Morgunblaðið - 24.07.1996, Qupperneq 44
•UYUNDAI
HÁTÆKNI TIL FRAMFARA
M Tæknival
SKEIFUNNI 17
SlMI 550-4000 • FAX550-4001
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUaCENTRUM.lS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sjúkrahús
Patreksfjarðar
Þingmönn-
um kynnt
skýrslan
STJÓRN Sjúkrahúss Patreksfjarð-
ar kynnti í gær skýrslu Sigfúsar
Jónssonar fyrir þingmönnum Vest-
fjarða.
Gunnlaugur M. Sigmundsson al-
þingismaður sagði að fram hefði
komið á fundinum óánægja með
margt í skýrslunni. Sérstaklega
hefðu heimamenn verið ósáttir við
tillögur um að ljósmóður yrði sagt
upp og að hætt yrði að taka á
móti börnum á sjúkrahúsinu. Enn-
fremur hafði verið andstaða við til-
lögu um skerðingu á starfshlutfalli
meinatæknis. Þessar breytingar
myndu fela í sér skerðingu á þjón-
ustu sem væri óviðunandi fyrir
byggðarlagið.
Stjómin hélt síðan fund eftir
fundinn með þingmönnunum. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins voru til-
lögumar ræddar þar frekar, en
engar ákvarðanir teknar.
■ Stefntað/6
Aðgerðir gegn
atvinnuleysi
Vinnukiúbbar
stofnaðir
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ og
Reykjavíkurborg hafa hafíð sam-
starf um aðgerðir gegn langtíma
atvinnuleysi. Markmiðið er að hjálpa
fólki sem hefur verið án atvinnu
lengi að komast á vinnumarkaðinn
að nýju.
Stofnaður verður vinnuklúbbur
fyrir fólk í atvinnuleit og hugmyndin
er að á þriggja vikna fresti verði
myndaður hópur atvinnulausra sem
ieitar skipulega í 3 vikur að vinnu.
■ Aðgerðir gegn/10
Morgunblaðið/ Ámi Sæberg
SÍF stofnar sölu-
fyrirtæki á Spáni
SÖLUSAMBAND íslenzkra fisk-
framleiðenda hefur siitið samstarfi
sínu við Copesco Sefrisa á Spáni,
en félögin ráku saman saltfisksölu-
fyrirtækið Copesco SÍF frá því
haustið 1994. SÍF hefur ákveðið
að stofna eigin sölufyrirtæki á
Spáni undir nafninu Union Islandia
og mun það hefja starfsemi í eigin
húsnæði í september. íslenzkur
framkvæmdastjóri verður ráðinn
að fyrirtækinu.
SIF keypti jafnframt hlutabréf
Copesco í félaginu sjálfu að nafn-
virði 19,9 milljónir króna. í þessari
viku seldi SÍF svo þessi bréf Lífeyr-
issjóði verzlunarmanna á genginu
3,3 eða fynr tæpar 66 milljónir.
Gunnar Örn Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri SIF, segir að hags-
munir SÍF og spænsku samstarfs-
aðiljanna hafi ekki farið nógu vel
saman. „Hagsmunum okkar er bezt
borgið með því að reka eigin starf-
semi á Spáni. Með því næst það
markmið okkar, að skila framleið-
endum hér heima sem hæstu skila-
verði fyrir fiskinn,“ segir Gunnar
Öm.
Hefði átt að stíga
skrefið fyrr
Gunnar Örn segir að þar sem
það sé markmið SIF að skila fram-
leiðendum eins miklu heim og unnt
er, sé það bezt að félagið starfi
sjálfstætt á hinum erlendu mörkuð-
um. Reynslan af slíkri starfsemi á
Ítalíu, í Frakklandi og Portúgal sé
góð og því full ástæða til að fara
sömu leið á Spáni. „í raun hefði
SÍF átt að stíga slíkt skref miklu
fyrr en gert var,“ segir Gunnar
Örn.
Gunnar Örn sagðist ekki reikna
með neinum eftirköstum. Þó sé ljóst
að fyrrum samstarfsmenn SIF á
Spáni muni hefja samkeppni við
fyrirtækið og muni keppa um hylli
saltfískframleiðenda hér heima.
■ SÍFtekur saltfisksölu/Cl
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
SIGURFARI GK 138 var með vírana úti innan þriggja sjómilna
togveiðimarkanna út af Dyrhólaey þegar flugvél Landhelgis-
gæslunnar flaug yfir í gærmorgun.
Staðinn að meintum
ólöglegum togveiðum
LANDHELGISGÆSLAN stóð
Sigurfara GK 138 frá Keflavík
að meintum ólöglegum togveið-
um um 0,4 sjómílur innan þriggja
sjómílna togveiðimarkanna út af
Dyrhólaey um kl. 10 í gærmorg-
un. Báturinn var færður til hafn-
ar í Vestmannaeyjum og var mál
hans tekið fyrir hjá sýslumanns-
embættinu þar í gær.
Að sögn Georgs Kr. Lárusson-
ar, sýslumanns í Vestmannaeyj-
um, þarf að meta afla og veiðar-
færi Sigurfara og var lagt lög-
hald á skipið meðan á málsmeð-
ferð stendur. Georg sagðist gera
ráð fyrir að ákæra yrði gefin út
í dag og málinu þinglýst hjá
Héraðsdómi Suðurlands i beinu
framhaldi af því.
Kópurinn í
Laugardalnum
Snerra skal
hún heita
SAGAN af afrækta kópnum í
Húsdýragarðinum í Laugardal
virðist ætla að fá góðan endi.
Kópurinn buslar nú sprækur
og pattaralegur í selalauginni
ásamt hinum selunum og hefur
fengið nafnið Snerra.
Húsdýragarðurinn stóð fyr-
ir samkeppni um nafn á kóp-
inn, sem er urta, og í gærmorg-
un var tilkynnt hvaða nafn
hefði verið valið og veitt verð-
laun fyrir það.
Ekki auðvelt að velja
Dómnefndin var skipuð for-
stöðumanni Fjölskyldu- og
Húsdýragarðsins, rekstrar-
sljóra og þeim dýrahirði sem
mest hefur annast kópinn og
að sögn Stefaníu Stefánsdótt-
ur, kynningarfulltrúa garðs-
ins, reyndist það ekki auðvelt
verk að velja á milli hinna fjöl-
mörgu nafna sem bárust. Á
endanum kom dómnefndin sér
þó saman um þau þrjú nöfn
sem henni þóttu best, en það
voru Snerra, Helja og Seigla,
sem öll vísa til harðrar baráttu
kópsins fyrir lífi sínu. Síðan
var gerð óformleg könnun
meðal gesta í Húsdýragarð-
inum og reyndust flestir á
þeirri skoðun að Snerra skyldi
hún heita, en snerra þýðir ein-
mitt bardagi eða rimma.
Það var Guðrún Magnea
Rannversdóttir úr Garðabæ
sem átti tillöguna og fékk hún
að launum árskort í Húsdýra-
garðinn og vænan bunka af
boðsmiðum að auki.
Hér er hún ásamt dætrum sín-
um Nönnu Bryndísi og Gunn-
hildi Hlín Snorradætrum og
kópnum Snerru í Húsdýra-
garðinum í gær.
Utlit
fyrir gott
berjasumar
GÖNGUFÓLK á leið um
Leggjabtjót og Botnsdal fann
þroskuð krækiber um síðustu
helgi. Berin voru orðin svört
og gómsæt, en ekki mjög stór.
Sveinn Rúnar Hauksson
læknir, sem er mikill áhuga-
maður um beijatínslu, var í
Galtalæk um síðustu helgi og
fann þar einnig svört krækiber
en smá. Sveinn hafði heyrt í
beijaáhugamönnum af Suður-
nesjum og víðar sem og höfðu
fundið þroskuð ber.
„Betjaáhugafólk er farið að
æsast upp. Það er farið að sjá
krækiber svört," sagði Sveinn.
„Þegar maður skoðaði þetta
fyrr í sumar var þetta ljóst.
Grænjaxlar spruttu snemma og
eins var með bláberin. Sæta-
kopparnir lofuðu víða mjög
góðu snemma í sumar.“ Sveinn
sagðist jafnvel reikna með að
hægt yrði að hefja beijatínslu
eftir um hálfan mánuð og væri
það óvenju snemmt.