Morgunblaðið - 07.09.1996, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTEIMDUR
Ávexti og
grænmeti
í nestisboxið
Fyrsta skólavikan er á enda og bömin búin
að fara með nesti í skólann í nokkra daga.
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir kannaði
hvemig útbúa má hollt og gott nesti.
LAUFEY Steingrímsdóttir er
forstöðumaður Manneldisráðs. Hún
segir að miða þurfi nestið við lengd
skóladagsins og hvaða tíma dags
börnin eru í skólanum.
„Sum börn eru í skólanum það
stutt að nestið er millibiti milli
morgunverðar og hádegisverðar. í
öðrum tilvikum kemur nestið eins
og máltíð og þá skiptir miklu máli
að vanda vel til þess. Fyrir það
fyrsta er nauðsynlegt að börnin
taki með sér nesti í skólann. Flest
taka með sér gróft brauð með áleggi
og drykk. Þar fyrir utan viljum við
hvetja börn og foreldra til að hafa
oftar með grænmeti og ávexti í
nestisboxinu. Undirstaðan að hollu
fæði er ijölbreytileiki og þennan
fæðuflokk vantar sérstaklega hjá
bömum og unglingum.“
Hálfur tómatur á dag
afskaplega lítið
Laufey segir að i könnun sem
gerð var á mataræði skólafólks
hafi komið í ljós að neysla á græn-
meti er vægast sagt afskaplega lít-
il. „Neyslan samsvarar hálfum tóm-
ati á dag og það er ótrúlega lítið
og minna magn en fullorðnir borða.
- Hveija telur þú skýringuna
vera?
„Hluti hennar kann að vera að
oft er verið að matreiða grænmeti
á hátt sem höfðar ekki til barna.
Þegar heim kemur úr skólanum er
síðan nærtækast að grípa til morg-
unverðarkorns eða fá sér brauð-
sneið og þá gleymist grænmetið.
Þar að auki er lítið af grænmeti í
skyndifæði sem börn og unglingar
borða gjaman."
Morgunblaðið/Kristinn
SUMIR segja að brauðið í
nestisboxinu bragðist miklu
betur ef það er smurt að
morgni á meðan það er fros-
ið. Brauðið verður þá eins og
nýbakað þegar bömin fara
að borða það.
DREKKI börnin ekki mjólk í
skólanum er mun ódýrara að
koma með safa á brúsa í stað
þess að kaupa litlar fernur
auk þess sem það er líka vist-
vænna.
Hún segir að af þessum sökum
vilji forsvarsmenn hjá Manneldis-
ráði eindregið benda foreldrum á
að setja með í nestisboxið þennan
fæðuflokk sem gæti til dæmis verið
gulrót, gúrku-, eða rófubiti eða ein-
hver ávöxtur. „Sé barnið stutt í
skólanum og borði þar millibita
milli morgunverðar og hádegisverð-
ar getur ávöxtur nægt.“
Margir kennarar með
vatnskönnu í stofunni
Svo virðist sem forráðamenn
ýmissa skóla hafi tekið upp á því
að biðja börnin að koma með glas
í skólann til að þau geti drukkið
vatn með nestinu sínu og ef þorsti
sækir að t.d. eftir frímínútur. Síðan
er hægt að kaupa nýmjólk, stundum
léttmjólk, kókómjólk og djús í litlum
fernum í skólanum.
Laufey segir einkar ánægjulegt
að kennarar séu farnir að hvetja
börnin til að koma með glas í skól-
ann þannig að þau geti fengið sér
vatn ef þau eru þyrst. „Þar sem
reynsla er komin á að hafa vatn á
boðstólum í kennslustofum kemur
glöggt fram að börnin sækja í að
fá sér vatnssopa t.d. þegar komið
er inn úr frímínútum."
Laufey segir að boðið sé upp á
nýmjólk í flestum skólum og létt-
mjólk sé víða á boðstólum líka.
„Léttmjólkin hentar flestum skóia-
börnum frekar vegna þess að hún
er minna feit en jafn kalkrík og
nýmjólkin.
Það má hinsvegar benda á að sum
börn eru það grönn að þeim veitir
ekki af nýmjólkinni en jafnframt
undirstrika að léttmjólkin inniheld-
ur sama magn af kalki og nýmjólk-
in.“
- Er ekki miklu vinsælla að fá
sér kókómjólk eða safa?
„Jú, það er alveg satt og erfitt
að sporna við því en auðvitað er
eðlilegast að börn drekki mjólk dags
daglega og kókómjólkin sé frekar
til tilbreytingar. Mjólkin hefur hins-
vegar ekki alltaf verið nægilega
köld í skólanum og börnin því neit-
að að drekka hana þessvegna.
Sendi foreldrar börnin með safa-
brúsa í skólann þá er hægur leikur
að þynna safana töluvert.
Sumar mjólkurafurðir
mjög feitar
- Sumir skólar selja jógúrtmiða
og það er töluvert algengt að börn
taki engjaþykkni, hrísmjólk eða
þykkmjólk með sér sem nesti. Eru
þessar mjólkurafurðir hollt nesti?
„Sumar mjólkurafurðir eru feitar
eins og um ís væri að ræða og aðr-
ar tegundir mjög sykraðar. Engja-
þykkni er dæmi um slíka vöru sem
er bæði mjög feit og sæt. Ég tel
æskilegt að sykurinn væri minni
og að minnsta kosti meira úrval af
sykurminni valkostum. En sykur
sem berst í fæðuna á þennan hátt
er ekki mikill miðað við sykur í
sætindum og gosi. Hitt er annað
mál að það er svolítið furðulegt að
hægt sé að kalla hinar ýmsu mjólk-
urafurðir skóla-hitt og skóla-þetta.
Margir hafa talið að fyrirtæki ættu
að fá leyfi til slíkra fullyrðinga.
Jógúrt er hinsvegar ágæt sem nesti
ef dagarnir eru langir og þá með
brauði, drykk og ekki síst græn-
meti og ávöxtum."
Reyniber eru ekki
bara fyrir fugla
UM ÞESSAR mundir bíða rauðir
reynibeijaklasarnir eftir að vera
tíndir í görðum víða um bæ en fram
að þessu hafa það aðallega verið
fuglar sem hafa notið góðs af þeim.
Berin má hinsvegar nota bæði i
hlaup, edik og til víngerðar og einn-
ig til skreytinga.
Uffe Balslev blómaskreytinga-
maður segist alltaf nota reyniber í
skreytingar og hann hefur þann
hátt á að velta þeim úr kertavaxi
til að þau haldi sér vel.
Þekur reyniber með vaxi
„Ég finn til gömul hálfbrunnin
kerti eins og hvít eða rauð og set
þau í pott með vatni. Þegar vatnið
er komið í um 60 gráðu hita flýtur
vaxið ofan á vatninu. Þá tek ég
reynibeijaklasa og dýfi þeim i vatn-
ið í gegnum vaxið. Vaxið þarf að
þekja berin alveg. Að þessu búnu
dýfi ég klasanum í kalt vatn og þá
eru berin tilbúin til geymslu fram
að jólum. Berin geta haldið sér al-
veg í um það bil þijú ár með þess-
um hætti og þess má geta að þessi
aðferð hentar einnig við önnur ber
og vínber koma sérstaklega vel út
með þessari aðferð. Reyniberin eru
aðeins viðkvæm fyrst eftir þessa
meðferð en síðan má meðhöndla
þau eins og vill.
Frysta berin fyrir meðhöndlun
Reyniberin eru afskaplega beisk
og römm á bragðið og til að þau
Á LEIKSKÓLUM í Svíþjóð er
algengt að bömin búi tii háls-
festar úr reyniberjum og þræði
þá berin upp á tvinna.
YFIR árið er verið að safna
glerkrukkum. Hlaup er best
að setja í litlar krukkur því
talið er að þá stífni hlaupið
betur. Krukkurnar á að þvo
úr mjög heitu vatni og margir
setja þær á háa hitastillingu í
uppþvottavél. Sumir nota
einnig rotvarnarefni en ekki
er það nauðsynlegt ef um lítið
magn er að ræða og góða
kalda geymslu.
komi vel út í hlaupi þarf að frysta
þau fyrir notkun. Með því minnkar
remmubragðið. Berin innihalda
náttúrulegt hleypiefni þannig að
óþarfi er að nota sérstakt hleypi-
efni. Bæði Danir og Svíar nota
reyniberin í hlaup og ýmsum þar
þykir reynibeijahlaup ómissandi
með villibráð. Reynibeijaedik er líka
vinsælt og þá er það notað í salöt
eða til að marínera í kjöt.
Nokkrar uppskriftir af reyni-
beijahlaupi og ediki voru nýlega í
norska blaðinu Familien og danska
blaðinu Hendes verdén og þær fljóta
hér með fyrir þá sem vilja prófa.
Reyniberjahlaup
1 lítri þiðin reyniber
4 súr epli
_____________4 dl vatn___________
tæplega 1 dl sykur á hvern dl af saft
1 tsk. sítrónusýra ef vill
Skolið reyniber og epli. Skerið
eplið í litla bita og setjið í pott ásamt
reynibeijum og bætið í vatninu.
Látið suðuna koma hægt upp og
látið sjóða í 15-20 mínútur undir
loki.
Setjið síðan berin og eplin í bóm-
ullargrisju og pressið safann í pott.
Látið suðuna koma upp aftur, hrær-
ið síðan stöðugt í á meðan sykrinum
er bætt saman við. Fjarlægið skán-
ina með sigtispaða og látið sjóða í
um 20 mínútur.
Til að ganga úr skugga um að
hlaupið sé tilbúið nota svíar eftirfar-
andi ráð. Þeir taka nokkra dropa
af hlaupinu úr pottinum og láta á
disk. Eftir nokkrar mínútur prófa
þeir að taka þá með skeið upp af
diskinum. Ef droparnir krumpast
saman er hlaupið tilbúið annars
þarf að sjóða það aðeins lengur.
Ef fólk er enn óöruggt um að hlaup-
ið stífni má hræra í sítrónusýru ef
vill. Hellið hlaupinu síðan á krukkur
sem búið er að skola úr sjóðandi
vatni. Sumir nota rotvarnarefni en
það þarf einungis ef um mikið
magn er að ræða sem geymast á
lengi og geymslan er ekki köld.
Reyniberjaedik
Um 5 dl fóst úr þessari uppskrift
5 dl hvítvínsedik
2-3 klasar af reyniberjum
2 greinar ferskt rósmarín
eða 1 tsk. þurrkað rósmarín
Skolið reyniberin og hristið vel
af þeim vatnið. Setjið berin í flösku
og bætið við hvítvínsediki og rós-
maríni. Látið flöskuna standa í
björtum glugga í að minnsta kosti
2 vikur þannig að edikið nái að
samlagast. Geymið síðan á köldum
stað eftir að búið er að opna flösk-
una.
Reyniberjahlaup
___________1 kg reyniber_________
___________I kg súr epli_________
___________'h litri vatn_________
1 kg sykur ó hvern lítra af saft
Eplin eru skorin í báta og stein-
amir ljarlægðir. Eplin og reyniberin
sem búið er að frysta eru látin í
pott með vatni og suðan látin koma
upp. Sjóðið við vægan hita í hálf-
tíma. Hellið í bómullargrisju og Iátið
standa til næsta dags. Það á ekki
að kreista ávextina heldur gefa saf-
anum tíma til að renna í gegnum
sigtið yfír nótt. Safinn settur í pott
o g fyrir hvern lítra af safa fara sam-
an við 800 grömm til kíló af sykri.
Látið sjóða við vægan hita í hálf-
tíma. Prófið með teskeið hvort
hlaupið er tilbúið. Setjið nokkra
dropa á kaldan disk og athugið hvort
saftin stífnar. Fleytið froðuna af og
hellið á krukkur. Lokið þeim strax.B
roSSSÖtum? Leikmannaskóli þjóökirkjunnar 1996-1997
^ Wetramamskeið * 60 stundir • Kr. 5.000 *Kennslustaður: Háskóli íslands
(íamla tesíamentið
Dr. Gunnlaugur A. Jónsson
miövikudaga 11.09-2.10.
kl. 20-22, stofu 7
Helgisiöir og Þjónusta leikmannsins Sálgæsla
táknmál kirkjunnar í kirkjunni Sr. Sigfinnur Þorleifsson
Sr. Karl Sigurbjörnsson Halla Jónsdóttir, deildarstjóri laugardaginn * 3.2.
miðvikudaga 15.01-5.02. laugardaginn 5.10. kl. 10-16, stofu 7
Nýja testamentið
Gunnar Jóh. Gunnarsson, lektor
miövikudaga 16.10-6.11.
kl. 20-22, stofu 7
Kirkjusaga
Dr. Hjalti Hugason
miövikudaga 19.02-12.03.
kl. 20-22, stofu 7
Siöfræði
Dr. Björn Björnsson
miðvikudaga 13.11-4.12.
kl. 20-22, stofu 7
luther og guðfræði hans
Or. Siourjón Árni Eyjóllssofl
mánudaoa ÍB.09-7.1Ð
kl2ft—22
r Frá Evu til Maríu moðuí Gurís' Di.Mik Gutounrísdótlii iiJviIíáaii 19.02—12JJ3. t 1119-22 Starí með öldniðum Sigiúfi Gísiaddllii ■MuHIM.Ii. i ttá-a -J Jiámskeið um krístniboð og hjálparstarí' Si. Kjadaa Jonssnn og Jónas Mssoii. Iiamkvst. máftudasa 17.2-10.3. 1 kl. 29-22 J ' Johsbók Si. Siglínnui Poileifsson mívikuðagj 16.19-611 kl.18-20 J Davíðssálmar ' Sr. Halldór Gróndal miðvikudaga 15.1-5.2. M.18-2D J Kótossubréfið Gunnai Jóh. Gunnaissoa iekloi ■iMndagi 19.3—16.4 t kl 1Í-20 J ' Nýtniaislefnui ' Si. Þóihallui Nenisign mánuúaoa 20.1-10.2. 1 kl. 20-22 J Opinbeiun Jáhannesai ' Si. Aini Beigui Siguihjöinsson mánudaga 17.3—14.4. H.2H2
Trúfrædi
Dr. Einar Sigurbjörnsson
miövikudaga 19.03-16.04
kl. 20-22, stofu 7
tnnritun ii síma
562 1500