Morgunblaðið - 07.09.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.09.1996, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Utlit fyrir góða korn- uppskeru í A-Landeyjum SUMARIÐ hefur verið gott til kornræktar og staðið fyllilega undir þeim vonum sem korn- bændur bundu við það í vor, að sögn Viðars Marmundssonar á Svanavatni í Austur-Landeyj- um. Þresking hófst í Austur- Landeyjunum í vikunni með nýrri og afkastamikilli þreski- vél sem bændur keyptu í sum- ar. Viðar sáði fyrir byggi í átta hektara í vor og höfrum í tvo. Hann hefur ræktað bygg í tólf ár og alltaf fengið uppskeru, oft mjög góða en stundum lak- ari. Nú lítur vel út með byggið. Hann er að prófa hafra í fyrsta skipti og segir að þeir séu að koma til. Haustveðrin hafa stundum ódrýgt kornuppskeruna. Stráin leggjast undan vindi og rign- ingu þannig að þreskivélin nær þeim ekki. Aðeins er farið að bera á slíku í ökrunum á Svana- vatni en Viðar er bjartsýnn á að ekki verði rnikil rýrnun af þessum sökum i ár. Ný fóðurblöndunarstöð Viðar er einn af eigendum Akrafóðurs hf. sem á tækitil kornþurrkunar og mölunar skammt frá Gunnarshólma. Blandar hann fiskimjöli og steinefnum í fóðrið og gefur kúnum. Segir hann að allar skepnur séu sólgnar í þetta heilnæma fóður, bæði naut- gripir, sauðfé og hross. Akrafóður hefur nú í sam- vinnu við fleiri aðila komið upp fóðurblöndunarverksmiðju í húsnæði sínu og nefnist fyrir- tækið Fóðurkorn ehf. Verk- smiðjan kemst í gagnið á næst- unni. Viðar segir að bændur geti látið blanda og köggla fóð- ur úr eigin korni eða lagt það inn. Þá muni fyrirtækið einnig fara út í framleiðslu á fóður- blöndum úr erlendu korni. Tel- ur hann að staðsetning fyrir- tækisins hafi ótvíræða kosti, til dæmis varðandi flutningskostn- að, og það eigi að geta staðið sig í samkeppninni við stóru fóðurblöndurnar í Reykjavík. Morgunblaðið/RAX KORNBÓNDINN á Svanavatni, Viðar Marmundsson, kannar hvort hafrarnir séu orðnir þroskaðir. Um20% lækkun á verði svína- kjöts á næstunni BÆNDUR bjóða svínakjöt með 20% afslætti um helgina og í næstu viku. Kjötið er allt af nýslátruðu og gert er ráð fyrir að 60-100 tonn geti selst á útsölunni. Kristinn Gylfi Jóns- son, formaður Svínaræktarfé- lags íslands, segir að verð á svínakjöti sé rúmlega 30% lægra nú en á sama tíma í fyrra því það sem af sé þessu ári hafi svínakjöt lækkað um 12-13% frá því sem verðið var í fyrra. Kristinn Gylfí sagði að aðal- krafturinn í útsölunni yrði í næstu viku, en útsölur myndu byija á einhveijum stöðum um helgina. Ástæðan fyrir því að bændur byðu kjötið á lægra verði væri hörð samkeppni því fram- leiðslan hefði aukist mikið, auk þess sem sláturtíð væri framund- an með miklu framboði á kjöti. Síðasta svínakjötsútsala var í júlímánuði og fengu þá færri kjöt en vildu að sögn Kristins Gylfa. Hann sagði að þess væri ekki að vænta að fleiri svína- kjötsútsölur yrðu í ár, þar sem svínakjötsbændur færu nú að undirbúa framboð vegna jólahá- tíðarinnar. Hluti af markaðsátaki „Þetta er átak til þess að kynna svínakjötið fyrir fólkinu í landinu. Við höfum reynslu af því að neysla á svínakjöti eykst í kjölfar þess að svona útsölur eru haldnar. Það má því segja að þetta sé hluti af markaðs- átaki hjá okkur svínakjötsbænd- um,“ sagði Kristinn Gylfi enn fremur. Hann sagði að bændur seldu kjötið frá sér á 215-220 krónur kílóið, sem væri undir kostn- aðarverði. Verðið á sama tíma í fyrra hefði verið tæpar 300 krónur. „Búðirnar hafa tekið fullan þátt í þessu með okkur og lækkað verðið verulega, enda ríkir mikil samkeppni á milli þeirra. Þessar verðlækkanir hafa því fyllilega skiiað sér til neytenda," sagði Kristinn Gylfi að lokum. Úrskurði vegna sljórnar manna í Olís hnekkt ÁFRÝJUNARNEFND samkeppnis- mála hefur fellt úr gildi úrskurð Samkeppnisstofnunar um að Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa hf., og Kristinn Hallgrímsson, sem hefur annast lögmannsstörf fyrir Olíufé- lagið (Esso), víki sæti úr stjórn Olís vegna of náinna tengsla við Esso. Telur hún að úrskurður sam- keppnisráðs frá því í fyrra, þar sem kaupum Esso og Hydro Texaeo A/S á hlutum í Olís voru sett ýmis skil- yrði, hafí verið of óskýr og því sé ekki hægt að krefjast þess að stjórnarmennirnir tveir víki sæti á grundvelli hans. Samkeppnisráð komst að þeirri niðurstöðu í fyrra að líta bæri á kaup Esso og Hydro Texaco A/S á hlutum í Olís og stofnun Olíudreif- ingar ehf., sem Esso og Olís stóðu sameiginlega að, sem samruna í skilningi samkeppnislaga. Ráðið setti samrunanum tiltekin skilyrði, sem félögin þyrftu að fullnægja svo að ákvæðum samkeppnislaga um ógildingu samruna yrði ekki beitt. Eitt þessara skilyrða var að stjórn- armenn og starfsmenn Essö eða þeir, sem í störfum sínum væru verulega háðir Esso, skyldu ekki sitja í stjórn Olís. Einnig var kveðið á um að starfsmenn fyrirtækja, sem Esso ætti meira en 1% í, sætu ekki í stjóminni. Skotið til áfrýjunarnefndar Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam- skipa, og Kristinn Hallgrímsson hrl. sitja í stjórn Olís. í júní siðast- liðnum felldi samkeppnisráð þann úrskurð að tengsl þeirra við Esso samrýmdust ekki áðumefndum skilyrðum og beindi þeim fyrirmæl- um til Esso_ og Texaco að séð yrði til þess að Ólafur og Kristinn færu úr stjórn Olís fyrir 10. ágúst sl. en ella yrði gripið til viðurlaga í sam- ræmi við samkeppnislög. Geir Magnússon, forstjóri Esso, segir að fyrirtækin hafí ákveðið að skjóta úrskurðinum til áfrýjunar- nefndar samkeppnismála þar sem Ólafur og Kristinn séu ekki veru- lega háðir Esso í störfum sínum. „Kristinn hefur sinnt lögmanns- störfum fyrir Esso en þau hafa ekki verið umfangsmikil. Þá á Esso minna en 1% í Samskipum þannig að þar getur ekki verið um verulega hagsmuni að ræða. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafnar úrskurði samkeppnisráðs frá því í sumar á þeim forsendum að hann grundvall- ist á öðrum úrskurði, sem sé ekki nógu skýr.“ Ekki efnisleg afstaða Geir býst viðað framhald málsins verði á þá lund að samkeppnisráð taki það aftur til meðferðar og end- urskoði úrskurðinn, sem það felldi í fyrrav þannig að hann verði skýr- ari. „Áfrýjunarnefnd tók í raun ekki efnislega afstöðu til þess hvort stjórnarmennirnir í Olís væru of tengdir Esso eða ekki. Hann felldi úrskurðinn eingöngu úr gildi á þeim forsendum að úrskurður ráðsins frá 1995 væri ekki nógu skýr.“ Veitinga- salaí Naut- hólsvík SKIPULAGSNEFND Reykja- víkur, hefur falið borgarskipu- lagi að útbúa skilmála fyrir útlit og umhverfi veitingasölu í Nauthólsvík. Umsókn hefur borist borg- arráði um heimild til að setja niður lítið hús til bráðabirgða undir veitingasölu við göngu- stíginn í Nauthólsvík. Gert er ráð fyrir um 60-70 fermetra timburhúsi með verönd og að þar verði salerni og kaffisala fyrir þá sem leið eiga eftir stígnum. I umsögn Ýngva Þórs Lofts- sonar landslagsarkitekts kem- ur fram að til greina komi að leyfa til bráðabirgða að stað- setja húsið norðan við Lyng- berg þar sem eru malarbíla- stæði. Staðurinn væri í beinum tengslum við aðalstíginn og væri auk þess á krossgötum stíga sem liggja frá Öskjuhlíð og niður í Nauthólsvík. Fran ekki hingað til lands FELLIBYLURINN Fran, sem hefur verið að valda usla og manntjóni í Bandaríkjunum að undanförnu, mun ekki leggja leið sína hingað til lands, eins og stundum gerist, ef lang- tímaveðurspár ganga eftir. Gert er ráð fyrir að að Fran verði að meinlausri lægð rúm- lega 1.000 millibör yfir norð- austur Kanada og verði á þeim slóðum á þriðjudaginn kemur. Hörður Þórðarson, veður- fræðingur á Veðurstofunni, sagði að gamlir fellibyljir gætu stundum valdið slæmum veð- rum hér á landi, einkum ef þeir sameinuðust öðrum lægð- um, en það væri frekar sjald- gæft að það gerðist. Tjaraá blettum í Norðurárdal LÖGREGLAN í Borgarnesi biður ökumenn að fara varlega um Norðurárdal, frá Sveina- tungu að Krókalækjum. Þar var lögð klæðning í gær en vegna votviðris er tjaran farin að ganga upp úr klæðningunni. Lögreglan segir að ökumenn hafí lent í vandræðum á þess- ari leið vegna þess að tjara hafí hlaðist utan á hjólbarðana og segir hún að hættulegt sé að fara þarna um. Hjólbarðar missa veggrip við þetta og veg- urinn verður flugháll. Tveir Frakk- ar í bílveltu TVEIR Frakkar á fertugsaldri lentu í bílveltu í Þingvallasveit um klukkan 16 í gær. Læknir á Selfossi taldi ör- uggara að láta flytja annan mannanna á Landspítalann og þar var hann lagður inn. Öku- maðurinn missti stjórn á bíln- um á malarvegi við Miðfell og lenti hann utan vegar og valt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.