Morgunblaðið - 07.09.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.09.1996, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ Of .,r,^r,,oBy„n _ . nrr . r,-. . r 18 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 VIÐSKIPTI 51% veltuaukning hjá Kælismiðjunni Frosti hf. á fyrstu sex mánuðunum Hagnaður nam 3 millj- ónum króna KÆLISMIÐJAN Frost skilaði 3 milljóna króna hagnaði á fyrri helmingi þessa árs, en á sama tíma í fyrra varð rúmlega 7 milljóna króna tap af rekstri félagsins. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam tæpum 2 milljónum króna en því til viðbótar kemur rúmlega 4 milijóna króna hagnaður af sölu fasteigna. Jónatan S. Svavarsson, fram- kvæmdastjóri Kælismiðjunnar Frosts, segir að þar séu menn nokkuð ánægðir með þróunina, enda megi segja að áætlanir fyrir- tækisins fyrir þetta ár séu þegar í höfn og ríflega það. Að sögn Jónatans er stærstur hluti veltunnar kominn til vegna starfseminnar hér á landi en lítill útflutningur sé inni í veltutölum á fyrri árshelmingi. Hann segir hins vegar Ijóst að fyrirtækið muni flytja út fyrir nokkra tugi milljóna á siðari árshelmingi. „Það var tekin ákvörðun að ein- blína á innanlandsmarkaðinn í ár. Við ætluðum að hafa þetta ár stöð- ugleikans og reyna að hætta að vaxa svona hratt. Við vorum með 67% veltuaukningu í fyrra og ákváðum því að taka þessu rólega í ár. Þetta er hins vegar 51% veltu- aukning á milli ára. Við höfum þó ekki slakað neitt á þeim markmið- um okkar að ná meiri stöðugleika." Jónatan segir að verkefnastaða fyrirtækisins á síðari hluta þessa árs sé mjög góð. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í framleiðslu á kæli- og frystikerfum. Starfsemi þess gengur út á framleiðslu þessara kerfa, þjónustu við eigin kerfi og kerfi sem önnur fyrirtæki hafa framleitt, auk þess sem boðið er í stærri verk og kerfi hönnuð sér- staklega fyrir þau. Jónatan segir að stærsta verk- efni fyrirtækisins nú sé fram- leiðsla og uppsetning á frystibún- aði fyrir nýtt fiystihús hjá Síldar- vinnslunni, sem ljúka á fyrir þann 15. janúar nk.. Miklar breytingar á eigendahópi í gærmorgun áttu sér stað tölu- verð viðskipti með hlutabréf í Kælismiðjunni Frosti á Opna til- boðsmarkaðnum. Þá skiptu um hendur hlutabréf að nafnvirði 11 milljónir króna, eða sem samsvar- ar 22% af heildarhlutafé fyrir- tæksins sem í dag er 49,5 milljón- ir króna. Gengi viðskiptanna var l, 75, sem er óbreytt gengi frá síð- ust viðskiptum. Jónatan segir að í þessum við- skiptum hafi núverandi hluthafar verið að kaupa út hóp hluthafa sem hafi ákveðið að selja hlut sinn af ýmsum ástæðum. Þá hafi Þró- unarfélagið og Hlutabréfasjóður- inn einnig komið inn sem nýir hlut- hafar. „Þeir sem voru að selja eru ein- staklingar sem vegna síns fjárhags hafa ákveðið að selja, þarna eru m. a. einstaklingar sem eru komnir á eftirlaun og vildu því losa fé út og það var það sem réði því að þetta færi á markað. Ég lít á að þetta hafí verið mjög gott skref fyrir félagið og að hluthafasam- setning þess sé nú orðin mjög heilbrigð," segir Jónatan. Kælismiðjan Frost hf. Úr milliuppgjör frá 1. janúar - 30. júní 19 Jan.-iúnL Jan.-júní É 96 # Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1995 Breyting Rekstrartekjur 256,6 169,7 +51,2% Rekstrargjöld 250,7 179.9 +39.4% Rekstrarafkoma f. fjárm.kostnað 6,0 (10,2) Hreinn fjármaqnskostnaður (4,2) (0.01) Hagnaður (tap)af reglulegri starfsemi 1,7 (10,2) Aðrar tekjur og gjöld 4,4 0 Hagnaður (tap) tímabilsins 3,1 (7,6) Efnahagsreikningur Muijónir kmna 30/6 '96 31/12 '95 I Eionir: \ Veltufjármunir Fastafjármunir Eignir samtals 171,1 26,8 153,1 26,3 +11,8% +1,9% 230,1 220,7 +4,3% I Skuidir oo eioid fé: I Skammtímaskuldir 140,6 136,0 +3,4% Langtímaskuldir 167,4 162,4 +3,1% Eigið fé 62,7 58.3 +7.6% Skuidir og eigið fé samtals 230,1 220,7 +4,3% Kennitölur Eiginfjárhiutfall 27,2% 26,4% Veltufjárhlutfall 1,22 VeltUfé frá rekstri Milljónir króna 6,8 1,13 (7,3) OZ hf. kaupir Lotus Notes hugbúnað NÝHERJI hf. og OZ hafa gengið frá samningi sín á milli um kaup á Lotus Notes^ hópvinnuhugbún- aði fyrir OZ á íslandi og í Banda- ríkjunum. OZ, sem vex hratt um þessar mundir, mun m.a. nota kerfið sem póstkerfi, til að halda utan um öll samskipti við við- skiptavini, hafa eftirlit með verk- efnavinnu, starfsmannamálum, innri upplýsingaveitu og til að safna mikilvægri þekkingu og miðla henni milli starfsmanna hvar sem þeir eru staddir í heim- inum, að því er segir i frétt frá samningsaðilum. Hugbúnaðurinn mun koma í stað Innranetsins, sem OZ hefur notast við hingað til. Astæðan fyrir því að fyrirtækið kýs að skipta um hugbúnað er hinn hraði vöxtur fyrirtækisins sem veldur því að lítill tími vinnst til að þróa eigið kerfi, að því er segir í til- kynningunni. Starfsmenn OZ eru nú orðnir 40 talsins. Meginverkefni þess eru að þróa framtíðarlausnir fyrir Alnetið. Megináherslur eru á þrívíddarlausnir og gervigreind. Fyrsta afurð fyrirtækisins, OZ Virtual, er fáanleg til reynslu á heimasíðu OZ á http://www.ny- heiji.is. aukningí prentun hjá Odda PRENTUN bóka virðist vera farin að færast inn í landið á nýjan leik, m.a. með breyttu fyrirkomulagi á prentun jólabóka. Hjá Prentsmiðj- unni Odda hefur prentun bóka auk- ist um 20-25% miðað við síðasta ár, ef tekið er mið af þeim verkefnum sem þegar hafa verið unnin og þeim verkefnum sem framundan eru. Að sögn Þorgeirs Baldurssonar, framkvæmdastjóra Prentsmiðjunnar Odda, hefur fyrirtækið náð nokkurri hagræðingu í prentun bóka, m.a. með því að bjóða útgefendum upp á svokallaða bókapakka í prentun. „Við teljum okkur hafa náð nokkrum árangri og hagræðingu með því að bjóða upp á þessa bókapakka, en með þeim teljum við að við höfum náð inn í landið prentun sem annars hefði farið út. I þessum pökkum erum við að framleiða ákveðnar stærðir á fyrir- fram ákveðnum tíma. Með því að notfæra sér þetta eru menn að fá hagstæðara verð en áður. Við erum með þessu að hagræða því við þurf- um þá ekki sífellt að vera að breyta vélunum úr einni stærð í aðra. Það hefur kannski háð okkur svo- lítið að ekki hefur verið hægt að skipuleggja framleiðsluna nægj- anlega vel. Útgeféndur hafa hins vegar tekið mjög vel í þetta og með þessu móti hefur okkur tekist að ná fram umtalsverðri hagræðingu," segir Þorgeir. Aukin prentun fyrir Bandaríkjamarkað Þorgeir segir að einnig hafi náðst nokkur árangur í prentun fyrir Bandaríkjamarkað. Þar sé oft á tíð- um um að ræða töluvert stór upp- lög. „Við erum vongóðir um að eiga töluverða möguleika í vandaðri bókagerð fyrir Bandaríkjamarkað. Þar er ekki um að ræða neina reyf- ara heldur fyrst og fremst bækur þar sem mikið er iagt upp úr vand- aðri framleiðslu." Nýtt verð- bréfafyrir- tæki? NÝTT verðbréfafyrirtæki er nú í burðarliðnum og þessa dagana er unnið að því að afla hlutaíjár til stofnunar þess undir forystu Jafets Olafssonar, fyrrum útvarpsstjóra Islenska útvarpsfélagsins. I samtali við Morgunblaðið staðfesti Jafet að þetta væri rétt, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið á þessari stundu. Sagði hann að málið myndi skýrast betur upp úr miðjum þessum mánuði. Jafet vildi ekki gefa upp hvaða hópur fjárfesta stæði að baki honum í stofnun þessa fyrirtækis. Eins og fram kom í Morgunblað- inu í febrúar sl. gerði Almenna lög- fræðiskrifstofan, sem Sigurður G. Guðjónsson er í forsvari fyrir, tilboð fyrir hönd breiðs hóps hluthafa í 47 milljóna króna hlut Sigurðar Helga- sonar og tengdra aðila í Handsali 12. janúar sl. á genginu 2,1. Meðal þeirra aðila sem stóðu að baki þessu tilboði voru aðilar tengd- ir íslenska útvarpsfélaginu, þ. á m. Jafet og Siguijón Sighvatsson, kvik- myndaframleiðandi. Ekki varð þó af þessum kaupum, þar sem bréfin voru seld eignarhaldsfélagi Valfells- bræðra og Lífeyrissjóði Austurlands. Verði af stofnun þessa fyrirtækis verður það 7. starfandi verðbréfafyr- irtækið hér á landi. Mamma Óhagstæð vömskipti í júlí 42% aukning bílainnflutnings VÖRUSKIPTIN í júlí voru óhagstæð um 1,1 milljarð króna en þá voru fluttar út vörur fyrir 9,6 milljarða króna en inn fyrir 10,7 milljarða fob. Það sem af er árinu hafa vöruskiptin þó verið hagstæð og nemur afgang- urinn 3,6 milljörðum króna fyrstu sjö mánuði ársins. að því er segir í frétt frá Hagstofunni. Verðmæti fólksbíla- innflutnings jókst um 42% á föstu gengi fyrstu sjö mánuðina. Fyrstu sjö mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 72,5 milljarða króna en inn fyrir 68,9 milljarða króna fob. Á tímabilinu nam afgang- urinn á vöruviðskiptunum 3,6 millj- örðum króna. Verðmæti vöruútflutningsins var 9% meira á föstu gengi fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra. Sjávarafurðir voru 78% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15% meira en á sama tíma árið áður. Heildarverðmæti vöruinnflutnings fyrstu sjö mánuðina var 20% meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Innflutningur sérstakrar fjárfesting- arvöru er að jafnaði mjög breytileg- ur frá einu tímabili til annars en að þeim liði frátöldum reynist annar vöruinnflutningur hafa orðið 18% meiri á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Þar af jókst innflutningur á matvöru og drykkjarvöru um 15%, fólksbílainnflutningur um 42%, inn- flutningur annarrar neysluvöru um 11% og innflutningur annarrar vöru um 20%. Gjaldeyrisforði rýrnar GJALDEYRISFORÐI og gjaldeyr- isstaða Seðlabankans nettó rýrnuðu um tæplega 3,5 milljarða í ágúst, einkum vegna lánahreyfinga ríkis- sjóðs. Á millibankamarkaði seldi bankinn gjaldeyri fyrir 500 milljónir króna nettó. í frétt frá Seðlabanka íslands kem- ur fram að heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum jókst um 1,4 milljarða, þar af jókst ríkis- víxlaeignin um 1,2 milljarða. Samtals jukust kröfur Seðlabankans á ríkis- sjóð og ríkisstofnanir um 4,5 millj- arða í ágúst en höfðu lækkað um 6,2 milljarða frá ársbyijun. Kröfur bankans á innlánsstofn- anir jukust um 400 milljónir en höfðu lækkað um 3 milljarða frá ársbyij- un. Grunnfé bankans jókst um 300 milljónir í ágúst en hafði lækkað um 700 milljónir frá ársbytjun. VÖRUSKIPT4W VIÐ ÚTLÖNDH Verðmæti vöruút- og innflutnings > jan.-júlí 1995 og 1996 1995 1996 breyíngá (fob virði í milljónum króna) jan.-júlí jan.-júlí föstu gengi* Útflutningur alls (fob) 66.586,5 72.490,9 8,8 Sjávarafurðir 49.092,9 56.333,9 14,6 Ál 7.094,2 7.335,7 3,3 Kísiljárn 1.511,4 1.774,9 17,3 Skip og flugvélar 2.287,8 198,0 Annað 6.600,2 6.848,4 3,7 Innflutningur alls (fob) 57.574,6 68.935,8 19,6 Sérstakar fjárfestingarvörur 1.246,3 3.179,7 Skip 484,8 3.038,0 Flugvélar 727,2 97,2 Landsvirkjun 34,3 44,5 Til stóriðju 3.887,8 3.725,0 -4,3 íslenska álfélagið 3.491,4 3.253,2 -6,9 íslenska járnblendifélagið 396,4 471,8 18,9 Almennur innflutningur 52.440,5 62.031,1 18,2 Olía 4.376,4 5.110,9 16,7 Alm. innflutningur án olíu 48.064,1 56.920,2 18,3 Matvörur og drykkjarvörur 5.739,6 6.602,2 14,9 Fólksbílar 2.740,3 3.889,5 41,8 Aðrar neysluvörur 11.475,4 12.727,4 10,8 Annað 28.108,8 33.701,1 19,8 Vöruskiptajöfnuður 9.011,9 3.555,1 Án viðskipta íslenska álfélagsins 5.409,1 -527,4 Án viðskipta íslenska álfélagsins, íslenska járnblendifélagsins og sérstakrar fjárfestingarvöru 3.252,6 1.151,2 Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann mælikvarða var meðah/erð erlends gjaldeyris 0,1% hærri i janúar-júlí 1996 en á samatíma árið áður. HerMd: HAGSTOFA ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.