Morgunblaðið - 24.07.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 35
Með morgunkaffinu
STJÖRNUSPÁ
r/\ÁRA afmæli. Fimm-
tiv/tugur er í dag, mið-
vikudaginn 24. júlí, Bragi
Vignir Jónssoiij Litlu-
bæjarvör 5, Alftanesi.
Hann verður að heiman.
Ljósmyndastofa Þórs. Húsavík.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í hjónaband af sr.
Sighvati Karlssyni í Húsa-
víkurkirkju þann 15. júní
sl. Ester Höskuldsdóttir.
og Sigurður Gunnarsson.
Heimili þeirra er Stekkj-
arholt 16, Húsavík.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnnrson
ÞRETTÁN spil rúma mest
37 punkta, þtjá efstu í þrem-
ur litum og fjóra hæstu í ein-
um. Ekki fara miklar sögur
af því að menn hafi fengið
slíka hönd við borðið, enda
eru líkurnar örlitlar, eða um
það bil einn á móti 160 millj-
örðum. En ekki munaði
miklu í keppni í Bandaríkjun-
um sl. vetur. Raunar aðeins
einum gosa.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ G865
* G765
♦ 10943
* 2
Vestur Austur
♦ 743 ♦ 1092
V 832 lllll * 1094
♦ G 1 11111 ♦ 87652
♦ 976543 ♦ G10
Suður
♦ ÁKD
f ÁKD
♦ ÁKD
♦ ÁKD8
Spilið kom upp í sveita-
keppni og var niðurstaðan
heldur dapurleg á báðum
borðum — sjö grönd, einn
niður. Annar spilarinn opn-
aði hreinlega á sjö gröndum,
sem er hræðileg sögn, því
ekki þarf nema fimm hunda
í einhvetjum lit á móti ÁKD
til að alslemma þar vinnist.
Sjö grönd byggjast hins veg-
ar alfarið á laufgosa eða
lauflengd í norður.
Reyndar vinnast sjö í öll-
um litum nema laufi. Báðir
hálitir brotna 3-3 svo ekki
þarf að hafa mikið fyrir 13
slögum í þeim litum, en sjö
tíglar standa líka, þrátt fyrir
5-1-leguna; sex slagir á
spaða og hjarta, tveir á lauf
og fimm á tígul með víxl-
trompun.
Það er þó ástæðulaust að
sérhanna kerfi til að með-
höndla svo fríðan flokk að-
alsmanna. Miklu skynsam-
legra er að fara út í sjoppu
og kaupa lottómiða.
COSPER
VIÐ verðum að drífa okkur heim. Ég er ekki búin
að kaupa í kvöldmatinn.
VIÐ höfum verið gift
í 25 ár og þú hefur
ekki ennþá haldið al-
mennijega framhjá
mér. Ég vissi svo sem
alltaf að þú værir ekki
til stórræðanna á
þessu sviði fremur en
öðrum.
TÍMINN er því miður
á þrotum, svo við
verðum að ljúka við
réttinn í næsta þætti.
Sjáumst að viku lið-
inni.
færður um að þetta
sem þú kallar hjól eigi
eftir að gjörbreyta
ferðamáta í framtíð-
inni?
Farsi
„Efþift uiljib uita. mitt diit, þa. fietöó
hann ctki átt ab se/ja ue/bkrét ábvr */v
hann- ajtabö (>eirrct.'f
eftir Franccs Drake
*
LJÓN
Afmælisbam dagsins:
Þér semur vel við aðra og
þú gætir náð langt í eigin
rekstri.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta verður rólegur dagur,
og þér gefst tækifæri til að
slaka á eftir miklar annir
undanfarið. Taktu ekki mark
á sögusögnum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér gefst fljótlega tækifæri
til að fara í ferðalag. En í
dag notar þú óvæntar frí-
stundir til fundar með góðum
vinum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) «*
Einhveijir örðugleikar koma
upp í vinnunni, en með þolin-
mæði tekst þér að vinna bug
á þeim. Láttu ekki draumóra
villa þér sýn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HS8
Samskipti við ráðgjafa geta
verið nokkuð stirð, og við-
brögð við hugmyndum þínum
láta á sér standa. En haltu
þínu striki.
Ljón
(23.júlí-22.ágúst)
Þér gengur vel í vinnunni, og
ljárhagurinn fer batnandi. En
hugsaðu ekki aðeins um eigin
hag, því ástvinur þarfnast
umhyggju.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Félagar leita saman leiða til
að bæta afkomuna og styrkja
stöðu sína. Þér berast góðar
fréttir, sem geta leitt til
ferðalags.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þig skortir nokkuð stefnu-
festu í fjármálum, og þú ætt-
ir að hlusta á góð ráð vinar.
Félagslífið hefur fátt að bjóða
í kvöld.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú ættir ekki að hafa hátt
um fyrirætlanir þínar í við-
skiptum, og alls ekki trúa
málglöðum vini fyrir leyndar-
máli í dag.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) sSO
Þú getur átt í útistöðum við
einhvem, annað hvort heima
eða I vinnunni. Sjáðu til þess
að sættir takist áður en degi
lýkur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Félagslífíð hefur upp á margt
að bjóða, en þú þarft að va-
rast bæði óhóflega eyðslu og
deilur við vini. Gættu þess
að særa engan.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú ert á réttri leið i vinn-
unni. Ef þú gætir þess að
láta ekkert trufla þig, nærð
þú mikilvægum árangri.
Hvildu þig svo í kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Hugmyndum þínum er vel
tekið í vinnunni, og þú nýtur
trausts ráðamanna f dag.
Spennandi ferðalag gæti ver-
ið á næstu grösum.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
Hvað mundir þú gera
ef þú ynnir 100 milljónir
á miðvikudaginn?
V I K I N G A
LðTTð
Til mikils að vinna!
(íslenskA
V^íetspá/
Alla miðvikudaga fyrir kl. 16.00.