijón Ingi Björnsson, gítar,
Kristinn Rúnarsson, trommur og Valdi-
mar Gunnarsson, gítar.
■ Á MÓTI SÓL leikur föstudags- og laug-
ardagskvöld í Lundanum, Vestmannaeyj-
um.
■ SfÐDEGISTÓNLEIKAR Á INGÓLFS-
TORGI eru haldnir á hveijum föstudegi
milli kl. 17-18 í júní og júlí á vegum Hins
hússins. Á föstudag kemur fram Kvartett
Ó. Jónsson & Grjóni og kynnir smáskífu
sina Þú kemur með mér sem kemur út
fimmtudaginn 27. júní. Útgáfutónleikar
þeirra verða haldnir á Nashville sama kvöld.
Einnig kemur fram hljómsveitin Stolía sem
gaf nýlega frá sér tvö lög á hafnfirska safnd-
iskinum Drepnir.
■ YFIR STRIKIÐ leikur fimmtudagskvöld
á Gauki á Stöng. Hljómsveitin leikur blöndu
af soul, blús, rokki og almennri danstónlist.
Hljómsveitina skipa: Tómas Malmberg,
söngur, Ami Bjarnason, bassi, Sigurður
Hrafn Guðmundsson, gítar, Lárus Gríms-
son, hljómborð og Ingvi Rafn Ingvason,
trommur.
Sýnd kl. 5 og 9
Sýnd kl. 4.50, 6.55, 9 og 11.10
Sýnd kl. S ísl. tal.
Sýnd kl. 7 enskt tal
Astarmál
þriggja bræðra
KVIKMYNPIR
Laugarásbíó
MCMULLEN-BRÆÐURNIR
„THE BROTHERS
MCMULLEN" ★ ★ ★
Leikstjóm og handrit: Edwards
Burns. Aðalhlutverk: Jack Mulcahy,
Mike McGlone, Edward Bums,
Connie Britton. 20th Century Fox.
1995.
EDWARD Burns vakti óskipta
athygli á Sundance-kvikmyndahá-
tíðinni í fyrra, stærstu hátíð óháðra
kvikmyndagerðarmanna í Banda-
ríkjunum, með mynd sinni McMull-
en-bræðurnir og hreppti hún verð-
laun sem besta myndin á hátíðinni.
Hún er gerð fyrir skiptimynt á
mælikvarða Hollywood-mynda, er
með óþekktum leikurum í aðalhlut-
verkum og tekin á 16 mm filmu en
það er ekki útlitið heldur innihaldið
sem skiptir máli og það er kræsilegt
vel og ágætlega fram sett í leik-
stjórn Bums. McMullen-bræðumir
er á sinn hátt brosleg en líka alvöru-
gefin úttekt á samskiptum kynjanna
við ólíkar aðstæður, gerð eftir
snjöllu og skemmtilega skrifuðu
handriti. Hún er líka vel leikin.
Myndin segir af ástarmálum
þriggja írskættaðra bræðra á Long
Island. Tveir yngri bræðumir hafa
snúið aftur til æskuheimilisins þar
sem elsti bróðirinn býr ásamt eigin-
konu sinni og við fáum að kynnast
þeim hveijum og einum og afstöðu
þeirra til kvenna og ástarsambanda
og hjónabands og framhjáhalds og
reyndar alls sem viðkemur kvenfólki
og ástarmálum. í gegnum sögur
þeirra fáum við eins konar þver-
skurð af samskiptum kynjanna.
Allir eru bræðurnir kaþólskir en
mjög mismunandi trúaðir. Einn er
sanntrúaður og notar það kannski
og kannski ekki til að losna við
kærustuna sína; hann getur ekki
hugsað sér að búa með henni í synd
þótt hann hafi gaman af að hitta
hana og syndga. Annar bróðirinn
skrifar kvikmyndahandrit og það
er ekkert mál fyrir hann að særa
kvenfólk. Hann getur ekki hugsað
sér að vera með neinum einum kven-
manni lengur en í nokkra mánuði í
mesta lagi og notfærir sér kvenfólk
blygðunarlaust. Elsti bróðirinn er
kvæntur, vill ekki eignast böm þótt
konuna dreymi ekki um annað, og
hann er tilbúinn að fara út í fram-
hjáhald bara til að vita hvernig það
er að vera með öðrum kvenmanni.
Myndin er öll ein samræða um
þessi atriði og er mjög athyglisverð
og grípandi. Sem írskir kaþólikkar
tala bræðurnir hver við annan um
syndina, samviskubitið og sálar-
nauðina á milli þess sem þeir kynn-
ast hver um sig nýju kvenfóllÆ
Leikstjórinn Burns, sem einnig fer
með hlutverk í myndinni, heldur
utan um samræðuna með lúmsk-
fyndnum hætti. Það er ekki oft sem
við fáum að liggja á hleri þegar
karlmenn tala um tilfínningar sínar.
Burns hefur gert úr því skemmtilegt
og vitsmunalegt bíó.
Arnaldur Indriðason
SAAfBÍÓ
S4MBIO
PBféHéUJi SM A
SÍMI 5878900 ÁLFAB
STA SVAÐI
BÍÓHÖLL
SIMI 5878900
TRUFLUÐ TILVERA