Morgunblaðið - 24.07.1996, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 15
ERLENT
Reuter
Sækja drykkjarvatn
Þrettán ár liðin frá því uppreisn tamíla hófst
Hart barizt á Sri Lanka
Colombo. Reuter.
KONUR í þorpi nálægt Dhaka,
höfuðborg Bangladesh, sækja
drykkjarvatn í dælubrunn sem
er að mestu á kafi í vatni, og
fleyta vatnskönnunum heim til
sín. Sextíu manns hafa á undan-
förnum hálfum mánuði farist í
mikium flóðum í landinu af völd-
um rigninga og þúsundir hafa
orðið að yfirgefa heimili sín.
DAGINN sem þess var minnzt, að
þrettán ár væru liðin frá upphafi
blóðugrar baráttu aðskilnaðarsinn-
aðra tamíla á Sri Lanka fyrir sjálf-
stæði, geysuðu mjög harðir bardagar
milli skæruliða tamílatígranna og
stjórnarhermanna. Skæruliðar þjóð-
ernisminnihlutahóps tamíla beijast
fyrir aðskilnaði frá Sinhalesum, sem
eru í meirihluta íbúa á eynni undan
Indlandsströndum. Tamílar vilja
stofna eigið ríki á norður- og aust-
urhluta eyjarinnar.
Bardagarnir nú hafa staðið í sex
daga og hafa kostað hundruð manna
TAKANOHANA, annar af virtustu
súmóglímuköppum Japans, hefur
verið staðinn að skattsvikum og
málið er enn eitt reiðarslagið fyrir
japönsku fangbragðaíþróttina, sem
hafði áður orðið fyrir miklum álits-
hnekki vegna ásakana um spillingu
og eiturlyfjaneyslu glímumanna.
Takanohana er 23 ára og hefur
verið sæmdur æðsta titli súmóíþrótt-
arinnar, „yokozuna" eða stórmeist-
ari, en aðeins einn annar glímumað-
ur hefur þann titil. Skattayfirvöld
saka hann um að hafa látið hjá líða
að telja fram 68,7 milljónir jena,
jafnvirði 41 milljónar króna, á árun-
um 1993-95. Þetta er í fyrsta sinn
sem skattayfirvöld rannsaka mál
„yokozuna", sem njóta mikillar virð-
ingar í Japan.
„Skattayfirvöld hafa sýnt mér
hvernig ég á að telja fram tekjur
mínar og ég fer eftir ráðleggingum
þeirra frá og með næsta ári,“ sagði
í stuttri yfirlýsingu frá glímukapp-
anum. Bróðir hans og faðir, báðir
þekktir glímukappar, voru einnig
sakaðir um skattsvik.
Málið er mikill álitshnekkir fyrir
Takanohana, sem vann 14. súmó-
mótið sem atvinnumaður í fang-
bragðaíþróttinni á sunnudag. Aðeins
Hundruð hafa
fallið í bardögum
undanfarna daga
lífíð. Samtals hafa um 50.000 manns
fallið í átökunum á undanförnum
þrettán árum.
Ófriðurinn hófst þann 23. júlí
1983, þegar 13 sinhalesískir hermenn
voru drepnir af meðlimum „Frelsun-
artígra tamíla-elams“ (FTTE), sem
leiddi til uppþota um alla eyjuna sem
beindust gegn tamílum.
flórir aðrir glímumenn hafa unnið
14 eða fleiri súmómót og Takano-
hana þykir bæði nógu ungur og
hæfileikaríkur til að vinna fleiri mót
en nokkur annar í sögu íþróttarinn-
ar.
Samið um úrslit fyrirfram?
Áður höfðu ásakanir fyrrverandi
súmóglímumanns, Onaruto, um
spillingu meðal atvinnumanna í
súmóíþróttinni valdið miklu uppnámi
í Japan. Onaruto hélt því fram að
margir glímumenn semdu um úrslit
einvígja fyrirfram, fengju greitt fyr-
ir að tapa fyrir ungum og efnilegum
glímumönnum eða mönnum sem
ættu á hættu að lækka í tign. Al-
gengt væri að greidd væru um
600.000 jen, sem svarar 360.000
krónum, fyrir sigur í einu einvígi.
Onaruto sakaði einnig glímumenn
um tengsl við skipulögð glæpasam-
tök, meðal annars eiturlyfjasala og
vændiskonur.
Skömmu eftir Onaruto lést fyrr á
árinu höfðaði samband súmóglímu-
manna mál gegn útgáfufyrirtæki
fyrir að birta greinar sem hann skrif-
aði um spillinguna. Réttarhöldunum
er ólokið og búist er við að margir
súmóglímumenn beri vitni í málinu.
Bardagar undanfarinna daga hafa
verið um mikilvæga herstöð í Mullai-
tivu á norðausturodda _ eyjarinnar,
280 km frá Colombo. Útvarp upp-
reisnarmanna lýsti því yfir í gær,
að þeir hefðu náð herstöðinni á sitt
vald. Óstaðfestar fregnir herma að
uppreisnarmenn hafi fellt nær alla
þá sem í stöðinni voru, um 1.000
manns. Stjórnin sendi fjölda viðbót-
arhermanna á staðinn í gær, þar á
meðal sveitir úrvalshermanna, í til-
raun til að hindra að uppreisnar-
mönnum takist að hreiðra um sig í
herstöðinni.
Konur
ánetjast
frekar eit-
urlyfjum
Stokkhólmi. Reuter.
KONUR eru líklegri en karlar
til að ánetjast eiturlyfjum alvar-
lega, samkvæmt könnun sæn-
skra vísindamanna sem birt var
í gær. Könnunin náði til 20.000
sænskra eiturlyfjaneytenda og
leiddi í ljós að 51% kvennanna
og 46% karlanna höfðu leiðst
út í mikla neyslu fíkniefna,
„Við komumst að því að færri
konur neyta fíkniefna en karl-
ar, en að konurnar áttu við
meiri fíkniefnavanda að stríða,"
sagði einn vísindamannanna,
Siv Byqvist.
79% þátttakendanna voru
karlar og 21% konur og fram
kom að konurnar hneigðust til
að neyta annarra fíkniefna en
karlar. „Þær notuðu meira af
ópíumefnum og amfetamíni og
minna af kannabisefnum en
karlar," sagði Byqvist, sem
bætti við að daglegur fíkniefna-
skammtur kvennanna hefði yf-
irleitt verið stærri en karlanna.
Konurnar, sem neyttu eitur-
lyíja, voru yngri að meðaltali
en karlarnir. „Tólf prósent
kvennanna voru undir 20 ára
aldri en átta prósent karlanna,“
sagði Byqvist.
Spillingarmál valda uppnámi í Japan
Virtur súmókappi
sekur um skattsvik
Tókýó. Reuter.
Oryggi sagt áfátt
á JFK-flugvelli
Rannsókn sprengingarinnar í þotu TWA
Sjóherinn sendir full-
komið vélmenni til leitar
Brookhaven, New York. Reuter.
BANDARÍSKI sjóherinn mun leggja
til fullkomið vélmenni og aðstoða við
leitina að braki og þeim sem fórust,
þegar Boeing 747-vél bandaríska
flugfélagsins TWA sprakk skömmu
eftir flugtak frá John F. Kennedy
flugvelli í New York á fimmtudag.
Fjölskylda tveggja af þeim 230, sem
fórust með vélinni, hefur ráðið sömu
lögfræðinga og höfðuðu mál á hend-
ur flugfélaginu Pan Am og trygg-
ingafyrirtækjum þess þegar flugvél
þess var sprengd í loft upp yfír bæn-
um Lockerbie á Skotlandi.
Kafarar sjóhersins héldu áfram
leit að jarðneskum leifum þeirra, sem
fórust með vélinni, í gær og ríkti
bjartsýni um að tækist að ná braki
af hafsbotni í gær til þess að kom-
ast mætti að því hvers vegna vélin
hrapaði.
Vonir um að leit gangi betur
Robert Francis, varaformaður
bandarísku samgöngu- og öryggis-
nefndarinnar, sagði að sjóherinn
hefði sent tvö skip til New York.
Vélmennið væri í öðru þeirra. Hann
spáði því að leitin myndi nú ganga
Lögfræðingnr úr
Lockerbie-málinu
ráðinn
vel, eftir tafir vegna veðurs og lélegs
búnaðar.
Lee Kreindler, sem var einn helsti
lögmaðurinn í málsókninni á hendur
Pan Am í Lockerbie-málinu, sagði
að umrædd fjölskylda hefði ráðið sig
og sér hefðu borist fleiri fyrirspurnir.
Hann sagði að þótt ekki hefði feng-
ist niðurstaða um hvað hefði valdið
því að vél TWA, sem var á leiðinni
til Parísar, hrapaði kæmu aðeins þrír
möguleikar til greina. Eitthvað hefði
verið að vélinni, sprengja hefði verið
um borð eða vélinni hefði verið grand-
að með flugskeyti.
Kreindler benti á að sprungu-
myndun í Boeing 747 sé þekkt
vandamál.
Rannsóknarmenn sögðu á mánu-
dag að verið væri að senda vélmenni
sjóhersins. Ákvörðun var tekin um
að senda vélrnennið þegar leitar-
menn greindu frá því að sennilega
hefðu þeir fundið svæðið, sem brak
úr vélinni væri dreift um, á botni
Atlantshafsins. Talið er að svarti
kassinn, sem enn er ófundinn, liggi
á þessu svæði.
Vélmennið er búið sónar, mynda-
vélum og örmum til að halda braki
fyrir kafara.
Aðeins hefur tekist að ná um 2%
vélarinnar á land. Á mánudag fannst
hins vegar stórt stykki úr vélinni
um sex km undan strönd Long Is-
land.
Grunur um skemmdarverk
eykst
Sjónvarpsstöðvarnar ABC og
CNN greindu frá því á mánudags-
kvöld að rannsóknarmenn hölluðust
nú að því að um skemmdarverk hefði
verið að ræða. Sú kenning væri
byggð á vængbroti, sem fundist
hefði í síðustu viku.
í dagblaðinu The New York Tim-
es sagði í gær að á umræddu broti
væru ummerki svipuð þeim, sem
sprengjur skilja eftir sig. Brotið
væri neðan af væng, skammt frá
farangursrými.
París, New York. Reuter.
ÝMSAR vísbendingar hafa komið
fram, eftir að breiðþota TWA fórst
skömmu eftir flugtak í New York
á fimmtudag, um það að flugvellir
í Bandaríkjunum séu ekki jafn
öruggir og talið hefur verið.
A laugardag tóku tveir franskir
fréttamenn útvarpsstöðvarinnar
Radio France Internationale sig
til og gengu fram hjá fjölda ör-
yggisvarða í byggingu fyrir al-
þjóðaflug á John F. Kennedy-flug-
velli. Þeir komust að hliði til brott-
farar án þess að nokkur stöðvaði
þá, þótt þeir hefðu hvorki miða,
né brottfararspjald. Að auki höfðu
þeir meðferðis stór segulbönd, sem
ekki voru gegnumlýst.
Christophe Hondelatte, annar
fréttamannanna, sagði í viðtali við
útvarpsstöðina WCBS að þeir
hefðu komist inn í komusal með
því að fara inn um dyr, sem að-
eins voru ætlaðar til útgöngu. Því
næst hefðu þeir farið inn um aðr-
ar dyr fyrir koinufarþega. Á leið-
inni hefðu þeir farið fram hjá verði.
Er þeir komu að hliði 25, þar sem
farþegar voru að búa sig undir að
ganga um borð í vél á leið til
Puerto Rico, létu þeir lögregluþjón
hafa myndavél og báðu hann um
að taka mynd af sér.
Talsmenn TWA kváðust á
mánudag efast um að þetta hefði
gerst og töluðu um „meint atvik“.
Þeir hafa beðið lögreglu að rann-
saka málið.
Rannsókn flugmálastjórnar
Mary Schiavo, fyrrverandi yfir-
maður í bandarísku flugmála-
stjórninni, sagði í samtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina ABC
að fyrir skömmu hefði verið gerð
rannsókn á öryggi á bandarískum
flugvöllum. Fjórum af hveijum tíu
útsendurum Schiavo tókst að kom-
ast leiðar sinnar án þess að vera
stöðvaðir. Schiavo nefndi meðal
annars að manni á hennar vegum
hefði tekist að komast alla leið í
flugstjórnarklefa farþegaþotu án
þess að amast væri við honum.
Yfirmenn samgöngumála í
Bandaríkjunum sögðu þegar
greint var frá þessari rannsókn á
sínum tíma að hún gæfi ekki til-
efni til að herða öryggisviðbúnað
á flugvöllum.