Morgunblaðið - 22.09.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1996 B 19
ATVIN NIMAUGL YSINGA R
Hárgreiðslufólk
Við leitum að tveimur hressum hársnyrtum
til starfa í Kaupmannahöfn. Hringið og talið
við Jan eða Gitte í síma 31546243.
NEWHAIR
Bóksala
Sölufólk óskast strax í tímabundin verkefni.
Kvöldvinna - rífleg sölulaun.
Upplýsingar í síma 561-0055.
ORMSTUNGA
BÓKAÚTGÁFA
Lyfjafræðingur
- Akureyri
Lyfjafræðing vantar til starfa í Stjörnu
Apóteki.
Upplýsingar í síma:
463-0452 (09-18 Jónína eða Bergþór),
461-3285 (18-20 Bergþór).
Treystir þú þér
til að takast á við krefjandi sölustarf?
Starf sem gefur þér mikla framtíðarmögu-
leika. Starf sem býður upp á ferðalög erlend-
is. Þetta er starf fyrir þá sem vilja setja sér
takmark í lífinu. Reynsla af sölustörfum ekki
skilyrði þar sem við veitum faglega þjálfun.
Bíll er nauðsynlegur.
Pantaðu viðtal í síma 555 0350.
Hitaveita Reykjavíkur
Hitaveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða
í eftirfarandi störf.
Vélfræðingur
í starfinu felst rekstur, stjómun, eftirlit og
viðhald búnaðar á Nesjavöllum ásamt eftirliti
með fasteignum og virkjunarsvæði í íjarveru
staðarhaldara.
Við leitum að vélffæðingi sem getur starfað
sjálfstætt og er góður í liðsvinnu.
Rafvirki
í starfinu felst rekstur, viðhald og eftirlit
með búnaði Nesjavallarvirkjunar ásamt
viðhaldi rafbúnaðar fasteigna.
Við leitum að rafvirkja sem er góður í
liðsvinnu og getur starfað sjálfstætt.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Dalmann.
Með allar umsóknir verður farið með sem
trúnaðarmál og þeim öllum svarað.
Starfsfólk óskast
Sundanesti opnar nýjan söluskála við
Sæbraut laugardaginn 28. september nk.
Óskum eftir starfsfólki í eftirtalin störf:
í veitingasal, söluturn, eldhús og smurbrauð.
Vaktavinna.
Upplýsingar í síma 553 1312 frá 9-12,
mánudag og þriðjudag.
Húsvörður
Viljum ráða handlaginn húsvörð til starfa hjá
stóru og traustu þjónustufyrirtæki í borg-
inni. Starfið hentar vel vinnusömum iðnaðar-
manni á aldrinum 40-55 ára með létta lund
og þjónustuvilja.
Umsónir sendist til afgr. Mbl. merkt: „H-
15301“ fyrir 27. sept. nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
Sölumaður
Þekkt innflutningsfyrirtæki í borginni óskar
að ráða dugmikinn og drífandi sölumann til
sölu á almennum skrifstofutækjum. í boði
er gott framtíðarstarf hjá öflugu fyrirtæki.
Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 27. september.
CUÐNT TÓNSSON
RÁDCIÖF & RÁDNINGARÞIÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 5-62 13 22
Kögun hf. annast rekstur og viðhald á vél- og
hugbúnaði íslenska loftvamarkerfisins á
Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða umfangsmikið
tölvu- og fjarskiptakerfi byggt á margs konar
vélbúnaði. Kerfið vinnur úr fluggögnum ffá ratsjám
og öðram samskonar kerfúm í öðrum löndum.
Kögun hf. óskar eftir að ráða starfsmenn í
eftirtaldar stöður:
Rafmagnsverk- / tæknifræðingur
Starfið felst í að hafa yfirumsjón með
úrvinnslu á breytingum á tölvu- og
fjarskiptabúnaði kerfisins. Umsækjendur þurfa
að vera tilbúnir að takast á við krefjandi
verkefni og geta unnið sjálfstætt. Góð
enskukunnátta er skilyrði.
Kerfisstjóri
Starfið felst í umsjón og daglegum rekstri
einkatölva og almennri netumsjón. Góð
enskukunnátta er skilyrði. Umsækjandi þarf
að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Dalmann.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
“Vélffæðingur 465” eða “Rafvirki 470” fyrir
1. október n.k.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
"Rafinagnsverk-/tæknifræðingur" eða
"Kerfisstjóri" fyrir 1. október n.k.
Framreiðsla -
þjónustustarf
Óskum eftir nemum í framreiðslu og aðstoð-
arfólki í veitingasal.
Upplýsingar á Hótel Óðinsvéum í síma 562
1934 og á staðnum mánudaginn 23. sept.
kl. 16.00-19.00.
Bakarí
Óskum að ráða ábyrga og duglega mann-
eskju til afgreiðslustarfa. Vinnutími 13.30-
19.00 virka daga ásamt nokkurri helgar-
vinnu. Ennfremur höfum við áhuga á að ráða
manneskju til að leysa af eftir þörfum við
afgreiðslu og pökkun. Óreglulegur vinnutími.
Umsóknum óskast skilað til Mbl. fyrir 25.
september nk. merktar: „B - 1414“.
Framkvæmdastjóri
Knattspyrnufélagið Víking vantar fram-
kvæmdastjóra. Leitað er að duglegum, fram-
kvæmdasömum og sjálfstæðum starfsmann,
sem hefur getu og hæfileika til þess að tak-
ast á við krefjandi úrlausnarefni.
Umsóknum skal skila til afgreiðslu Mbl. fyrir
7. október merktum: „Víkingur - 842“.
LANDMÆLIIUGAR
ÍSLANDS
1956 - 1996
Umsjónarmaður
Tölvukerfis
Landmælingar íslands óska eftir að
ráða starfsmann til að hafa umsjón
með tölvukerfi stofnunarinnar.
Starfsvið hans verður að annast
daglegan rekstur tölvukerfa og veita
notendum aðstoð. Nánar tiltekið felst
starfið í aðstoð við notendur og
fræðslu um notkun tölvanna, umsjón
með afritunartöku og öryggismálum
tölvukerfisins auk þess að sjá um
bilanaþjónustu tölvubúnaðar ásamt
uppsetningu búnaðar er tengist tölvu
kerfinu.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur
séu með hagnýta menntun á sviði
tölvumála og/eða reynslu af tölvum
og tölvunotkun. Æskilegt er að
umsækjendur séu með menntun í
tölvunarfræði, kerfisfræði, tæknifræði
eða hafi aðra sambærilega
menntun.Umsækjendur þurfa að hafa
haldbæra reynslu og þekkingu í Unix
og Windows umhverfi ásamt forritum
sem því tengist, s.s. Word, Excel.
Einnig er æskilegt að umsækjendur
hafi þekkingu á hugbúnaðarkerfinu
Lotus Notes og bókhaldskerfinu Fjölni.
Starfsreynsla er ennfremur æskileg.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsing-
ar fást á skrifstofu Guðna Jónssonar,
Háteigsvegi 7 og skal umsóknum skilað á
sama stað.
Umsóknarfrestur er til 27. september n.k.
CUÐNT TÓNSSON
RADGjOF & RADNINCARNONUSTA
HÁTEIGSVEGI7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22