Morgunblaðið - 27.10.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996 E 11
INNAN VEGGJA HEIMILISINS
Nútímaeldhúsið
SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- Parfœrðu gjöfina -
Vantarbara
vél til að
leggjaáborð
BRAUÐVÉLIN hefur staðið í
ströngu síðustu tvo tímana og nú
lætur hún vita með suði að bakstri
sé lokið. Steikin er tilbúin á borð-
inu og bakaraofninn í óðaönn að
þrífa sig sjálfur eftir eldamennsk-
una. Eldavélin sá um að sjóða
kartöflurnar á mettíma og spara
orku í leiðini. Hún gætti þess sjálf
að hitastigið væri mátulegt á kart-
öflunum og hringdi bjöllu til að
láta vita að þær væru soðnar.
Heimilisfólkið þurfti að vísu að
skola af agúrkunum, kálinu og
tómötunum og setja í matvinnslu-
vélina en þessi hljóðláta og vand-
virka vél sá svo um að saxa græn-
metið niður í nákvæmlega jafnar
ræmur í salatið.
Ekki er enn komin á markað
vél sem leggur á borð en eftir
matinn tók uppþvottavélin við
óhreina leirtauinu og skilaði því
skínandi hreinu. Matreiðslan var
einföld og samkvæmt áætlun úti-
vinnandi fólks tók hún skamman
tíma.
Fægið plöturnar með
þurrum, fínum sandi
Tímarnir breytast og eldhúsin
með ef svo má að orði komast.
Nútímafólki fallast eflaust hendur
þegar það flettir í gegnum kvenna-
fræðarann sem var gefinn út árið
1911. Höfundur bókarinnar Elín
Jónsson sem er að ráðleggja hús-
mæðrum með þrif og eldamennsku
segir: „Torfgólf skal sópa og suðu-
vélar skal hreinsa með jöfnu milli-
bili. Þegar þær eru hreinsaðar
skal gjöra það vel pg skafa sótið
af hveijum hring. Á hveijum degi
þegar búið er að elda skal þvo vel
af suðuvélinni og bursta hana úr
ofnsvertu einu sinni í viku. Pípurn-
ar skulu burstaðar úr ofnsvertu
en séu þær málaðar er aðeins
þurrkað af þeim. Áður en lagt er
að á morgnana skal taka öskuna
vel... Plötur og skúffur úr bakara-
Morgunblaðið/Halldór
LEIÐA til að létta fólki heim-
ilisstörfin er sífellt Ieitað.
aðeins pottar. Eldunartíminn er
skemmri og hitastillingin nákvæm.
Eini gallinn er að þessar hellur
hafa verið fremur dýrar fram til
þessa.
Flokkun á heimilissorpi
Ein nýjung i eldhúsum undan-
farið er kannski ekki tímasparandi
fljótt á.litið en kemur til með að
vera það í framtíðinni. Þetta er
flokkunarkerfi á heimilissorpi sem
æ fleiri taka í notkun. Sérstakar
fötur eru þá hafðar fyrir lífrænan
úrgang, pappír, einnota umbúðir
og svo framvegis í stað þess að
henda öllu í eitt og sama ílátið.
Að sögn Erlings Friðrikssonar eig-
anda Eldaskálans fannst fólki
flokkun á sorpi fráleit fyrir nokkr-
um árum. „Núna telja allir sjálf-
sagt að taka flokkun á sorpi með
í reikninginn þegar nýtt eldhús er
skipulagt.
ofni skal fægja úr þurrum,
fínum sandi."
ískyggilegar drunur
í ísskápum
Útlit innréttinga breytist
frá ári til árs, stundum eru
þær gamaldags, stundum
framúrstefnulegar og allur
gangur á hvaða viður, litir
og eftn er í tísku hveiju
sinni. Á hvaða veg sem
útlitið er miðast þó allar
tækninýjungar í eldhúsinu
við að létta fólki störfin.
Rafmagnseldavélin leysti
kolaeldavélina af hólmi
og eftir árið 1950 fóru
ísskápar að verða al-
menningseign. Þeir voru
stórir og plássfrekir og
heyrðust reglulega
ískyggilegar drunur í
mörgum þeirra. Þá
bættist það við heimilis-
störfin að affrysta ís-
skápinn en það þótti húsmæðrum
í þá daga lítið mál miðað við þau
þægindi sem hann bauð uppá.
Örbylgjuofninn markaði
síðustu tímamót
„Fyrir um það bil ellefu eða
tólf árum fór ég að kenna á ör-
bylgjuofn en ég hafði kynnst þeirri
nýjung í Bretlandi. Líklega er ör-
bylgjuofninn síðasta tækninýjung-
in í eldhúsi sem hefur markað
tímamót. Örbylgjuofninn gjör-
breytti eldamennsku hvað varðar
tímasparnað segir Dröfn Farest-
veit hússtjórnarkennari sem rekur
heimilistækjaverslunina Einar
Farestveit með fjölskyldu sinni.
„Öldruð kona sótti hjá mér nám-
skeið og hún sagði að þetta væri
sú nýjung sem kæmist næst því
þegar rafmagnseldavélin leysti
kolavélina af hólmi. Ég varð sjálf
gagntekin af örbylgjuofninum á
sínum tíma og enn í dag nota ég
NÚ ER hægt að fá skúffur
með margvíslegum fötum
í svo auðveldara sé að
flokka heimilissorplð.
hann mjög mikið við matreiðslu",
segir Dröfn.
Bakaraofnarnir með
sj álfhr einsibú naði
Dröfn bendir á að alltaf sé ver-
ið að leita leiða til að létta fólki
eldhússtörfin. „Það er stefna fram-
leiðenda að hafa heimilistæki stíl-
hrein þannig að þrifnaður sé sem
auðveldastur og í dag eru margir
ofnar búnir sjálfhreinsibúnaði."
Margir eru farnir að blanda saman
venjulegum hellum og gashellum.
Kannski eru svokallaðar span-
suðuhellur það sem koma skal.
Þá er segulkraftur notaður sem
hitagjafi, suðufletir hitna ekki,
NYIR TIMAR
NÝ FORM
NÝR MYNDALISTI
HAUST 0G VETUR.
GÓÐ HÖNNUN
OG HAGKVÆMNI.
habitat
Laugavegi 13 Slmi 562 5870
Opið lau. 10-16
kaffikönnum
CaféRoma
_ HD 7256
Vonduð kanna með
leka loka.
Slekkur á sér sjálfkrafa.
Café Master
Þægileg, einföld og ódýr. HD7412
3.390 kr.
Café Gourmet
HD 5400
Falleg kaffivél sem sýöur
vatniö áður en hún hellir upp á.
Auðvelt er að færa hana til og
hitahellan heldur kaffinu
Café Roma Tiierm
Hellir upp á ilmandi kaffi HD 7262
beint í hitabrúsann.
L
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt.
©