Morgunblaðið - 24.07.1996, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Silungur grillað-
ur úti og inni
Smáan og miðlungsstóran silung ætti
alltaf að borða með roðinu, segir Kristín
Gestsdóttir, sem telur silunginn
ljúffengastan þannig.
^ NÚ ER
silungsveiði-
---" líminn í hámarki. Sjó-
genginn silungur er yfir-
leitt bæði betri og fallegri á litinn
en vatnasilungur, en þó fékk ég
mjög góðan silung úr Apavatni.
Vatnasilungurinn er oft smár enda
mörg vötn ofsetin og voru þeir
tveir silungar sem ég keypti um 1
pund hvor. I Morgunblaðinu 20.7.
birtist frétt með mynd: „Stórfellt
dráp kríuunga." Þar er sagt frá
því að fjöldi kríunga hafi verið
drepnir á Neðribyggðarvegi
skammt norðan Blönduóss af öku-
mönnum, sem ekki óku nógu gæti-
lega. Það er erfitt að sneiða hjá
kríuungunum þegar þeir taka upp
á því að sitja á veginum.
Mörg sumur hefí ég ekið um
veginn fyrir austan Vík í Mýrdal,
en sá vegur liggur um kríubyggð.
Þar liggja alltaf nokkrir dauðir
ungar á veginum. Hér á holtinu
hjá mér er talsverð kríubyggð og
hinn 10. júlí náði fyrsti kríuung-
inn sér á loft nokkra metra frá
útidyrunum. Nú sitja ungarnir á
veginum yfir Garðaholtið í mikilli
hættu milli þess sem þeir eru í
flugtímum hjá foreldrunum. í gær
þegar ég kom úr fiskbúðinni til
að kaupa mér silung ók ég fram
á einn liggjandi á veginum, hann
var greinilega hálsbrotinn, höfuð-
ið hallaðist út í hliðina og hann
andaði ótt og títt. Líklega hefur
hann flogið á akandi bíl, _en ekk-
ert blóð var á honum. Ég varð
að vinna hið óskemmtilega verk
að aflífa hann. En svona er lífið.
Stuttur er sá tími sem hin fallega
kría staldrar hér við og eftir 2-3
vikur hljóðnar á holtinu, þegar
hún hverfur suður á bóginn með
ungana sína.
Hreinsun
á silungi
1. Hellið sjóðandi vatni yfir roð-
ið og skafið vel frá sporði að haus.
Klippið af ugga. Takið tálknin úr
hausnum og skafið og skolið allt
blóð úr kvið og haus.
2. Snúið kviðopinu að ykkur,
rennið hnífnum niður með dálkn-
um (beingarðinum) og losið frá,
snúið fiskinum við og farið eins
að hinum megin. Klippið dálkinn
frá við sporð og haus.
3. Klippið af enda þunnilda og
iátið eyruggana fylgja með. Klipp-
ið bakugga af innan frá.
í báðum þessum uppskriftum
er gert ráð fyrir að fiskurinn sé
hafður heill, en ef notuð eru flök
er steikingartíminn mun styttri.
Silungur grillaður á
útigrilli (með súrum)
______1 silungur, um 500 g____
1 tsk. Season All + ‘A tsk, salt
1 msk. hreinn rjómaostur
______mikið af súrublöðum_____
ólífuolía til að pehsla með
1. Hreinsið fiskinn, sjá hér að
ofan. Blandið saman Season All
og salti, stráið jafnt inn í hann,
látið standa í 10 mínútur.
2. Smyijið ijómaostinum jafnt
inn í fiskinn. Hann má velgja örlít-
ið t.d. í örbylgjuofni, þá smyrst
hann betur.
3. Þvoið súrublöðin, klippið af
leggi. Setjið mörg lög af súrublöð-
um inn í fiskinn.
4. Hitið grillið, penslið grindina
með olíu. Hafíð mesta straum.
5. Penslið fískinn, leggið á
grindina og grillið í 7 mínútur,
snúið þá við og grillið á hinni hlið-
inni í 3 mínútur. Fylgist með, roð-
ið er fljótt að brenna.
Meðlæti: Heitt brauð eða kart-
öflur, hrásalat og smjör.
Silungur grillaður í
bakaraofni (með
möndlum)
________1 silungur um 500 g_______
1 tsk. Season All + 'A tsk. salt
2 msk. sýrður rjómi inn í fískinn
fersk steinselja inn í fiskinn
____________(má sleppa)___________
1 msk. sýrður rjómi + 'h dl mjólk
utan á fiskinn
_____________1 dl rasp____________
1 dl möndluflögur
1. Hreinsið fiskinn, sjá hér að
ofan. Setjið Season All og salt inn
í hann. Látið standa í 10 mínútur.
2. Klippið steinseljuna, blandið
saman við sýrða rjómann. Smyrjið
fískinn að innan með þessu.
3. Blandið saman 1 msk. af sýrð-
um rjóma og 72 dl af mjólk, veltið
fískinum upp úr því og síðan raspi.
4. Hitið bakaraofn í 130° C,
kveikið á glóðarristinni. Smyijið
grind, leggið fískinn á hana, Grill-
ið á fyrri hliðinni í 7 mínútur, snú-
ið við og grillið á síðari hliðinni í
3 mínútur. Takið úr ofninum. Strá-
ið möndiuflögunum yfir og setjið
undir glóð í '/2-1 mínútu.
Fylgist með, möndlurnar eru
mjög fljótar að brenna.
Meðlæti: Soðnar karföflur,
smjör og hrásalat.
HÖGNIHREKKVÍSI
u þd drp ea fram éistanol/ le/bftmQQjnúsirp
tii Ou3 LcCtou ytckar h/segjQ.:’
Pennavinir
SAUTJÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á kvik-
myndum o.fl.:
Miho Tanaka,
33-17 Kyo-machi,
Kanazawa,
Ishikawa,
920 Japan.
NÍTJÁN ára skoskur tísku-
hönnunamemi vill kynnast
jafnaldra:
Bjöhn Stewart,
“Vardi“,
Carrick Place,
Glenboig,
Coatbridge,
Scotland ML52Q4,
Britain.
SAUTJÁN _ ára japönsk
stúlka með íslandsáhuga:
Yuka Taniguchi,
5-8-11-106 Fucyu-cyo,
Izumi-shi,
Osaka,
594 Japan.
FJÓRTÁN ára bandarískur
piltur með margvísleg
áhugamál:
Derick Robinson,
463 Vai Lane,
Millville,
New Jersey 08332,
U.S.A.
ÞÝSKUR frímerkjasafnari
vill skiptast á merkjum:
Helmuth Rosteck,
Hallstadter Weg 16,
D-90425 Nurnber,
Germany.
SUÐUR-afrískur 35 ára
karlmaður búsettur í
Bandaríkjunum með áhuga
á ferðalögum:
C.G. Nyschens,
P.O. Box 507,
Vail,
Colorado 81658,
U.S.A.
ÁTJÁN ára japanskur piltur
með áhuga á frímerkjum
og íþróttum:
Atsushi Ishikawa,
Strok-Hachioji 7F 702,
1-2 Myojin-cho
4-come,
Hachioji-shi,
Tokyo,
192 Japan.
FIMMTÁN ára Ghanapiltur
skrifaði til íslenska sendi-
ráðsins í Peking í von um
að starfsfólk þess gæti hjálp-
að honum við að eignast ís-
lenska pennavini. Hefur
áhuga á íþróttum og tónlist::
Mohammed Snuttu,
G.R.C.,
P.O.Box 132,
Mkawkaw,
East Region,
Ghana.
NÍTJÁN ára g amall sænsk-
ur piltur með áhuga á ís-
landi, hestum, tónlist o.fl.:
Tommi Arnold,
Knisgatan 8b,
79531 Rettvik,
Sweden.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Tapað/Fundið
Myndavél
tapaðist
MYNDAVÉL af gerðinni
Yashica tapaðist á bíla-
planinu Ingólfsstrætis-
megin við Iðnaðar-
mannahúsinu sl. sunnu-
dag. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma
551-6802.
Koddar töpuðust
FIMM koddar í svörtum
plastpoka duttu af bíi-
kerru á leiðinni frá Kópa-
vogi og norður í Miðfjörð
3. júlí sl. Hafi einhver
fundið koddana er hann
beðinn að hringja í síma
554-0054.
Veski tapaðist
TAPAST hefur brúnt
dömuveski, trúlega í
strætisvagnaskýli við
Lækjargötu. Hafi ein-
hver vitneskju um veskið
er hann vinsamlega beð-
inn að hafa samband í
síma 552-4589.
Giftingarhringur
fannst
GIFTINGARHRINGUR
fannst í Hafnarborg í
Hafnarfirði í janúar á
pijónasýningu Kaffe
Fassett. Inni í hringnum
stendur Jón Ármann.
Upplýsingar í síma
555-0080.
Hringdu í mig
KONAN á Vesturgöt-
unni sem hringdi í mig
vegna svartrar læðu sem
hvarf úr Háskólahverf-
inu þann 27. júní sl. er
beðin að hafa samband
við mig aftur í síma
551-5301. Helga.
SKAK
llmsjón Margeir
Pétursson
Svartur mátar
í fjórða leik
STAÐAN kom upp á opna
mótinu í Kaupmannhöfn um
daginn. Bandaríski stór-
meistarinn Nick deFirm-
ian (2.595) var með hvítt,
en sænski alþjóðlegi meist-
arinn Tiger Hillarp—Pers-
son (2.410) hafði svart.
Bandaríkjamaðurinn hafði
hér teygt sig alltof langt í
vinningstilraunum sínum,
lék síðast ótrúlegum afleik:
43. Kg2—h2?? En eftir 43.
Kg2—h3 í staðinn hefði
svartur orðið að þráskáka
með 43. — Hhl+ því 43. —
Rf3? 44. Re4! væri þá unnið
á hvítt.
43. - Rf3+! 44. Kh3
- Hhl+ 44. Kg2 -
Hh2+! og hvítur gafst
upp því hann verður
mát eftir 45. Kxf3 —
Hf2.
Hillarp—Persson var
ekki aðeins farsæll í
þessari skák, í umferð-
unum fyrir og eftir
hana féllu andstæðing-
ar hans á tíma með
vænlegar stöður. Hann
skaust alla leið upp í
sjötta sætið í norrænu
bikarkeppninni. Staðan að
loknum tveimur mótum af
fímm er þessi: 1. Curt Han-
sen, Danmörku 37,5 stig,
2. Simen Agdestein, Noregi
28,5, 3. Jonathan Tisdall,
Noregi 26,5, 4. Jonny Hect-
or, Svíþjóð 24,17, 5. Tiger
Hillarp Persson 21,5, 6. Jó-
hann Hjartarson 21,17, 7.
Margeir Pétursson 18, 8—9.
Nikolaj Borge, Danmörku
og Hannes Hlífar Stefáns-
son 17.
Víkveiji skrifar...
VINUR þagnarinnar og Morg-
unblaðsins úr Garðabæ hafði
samband við Víkveija fyrir
skömmu og sagði sínar farir ekki
sléttar. Hann kvaðst, eins og aðrir
landsmenn, vera einkar þakklátur
fyrir góða tíð og þann vísi að sumri
sem við íbúar suðvesturhomsins
hefðum fengið að njóta með hléum
það sem af er sumri. Vinurinn seg-
ist gjaman hafa þann háttinn á,
þegar hann kemur heim, að lokinni
vinnu, að setjast út í garð við heim-
ili sitt og reyna að njóta síðustu
stundar dagsins, áður en kula tek-
ur. „Nú er á hinn bóginn svo kom-
ið, að ég veigra mér við að setjast
út í garð síðdegis, vegna þessa
andsk. . . . hávaða sem drynur í
eyrum mér úr nærliggjandi görðum
frá bensínstybbandi garðsláttuvél-
um, sem eru þeirrar ónáttúru að
hávaðamengunin frá þeim ætlar að
æra óstöðugan," segir hann.
xxx
ÍKVERJI getur ekki að sér
gert að hafa ákveðna samúð
með hávaðahrellda Morgunblaðs-
vininum í Garðabæ, sem óskar
þess heitast að fá að njóta þagnar-
innar og nærverunnar við náttúr-
una í lok vinnudagsins en fær það
ekki vegna hávaðans frá bensín-
sláttuvélum. Það eru sennilega
ekki til neinar reglur sem banna
hávaðamengun af völdum garð-
sláttuvéla, en Víkveiji þekkir til
tækja sem gera sama gagn og
hávaðatólin illræmdu. Það eru raf-
magnssláttuvélar. Þær suða sig
áfram eftir grasinu og láta bæði
hinn ötula sláttumann og aðra
nærstadda óáreitta í eyrum. Væri
ekki tilvalið á þessum tímum há-
vaða úr öllum áttum og allt of
margra desibila, að menn tækju
höndum saman um fjárfestingar í
jafnumhverfísvænum tækjum og
rafmagnssláttuvélum?!
XXX
EKKI fer hjá því að menn velti
því fyrir sér hvað hafi valdið
því í lok síðustu viku, að markaðs-
verð Marels hf. féll um 23% á
tveimur dögum. Hér í Morgunblað-
inu á fimmtudag í síðustu viku var
afar forvitnileg tafla um þróun
markaðsvirðis fyrirtækja á Verð-
bréfaþingi frá því í ársbyijun 1995
fram til miðs júlí í ár. í fyrsta
sæti trónaði Marel hf. í auknu
markaðsvirði á tímabilinu og hafði
vaxið úr tæpum 300 milljónum í
hvorki meira né minna en tæplega
1.900 milljónir á átján og hálfum
mánuði, eða um 544,6%! En hvað
gerðist svo? Jú, markaðsvirðið féll
um 9% á einum degi og um rúm
15% á þeim næsta. Fall bréfanna
í markaðsverði var því 23% á
tveimur dögum.
XXX
EKKI ætlar Víkverji að þykjast
sérfróður um markaðinn og
þróun hlutabréfa, en hann getur
samt ekki stillt sig um að læða
fram þeirri kenningu sinni, að ta-
flan með upplýsingunum um þróun
hlutabréfanna á forsíðu viðskipta-
blaðs Morgunblaðsins á fímmtudag
í síðustu viku, hafí kveikt í ákveðn-
um hópi eigenda hlutabréfa í Mar-
el, sem hafi séð það svart á hvítu
(í þessu tilviki, blátt á gulu) að
þeir hafi ávaxtað sitt pund um
544% á einu og hálfu ári - og því
væri nú tímabært að selja hlutinn
sinn og njóta ávaxtanna.