Morgunblaðið - 24.07.1996, Page 2

Morgunblaðið - 24.07.1996, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tíu málverkum stolið úr vinnustofu Braga Ásgeirssonar listmálara BRAGI Ásgeirsson á vinnustofu sinni. Hægra megin við listamanninn sést í auð- an, hvítan vegg en þar héngu nokkur málverkanna sem saknað er. Morgunblaðið/Þorkell INN UM þennan glugga á þaki 13 hæða fjölbýlishússins brutust þjófarnir. Tóku eingöngu lítil eða meðalstór verk „HÉR VAR allt á hvolfi þegar ég kom, skúffur lágu á gólfinu og tæmt hafði ver- ið úr skápum,“ segir Bragi Ásgeirsson list- málari en hann varð fyrir þeirri ógæfu að brotist var inn í vinnustofu hans í fyrri- nótt og allt að tíu málverkum stolið. „Þetta er ómetanlegt tjón fyrir mig. Þeir tóku eingöngu lítil eða meðalstór verk sem hægt var að flytja og pökkuðu þeim inn í teppi.“ Engar aðrar skemmdir voru unn- ar á vinnustofunni og ekkert fé höfðu þjófarnir upp úr krafsinu. íbúi í húsinu varð var við óvenjulegar mannaferðir um nóttina þegar hann sá tvo menn yfirgefa húsið og annar þeirra var m.a. með úttroðna tösku. Vinnustofan er í risi á þrettándu hæð fjölbýlishúss við Austurbrún. Bragi segir að þjófurinn eða þjófarnir hafi brotist inn í vinnustofuna í skjóli nætur en hann yfir- gaf stofuna að kvöldi mánudags og kom aftur morguninn eftir. Hann segir að vegna viðhaldsframkvæmda sem standi yfir um þessar mundir við fjölbýlishúsið hafi svalahurð í risinu verið opin. Greið leið er þaðan upp á þak og þaðan brutust þjófarnir inn um glugga í eystri hluta riss- ins þar sem Póstur og sími hefur aðstöðu fyrir móttökustöðvar fyrir boðtækja- og farsímakerfi. Ekkert var átt við tækjabún- aðinn að sögn húsvarðar en þjófarnir völdu heldur að brjótast inn í vinnustof- una í vestari hluta rissins. Hurð var brot- in af stöfum og þegar inn var komið var leitað í öllum hirslum. „Greinilegt er að þeir leituðu ekki ein- göngu að listaverkum," segir Bragi „Hér er aftur á móti ekkert annað en listaverk, bækur og kaffi og kex. Mér sýnist að bækurnar séu allar óhreyfðar. Þjófarnir virðast ekki vera bókhneigðir." Innbúið í vinnustofunni er vátryggt að sögn Braga. Aðspurður kvaðst hann á hinn bóginn telja mjög erfitt að meta verð- mæti verkanna til fjár. Verkin eru öll máluð fyrir 1990 en hið elsta er gert í Róm 1954. Segir Bragi það vera sérstak- lega verðmætt fyrir hann persónulega. Óvenjulegar mannaferðir íbúi í fjölbýlishúsinu varð var við óvenjulegar mannaferðir um fjögurleytið umrædda nótt. „Ég heyrði umgang við innganginn og mér varð litið út. Þá sá ég tvær ungar persónur. Önnur var með handtösku sem virtist vera úttroðin af einhverju. Hin bar eitthvað á höfðinu, sem mér fannst fyrst vera dýna, en vel kann að vera að það hafi verið teppi en mér skilst af lýsingum húsvarðar að þjófarnir hafi vafið þýfi sitt í teppi.“ íbúinn telur hugsanlegt að innbrots- mennirnir hafi verið kunnugir í húsinu enda virðist sem þeir hafi stefnt ákveðið að því að brjótast inn hjá listamanninum og vitað nákvæmlega hvert þeir ættu að fara. Lögreglan í Reykjavík rannsakar lista- verkaþjófnaðinn og hefur m.a. beðið lista- manninn um að útvega ljósmyndir af sem flestum verkanna til að auðvelda leit að þeim og koma í veg fyrir sölu þeirra. Ný gerð ljósastaura sett upp við Reykjanesbraut Staurarmr brotna við jörð ef ekið er á þá FRAMKVÆMDIR munu hefjast á næstunni við lagningu rafstrengja meðfram Reykjanesbrautinni vegna lýsingar á brautinni. Samið var við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um að annast jarðvegsframkvæmdir að undangegnu útboði, en ljósa- staurar verða keyptir af Jóhanni Rönning hf. Um er að ræða nýja gerð ljósa- staura frá Bandaríkjunum, svo- nefnda öryggisstaura, sem klippast í sundur niður við jörð ef ekið er á þá. Á þennan hátt er dregið úr slysa- hættu við útafakstur. Lampamir gefa ennfremur betri lýsingu en hefðbundnir lampar og er því nægj- anlegt að hafa 65 metra bil á miili þeirra, að sögn Jónasar Snæbjörns- sonar hjá Vegagerðinni. Áætlað er að kostnaður vegna lýsingar Reykjanesbrautarinnar milli Hafnarfjarðar og Leifsstöðvar nemi um 170-180 milljónum króna. íjárveiting til verksins nemur um 130 milljónum króna á þessu ári og nægir hún til að setja upp lýsingu á leiðinni milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkurvegar. Gert er ráð fyrir að uppsetning stauranna hefjist í september og verkinu verði lokið fyrir 1. desember nk., en þá verður eftir um 5 kílómetra kafli til flug- stöðvarinnar. Jónas sagði að nokkrar þrenging- ar yrðu á veginum á stuttum köflum meðan á framkvæmdum stæði í ág- úst, en ætlunin væri að merkja þær vel þannig að umferðin gengi sem greiðast fyrir sig. Eins og fram hefur komið eru bundnar vonir við að með því að setja upp lýsingu við Reykjanes- brautina megi draga úr slysahættu á þessari leið. Sérstaklega er á það bent að vegna mikillar umferðar á þessari leið sé nú að jafnaði erfitt að aka hana með háum ljósum. Vegagerðin hefur einnig haft til athugunar breikkun Reykjanes- brautar og voru því keyptir lampar sem ætlaðir eru fyrir breiðari veg, en með tveimur akreinum. Að sögn Jónasar hefur verið rætt um að breikka veginn í þijár akrein- ar þannig að tvær akreinar séu ýmist í vestur- eða austurátt á ákveðnum köflum vegarins líkt og þekkist á hluta leiðarinnar yfir Hellisheiði. Einn æðsti valda- maður Páfagarðs til landsins EINN æðsti valdamaður kaþólsku kirkjunnar, Bernardin Gantin kardínáli, kemur til landsins í dag, en hann er yfirmaður Stjórndeildar biskupa, auk þess sem hann veitir kardínálasamkundunni í Páfagarði forstöðu. Gantin varð kardínáli árið 1977 í valdatíð Páls VI. og hefur frami hans verið mikill innan kaþólsku kirkjunnar síðan. Aldrei áður í sögu hennar hefur þeldökkur maður veitt kardínálasamkund- unni forstöðu, en í því felst að við andlát páfa verður hann full- trúi kirkjunnar gagnvart umheim- inum þar til nýr páfi hefur verið kjörinn. í samtali, sem Morgunblaðið átti við Gantin kardínála í Róm fyrir skömmu, kvaðst hann lengi hafa lang- að að koma hingað til lands. Sagði hann tímasetninguna nú henta vel þar sem St. Jósefs- systur halda Bernardin þann 27. júlí nk. Gantin upp a ag jQO ár eru liðin frá því þær hófu störf hér á landi. Við hátíðarmessu í Kristskirkju þann dag mun kard- ínálinn einnig nota tækifærið og setja Johannes Gijsen biskup form- lega í embætti. ■ Að því kemur/23 Borgarstjóri segir samþykki fyrir nýbyggingu við Kirkjusand háð hljóðstígi Hávaði fari ekki yfir 55 desibel MEÐ blaðinu í dag fylgir fjögurra síðna auglýsingablað frá BYKO. SKIPULAGSNEFND kemur sam- an í dag til að afgreiða umsagnir um fyrirhugaðar húsbyggingar Ármannsfells við Kirkjusand og segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ekki hægt að sam- þykkja nýbyggingar á svæði þar sem kröfur til hljóðvistar séu ekki uppfylltar. Kröfur um hávaðastig í byggð eru háðar því hvort um nýskipu- lag er að ræða eða endurnýjun byggðar. Við nýskipulag er miðað við að umferðarhávaði fari ekki yfir 55 desibel utan við glugga en undanþágur leyfa hærra hljóð- stig ef um er að ræða endurnýjun byggðar sem fyrir er, eða 70 dB við glugga helmings herbergja. „Hvort sem lóðin er skilgreind sem nýbyggingarsvæði eða ekki hljótum við að gera þá kröfu að ekki sé meira er 30 desibela háv- aði inni í íbúðunum og 55 dB við húsvegg. Vandamál vegna um- ferðarhávaða eru næg fyrir í borginni og við megum ekki við því að fara að búa til ný,“ segir hún. Aðspurð hvort hugsanlega þurfi að endurskoða hönnun húsanna til þess að mæta fyrrgreindum kröfum segir Ingibjörg Sólrún að svo kunni að fara. Reiknað á mismunandi forsendum Niðurstöður útreikninga vegna umferðarhávaða við fyrirhugaðar byggingar hafa verið ýmiss konar og byggjast á 60-80 kílómetra meðalhraða og mismunandi um- ferðarþunga á sólarhring og hlut- falli þungra bifreiða. Hafa útreikningar án hljóð- tálma, sem Morgunblaðið birtir í dag, gefið til kynna hljóðstyrk frá 69,5 dB við efstu hæð 7-hæða hússins að 70 dB við fjórðu hæð sama húss og lægsti hljóðstyrkur sem reiknaður hefur verið út við fyrstu hæð 6-hæða hússins er 58 desibel. Hæsta gildi á lóð hefur mælst 72,3 dB og leiða útreikning- ar frá því í gær í ljós 67 dB hljóð- styrk við efstu brún 7-hæða húss- ins. Hljóðstyrkur reiknast mestur við efstu hæð. ■ Umferðarhávaði/31

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.