Morgunblaðið - 22.09.1996, Blaðsíða 16
16 B SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1996 B 17
Öræfasveit státar af einstakri náttúrufegurð. í aldaraðir var
sveitin einangruð vegna farartálma á alla vegu. Illfær jökul-
vötn töfðu för til austurs og vesturs, víðáttumikill Vatnajök-
ull gnæfir yfir til norðurs og sendin ströndin mætir úfnu
Atlantshafi til suðurs. Nú eru Öræfin vinsæll viðkomustaður
ferðamanna sem koma til að njóta fegurðarinnar, ganga um
þjóðgarðinn í Skaftafelli og fara á jökul. Ragnar Axelsson
ljósmyndari þekkir Öræfin frá því hann var ungur í sveit á
Kvískeijum. Stórbrotið umhverfið, jöklarnir, árnar, óendan-
legur sandurinn og ryðguð skipsflökin hafa reynst honum óþrjót-
andi yrkisefni.
Drengur tiplar yfir melgresishól á sandinum við Ingólfs-
höfða, beint suður af Öræfajökli. Melgresið safnar í sig foks-
andi og rytjulegir hólarnir brjóta upp endalausa auðnina. Leiðin
niður í höfðann er ekki fær nema á torfærubílum og getur
verið varasöm vegna sandbleytu.
Svínafellsjökull teygir sig frá jökulbreiðunni í áttina að Freys-
nesi. Lengst til hægri sér í Lómagnúp og nær er þjóðgarðurinn
í Skaftafelli. Skeiðará breiðir úr sér á þúsund ferkílómetra víðáttu
Skeiðarársands þar sem skúmurinn ræður ríkjum.
Mórauður jökullækur hefur brotið sér leið framan við Hafrafell
og neitar að slást í lið með stórfljótunum, að minnsta kosti til
að byrja með. Austur á Breiðamerkursandi verða sífellt til nýir
jakaskúlptúrar sem brotna úr skriðjöklinum og fljóta fram í Jökuls-
árlónið. Brimaldan og jakaframburðurinn naga stöðugt úr mjóu
haftinu milli lóns og sjávar um leið og stutt en vatnsmikil Jökulsá-
in ber aur og sand í haftið.
ÞÝSKI togarinn Mars
strandaði á Fagurhólsmýr-
arfjöru í apríl 1930. Veður
var gott þegar skipið
strandaði en talið að menn
hafi ekki gætt að því fyrr
en of seint hve ströndin
þarna er viðsjárverð. Skip-
verjar björguðust allir og
komust fljótlega í land.
Fáum dögum seinna kom
þýskt eftirlitsskip og sótti
skipbrotsmennina. Ekki
var reynt að bjarga skipinu
en verðmæti úr því boðin
upp. Öræfingar keyptu
timbur og ýmislegt smádót
en koparinn úr skipinu var
seldur til Hafnarfjarðar.
i