Morgunblaðið - 06.10.1996, Síða 22
22 B SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N UA UGL ÝSINGAR
Úthlutunarnefnd
Kvikmyndasjóðs
Kvikmyndasjóður íslands auglýsir eftir
áhugasömum einstaklingi til setu í úthlutun-
arnefnd sjóðsins. Um er að ræða hlutastarf
til ágústloka 1997 en helsta verkefni nefndar-
innar fer fram frá nóvember 1996 til janúar-
loka 1997. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu
og áhuga á kvikmyndum og kvikmyndafram-
leiðslu.
Umsóknum skal skilað til Kvikmyndasjóðs
íslands, Laugavegi 24, 101 Reykjavík, merkt-
um: „Úthlutunarnefnd 1997“.
SÍMAÞlðNUSTA
Laus eru til umsóknartvö 1/2 dags störf við
símaþjónustu hjá öflugu iðnfyrirtæki.
Störfin felast í símsvörun á aðalskiptiborði
fyrirtækis ásamt léttum skrifstofustörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Enska og eitt Norðurlandamál.
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
• Reynsla af skrifstofustörfum ásamt
tölvukunnáttu æskileg.
• Þjónustulund og góð framkoma.
Vinnutími frá kl. 8:15-12:30 eða 12:30-17:00.
Reyklaus vinnustaður.
Nánari upplýsingar veitir Auður Bjarnadóttir hjá
Ráðgarði hf. frá kl. 9 -12. í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs
merktar: “Símaþjónusta" fyrir 14. október n.k.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofunni.
RÁÐGARÐUR hf
SIJÓRNUNAROGREKSIRARRÁElGjCSF
Furugarfil B 108 Raykjatlk Slml 533 1800
Fax: 533 1808 Natfang: rgmldiunOtroknet.l*
HeimaafAa: http://www.treknot.lB/radwardur
ísafjarðarbær
Bæjarritari
ísafjarðarbær auglýsir lausa til umsóknar
stöðu bæjarritara.
Starfssvið:
• Staðgengill bæjarstjóra.
• Umsjón með skrifstofuhaldi bæjarins
• Umsjón með starfsmannahaldi
• Annast samskipti við íbúa og starfsmenn
einstakra deilda og stofnana bæjarfélags-
ins.
• Tekur við ábendingum og fyrirspurnum
vegna þjónustu bæjarsjóðs við íbúa og
hefur forgöngu um úrlausn mála eins
og efni standa til hverju sinni.
Um krefjandi og áhugavert starf er að ræða
í nýju og sameinuðu sveitarfélagi.
Við leitum að háskólamenntuðum einstakl-
ingi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
af sveitarstjórnarmálum. Viðkomandi þarf að
geta hafið störf sem fyrst. Umsókn skal
senda Rekstri og Ráðgjöf ehf., sem jafnframt
veitir nánari upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 10. október nk.
Rekstur og Ráðgjöf ehf.
Austurstræti 14, Ráðgjöf og ráðningaþjónusta
Pósthólf 261, 121 Reykjavík. fyrir sveitarfélög og
Sími 562-6530, faxríkisstofnanir.
562-6532.
Afríka þarfnast þfn!
Þróunarhjálp frá þjóð til þjóðar leitar að sjálfboðaliðum í 6 mánaða
staf í Mósambík:
- Kennslu í íþróttaskóla fyrir götubörn.
- Félagslegt starf í “Barnabæ".
- Störf við byggingu sveitaskóla.
Engrar sérstakrar kunnáttu er krafist, einungis þor og áhugi á að
vinna þar sem þörfin er!
Nauðsynlega þekkingu færð þú á 5 mánaða námskeiði ( Den rejs-
ende Hejskole á suður-Sjálandi, Danmörku, sem byrjar í apríl eða
september 1997. Eftir starfiö í Afríku er 4 vikna námskeið, þar sem
unnið er úr gögnum og upplýsingum.
Kynningarfundur verður í Reykjavík í október.
Skrifið eða sendið símbréf og fáið nánari upplýsingar.
Símbréf 00 45 53 82 55 89 sendist til Lotte Ladegaard.
Den rejsende Hejskole pá Sydsjælland,
Lindersvoldvej 5, 4640 Fakse, DK.
LANDSPÍTALINN
.../' þágu mannúðar og vísinda...
HÚÐ- OG KYNSJÚKDÓMADEILD
Á VÍFILSSTÖÐUM
Deildarlæknir/aðsfoðarlæknir
Laus er til umsóknar staða deildarlæknis/að-
stoðarlæknis við húð- og kynsjúkdómadeild
Landspítalans á Vífilsstöðum. Um er að ræða
50% starf og vaktir á lungnadeild. Staðan
er laus nú þegar.
Nánari upplýsingar veitir Jón Guðgeirsson
forstöðulæknir í síma 560 2324.
HJARTA- OG LUNGNASKURÐDEILD
Hjúkrunarfræðingur
Stöður hjúkrunarfræðinga á deild 11-G eru
lausar til umsóknar. Deildin er hjarta- og
lungnaskurðdeild með 22 rúmum. Hjúkrunar-
form deildarinnar er einstaklingshæfð hjúkr-
un. í boði er aðlögunartími eftir þörfum hvers
og eins undir leiðsögn reyndra hjúkrunar-
fræðinga. Nánari upplýsingar um starfsemi
deildarinnar veita Steinunn Ingvarsdóttir
deildarstjóri í síma 560 1340 og Kristín Sop-
husdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma
560 1300.
GEÐDEILD LANDSPITALANS
Hjúkrunarfræðingur
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á deild
33A og 32C á geðdeild Landspítalans. Ráðn-
ingartími og starfshlutfall er samkomulags-
atriði. Aðlögunartími, fræðsla og góður
starfsandi. Upplýsingar veitir Jóhanna Stef-
ánsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma
560 1750 eða 560 2600 og einnig deildar-
stjórar á viðkomandi deildum.
APOTEK LANDSPITALANS
Lyfjatæknir
Lyfjatæknir óskast til starfa í Apótek Land-
spítalans. Um er að ræða 100% starf. Ráðið
verður í stöðuna sem fyrst. Umsóknarfrestur
er til 20. október nk. Nánari upplýsingar veitir
Elín Theodórs deildarlyfjatæknir í síma
560 1514.
ONÆMISFRÆÐIDEILD
Líffræðingur
Laus er staða líffræðings við ónæmisfræði-
deild Landspítalans. Um er að ræða fullt starf
og verður meginverkefnið að annast vissar,
sérhæfðar þjónusturannsóknir. Reynsla í blóð-
töku, frumueinangrun, frumuræktun og notkun
mótefna til að greina frumur er æskileg.
Starfsmaður mun sjá um daglegan rekstur
þjónustunnar, ábyrgjast aðföng rekstrarvöru
og annast skráningu niðurstaðna í samráði við
sérfræðinga deildarinnar.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun,
fyrri störf og reynslu, sendist til forstöðulækn-
is deildarinnar fyrir 20. október nk.
Upplýsingar veita Helgi Valdimarsson, for-
stöðulæknir og Ásbjörn Sigfússon, sérfræð-
ingur í síma 560 1960.
Heilsugæslulæknar!
Staða heilsugæslulæknis við heilsugæslu-
stöð Raufarhafnar er laus til umsóknar nú
þegar.
Um er að ræða H1 stöð með staðarsamninga.
Aðstaða, sem í boði er, er m.a. einbýlishús,
bíll með síma og boðtæki.
Nánari upplýsingar á heilsugæslustöðinni
í síma 465 1145.
Aðstoð
Aðstoð óskast í 50% starf á tannlæknastofu
miðsvæðis í Reykjavík. Viðkomandi þarf að
vera heiðarlegur, hress og samviskusamur.
Stofan er reyklaus vinnustaður.
Umsóknir, með upplýsingum um aldur og
fyrri störf, sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
15. október, merktar: „T - 1500.“
Leikskólar
Garðabæjar
Leikskólakennari eða starfsmaður með aðra
uppeldismenntun og reynslu af starfi með
börnum óskast til starfa á leikskólann Lunda-
ból.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma
565 6176.
Leikskólar Garðabæjar eru reyklausir
vinnustaðir.
Leikskólafulltrúi.
SKRIFSTOFUSTJÓRI
SIGLUFJÖRDUR
Siglufjarðarkaupstaður óskar eftir að ráða í starf
skrifstofustjóra (bæjarritara.) Skrifstofustjóri er
yfirmaður skrifstofuhalds bæjarins. Hann er
staðgengill bæjarstjóra, situr fundi bæjarráðs og
bæjarstjórnar ásamt ritun fundagerða.
Starfssvið
• Umsjón daglegra fjármála, bókhalds,
reikningagerðar og innheimtu.
• Gerð greiðsluáætlana og kostnaðareftirlit.
• Ábyrgð á launavinnslu og skýrslugerð.
• Ýmis sérverkefni í samráði við bæjarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun og/eða reynsla á sviði rekstrar og
stjórnunar.
• Röggsamur stjórnandi sem á auðvelt með
mannleg samskipti.
• Frumkvæði og ábyrgð í starfi.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon hjá
Ráðgarði frá kl. 9-12 í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: “Siglufjörður” fyrir
19. október nk.
RÁÐGARÐURhf
SIJÓRNUNAROGREKSIEARRÁEX3JÖF
Furugerðl 5 108 Reykjavlk Siml 533 1800
Faxi 833 1BQ8 Natfang; rgmldlunttraknat.la
httpi//www.tr«kn*t.l«/r«do«rdur