Morgunblaðið - 27.10.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1996 E 13
INNAN VEGGJA HEIMILISINS
SVIPMYNDIR af stofu og baðherbergi.
GANGURINN hefur tekið al-
gerum stakkaskiptum frá því
sem hér sést.
ALLIR þröskuldar voru teknir af gólfum þar sem
í húsinu býr fjölfatlað barn.
margar íbúðir í blokkum eða rað-
húsum eru fullbúnar þegar þeim
er skilað, sem ekki er mjög gott
fyrir okkar stétt. Þetta kemur auð-
vitað verðinu niður en þýðir að við
erum komin út í þetta Evróblokk-
ar-fyrirkomulag þar sem allt er
eins og minni möguleikar fyrir fólk
að leika sér svolítið. Mér finnst
þetta synd því það stöðvar þróun-
ina og ég hefði viljað að stærri
byggingaraðilar væru í farar-
broddi, þróuðu eitthvað nýtt og
kæmu með aðrar lausnir og ný
byggingarform. Ég sá sýningu í
Danmörku í tengslum við menning-
arborgina sem hét „Búið í borg“.
Þar voru sýndar nokkur þúsund
íbúðir í nýju hverfi í Kaupmanna-
höfn þar sem bólaði á nýjum gerð-
um og nýrri hugsun. Þessa hef ég
saknað hér í tengslum við hönnun-
ar- og byggingardaga en bygging-
ardagar hér eru ekkert annað en
söludagar fyrir byggingariðnað-
inn.“
- Hvemig er hönnun hér frá-
brugðin?
„Efnisvalið hjá okkur er hlýlegra
en sunnar í álfunni þar sem lofthit-
inn kallar á kaldari liti. Fólk kynd-
ir til dæmis herbergi sem málað
er rautt eða appelsínugult minna
en blátt herbergi. Við þurfum aðra
liti hér og margir sem hafa málað
með bláu að sumri til vakna upp
við vondan draum í janúar. Ef
maður vill hafa svalt í svefnher-
bergi er allt í lagi að mála það blátt
en öðru gegnir til dæmis um stofu.
Þetta fer síðan líka eftir tísku og
hvítu tímabilin vara alltaf miklu
lengur er þau skrautlegu. Jarðlitir
eru dálítið í tísku núna, gulur, rauð-
ur litur og þessi gamli flösku-
græni, ekki síst á innréttingum, því
hann er svo dimmur."
- Hvað með brúna litinn?
„Það er langt síðan hann var í
tísku, kannski 15-20 ár, og kaffi-
brúnir, hraunaðir veggir voru út
um allt. Guði sé lof að það er búið.
Núna felst grófa áferðin meira í
steypu-brútalisma sem gilti í nokk-
ur ár. Fólk skildi húsin eftir ópúss-
uð og mótaförin áttu að sjást. Þetta
hentar voðalega fáum auk þess sem
ekki er gott fyrir húsin að vera
ópússuð vegna rakadrægni. Hins
vegar er þetta í sjálfu sér mjög fiott
og ef fólk vill yfirfæra þennan stíl
á heimili þarf húsnæðið að vera
mjög stórt og hátt til lofts, til dæm-
is með tveggja hæða glugga í stof-
unni. Síðan má nota gamalt skatt-
hol og persneskt teppi til að gera
hlýlegra.“
- Hvaða litur er uppáhalds litur-
inn þinn?
„I raun og veru er hvítt í mestu
uppáhaldi hjá mér. Maður verður
leiður á hinu og hlutir eins og
málverk njóta sín langbest á mjög
ljósum grunni. En þegar ég vel
liti á herbergi hjá fólki tek ég mið
af þeim hlutum sem það á. Maður
lendir eiginlega aldrei í því að fá
alveg nýtt hús og fara með
kúnnanum út að kaupa húsgögn.
Það hefur kannski gerst tvisvar
eða þrisvar en hættan er sú að
innbúið verði örlítið sterílt og
stemmningin meira eins og í hús-
gagnaverslun. Það vantar per-
sónulega hluti og þá þróun sem
verður þegar dóti er safnað í mörg
ár. Annars er til umboð fyrir allan
fjandann hér en það sem er til á
lager er kannski dálítið einhæft."
- Hvað er efst á baugi núna?
„Það er ekkert nýtt undir sól-
inni. Byltingar verða mjög sjaldan
og þá helst í kringum nýja tækni
eða nýtt efni, samanber plastið
sem kom fram á sjöunda áratugn-
um. Þá var það nýtt að geta steypt
húsgögn úr plasti og allir voru í
því að teikna plasthúsgögn. Þetta
var mjög frjótt tímabil. Núna er
meira um hægfara þróun að ræða
og alls engin bylting. Náttúruvæni
stíllinn er talsvert áberandi og
kemur fram á ýmsan hátt. Nátt-
úrulínan byrjaði í gólfefnum fyrir
fimm til sex árum. Þá varð aftur-
hvarf til linoleum-dúks og parket-
ið byrjaði að vera olíuborið, svo
dæmi séu tekin. Þjóðfélagsum-
ræðan hefur mikil áhrif á hönnun
almennt, hvort um er að ræða
iðnhönnun eða innanhússhönnun.
Innanhússhönnun er 90% handverk
og 10% list og listin verður alltaf
fyrir áhrifum af umræðunni. Þegar
náttúruvemd og endurvinnsla kem-
ur til umræðu sýnir það sig í hönn-
uninni, þótt stundum sé um plat
að ræða.
- Veistu hvað þú ert búinn að
vera með marga kúnna frá því þú
byrjaðir?
„Nei, guð minn góður. Núna er
ég að vinna við verk númer 728
en ég byrjaði ekki að númera verk-
efnin fyrr en ég var búinn að starfa
í 5-6 ár. Það segir heldur ekki allt
því sumt er minni háttar og annað
getur tekið hálft ár. Ég hef því
ekki hugmynd.“
- Koma einhveijir aftur?
„Sem betur fer gera einhveijir
það og það hefur komið fyrir að
ég hafi teiknað fyrir sama fólkið,
jafnvel þrisvar. Maður fylgir því frá
fyrstu íbúðinni í stóra einbýlishúsið
og þaðan aftur í blokk þegar fjöl-
skyldan minnkar aftur.“
- Hvað fer mest í taugarnar á
þér?
„Það sem kreppan hefur eyðilagt
mest er gæðaskyn okkar á öllum
sviðum. Það er alltaf verið að leita
tilboða og pína niður verð en i raun
er verið að bera saman epli og app-
elsínur. Verkkunnáttan hefur því
farið niður á við. Ég held að við
verðum mörg ár að jafna okkur á
þessu. Þetta gildir til dæmis um
smíði innréttinga og þú sérð ekki
það sama í dag og fyrir tíu ámm
hvað varðar frágang því margir era
orðnir samdauna þessari spam-
aðarhugsun. Kúnninn veit oft ekki
betur. Menn gera lág tilboð til þess
að fá verkin en skila síðan mis-
jafnri vinnu og þetta gildir jafnvel
í sérsmíðuðum íbúðum. Þess vegna
finnst mér frábært að fá til mín
fólk sem strýkur hendinni bakvið
og undir kanta og segir: Nei, þetta
er ekki í Iagi.“
Sœtir sófar
d óviðjafnanlegu verði
HÚSGAGNALAGERINN
Smiðjuvegi 9 (gul gata)-Kópavogi-simi 564 1475 Opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-14.
D
SEVERIN CAFE CAPRICE kqffivélin
sýður vatnið jyrir uppáhellingu.
Hefur hlotið ótal viðurkenningar
Lagar 8 stóra bolla eða 12 litla.
Vapotronic suðukerfi.
Innbyggð snúrugeymsla.
1400 W.
Sér rofi fyrir hitaplötu.
Dropastoppari.
Yfirhitavörn.
Glæsileg
nútímahönnun
- engri lík.
Tilboðsverð
nú aðeins
kr. 9.975 stgr.
REYKJAVÍKURSVÆÐI: Byggt og búið, Rafha, Suðuriandsbraut, H.G. Guðjónsson, Suðurveri, Húsasmiðjan,
Skútuvogi, Glóey, Ármúla 19, Rafbúðin, Álfaskeiði 31, Hafnarf., Miðvangur, Hafnarfirði. SUÐURNES: Staðafell hf.
Keflavik, Samkaup, Keflavík, Rafborg, Grindavik. VESTURLAND: Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi, Trésmiðjan
Akur, Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgamesi, Blómsturvellir, Hellissandi, Versl. Hamar, Grundarfirði, Versl. E.
Stefánssonar, Búðardal. VESTFIRÐIR: Kf. Króksfjarðar, Króksfjarðamesi, Skandi hf., Tálknafirði, Kf. Dýrfirðinga,
Þingeyri, Laufið, Bolungarvík, Húsgangaloftið ísafirði, Straumur hf., ísafirði, Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík.
NORÐURLAND: Kf. Hnitfirðinga, Borðeyri, Kf. V-Húnvetinga, Hvammstanga, Kf. Húnvetninga, Blönduósi, Kf.
Skagfirðinga, Sauðárkróki, KEA, Akureyri, og útibú á Norðuriandi, Kf. Þingeyinga, Húsavík, Kf. Langnesinga,
Þórshöfn. AUSTURLAND: Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði, Kf. Héraðsbúa, Seyðisfirði, Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum,
Rafalda, Neskaupstað, Kf. Héraðsbúa, Reyðarfirði, Kf. Fáskrúðsfjarðar, Kf. A-Skaftfellinga, Djúpavogi, Kf.
A-Skaftfelinga, Höfn. SUÐURLAND: Kf. Árnesinga, Vik, Kf. Rangæinga, Hvolsvelli, Kf. Rangæinga, Ruðalæk,
Versl. Mosfell, Hellu, Reynistaður, Vestmannaeyjum, Kf. Ámesinga, Selfossi.
Einar
Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, símar 562-2901 og 562-2900.
Þvottavél
og þurrkari.
Heildarbrelidd 80 cm - Báðarvélar
geta unniö
samtímis.
Samstæða
kr. 69.900 slgr. j
Purrkari Tekur 4,5 kg af þvotti. Veltir fram og aftur. Tvöföld
hitaeinangrun. Forritanlegur tímastillir. Topphlaöin/Hámarksending.
Þvottavél 800 snúninga vinda tekur 5 kg af þvotti. 18 þvottakerfi.
Stiglaus hitastilling. Sérstakt uilarþvottakerfi. Stiglaus vinda 400-
1000 sn. Topphlaðin, 2 öxlar við vindu sem tryggja hámarksendingu.
IfW
kr. 76.600 stgr. \
wmmmmmmmmmmmmm^
Þvottavél til innbyggingar
1000 snúninga vinda tekur 5 kg
af þvotti 18 þvottakerfi.
Þvottavél og sambyggöur
þurrkari. Þvottavél tekur 5 kg af þvotti
1200 snúninga vinda, 14 þvottakerfi.Stilling
fyrir samfelldan þvott og þurrkun.
2 ára ábyrgð
á TEKA
heimilistækjum
1000 sn.
Verslun
fyrir alla
kr. 47.700 stgr. j
Þvottavél 1000 snúninga vinda tekur 5 kg
af þvotti. 18 þvottakerfi. Stiglaus hitastilling.
Stiglaus vinda 400-1000 sn. Rafmagnsvatns-
öryggi. Sérstakt ullarþvottakerfi. Topphlaðin.
2 öxlar við vindu sem tryggja hámarksendingu.
H 85 B 40 D 60 cm.
Síöumúla 34 (Fellsmúlamegin). S. 588 7332. OPIÐ: MANUD. - FOSTUD. 9-18. LAUGARD. 10-14