Morgunblaðið - 07.09.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 23
Stjórnlagaþing S-Afríku hafnar nokkrum ákvæðum stj órnarskrár draga
Stj órnin fengi
of mikil völd
Auðjöfur
styður
Blair
BREZKI auðjöfurinn Matthew
Harding, sem kunnur er fyrir
knattspyrnuáhuga sinn og
sagður er vera 87. ríkasti mað-
ur Bretaveldis, lét í gær eina
milljón sterlingspunda, um 104
milljónir króna, af hendi rakna
í kosningasjóð Verkamanna-
flokksins, en þetta er hæsta
upphæð, sem nokkru sinni í 90
ára sögu flokksins hefur borizt
í sjóði þess frá einstaklingi.
Harding er varaformaður
knattspyrnufélagsins Chelsea,
sem Major forsætisráðherra
styður. Hafa þeir Harding og
Major oft hitzt í fyrirmanna-
stúkunni á knattspyrnuleik-
vanginum og er því hinn yfir-
lýsti stuðningur Hardings við
Tony Blair, formann Verka-
mannaflokksins, þeim mun
meira áfall fyrir íhaldsflokkinn
og leiðtoga hans.
Þinghúsþjóf-
ar í S-Afríku
ÞINGHÚS Suður-Afríku í
Höfðaborg hefur orðið fyrir þrá-
látum stuldi frá því aðskilnaðar-
stefna stjórnvalda í landinu var
afnumin fyrir tveimur árum.
Samkvæmt lögregluskýrslum
hefur koparklæðningu af þaki
þinghússins að verðmæti um
97.000 króna verið stolið, auk
þess sem tilkynnt hefur verið
um 83 þjófnaði úr þinghúsinu
það sem af er þessu ári.
Systkin
finnast látin
TVÖ ung systkini frá Þýzka-
landi fundust látin á hótelher-
bergi á Mallorca í gærmorgun.
Um var að ræða átta ára gamla
stúlku og sex ára gamlan
dreng. Svo virðist, sem börnin
hafi dáið með því að eitri var
sprautað í þau. í herberginu
fundust bréf, sem benda til þess
að faðir barnanna, sem er lækn-
ir, hafi ætlað að fyrirfara sér.
Hann var hvergi að finna í gær.
Hernaðar-
sáttmáli
VARNARMÁLARÁÐHERRAR
nágrannaríkjanna Ungverja-
lands og Rúmeníu undirrituðu
í gær hernaðar- og öryggissátt-
mála, sem gæti orðið mikilvæg-
ur liður í að bæta samskipti
landanna tveggja, sem ekki
hafa ætíð verið með bezta móti.
Með sáttmálanum skuldbinda
bæði ríkin sig til að skýra hvort
öðru frá ölium hreyfingum á
heijum og heræfingum nærri
landamærum ríkjanna.
Má loka á
Scientology
DÓMSTÓLL í Stuttgart i Þýzka-
landi kvað upp úr um það í
gær, að sparisjóður þýzku póst-
þjónustunnar, Deutsche Post-
bank AG, mætti loka reikning-
um sem Scienío/ogy-samtökin
hefði hjá sjóðnum. Dómstóllinn
féllst á þá kröfu sjóðsins, að
hann hefði leyfi til að velja sína
viðskiptavini, en talsmaður
sjóðsins segir hann ekki vilja
vera bendlaðan við samtök, sem
almenningur álíti glæpsamleg.
Mamma
Jóhannesarborg. Reuter.
ÆÐSTI dómstóll Suður-Afríku,
stjórnlagadómstóllinn, hafnaði í gær
stjórnarskrárdrögum sem fyrsta
þing landsins eftir afnám aðskiln-
aðarstefnunnar hafði náð samkomu-
lagi um. Nelson Mandela forseti
kvaðst fullviss um að málið leystist
brátt.
Forseti stjórnlagadómstólsins,
Arthur Chaskalson, sagði að hann
gæti lagt blessun sína yfir flest
ákvæði draganna en stjórnlagaþingið
þyrfti að breyta mikilvægum ákvæð-
um. Dómstóllinn gagnrýnir einkum
að meirihlutaflokkurinn á þingi og
ríkisstjórnin fái of mikil völd.
Dómstóllinn úrskurðaði að stjórn-
arskráin fullnægði ekki öllum lág-
marksskilyrðum sem samkomulag
náðist um í samningaviðræðum Af-
ríska þjóðarráðsins, Þjóðarflokksins
og smærri flokka á árunum 1990-
1994. Þessi skilyrði voru sett í við-
auka við bráðabirgðastjómarskrá,
sem gildir frá fyrstu kosningunum
eftir afnám aðskilnaðarstefnunnar
1994 til næstu kosninga árið 1999.
Dómstóllinn sagði að stjórnar-
skrárgrein um að atvinnurekendur
geti aðeins samið við stéttarfélög
fyrir milligöngu sambands vinnuveit-
enda, gengi þvert á rétt einstakrá
atvinnurekenda. Þá tryggði stjórnar-
skráin ekki sjálfstæði stofnana og
embætta, sem eiga að hafa eftirlit
með framkvæmdavaldinu.
Málamiðlunum hafnað
Ákvæði draganna um níu héraðs-
stjórnir sættu þó mestri gagnrýni
dómstólsins, sem sagði þær fá of lít-
il völd. Dómstóllinn hafnaði einnig
kafla um völd sveitarstjórna og rétt
þeirra til skattlagningar.
Úrskurðurinn merkir að dómstóll-
inn hafnar flóknum málamiðlunum
sem eining náðist um milli Afríska
þjóðarráðsins, sem vildi að ríkis-
stjórnin fengi mikil völd, og flokka
sem lögðu áherslu valddreifingu.
Dómstóllinn hafnaði einnig ákvæði
ætlað er að tryggja að ekki verði
hægt að áfrýja úrskurðum „sann-
leiksnefndarinnar" svokölluðu, sem
fékk vald til að veita sakaruppgjöf
vegna alvarlegra mannréttindabrota
á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Úr-
skurðurinn merkir að setja verður
ákvæðið um sakaruppgjöf í stjórnar-
skrána ef fyrirbyggja á áfrýjanir.
STAÐFESTING
Á GÆÐUM!
m
323 Sedan
Samkvæmt nýlegum skýrslum þýsku skoðunarstofunnar DEKA, sem árlega framkvæmir skoðanir og
mengunarmælingar á um 7 milljónum bíla, eru bílar af MAZDA gerð í besta ástandi allra þriggja til
sjö ára bíla. Þetta er enn ein staðfestingin á góðri endingu og vandaðri smíð MAZDA.
The
ISO 9001
« Certtficate
MAZDA er að auki fyrsti og ennþá eini
japanski bifreiðaframleiðandinn, sem veitt
hefur verið ISO 9001 gæðavottun, en það er
æðsta viðurkenning sem framleiðandi getur hlotið.
323 F
Við bjóðum nú 1997 árgerðirnar af MAZDA
með nýjum innréttingum og auknum búnaði
á betra verði en nokkru sinni fýrr!
MAZDA 323 kostar frá
kr. 1.298 þús.
BÍLASALAN OPIN LAUGARDAGA 12-16
- Óbilandi traust!
323 Coupé
SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVÍK SÍMI 561 9550
Netfang:www.hugmot.is/mazda