Morgunblaðið - 07.09.1996, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður Alþýðuflokks um gagnrýni Alþýðubandalagsmanna vegna þingflokkasameiningar
Ekki tilefni til geðshrær-
inga Alþýðubandalags
FORMAÐUR Alþýðuflokks segir til-
efnislaust að gefa sér það fyrirfram
að sameinaður þingflokkur Alþýðu-
flokks og Þjóðvaka myndi neyta afls-
munar við nefndakjör á Alþingi á
kostnað Alþýðubandalags og
Kvennalista.
„Sér í lagi vegna þess að hinn nýi
þingflokkur hefur lýst yfir vilja sínum
til að eiga gott samstarf við aðra
þingflokka stjórnarandstöðunnar og
gerir ráð fyrir að viðræður um það
hefjist innan tíðar. Það kemur þá í
ljós hvoit nokkur ástæða er til að
ætla að samstarf um nefndir og önn-
ur mál í þinginu gangi jafn greiðlega
og það gerði síðast," sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins.
Hann benti á að Alþýðubandalagið
hefði sjálft óskað formlega eftir slík-
um viðræðum og fengið jákvæð svör
frá öllum flokkum stjórnarandstöð-
unnar. Þá hefði Alþýðubandalagið
tekið mjög jákvæða afstöðu til sam-
einingar Þjóðvaka og Alþýðuflokks í
nýlegri ritstjórnargrein í Vikublaðinu,
málgagni flokksins. Þar hefði verið
talið skynsamlegt að fækka starfandi
stjórnmálaflokkum og heppilegast
væri að Þjóðvaki sameinaðist Alþýðu-
flokknum sem ekki hefði borið barr
sitt síðan Jóhanna hvarf á braut.
„Hvað eru mennirnir að kvarta.
Þeir hvöttu til þess arna og við tókum
þá á orðinu," sagði Jón Baldvin.
Kosningabandalag?
Á þingflokksfundi Alþýðubanda-
lagsins á fimmtudag var rætt um
viðbrögð við því ef nýr þingflokkur
jafnaðarmanna gerði kröfur um
breytingar á skipan í embætti og
nefndir þingsins. Haft var eftir ónafn-
greindum þingmanni að þá verði leit-
að eftir þéttara samstarfi við Kvenna-
listann.
Guðný Guðbjörnsdóttir, þing-
flokksformaður Kvennalistans, segir
að rætt hafi verið óformlega við hina
stjórnarandstöðuflokkana um
nefndakjör og kvennalistakonum
þætti mjög mikilvægt að stjórnarand-
staðan nái sameiginlegri niðurstöðu
um nefndakjör.
Hún sagði að ef nýi þingflokkurinn
vildi breyta núverandi jafnvægi í
nefnda- og embættaskipan og ef
stjórnarandstöðuþingflokkarnir þrír
byðu fram sér gæti Kvennalistinn
farið illa út úr því. Undir þeim kring-
umstæðum gæti flokkurinn styrkt
stöðu sína verulega með því að gera
kosningabandalag við Alþýðubanda-
iagið.
Ekki ráðinn til að beita
hrossum
Mjög hörð gagnrýni hefur komið
frá alþýðubandalagsmönnum vegna
ráðningar Einars Karls Haraldsson-
ar, fyrrverandi framkvæmdastjóra
Alþýðubandalagsins, til starfa fyrir
nýja þingflokkinn.
Um þetta sagði Jón Baldvin
Hannibalsson að ýmis ummæli for-
ustumanna Alþýðubandalagsins um
þetta mál væru sérkennileg, ekki
síst Steingríms J. Sigfússonar al-
þingismanns sem hefði talað um
túnið sitt og að verið væri að beita
þar hrossum.
„Ber að skilja þetta svo að hann
líti á kjósendur Alþýðubandalagsins
sem búsmala innan girðingar hjá
honum? Ég leyfi mér að segja að
þetta er óviðurkvæmilegt tal og held
að fólk eigi að fá að ráða sér sjálft.
Kjarni málsins er að Einar Karl er
ekki ráðinn til að beita hrossum í
tún Alþýðubandalagsins heldur til
þess beinlínis að laða fólk til sam-
starfs. Og við höfum ekki gefið al-
þýðubandalagsforustunni eitt ein-
asta tilefni til þessara geðshræringa.
Við höfum ekkert gert á hennar hlut
annað en svara henni vinsamlega
og virðulega að við séum tilbúnir til
viðræðna á málefnalegum grundvelli
innan þings og utan,“ sagði Jón
Baldvin.
Kemur málið lítið við
Talsmenn annarra flokka hafa
látið sér fátt finnast um sameigin-
legan þingflokk Alþýðuflokks og
Þjóðvaka og sagði Davíð Oddsson
forsætisráðherra m.a. í Morgunblað-
inu í gær að um væri að ræða afkára-
legan anga af skrípaleik sem verið
hefði í gangi hjá flokkunum.
Jón Baldvin sagði að orðbragðið
hefði ekki verið mjög forsætisráð-
herralegt. Þó hefði hann séð, eins
og leiðarahöfundur Vikublaðsins,
einn kost við málið, nefnilega fækk-
un þingflokka. „Að öðru leyti held
ég að honum komi þetta lítið við,“
sagði Jón Baldvin Hannibalsson.
Fundir um
sameiningu
þingflokka
FLOKKSSTJÓRN Alþýðuflokksins
og 39 manna stjórn Þjóðvaka halda
fundi í dag þar sem fjallað verður
um samkomulag sem náðst hefur á
milli þessara flokka um sameiningu
þingflokka og stofnun Þingflokks
jafnaðarmanna. Flokksstjórn Al-
þýðuflokksins kemur saman í Rúg-
brauðsgerðinni en stjórn Þjóðvaka
heldur fund sinn á Litlu-Brekku.
Fundirnir hefjast kl. 10.
Hald lagt á
amfetamín
LÖGREGLAN í Reykjavík lagði
hald á 15 skammta af amfetamíni
og smáræði af hassi við húsleit í
fyrrakvöld. Einn maður var hand-
tekinn og fannst amfetamín í fór-
um hans.
í framhaldi af því var gerð hús-
leit heima hjá honum þar sem meira
fannst af fíkniefnum.
Lögreglan var kvödd að íbúð í
Hamrahverfi um klukkan tvö í fyrri-
nótt þar sem maður ógnaði fjöl-
skyldu sinni með hnífi. Lögreglan
þurfti að yfirbuga hann með valdi.
Opið hús í dag og sunnudag kl. 14-17
að Hamrahlíð 23. V. 6,7 m.
Tii sölu þægileg 3ja herb. 74 fm íbúð á 1. hæð
í góðu fjölbýli. Skipti möguleg á stærri eign.
Upplýsingar veitir Lilja Þorgeirsdóttir, s. 588-9732
FASTEIGN ER FRAMTÍD r\T\ SIMI 568 77 68
FASTEIGNA £í JMIÐLUN
Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík, Sverrir Kristjánsson J£
fax 568 7072 lögg. fasteignasali II
Pór Þorgeirsson, sölum. Kristín Benediktsdóttir, ritari, Kristjana Lind, ritari
Einbýlí á einni hæð á fallegum
útsýnisstað rétt við golfvöll
Starengi 110 og 112
Til sölu tvö glæsileg hús í smíðum,
130 fm ásamt 35 fm bílskúr. Gert er
ráð fyrir 12 fm sólskála. Húsin eru
byggð úr timbri og afar vel skip-
ulögð.Við getum sýnt þér
samsskonar hús fullbúið. Húsin eru
afhent I dag fullfrágengin að utan og einangruð með pússuðum
gólfum, hita-, vatns- og rafmagnsheimtaug. Óuppsett eldhúsin-
nrétting og allir skápar fylgja. Verð aðeins 9.825 þús. Einnig er
hægt að fá húsin lengra komin eftir samkomulagi, allt að
fullgerðum. Áhv. 6,3 millj. húsbréf til 25 ára með 5,1% vöxtum.
Ath. til greina kemur að taka minni íbúð upp I:
Traustur byggingaraðili Sigurður Pálsson.
Hrísmóar 13
+ bflskúr
Laus. Sérlega vönduð og vel
skipulögð 4ra herb. íbúð á 2.
hæð. Miklar og mjög vandaðar
innréttingar. Parket og flisar.
Áhv. 7 millj. góð lán.
Innbyggður bflskúr. Mikið
útsýni.
Opið í dag frá kl. 13-15
Morgunblaðið/Golli
TALSMENN samtaka HlV-jákvæðra á Norðurlöndum kynntu helztu umræðuefni ráðstefnu NordAll
á blaðamannafundi í gær. Frá vinstri: Matti Jarvela, Finnlandi, Michael Smedeniark, Danmörku,
Ann-Christin Skoglund, Sviþjóð, Einar Þór Jónsson, íslandi, og Trond Kirkeby-Garstad, Noregi.
Norræn samtök alnæmissmitaðra þinga í Reykjavík
Baráttan heldur áfram
MISMUNANDI skilgreining heil-
brigðisyfirvalda á Norðurlöndum á
alnæmi og áhyggjur af ótímabærum
yfirlýsingum um að fundizt hefðu lyf
sem læknuðu alnæmi voru meðal
umræðuefna á áttundu ráðstefnu
samtaka HlV-jákvæðra á Norður-
löndum, sem fram fór á Hótel Lind
í Reykjavík á fimmtudag og föstu-
dag.
Um 90 fulltrúar samtaka HIV-
jákvæðra í Noregi, Svíþjóð, Finn-
landi og Danmörku mættu á ráð-
Opið í dag frá kl. 10-14.
Viðskiptum hjá okkur
fylgir ráðgjöf
og traustar upplýsingar.
stefnuna, fleiri en nokkru sinni áður
hafa safnazt saman á ráðstefnu sem
þessa. Þetta er í annað sinn, sem
ráðstefna NordAll, eins og samtök
HlV-jákvæðra á Norðurlöndum
heita, heldur þing sitt á íslandi.
Einar Þór Jónsson er forsvars-
maður framkvæmdanefndar ráð-
stefnunnar. Hann segir að þrátt fyr-
ir miklar framfarir í baráttunni við
alnæmi undanfarin misseri sé langt
í frá að sigur hafi unnizt í barátt-
unni við sjúkdóminn. Ný lyf hafi
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 5521370
vissulega vakið vonir manna og létt
róðurinn fyrir suma, en yfirlýsingar
um að með nýjum lyíjameðferðum
sé orðið hægt að lækna HlV-smit
séu þó með öllu ótímabærar.
Brögð hafi verið að því nýverið,
að ísienzkir læknar gæfu slíkar yfir-
lýsingar, sem Einar Þór segir aðeins
til þess failnar að vekja falskar von-
ir og geta jafnvel leitt til þess að
menn sljóvguðust á verðinum gagn-
vart útbreiðslu HlV-veirunnar, ef
menn álitu hana ekki lengur ban-
væna. Eingöngu skipulagðar for-
varnir megni að hefta útbreiðslu al-
næmissmits.
Fulltrúarnir frá hinum Norður-
löndunum taka undir þessar áhyggj-
ur Einars Þórs.
Mismunandi skilgreining
Annað aðaiumræðuefni ráðstefn-
unnar var mismunandi skilgreining á
stöðu alnæmissmitaðra á Norður-
löndum. Á íslandi og í Svíþjóð eru
HlV-jákvæðir flokkaðir með fötluð-
um og eru sem slíkir aðilar að ör-
yrkjabandalagi hvors iands, I Finn-
landi, Danmörku og Noregi ekki.
Þetta hefur töluverð áhrif á hag HIV-
jákvæðra og hin mismunandi skil-
greining milli landa hefur einnig í för
með sér ýmsa erfiðleika í samvinnu
HlV-jákvæðra á Norðurlöndunum.
Einar Þór segir það styrkja að-
stöðu HlV-jákvæðra til hagsmuna-
baráttu töluvert að vera aðilar að
þaksamtökum öryrkja, en í löndun-
um þremur, þar sem HlV-jákvæðir
eru ekki flokkaðir sem fatlaðir, er
meðal hinna smituðu hart deilt um
hvort stefna beri að því að flokkast
líka sem fatlaðir eður ei. Eins og
Trond Kirkeby-Garstad, formaður
norskra HlV-jákvæðra, bendir á, er
meðal félagsmanna hans samtaka
mikil andstaða við að teljast til fatl-
aðra.
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Góð eign á útsýnisstað
Nýlegt steinhús, ein hæð, um 160 fm, við Vesturvang Hf. Stór og
góður bilskúr. Glæsileg ræktuð lóð. Skipti möguleg.
Lyftuhús - Vesturborgin - skipti
Stór sólrík 4ra herb. íb. á 4. hæð um 120 fm skammt frá KR-heimil-
inu. Frábært útsýni. Tvennar svalir. Góð lán. Skipti möguleg.
Skammt frá Sjómannaskólanum
Sólrík efri hæð 3ja herb. um 70 fm í tvíbhúsi. Gömul innrétting. Rúm-
gott herb. og snyrting í kj. Ræktuð lóð með trjám. Vinsæll staður.
Sólrík - útsýni - þríbýli - Kóp.
Sólrík aðalhæð 3ja herb. tæpir 80 fm í þribhúsi við Hlíðarveg Kóp.
Ágæt sameign. Glæsileg ræktuð lóð. Tilboð óskast.
Góð rishæð í Hlíðunum - lækkað verð
Vel með farin rúmgóð 3ja herb. miklu yngri en húsið. Þak, lagnir
o.fl. endurbætt. Langtímalán um kr. 3,8 millj. Gott föndurherb. fylgir.
Mjög góðar einstaklingsíbúðir
M.a. við: Njálsgötu, Barónsstig, Hraunbæ og Rofabæ. Vinsamlegast
leitið nánari upplýsinga.
• • •