Morgunblaðið - 07.09.1996, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.09.1996, Blaðsíða 37
- MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 37 alltaf eiga og vernda. Haustið 1994 fluttist ég öðru sinni til Svíþjóðar og hef þess vegna ekki haft þau tækifæri að hitta afa og ömmu eins og maður hefði kosið. Síðastliðið vor komum við bræðurnir til íslands í heimsókn og hittum þá afa. Hann lá þá inni á Landspítalanum, en fékk að fara heim yfir hvítasunnuna og við hittum hann á Akraborgar- bryggjunni á Akranesi þegar þau komu úr bænum. Hann var þá full- ur af krafti og lífsvilja og við kvödd- umst og sögðum: „Sjáumst síðar.“ En svo fór þó ekki. Ég er mjög þakklátur fyrir þau ár sem ég fékk að vera afa samtíða, þau eru mér mjög mikils virði. Elsku amma, ég vil votta þér, börnum ykkar og öðrum aðstand- endum mína innilegustu samúð. Magnús Þór. Elsku afi. Okkur langar til að minnast þín og þakka þér fyrir þann tíma sem við áttum með þér. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku amma. Við biðjum Guð að styrkja þig og fjölskyldu þína í ykkar mikla missi. Guð blessi ykkur öll. Anna Lilja og fjölskylda, Ragnar Már, Agúst Hrannar. Góður granni og vinur er kvadd- ur í dag, Magnús í Belgsholti. Það var í september 1955 sem ég sá hann fyrst. Hann stöðvaði grænan vörubíl við túnhliðið og ávarpaði tengdaföður minn: ,Sæll nafni.“ Þeir töluðust við af hlýrri glaðværð um veðurfar og horfur. Magnús í Belgsholti var hár og myndarlegur en það sem ég man best var framkoma hans, hlý og hressileg. Magnús var fæddur og uppalinn á Þórustöðum í Svínadal hjá foreldr- um sínum. Hann vann að bústörfum og ýmsu öðru uns hann stofnaði sjálfur heimili, fyrst í Stykkishólmi árið 1946. Þá hafði hann kynnst sinni góðu konu, Önnu Þorvarðar- dóttur, sem þaðan er ættuð. Að Belgsholti fluttust þau svo árið 1951 og hafa búið þar síðan. Dugnaður Magnúsar og fram- kvæmdir eru öllum kunnar sem til hans þekkja. Hann var heldur ekki einn. Með honum og Önnu var jafn- ræði. Börn þeirra, fjórar dætur og fjórir synir, eru eins og hjónin bæði, óvanalega duglegt og vinnusamt fólk. Síðustu árin bjuggu þau Anna félagsbúi með Haraldi syni sínum og Sigrúnu konu hans, en þau hafa nú tekið við búinu í Belgsholti. Ef við hjónin þurftum að skreppa frá og dætur okkar mjólkuðu kýr og leystu okkur af við önnur bú- störf, gátum við áhyggjulaus farið frá heimilinu því að kveðjuorðin enduðu ávallt á þessa leið: ,Nú, ef eitthvað verður að, þá leitið þið til þeirra í Belgsholti." Að eiga góða granna er ekkert sjálfgefið lán. Að leiðarlokum kveðjum við vin okkar Magnús í Belgsholti. Við minnumst hlýleika, glaðværrar bjartsýni og baráttuvilja hans og þökkum honum greiðasemi og vel- vild alla um liðin ár. Önnu og fjölskyldunni allri vott- um við innilega samúð okkar. Kristjana Höskuldsdóttir. MINNINGAR KRISTJAN GESTSSON + Krislján Gests- son var fæddur á Hóli í Norðurárd- al í Borgarfirði hinn 15. apríl 1909. Hann lést á Land- spítalanum 27. ág- úst síðstliðinn. For- eldrar hans voru Gestur Halldórs- son bóndi á Hóli f. 27.8. 1873, d. 15.4. 1959, og Guðríður Guðlaugsdóttir, f. 23.10.1867, d. 22.2. 1961. Systkini Kristjáns voru Halldór, f. 1.5. 1905, d. 30.8. 1963, ókvæntur og barnlaus, og Halldóra, f. 1.9. 1912, d. 11.10. 1943. Dóttir hennar er Sigrún Gissurardóttir, gift Barnaljósmyndir Fermingarmyndir Brúðkaupsmyndir Stúdentamyndir PFTUR PÉTURSSON LJÓSMYNDASTÚDÍÓ Laugavcgi 24 101 Rcykjavik Sími 552 0624 Sigurdóri Sigurdórs- syni, blaðamanni á DV. Hinn 16.5. 1936 giftist Krislján Olgu Guðrúnu Þorbjarn- ardóttur frá Hrauns- nefi, f. 8.8. 1914. Börn þeirra eru 1) Ásdís, f. 17.7. 1940, gift Sævari Þórjóns- syni, f. 27.4. 1940. Börn þeirra eru þrjú og barnabörn fimm. 2) Gunnar, f. 1.5. 1942, kvæntur Auð- björgu Pétursdóttur, f. 28.7. 1945. Börn þeirra eru fjögur og barnabörn sex. Utför Kristjáns verður gerð frá Borgarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. í dag verður til moldar borinn frá Borgarneskirkju Kristján Gestsson, fv. afgrm. Olís í Borgar- nesi. Snemma beindist áhugi Kristj- áns að bifreiðum, sem voru að hefja innreið sína til Islands, og var hann einn af frumkvöðlum í bifreiðaakstri í Borgarfirði og voru þá oft farnar ferðir um vegleysur og óbrúaðar ár, en aðrir verða til að segja þá sögu. Kristján annaðist mjólkurflutn- inga fyrir bændur í Norðurárdal og hluta Stafholtstungna í mörg ár og flutti í Mjólkursamlagið í Borgarnesi. Á þeim tíma var bens- íntankur við bæinn Hraunsnef í Norðurárdal og afgreiðslu önnuð- ust heimasæturnar á bænum, þrjá dætur Þorbjamar Ólafssonar og Guðnýjar Bjarnadóttur, Stefanía, Olga og Svava og var það haft fyrir satt, að margur ungur bifreið- arstjórinn stefndi að því að fylla tankinn þar. Þarna fann Kristján sinn lífs- förunaut, Olgu Guðrúnu. Ungu hjónin fluttu til Borgarness og stofnuðu heimili þar. Fyrst í leigu- húsnæði, en 1945 fluttu þau í nýtt hús, sem þau byggðu við Gunn- laugsgötu og bjuggu þar í tæp 50 ár, en 1994 fluttu þau í íbúð sem þau keyptu í þjónustuíbúðum aldr- aðra við Borgarbraut. Ég leyfi mér að fullyrða að betra hjónaband en þeirra Olgu og Krist- jáns er vandfundið. Þau voru sam- taka í öllu, sem þau tóku sér fyrir hendur og ástúð og virðing hvors fyrir öðru ríkti milli þeirra. Börn þeirra, Ásdís og Gunnar, ólust upp í þessu umhverfi og hef- ur orðið þeim gott veganesti í líf- inu. Ásdís er gift Sævari Þóijónssyni og búa þau í Ólafsvík, en Gunnar er kvæntur Auðbjörgu Pétursdótt- ur og búa þau í Borgarnesi. Barna- börnin og barnabarnabörnin eru orðin stór hópur. Eftir að Kristján hætti mjólkur- flutningum fyrir Norðdælinga hóf hann störf hjá Olís við afgreiðslu á stöð þeirra í Brákarey og vann þar meðan starfsorka leyfði. Krist- ján kom sér upp aðstöðu til hjól- barðaviðgerða og annaðist við- gerðir fyrir heimamenn og aðra og vissi ég að hann hjálpaði oft ferðamönnum, sem áttu í vandræð- um hvort sem var að nóttu eða degi. Það var oft gestkvæmt á heim- ili þeirra Olgu og Kristjáns, og var tekið á móti öllum af miklum myndarskap og einstaklega hlýju viðmóti. Ég og fjölskylda mín eigum margar góðar minningar um heim- sóknir til þeirra hjóna og viljum nota tækifærið og þakka allar þær góðu stundir er við höfum átt sam- an og þá ástúð og umhyggju, sem þau hafa sýnt móður minni. Elsku Olga, Ásdís, Gunnar og fjölskyldur, við Erna vottum ykkur innilega samúð og biðjum guð að styrkja ykkur og blessa. Halldór Sturla Friðriksson. Það er ótrúlegt að þegar við för- um í heimsókn til ömmu og afa að þá er enginn afi lengur. Enginn afi, við sem héldum einhvem veginn að hann mundi alltaf verða hér, en nú er hann farinn og ekki bara í göngutúr eða í heimsóknir, heldur er hann farinn fyrir fullt og allt. Það er margt sem kemur upp í huga okkar þegar við hugsum til baka, allar þær sögur sem hann sagði okkur meðan við sátum í kjöltu hans og snyrtum á honum neglurnar eða greiddum hár hans, og hvað það var gaman að hlusta á hvernig hann gat komið með vísur við öll tækifæri. Og ekki gleymum við öllum ferðunum upp í Norðurárdalinn í beijamó eða heimsóknir þar sem við hlustuðum á sögur um hans heimaslóðir. Við eigum erfitt með að átta okkur á því að þetta eigum við ekki eftir að gera með honum, við eigum ekki eftir að heyra fleiri sögur, ekki frá honum. Elsku afi við þökkum þér allar þær stundir sem við áttum með þér, sem við munum varðveita í minningu okkar. Okkur þykir svo vænt um þig og við söknum þín. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku amma, Guð veiti þér styrk í sorg þinni. Olga og Halldóra, Pétur og Berglind. r Sóknarfærí i málmiðnaði Ráðstefna um stöðu og framtíð íslensks málmiðnaðar MiSstöð ÍSÍ í Laugardal, fimmtudaginn 19. september 1996 Frú niálnismifijn Fonnax If Samtök iðnaðarins og Málmur, samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, gangast fyrir ráðstefnu um stöðu og framtíð íslensks málmiðnaðar. Á undanfömum árum hefur íslenskur málmiðnaður átt í vök að verjast en erfiðleikaárin eru nú að baki og nýtt tímabil sóknar að hefjast. Markmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á þeim jákvæðu breytingum sem orðið hafa í málmiðnaði og gera grein fyrir þeim möguleikum sem geta skapast í framtíðinni. Dagskrá 13.00 Mæting - skráning 13.15 Setningarávarp. Theodór Blöndal, framkvæmdastjóri, Vélsmiðjan Stál hf. 13.30 Möguleikar niálmiðnaðarins á alþjáðamörkuðwn. Elías Gunnarsson, framkvæmdastjóri, Meka ehf. 13.50 Málmiðnaðurinr og tœknivœðing fiskvinnslunnar. Svavar Svavarsson, framleiðslustjóri, Grandi hf. 14.15 Máhniðnaðurinn og þarfir fiskveiðiflotans. Freysteinn Bjarnason, útgerðastj., Síldarvinnslan hf. 14.40 Kaffihlé 15.00 Samkeppnishafni málm- og skipaiðnaðarins. Ingi Björnsson, framkvæmdastj., Slippstöðin hf. 15.25 Þekking og hœfni - grundvöllur aukinnar verðmœtasköpunar. Nicolai Jónasson, framkvæmdastjóri, Fræðsluráð málmiðnaðarins 15.50 Pallborðsumræður, spurningar og svör Stjómandi: Páll Benediktsson, fréttamaður Sjónvarpinu 17.00 Ráðstel'nulok Ráðstefnan er öllum opin en hún er einkum sniðin að þörfum þeirra sem eiga viðskipti við fyrirtæki í málm- og skipaiðnaði, opinberra aðila sem vinna að málefnum greinarinnar og þeirra sem hafa áhuga á að kynnast hinum fjölbreyttu og tæknilega áhugaverðu störfum í málmiðnaði. Aðgangur er ókeypis en þeir, sem vilja sitja ráðstefnuna, þurfa að skrá sig hjá Samtökum iðnaðarins í síma 511 5555 eða í myndsíma 511 5566 eigi síðar en kl. 16.00,17. september nk. <§» SAMTÖK IÐNAÐARINS ^ÍÍIHTIV SAMTÖK FYRIRTÆKJA í MÁIM- OG SKIPAIÐNAÐI J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.